Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
Fréttir
Ferðamálasjóði
stefnt fyrir okur
- dráttarvextir sjóösins sagöir allt aö tvöfalt hærri en vaxtalög leyfa
Þórður Stefánsson hefur stefnt Ferðamálasjóði fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Hann telur dráttarvexti af doliaratengd-
um lánum sjóðsins hafa verið allt að tvöfalt hærri en landslög leyfðu. Framkvæmdastjóri Ferðamálasjóðs segir sjóð-
inn hafa innheimt dráttarvextina í góðri trú og ekki fengið kvartanir eða stefnu fyrr en nú.
DV-mynd E.ÓI
Ferðamálasjóði hefur verið
stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavík-
ur til að svara fyrir meinta okur-
starfsemi við viðskiptavin sinn.
Sjóðurinn hefur áður tapað sams
konar máli fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur og endurgreitt Hótel
Leifi Eiríkssyni bætur. Málið nú
höfðar Þórður Stefánsson veitinga-
maður. Hann telur að dráttarvext-
ir á dollaratengdum lánum Ferða-
málasjóðs hafi verið allt að tvöfalt
hærri en landslög leyfðu og að um
sé aö ræða refsivert brot sam-
kvæmt vaxtalögum. Ferðamála-
sjóður er lítill sjóður. En verði
hann dæmdur fyrir okurvexti má
búast við holskeflu af málum frá
ýmsum úr ferðaþjónustunni en
einnig kunna spjótin að beinast
gegn margfalt stærri sjóðum sem
notað hafa sömu reglur í inn-
heimtu á dráttarvöxtum um langt
árabil.
Þórður Stefánsson sagði i viðtali
við DV að hann hefði fengið lán úr
sjóðnum fljótlega eftir að staöur-
inn var orðinn vinsæll og umtalað-
ur, áður var honum hafnað um
fyrirgreiðslu. Erfitt reyndist að
standa skil á greiðslum af láninu,
en stjómendur sjóðsins tóku því
vel, skuldbreyttu en létu viðgang-
ast að aðeins væra greiddir vextir
og innheimtukostnaður. Þegar
gengið var frá lántökunni treysti
Ferðamálasjóður ekki eigninni í
Bláa lóninu sem veði en fékk veð í
Sólvallagötu 11, æskuheimili Þórð-
ar, þar sem móðir hans bjó. Við lát
móðurinnar kom húsið í hlut
Þórðar.
Reksturinn í Bláa lóninu gekk
verr en skyldi og komst loks í þrot.
Allir kröfuhafar nema Ferðamála-
sjóður féllust á að falla frá uppboði
á eignum hótelsins. Þórður sneri
sér til Guðmundur Jónssonar lög-
manns og kom hann i veg fyrir
nauðungaruppboðið. Tókst Þórði
þá að selja eignina frjálsri sölu og
semja sig út úr gjaldþroti. Eigna-
laus stóðu hann og kona hans eft-
ir en skuldlaus og með óflekkuð
nöfn.
Treysti opinberum aðilum
Þórður segist alltaf hafa treyst
útreikningum á láni sinu, vöxtum
og dráttarvöxtum. Hann taldi að
opinberri stofnun sem innheimti í
opinberum banka væri vel
treystandi. Hann segist hafa leitað
liðveislu Bankaeftirlits, ríkisskatt-
stjóra, ríkissaksóknara og sam-
gönguráðherra en hvarvetna verið
vísað á bug með kröfur sínar.
Hann segir að Ferðamálasjóður sé
enn viö sömu iðju og taki of háa
dráttarvexti af þeim sem lenda i
vanskilum, og þeir séu margir.
Vextir eru frjáls ákvörðun hvers
og eins sem lánar peninga. En
dráttarvextir eru aftur á móti há-
markaðir í vaxtalögunum. Þar
vora þeir oft á tíðum tvöfaldir hjá
Ferðamálasjóði, allt upp í 13-14%
á ári.
Eins innheimta og hjá
öðrum
Snorri Tómasson, framkvæmda-
stjóri Ferðamálasjóðs, segir að uppi
sé ágreiningur og menn takist á.
Hann segir að sjóðurinn hafi inn-
heimt með sama hætti og aörir sjóð-
ir og lánastofnanir og í góðri trú.
Snorri segir að sjóðurinn hcifl engar
kvartanir fengið vegna vaxtamála,
hvað þá stefnur, fyrr en nú. Dollara-
tengd lán hafa verið í meirihluta hjá
sjóðnum.
Formaður Ferðamálasjóðs er
Bjöm Jósef Amviðarson, sýslumað-
ur á Akureyri. Hann segist hafa séð
stefnuna og segir að stefnandinn
vilji fá í hendur uppgjör til að geta
séð hvaða vextir hafa verið reiknað-
ir á hann. Deilan standi um hvort
sjóönum sé heimilt að taka dráttar-
vexti sem 5% álag á samningsvexti,
eða hvort vextir eru teknir sam-
kvæmt dráttarvaxtaákvörðun Seðla-
bankans. Það þýddi í sumum tilvik-
um að vextimir væra lægri en
samningsvextir sjóðsins.
-JBP
Norskt úrvalskyn
DV birti um það frétt
í fyrradag að íslending-
ur, sem að vísu er bú-
settur í Bandaríkjun-
um, hafi óskað eftir
sæði úr norska skíða-
kappanum Birni Da-
hlie en Björn hefur
unniö til fleiri gull-
verðlauna á Ólympíu-
leikum en nokkur ann-
ar skíðamaður.
Þetta kemur ekki á
óvart.
Hviti kynstofhinn er
á undanhaldi. Ekki síst
að líkamlegu atgervi.
Alls staöar eru svartir
að slá hinum hvítu við.
Sjáið körfuboltann í
Bandaríkjunum þar
sem varla sést hvítur
maður. Sjáið frjálsar
íþróttir þar sem ýmist
negrar eða Afríkubúar
era nær einráðir á hlaupabrautunum. í fótboltan-
um er það hending ef hvítur maður sést í erlend-
um liðum.
Það má segja að Bjöm Dahlie sé síðasti móhík-
aninn og síðustu forvöð að bjarga því sem bjarg-
að verður með því að rækta kynstofn Bjöms og
tryggja einhverja afkomendur sem halda uppi
merki hvíta kynstofnins. Ekki kemur það heldur
á óvart að það skuli vera íslendingur sem sér
þessa hættu sem steðjar að hinum norræna kyn-
stofiii enda hefur íslendingum farið aftur á flest-
um sviðum og hefur kannski aldrei verið neinn
töggur í þeim. íslenski stofninn er jú kominn frá
Noregi sem eflaust hefur verið harðgerður og
hetjuskotinn í upphafi en auðvitað hefur þetta
síðan smám saman þynnst út með árunum og nú
þurfum nýja innspýtingu ffá Norðmönnum. Og
nú þiggjum viö ekki sæði úr einhverjum utan-
garðsmönnum og bændalurfum en tökum það
besta sem Norðmenn hafa upp á að bjóða.
Bjöm Dahlie er kannski ekkert gáfumenni en
hann er kappsamur atgervismaður og það er þaö
sem við íslendingar þurfum og hvíti kynstofninn
allur. Davíð sér um góðærið, útgerðarmennirnir
sjá um gróðann og Hannes Hólmsteinn sér um
hina efnahagslegu stefnumörkun og þá vantar okk-
ur ekkert nema harðgerða og hrausta þjóð og hana
fáum við úr sæðinu úr Bimi.
íslensk erfðagreining verður að fá að fylgjast
með þessum sæðisflutningum svo afrek og athafn-
ir og ættarfylgjur þessa norska ofurmennis verði
rakin í réttar átttir og koma í veg fýrir að einhverj-
ir íslenskir aumingjar geti talið það til sinna tekna
þegar afkomendur Björns fara að láta að sér kveða
í skíðagöngum ffamtíðarinnar.
Og sæðið úr honum Birni má ekki fara til hvers
sem er. Það verður að velja rétta móður og hér eru
allir möguleikar á nýju úrvalskyni og ábatasömum
viöskiptum sem Kári Stefánsson hlýtur að nýta sér
með réttri blöndu af góðkynja genum og þá koma
sjúkrasögumar að góðum notum.
Á íslandi má rækta þann hvíta norræna kyn-
stofn sem nasistamir létu sig dreyma um og er
ekkert að vanbúnaði þegar Bjöm Dahlie hefur
samþykkt að selja sæöið úr sér til framsýnna Is-
lendinga. Dagfari
Stuttar fréttir i>v
I Frjálslynda flokkinn
Valdimar Jóhannesson hefur
ákveðið að ganga til liös við
Frjálslynda
flokk Sverris
Hermannssonar
vegna nauðsynj-
ar þess að
mynda öflugan
valkost fyrir
kjósendur í kom-
andi alþingis-
kosningum til að kjósa gegn nú-
verandi fiskveiðistjórnunarkerfi.
Groska.is
Gróska, samtök jafnaðarmanna
og félagshyggjufólks, hefur hafið
rekstur dagblaðs á Netinu sem
gefið er út fimm sinnum í viku.
Útgáfan hófst formlega á mánu-
daginn en þá voru tvö ár liðin frá
stofnun Grósku. Slóðin er
groska.is. Morgunblaðið greindi
frá.
Staða mengunarvarna
Stjóm samtakanna Sólar í
Hvalfirði krefst þess að Hollustu-
vernd ríkisins upplýsi um stöðu
mengunarvarna í verksmiðju
Norðuráls á Grundartanga og að
Vinnueftirlitið birti tölur um
tíðni vinnuslysa og hvernig for-
vörnum í fyrirtækinu er háttað.
Ríkisútvarpið greindi frá.
Rúmlega milljarðs sala
Á kynningarfundi á fyrirtæk-
inu Hans Peter-
sen hf. sagði
Hildur Petersen
framkvæmda-
stjóri að gert
væri ráð fyrir
rúmlega millj-
arðs sölu á
þessu ári. Morg-
unblaðið greindi frá.
Meirihluti útivinnandi
Um 95% dreifbýliskvenna á
Norðurlandi vestra eiga böm, um
93% þeirra era í sambúð og 53%
starfa utan heimilis. Dagur
greindi frá.
Skartgripum stolið
Skartgripum fyrir 1,1 milljón
króna var stolið úr sýningar-
glugga skartgripabúðar Jóhann-
esar Leifssonar á Laugavegi 30 í
fýrrradag. Vitni var að innbrot-
inu sem sagðist hafa sé einn
mann við verknaðinn. Morgun-
blaðið greindi frá.
Tekur við rekstrinum
Stjóm íslenska hugbúnaðar-
sjóðsins hefur gengið til samn-
inga við Landsbanka íslands um
daglegan rekstur og vörslu á eign-
um félagsins. Morgunblaðið
greindi frá.
Kvótinn ekki aukinn
Síldveiðum úr íslenska sumar-
gotsstofninum er að ljúka þar sem
flest skipanna hafa veitt sinn
kvóta en hann var 90.000 tonn.
Jakob Jakobsson fiskifræðingur
segir engar áætlahfr uppi um nýj-
an síldarleiðangur eða aukinn
síldarkvóta. Dagur greindi frá.
Rammalöggjöf um
safnamál
Bjöm Bjamason menntamála-
ráðherra lagði til á ríkisstjórnar-
fundi í fyrradag
að skipuð yröi
nefnd til að und-
irbúa ramma-
löggjöf um
safnamál. Hlut-
verk nefhdar-
innar yrði að
skilgreina þá
safnastarfsemi sem nú er rekin.
Rikisútvarpið greindi frá.
Félag samkynhneigðra
í Háskólanum
Á þriðja tug nemenda í Háskóla
íslands gekk í Félag samkyn-
hneigðra stúdenta, FSS, sem
stofnað var í fyrradag. Um þessar
mundir eru haldnir svonefndir
Jafnréttisdagar á vegum Stúd-
entaráðs Háskólans og era þeir
nú tileinkaðir samkynhneigðum.
Morgunblaðið greindi frá. -SJ