Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Síða 24
24
Sviðsljós
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
903 • 5670
Hvernig á að
svara
auglýsingu
í svarþjónustu:
y
Þú hringir í síma 903-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess að svara smáauglýsingu.
/
V
Þú slærð inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
Þá heyrir þú skilaboð
auglýsandans ef þau eru fyrir
hendi.
■/
Þú leggur inn skilaboð eftir
hljóðmerki og ýtir á
ferhyrninginn að upptöku
lokinni.
•/
Þá færð þú að heyra skilaboðin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægð/ur með skilaboðin
geymir þú þau, ef ekki getur
þú talað þau inn aftur.
Hvernig á að
svara atvinnu-
auglýsingu í
svarþjónustu:
4
Þú hringir í síma 903-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess að svara
atvinnuauglýsingu.
Þú slærð inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
1 Nú færö þú að heyra skilaboö
auglýsandans.
■ Ef þú vilt halda áfram ýtir þú á
1 og heyrir þá spurningar
auglýsandans.
' Þú leggur inn skilaboð eftir
hljóömerki og ýtir á
ferhyrninginn að upptöku
lokinni.
Þá færð þú að heyra skilaboðin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægð/ur með skilaboðin
geymir þú þau, ef ekki getur þú
talað þau inn aftur.
f Þegar skilaboöin hafa verið
geymd færö þú uppgefið
leyninúmer sem þú notar til
þess að hlusta á svar
auglýsandans. Mikilvægt er að
skrifa númeriö hjá sér því þú
ein(n) veist leyninúmeriö.
f Auglýsandinn hefur ákveöinn
tíma til þess að hlusta á og
flokka svörin. Þú getur hringt
aftur í síma 903-5670 og valiö
2 til þess að hlusta á svar
auglýsandans.
Þú slærö inn leyninúmer þitt
og færð þá svar ayglýsandans
ef það er fyrir hendi.
Allir í stafræna kerfinu
með tónvalssíma geta
nýtt sér þessa þjónustu.
903 • 5670
Aöeins 25 kr. mínútan. Sama
verð fyrlr alla landsmenn.
Eyddu gamlárskvöldi sitt í hvoru lagi:
Allt er búið milli
Friðriks og Mariu
Nú þarf ekki frekari vitnanna
við. Friðrik Danaprins og söngkon-
an Maria Montell eru hætt að vera
saman, segir danska vikublaðið
Billed Bladet.
Maria tók tilboði um að syngja í
hinu fræga Falkoner leikhúsi í
Kaupmannahöfn á gamlárskvöld.
Hún hafði þá þegar gert það upp við
sig að sambandið væri búið og að
hún mundi ekki eyða gamlárskvöld-
inu með prinsinum, eins og hún
gerði árið áður. Og ekki kom heldur
til greina að hún yrði í sumarhúsi
drottningar í Svíþjóð dagana milli
jóla og nýárs.
Friðrik og Maria áttu saman
helgi í íbúð prinsins í Amalienborg-
arhöll á haustdögum. Síðan hefur
prinsinn oft komið heim til Dan-
merkur frá París, þar sem hann
Maria Montell er endanlega úr sög-
unnl sem kærasta Friðriks ríkisarfa.
starfar í danska sendiráðinu, til að
skemmta sér og hafa það huggulegt.
Maria hefur ekki verið með í þeim
fleðskap.
Á meðan kærastan fyrrverandi
söng og skemmti gestum Falkoner
leikhússins á gamlárskvöld, hlýddi
Friðrik á ræðu drottningarinnar
móður sinnar í höllinni, ásamt
Jóakim litla bróður og Alexöndru
mágkonu. Að ræðunni lokinni hélt
unga fólkið til íbúðar krónprinsins
og hélt partí með nokkrum vinum
sínum. Að sjálfsögðu var þar skálað
i kampavíni og snæddar ostrur.
En prinsamir eru eins og aðrir
strákar. Og strákar vilja flugelda á
gamlárskvöld. Það varð því úr að
þeir skutu upp nokkrum slíkum af
hallarsvölunum og sprengdu svo
kínverja langt fram eftir nóttu.
Má ekki koma
nálægt Elle
Macpherson
Ofurfyrirsæt-
an Elle Macpher-
son fékk hlut-
verkið í kvik-
myndinni
Bodyguard II
sem Kevin
Costner bauð
Díönu sálugu á
sínum tíma. Elle
er að vonum ánægð en ekki eigin-
maður hennar, Arkie Busson. Elle
og Kevin voru í ástarsambandi árið
1996 en það var áður reyndar áður
en Elle hafði hitt Arkie. Nú segja
vinir Arkies að hann ætli að sjá til
þess að turtildúfurnar fyrrverandi
fái ekkert tækifæri til að nálgast
hvort annað. Hann heimtar að eig-
inkonan gæti þess að minnst eins
metra fjarlægð verði á milli hennar
og Kevins við kvikmyndatökurnar.
Jerry í París með
milljónamæringi
Jerry Hall,
sem stendur í
skilnaðarmáli við
Mick Jagger,
skrapp nýlega til
Parísar með
glaumgosanum
og milljónamær-
ingnum Guy
Dellal. Guy er
hins vegar harðákveðinn í að fara
ekki í neitt fast og alvarlegt sam-
band. Að sögn vina Jerry er hún afar
hrifin af glaumgosanum sem hefur
hjálpað henni að komast yfir
skilnaðinn við Jagger. Vinur
auðjöfursins fráskilda segir að hann
hafi vorkennt Jerry og vitað að það
myndi gera þeim báðum gott að
komast frá London í smátíma. Segja
vinirnir að Jerry geti trúað Guy fyrir
sorgum sínum auk þess sem hann
komi fram við hana eins og
hefðarfrú.
Franski tískuhönnuðurinn Thierry Mugler er þekktur fyrir frumlegan fatnað.
Hann sveik svo sannarlega ekki aðdáendur sína um heim allan þegar hann
sýndi nýjustu sköpunarverkin í París í vikunni. Þar mátti meðal annars sjá
þetta fallega piis og meðfylgjandi jakka yfir gagnsæjum toppi.
Harry prins betri en pabbi
gamli í skíðabrekkunum
Harry prins naut lífsins á skíðum
með föður sínum, Karli Bretaprins,
í Kloster í Sviss ekki alls fyrir
löngu. Prinsinn var á nýrri tegund
skíða, mjög stuttum, sem er nýjasta
æðið í ár. Renndi Harry sér niður
brekkurnar án stafa og stökk upp í
loftið á skiðunum. Karl, sem hefur
farið í vetrarfri til Kloster í nokkra
áratugi, var alls ekki samkeppnis-
fær í brekkunum.
Prinsinn ungi var í svörtum
anorakk og með svarta derhúfu en
pabbinn var i sama gamla gráa
skíðagallanum og hann hefur verið
síðustu tuttugu árin eða svo. Ljós-
myndarar gætu vel hugsað sér að
Bretaprins klæddist einhverju lit-
ríkara i snjónum og hann veit af
því. Þess vegna benti hann þeim á í
gríni að hann væri ekki í öllu
gömlu, hann væri með ný skíðagler-
augu sem gerðu það að verkum að
hann kæmist hraðar niður brekk-
urnar.
Vilhjálmur prins fór ekki með
fóður sínum og bróður til Sviss.
Hann kaus að fara á skotveiðar með
vinum sinum til Skotlands í
staðinn.
Kathleen Turner
lögst í drykkju
Þá var öldin önnur þegar
Kathleen Tumer leitaði að
demöntum með Michael Dou-
glas. Nú leitar hún bara í flösk-
una og drekkur og drekkur.
Vodki er uppáhaldið. Á degi
hverjum fær hún sendar nokkr-
ar flöskur úr áfengisverslun
hverfisins síns í New York. Þeg-
ar leikkonan fer út að borða í há-
deginu skolar hún matnum nið-
ur með nokkram glösum af víni.
í Ameríku vekur slíkt eftirtekt
þar sem flestir láta sér nægja ís-
kalt lindarvatn. Kathleen hefur
sér þó það til málsbóta að hún
byrjaði ekki að drekka svona
fyrr en gigtarsjúkdómur fór að
valda henni sársauka.
Raquel með eig-
in pitsumann
Aldrei skyldi maður segja
aldrei. Að minnsta kosti ekki
þegar ástin og hjónabandið eru
annars vegar. Kynbomban
Raquel Welch hefur fengið að
kenna á því svo um munar. Hún
hafði svarið þess dýran eið, eftir
að hafa skilið þrisvar sinnum, að
hún skyldi aldrei gifta sig aftur.
Hætt er við að hin 57 ára Raquel
standi ekki við þau orð sín því
hún er bálskotin í 37 ára göml-
um pitsugerðarmanni. Richie
heitir hann og á nokkra pitsu-
staði í Ameríku.
Helena hélt 2
daga veislu
Danska fyrirsætan Helena
Christensen fagnaði þrítugsaf-
mælinu sínu um daginn með
tveggja daga veislu. Helena átti
afmæli á jóladag. Fyrri daginn
bauð hún nánustu ættingjum til
kvöldverðar á heimili sínu við
Kristjánshöfn, það er að segja
foreldrunum, systur sinni og
mági og dóttur þeirra. Daginn
eftir var veisla fyrir vinina við
íslandsbryggju. Þar mátti sjá
tískukónga, sjónvarpsstjörnur
og forleggjara. Ekki má gleyma
vinunum sem komu gagngert til
Danmerkur frá útlöndum til að
fagna tímamótunum.