Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Side 17
FIMMTUDAGUR 21. JANUAR 1999 17 Skíði og skíðaútbúnaður: Hinn landskunni skfðakappi, Valdimar Örnólfsson, segir m.a. að mikilvægt sé að bindingar séu ekki of fast stilltar miðað við þyngd manna. Hægt að kaupa ódýr notuð skíði Nú er loksins kom- inn nægur snjór í fjöll til skiöaiðkunar og því þeysa skíða- garpar upp í fjöll virka daga sem um helgar til að renna snævi þöktum brokk- un- um mm um Skíðaíþróttin nýtur mik- illa vinsælda sem fjöl- skylduíþrótt hérlendis en hvað skyldi kosta að útbúa fjölskylduna fyrir sportið? Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, er mikill skíðagarpur og tekur fjölskylduna gjarnan með sér til fjalla. Að hans sögn þarf að end- urnýja útbúnað barna nokkuð oft og jafnvel á hverju ári ef þau vaxa hratt. Hans ráð er að kaupa ekki alltaf nýtt heldur skipta út notuð- um búnaði og kaupa aft- ur notað eða nýtt í stað þess gamla. ,,Ég fór t.d. með strákn- um sem er 9 ára, í gær til að kaupa stærri skíði og útbúnað handa hon- um. Ég skipti gamla útbúnaðin- um fyrir nýjan og þurfti að borga um tíu þúsund krón- ur á milli sem er svipuð upphæð og ég hefði þurft að Ellert B. Schram, for- seti ÍSÍ, telur skíðaiðkunina hina ákjósan- legustu fjöl- skylduíþrótt. borga fyrir notaðan búnað ef ég hefði ekki skipt gamla búnaðinum. Annar útbúnaður er ekki dýr og ekki einskorðaður við skíðaiðkunina. Að mínu mati þarf ekki að kaupa sérstakan fatnað fyrir börnin á skíðin því notast má við snjógalla og annan fatnað sem börnin ganga í á veturna." Peninganna virði Ellert segir að auðvitað sé afstætt hvort skíðaiðkun- in sé dýr fjölskylduíþrótt en hægt sé að spara með því að kaupa notað. „Ég sé heldur ekkert eftir peningunum sem fara í þetta því mér finnst þeim vel varið í skíðin. Þetta er holl og góð útivera sem eykur sam- heldni fjölskyldunnar og allir njóta góðs af. Við byrjuðum að fara með börnin okkar, sem eru nú sjö og níu ára, á skíði fyrir um fjórum árum. Fyrsti veturinn fór nú aðallega í að venja þau við snjóinn og fjöllin en nú eru þau farin að standa sig ágætlega. Ég hef nú aðal- lega sjálfur séð um að kenna þeim en ætli við fáum ekki stúlku til að kenna þeim í vetur.“ Ellert segist þó ekki hafa neina leynda drauma um að gera börnin sín að keppnis- mönnum á skíðum heldur sé markmiðið aðallega að vekja áhuga þeirra á skíða- íþróttinni. „Ég fór mikið með eldri börnunum mín- um, sem nú eru uppkomin, á skíði og þau búa enn þá að þeirri reynslu og nú er ég að ganga í gegnum þetta sama með þeim yngri. Ég er viss um að þau eiga eftir að njóta góðs af skíðaiðkun- inni og tel hana því full- komlega peninganna virði,“ segir Ellert B. Schram að lokum. -GLM Valdimar Örnólfsson: Ráðleggingar skíðamannsins Það er ekki nóg að kaupa góðan útbúnað ef undirbúningur fyrir skíðaferðina er ekki nægur. Hagsýni leitaði því ráða hjá Valdimari Örnólfs- syni skíðakappa sem gaf góðfúslega nokkur ráð sem lúta að skiðaiðkun. 1) Gleymið ekki sólgleraugunum. 2) Verið alltcif í hlýjum ullarnærfótum. 3) Athugið vel að skíði og bindingar séu rétt stillt, þ.e. að bindingar séu ekki of fastar miðað við þyngd skíðamannsins því skíðin eiga að losna af ef maðurinn dettur. 4) Látið börnin klæðast sokkum sem falla vel að fætinum til að forðast hælsæri á skíðum. 5) Reimið ekki eða smellið skóna of fast. 6) Byrjið varlega og farið ekki í of brattar beygjur. Gætið þess vel að vera ekki fyrir öðrum skíða- mönnum og farið út í kant ef þið þurfið að stoppa. 7) Gott er að hafa með sér lítinn bakpoka með heftiplástri, aukavett- lingum og fleiru sem gæti komið sér vel fyrir börnin. -GLM Blómaráð Vökvun heimilis- blóma Vökvið með vatni sem er við stofuhita. Plöntur geta skemmst ef þær eru vökvaðar með köldu vatni. - Stingdu puttanum svona 2-3 sm niður í moldina. Ef hún er rök skaltu fresta vökvun. - Vatnið sem þú sýður eggin í er steinefnaríkt og því gott drykkjarvatn fyrir plöntumar. - Eða setjið eggjaskurn í krukku með vatni og loki yfir. Látið standa í einn dág áður en vökvað er. Geymið ekki eggjaskurn langtímum saman því skurnin skemmist og veldur óþefi. - Besti áburðurinn er gamalt vatn úr fiskabúri eða vatn sem fiskur hefur verið frystur í. - Ekki henda sódavatninu sem gosið er farið úr. Það hefur réttu efnin til að færa plöntunmn heil- brigði og fallegt litaraft. - Ef þú vilt vökva hengiplönt- urnar án þess að allt verði á floti skaltu nota ísmola af og til. Vatn- ið nær ekki að renna í gegn vegna þess hversu hægt ísinn bráðnar. Lauk- plöntur ætti alltaf að vökva á botninum. Fyllið skál eða jafnvel vaskinn af vatni og látið plönturnar standa i því. - Ef stofan er full af plöntum er nauðsynlegt að hafa lítið raka- tæki í henni yfir vetrartímann til að halda réttu rakastigi. Góður snjór Skafið upp hreinan snjó og lát- ið bráðna í fötu. Notið hann síðan til vökvunar vegna þess að snjór- inn er fullur af steinefnum. Blóm á múrsteini Þegar þú ferð í frí skaltu láta plönturnar standa á múrsteini sem vatniö flýtur yfir í baöker- inu. Steinninn sýgur í sig vatnið og plönturnar sjúga vatn úr stein- inum. - Eða láttu plöntumar standa í baðkerinu á þykkum saman- brotnum handklæðum sem eru gegnumblaut. Plönturnar draga í sig þann raka sem þeim er nauð- synlegur. - Ef til vill viltu reyna þetta: Settu endann á tuskuræmu í fötu með vatni en stingdu hinum end- anum í moldina í blómapottinum. Hafðu í huga að fatan verður að standa hærra en blómapotturinn. -GLM Beinar plöntur Snúið blóma- pottinum reglu- lega um 1/4 úr hring svo sól- arljósið dreifist sem best. Plöntur teygja sig sem þær geta í átt aö sólarljósinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.