Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
13
Fréttir
KR Sport hf.:
Þrettánda fjölmennasta
hlutafélag landsins
KR Sport hf. er þrettánda stærsta
hlutafélag landsins, hluthafarnir
eru 1.100 talsins og standa bak við
50 milljóna króna hluti, sem þeir
létu skrá sig fyrir hjá Verðbréfa-
stofunni, sem Jafet Ólafsson, eld-
heitur Valsmaður, rekur.
Jafet segir að dreifingin sé mikil
og ljóst að fjöldamargir kaupa af
tryggð við félagið. Þó voru nokkrir
sem treysta á góða arðsemi félags-
ins og vildu nokkrir kaupa meira
en milljón, en það þurfti hins vegar
að skerða heiimikið. Sagan segir að
Suðurnesjamaður einn hafi viljað
kaupa mjög ráðandi hlut í fyrir-
Jafet Ólafsson - hugmyndir voru
uppi um eins konar „yfirtöku" á KR.
tækinu og gerast umsvifamikill í
KR. Jafet staðfestir að nokkrir hafi
viljað kaupa talsvert, en leggur
áherslu á að dreifingin sé mikil,
hlutir yfirleitt upp á 25 til 50 þús-
und krónur.
“Maður heyrði í mönnum úr öðr-
um félögum með spekúlasjónir sem
töluðu um að kaupa þetta allt og
sameina öðrum félögum, svona rétt
eins og gerist á fyrirtækjamarkaðn-
um,“ sagði Jafet. Hann segir að
hlutabréfin í KR Sporti hf. verði
væntanlega ekki föl og allar spek-
úlasjónir um að eignast KR séu út í
hött. Þarna sé harður kjarni að
verða eigandi að hlutafélaginu, eld-
heitir KR-ingar sem láti ekki bréfin
hvað sem gengur á.
Fram hóf hlutafélagsvæðinguna
rétt á undan KR. Fleiri íþróttafélög
eru ekki í þeirri mynd að sögn Jaf-
ets. Hann segir að menn láti þetta
árið líða og skoði reynslu félag-
anna tveggja.
KR-ingar halda áfram að skoða
samvinnu við erlenda aðila sem
sérhæfa sig í rekstri á knattspyrnu-
félögum með samvinnu í huga, til
dæmis varðandi sölu og kaup á
leikmönnum.
-JBP
Sligaðar trjágreinar í Skógum.
DV-mynd NH
Tjóná
trjágróðri
í Skógum
DV, Eyjafjöllum:
í óveðrinu sem gekk yfir land-
ið um helgina hlóðst mikill snjór
á trjágróður í Skógum undir
Eyjafjöllum. Víða eru greinar
brotnar undan þunganum og
ljóst að töluvert tjón hefur orðið í
skógræktinni. -NH
Mikið fjör var á hjónaballinu. DV-mynd ÆK
Sjónvarpsstööin SÝN:
Bjargaði
annálnum
DV, Fáskrúösfirði:
Hið árlega hjónaball Fáskrúðs-
fírðinga var haldið laugardagskvöld-
ið 16. janúar. Um 170 manns voru á
skemmtuninni en þess má geta að
íbúar eru um 600.
Hjónaballið er ein vinsælasta
skemmtunin sem haldin er hér. Nú
sem áður var boöið upp á ýmis
skemmtiatriði þar sem menn gerðu
upp árið í gríni og alvöru.
Skemmtunin hófst á borðhaldi
þar sem boðið var upp á margréttað-
an matseðil frá Hótel Bjargi. Raf-
veitustjórinn okkar, Gunnar Skarp-
héðinsson, hafði nóg að gera við að
slá inn rafmagnið á meðan á borð-
haldi stóð en rafmagn fór nokkrum
sinnum af bænum um kvöldið.
Þess má geta að „annáll ársins",
þar sem sett eru saman myndbrot
tekin við ýmis tækifæri og klippt og
skorin og talsett að nýju þar sem
það á við, var settur saman í Reykja-
vík af Bergkvist Jónssyni, brottflutt-
um Fáskrúösfirðingi. Var annállinn
sýndur við feikigóðar undirtektir.
Það leit nú ekki vel út með að ná
annálnum hingað austur því þegar
senda átti spóluna í flutningabíl var
orðið ófært. Nú voru góð ráð dýr. En
menn dóu ekki ráðalausir heldur
töluðu við starfsmenn sjónvarps-
stöðvarinnar SÝNAR. Þeir einfald-
lega sendu efnið út á dreifikerfl
sínu. Svo voru menn hér fyrir aust-
an sem tóku upp efnið þegar það
birtist og sýndu það svo á skemmt-
uninni um kvöldiö. Þökk sé Sýnar-
mönnum. Þannig fengu margir
.landsmenn óvænta skemmtun sem
horfðu á SÝN þann daginn.
Búið var að ráða hljómsveit frá
Hornafirði til að leika á dansleikn-
um og vegna veðurspár lagði hún af
stað frá Höfn á fóstudaginn en varð
frá að hverfa við Hvalnes vegna veð-
urofsans. Þá var leitað til Jóns Arn-
grímssonar og hljómsveitar hans,
Nefndarinnar, á Egilsstöðum. Hún
komst til Fáskrúðsfjarðar á fóstu-
dagsnóttina þrátt fyrir að Fagridal-
ur væri talinn ófær. Hljómsveitin
lék síðan á dansleiknum við góðar
undirtektir fram á rauða nótt. -ÆK
Stykkishólmur:
Tilboð í efnisvinnslu opnuð
DV.Vesturlandi:
Tiiboð í efnisvinnslu við dreifikerfi
hitaveitu Stykkishólms voru opnuð sl.
fóstudag. Kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á kr. 7,5 millj. króna.
Tilboðsgjafar í vikurefni voru:
Borgarverk kr. 4,6 millj. Vöruflutning-
ar Guðmundar Benjamínssonar kr.
5,5 millj. Vinnuvélar sf. kr. 5,7 millj.
Berglín ehf. kr. 5,8 millj. Kolli ehf. kr.
5,94 millj. Páll Sigurðsson kr. 5,95
millj. Tak ehf. og Stefán Björgvinsson
kr. 8 millj. Bjarni Vigfússon kr. 10,1
millj. Sigurður Hauksson kr. 16 millj.
FrávikstOboð gerðu Kolli ehf. tilboð 1
kr. 3,85 millj. - tilboð 2 kr. 4,2 millj. -
Tak ehf. og Stefán Björgvinsson 6,4
millj,- og B.B. og synir kr. 3,9 millj.
-DVÓ/ÓJ
Frá blaðamannafundi Kristilega lýðræðisflokksins sem haidinn var á Hótel Borg í gær.
DV-mynd Teitur
Kristilegi lýöræöisflokkurinn:
Alþingi ekki sérlega
kristileg stofnun
- segir kosningastjóri flokksins
Árni Björn Guðjónsson húsgagna-
smíðameistari býður enn einu sinni
fram til Alþingis og nú undir nýju
flokksnafni, Kristilega lýðræðis-
flokknum. Ætlunin er að bjóða fram í
Reykjavík og á Reykjanesi og ef til vill
víðar um landið. Guðlaugur Laufdal,
kosningastjóri flokksins, sagði í sam-
tali við DV í gær að ætlunin væri að
fá kjörna 3 til 5 menn, Drottinn muni
sjá til þess að flokkurinn fái raddir á
þingi til að koma á réttlæti í landinu.
Rætt er um að Árni Bjöm muni
skipa efsta sætið í Reykjavík en Guð-
laugur Laufdal og Kolbrún Jónsdóttir,
kona hans, muni verða í efstu sætum
í Reykjanesi, en ekki er þetta afráðið.
Þau Guðlaugur og Kolbrún eru Fíla-
delflufólk og hafa mikið komið við
sögu í þáttagerð fyrir Omega, kristi-
legu sjónvarpsstöðina með þáttinn
Kvöldljós. Guðlaugur hefur starfað
við trúboð í Bandaríkjunum.
„Það þarf meiri iðnað og framleiðni
í landinu. Þeir sem ganga með Guði
þekkja það að við getum beðið Guðs
blessunar og Guðs blessun getur feng-
ið að streyma inn í hin ýmsu málefni.
Og þeir sem ganga fram í þjónustu
fyrir Drottin þeir ganga fram í ná-
ungakærleika," sagði Guðiaugur.
Hann segir að Alþingi sé ekki sérlega
kristileg stofnun.
„Þar hafa setið sömu mennirnir
árum saman þrátt fyrir öll þau mistök
sem þeir hafa gert, milljarðar í loðdýr-
in, fiskeldið og frystihús og hafnar-
framkvæmdir sem að engu er orðið. Á
sama tíma eru alltaf sömu sultarlaun-
in og ekki er hægt að hjálpa konunum
til að vera heimavinnandi og sjá um
börnin. Við viljum sjá fagurt mannlíf,
flölskyldurnar blómstra, og til þess
þurfa konurnar að vera heima að ann-
ast börn og heimili. Það eru allir orðn-
ir leiðir á þessu lífsmunstri," sagði
Guðlaugur Laufdal, kosningastjóri
Kristilega lýðræðisflokksins. -JBP
Þormóður rammi - Sæberg hf.:
Tveir togarar í slipp til Lettlands
DV, Siglufiröi:
Eftir áramót fóru tvö af skipum
Þormóðs ramma-Sæbergs hf., Stálvík
og Sunna, i slipp til Lettlands og eru
þau ekki væntanleg aftur fyrr en í
byrjun mars. Skipin eru gerð út frá
Siglufirði.
Löngum hafa komið hagstæð til-
boð í viðgerðir á skipum frá Póllandi
og ríkjunum sem áður tilheyrðu
Rússlandi og svo var nú um tilboð
Lettanna sem var það hagstæðasta
sem fyrirtækið fékk.
Að sögn Unnars Péturssonar,
skrifstofustjóra Þormóðs ramma -
Sæbergs hfl, eru þrjú skip fyrirtækis-
ins nú á rækjuveiðum en afli er treg-
ur.
Talsverðar framkvæmdir standa
nú yfir hjá Þormóði ramma - Sæ-
bergi hf. Verið er að stækka húsa-
kynni rækjuverksmiðjunnar.
Einnig er unnið af fullum krafti
við kítinverksmiðju sem fyrirtæk-
ið er að hleypa af stokkunum
ásamt SR-mjöli. Standa vonir til að
verksmiðjan hefji starfsemi í
næsta mánuði ef áætlanir haldast.
-ÖÞ