Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Side 25
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
25
Fréttir
Trappe selur af
sínum hlut í Galsa
DV; Akureyri:
Þjóðveijinn Andreas Trappe, sem á
90% eignarhlut í stóðhestinum Galsa
frá Sauðárkróki, hefur ákveðið að selja
65% hlut í hestinum. Fyrir liggur
hverjir munu kaupa
um tvo þriðju af
þeim hlut sem til
sölu er en ekki ligg-
ur fyrir endanlega
hver eða hverjir
kaupa rúmlega 20%
hlut í Galsa.
Galsi sem stóð
uppi sem sigurveg-
ari í B-flokki gæð-
inga á landsmótinu
á Melgerðismelum á
síðasta ári er í eigu
tveggja manna,
Þjóðveijans Andre-
asar Trappe og
Baldvins Ara Guð-
laugssonar á Akureyri sem á 10%.
Baldvin Ari sagði í samtali við DV í
gær að hann ætlaði að eiga sinn hlut í
Galsa áfram og Trappe ætlaði að eiga
áfram 25%.
Baldvin Ari segir að þrjú hrossa-
ræktarsambönd hafi ákveðið að kaupa
hlut í Galsa en þau eru á Suðurlandi, í
Skagafirði og A-Húnavatnssýslu.
Sunnlendingamir kaupa tæp 22% en
hin samböndin tvö tæplega 11% hvort.
Þá segir Baldvin Ari að hrossaræktar-
samböndin í V-Húnavatnssýslu og
Dalasýslu séu að
velta fyrir sér kaup-
um á þeim 20% sem
óseld eru. Baldvin
Ari segir það skýrast
á næstu dögum
hvort af þeim kaup-
um verði.
Engar tölur eru
geíhar upp varðandi
þessi viðskipti, en
heyrst hefúr að Galsi
sé í dag metinn á
10-14 milljónir
króna þannig að hér
er um stórviðskipti
að ræða. Þeir sem
hafa leitt hryssur
sinar undir Galsa hafa greitt fyrir það
35 þúsund krónur sem þykir ekki mik-
ið. Þannig er folatollur hins fræga Orra
frá Þúfú um 100 þúsund krónur. Bald-
vin Ari segir að það verði rætt við nýja
eigendur Galsa hver folatollur hans
verður á sumri komanda. -gk
Galsi í keppni á landsmótinu á
Melgerðismelum á síðasta ári þar
sem hann sigraði í B-flokki gæð-
inga. DV-mynd ej
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi:
Albert saumar
að Arnbjörgu
Sjálfstæðismenn á Austur-
landi stefna að því að halda
opið prófkjör um næstu helgi
til að ganga frá skipan í efstu
sæti á framboðslista sínum
fyrir alþingiskosningamar í
vor. Prófkjörinu var frestað
um síðustu helgi vegna veð-
urs. Það verður opið öllum
flokksbundnum sjálfstæðis-
mönnum 16 ára og eldri og
öðrum sem undirrita stuðn-
ingsyfirlýsingu við flokkinn.
Egill Seljavallabóndi Jóns-
son sem leitt hefur lista
flokksins á Austurlandi hætt-
ir nú í pólitík og mesta spennan varð-
andi prófkjörið er hver muni taka við
forustuhlutverki hans. Ambjörg
Sveinsdóttir, alþingismaður
frá Seyðisfirði, sem skipaði 2.
sætið 1995, er alls ekki talin
ömgg um 1. sætið þrátt fyrir
stuðning Egils við hana.
Helsti keppinautur hennar er
talinn vera Albert Eymunds-
son, skólastjóri á Höth, en auk
þeirra sækist Ólafur Ragnars-
son, sveitarstjóri á Djúpavogi,
eftir 1. sætinu.
Aðrir sem gefa kost á sér
era Aðalsteinn Jónsson,
bóndi á Jökuldal, sem vill í 2.
sætið, Hilmar Gunnlaugsson,
lögmaður á Egilsstöðum, í
2.-4. sæti, Jens G. Helgason, nemi
Eskifírði, í 4. sætið og Kári Ólason,
verktaki á Héraði í 4. sætið. -gk
Arnbjörg
Sveinsdóttir.
Tekst henni aö
verjast atlögum
Alberts og
Ólafs?
Frá undirritun samningsins. Jón Karl Einarsson og Þórir Jónsson frá Úrvali-
Útsýn og Jón A. Sigurbjörnsson og Sveinbjörn Sveinbjörnsson frá Lands-
sambandi hestamannafélaga. DV-mynd Pjetur
Hestamenn í vík-
ing til Þýskalands
Þjóðveijar hyggjast halda glæsilegt
heimsmeistaramót í íþróttum íslenskra
hesta í Rieden i nágrenni Amberg, ekki
langt frá Númberg í Suður-Þýskalandi.
Ef veðrið verður gott má búast við að
allt að 20.000 manns komi á mótið.
Þýskaland er ákjósanlegt ferða-
mannaland og má búast við að margir
íslendingar hyggist leggja land undir fót
til að styðja sína menn. Á síðustu mót-
um hafa íslendingar ferðast um Evrópu
jafnt fyrir mót sem á eftir en haft heims-
meistaramótin sem miðpunkt.
Landssamband hestamannafélaga og
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn hafa gert
með sér samstarfssamning vegna
heimsmeistaramótsins. Úrval-Útsýn
býður margvíslega þjónustu við mótið
fýrir utan flug, gistingu og bílaleigubíla.
Boðið verður upp á sérstakt leiguflug
til Múnchen og verða starfsmenn Úr-
vals-Útsýnar ytra reiðubúnir til þjón-
ustu. Einnig bjóðast ferðir fyrir móts-
gesti til Prag og fleiri staða. Þar sem vit-
að er að áhugi er mikill á heimsmeist-
aramótinu er æskilegt að bóka ferð sem
fyrst því sætaframboðið er takmarkað.
Mikill áhugi er meðal íslenskra
knapa og hyggjast margir þeirra fara
með fáka sína á úrtöku sem haldin verð-
ur 17. til 20. júní en þar verður landslið-
ið valið. -EJ
SDG
ifíkla
US
Hvar búa þeir sem fara með völdin
í þjóðfélaginu? 11.(4, 1UU
Vesturbærínn
er snobbbær
S3J1 'ÍuJJí
teiVa'ar