Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Qupperneq 6
GSM viötaliö Eyþór Arnalds framkvæmdastjóri hjá Oz. Eyþór: „Halló.“ Fókus: „Eyþór?“ Eyþór: „Já.“ Fókus: „Blessaður, þetta er hérna á Fókusi." Eyþór: „Já, einmitt. Hæ.“ Fókus: „Hvað ertu að gera?“ Skrudningar. Fókus: „Hvað er að gerast? Af hverju eru svona miklir skruðn- ingar?“ Eyþór: „Ég er að labba eftir Aust- urstræti." Fókus: „Ha?“ Eyþór: „Ég er að labba eftir Aust- urstræti.“ Fókus: „Já, það kemur svo mikill hávaði þegar vindurinn blæs í símann." Eyþór: „Já, já. Svona er þetta.“ Fókus: „Hvert ertu að fara?“ Eyþór: „Ég er að labba upp í OZ í „góða“ veðrinu.“ Fókus: „Já, það er ógeðslegt veð- ur. Er þér ekki kalt?“ Eyþór: „Jú, það er frekar blautt og slydda." Fókus: „Ég er ekkert að trufla þig?“ Eyþór: „Nei, ég er bara að ganga.“ Fókus: „Eitthvað að frétta?“ Eyþór: „Bara gott. Ég held að ..." Dudududududu... Fókus: „Úps.“ Og hringir aftur. Fókus: „Það slitnaði." Eyþór: „Eitthver truflun hjá Landssímanum.“ Fókus: „Einmitt. Heyrðu! Ég ætl- aði að spyrja þig hvort þú vissir númerið hjá honum Gulla?“ Eyþór: „Gulla Þórs?“ Fókus: „Já.“ Eyþór: „Já, það kemur héma. Bíddu aðeins.“ Smábið. Eyþór: „898 4490.“ Fókus: „4490?“ Eyþór: „Já.“ Meiri skruðningar og lœti. Fókus: „Rosalegur hávaði er þetta. Áttu ekki bíl?“ Eyþór: „Jú. En það er hollt að ganga um borgina." Fókus: „Þú færð bara flensuna. Það eru allir með flensuna." Eyþór: „Nei, ég hressist á því að labba á milli staða og fæ ekki flensu." Fókus: „Jæja. Gengur ekki annars bara vel?“ Eyþór: „Jú. Mjög vel. Það er búið að vera nóg að gera í vinnunni og mikið að gera í kringum Ericsson.“ Fókus: „Einmitt." Eyþór: „Svo var ég að kaupa mér nokkrar frábærar bækur upp úr Arnazon dott komm.“ Fókus: „Já. Og varstu að sækja þessar bækur núna?“ Eyþór: „Já, ég sótti þær á póst- húsið hérna í Austurstræti.“ Fókus: „Á sem sagt að fara að hella sér í lestur um helgina?" Eyþór: „Já.“ Fókus: „Ætlarðu þá ekkert út á lífið?“ Eyþór: „Nei, ætli það. Ég veit það ekki.“ Fókus: „Jáá. Jæja. Heyrðu, við sjáumst kannski." Eyþór: „Já. Ókei.“ Fókus: „Ókei.“ Eyþór: „Bæ, bæ.“ Fókus: „Bæ.“ Þann 1. mars 1989 var áfengur bjór aftur seldur á íslandi eftir 76 ára bann. Síðan þá hefur mikili bjór runnið til sjávar og margt breyst í bjórheiminum. Þó kannski ekki svo mikið. Það er jú hægt að drekka fleiri tegundir og á fleiri stöðum, en samt; áhrifin eru þau sömu og maður þarf jafn oft að fara á klósettið. Tíu ár í maí 1988 samþykkti Alþingi ný áfengislög sem cifléttu bjórbanni. Með voru 23 þingmenn en 17 á móti. Meðal þeirra var Stefán Valgeirsson sem máli sínu til stuðnings fór með vísu: Vímulaus æska, sú von deyr ei. Ég vil ekki bjórinn. Ég segi nei. Annar bjórandstæðingur var Steingrímur J. Sigfús- son. Ertu enn þá á móti bjórnum, Steingrímur? „Ég sé ekki eftir Steingrímur J Sigfússon afstöðu minni þá. Eg var ekki endi- lega á móti bjór heldur að verið væri að slaka á í þessum málum. Mér finnst að það þurfi aðhalds- sama stefnu i áfengismálum. En ég sé svo sem ekki ástæðu til að banna bjórinn aft- ur. Ég hafði það á tilfinningunni að menn myndu sofna á verðinum og margt af því sem ég ótt- aðist að myndi gerast hefur ræst.“ Þannig aö bjórinn hefur ekki bœtt drykkjumenningu landans? „Nei. Auðvitað er betra að fólk drekki léttvín og bjór frekar en sterkt áfengi, en það hefur sýnt sig að bjórinn ýtir undir unglinga- drykkju og er hrein viðbót. En hvorugir höfðu rétt fyrir sér, hvorki þeir sem voru svartsýnast- ir á sínum tíma eða þeir sem töldu að bjórinn bætti ástandið." Hvaöa bjór finnst þér bestur? „Ég nálgast þetta frá öfugum enda og forðast þann bjór sem er auglýstur. Ég er algjörlega á móti því að það sé verið að auglýsa bjór.“ Tólf pöbbar, fimm tegundir Miðvikudaginn 1. mars 1989 var bjór leyfður á íslandi eftir 76 ára bann. Langar biðraðir mynduðust fyrir utan áfengisbúðir áður en þær voru opnaðar, þ.á m. fyrir utan Heiðrúnu, sem hóf starfsemi þennan dag. Til sölu í áfengisútsöl- unum voru fimm bjórtegundir: Eg- ils Gull, Sanitas Pilsner, Sanitas Lager, Löwenbrau og Budweiser. Samdægurs opnuðu þrjár ölbúll- ur; Ölkjallarinn (á bak við Dóm- kirkjuna), Rauða ljónið og Kringlukráin. í allri Reykjavík var því hægt að kneifa bjór á tólf pöbbum samtals. Af þessum stöð- um eru fimm enn þá starfandi undir sömu nöfnum; Gaukur á Stöng, Fógetinn, Veitingahúsið 22, Rauða ljónið og Kringlukráin. Fyrsti bjórdagurinn heppnaðist vel. Ölvun var ekki til vandræða, heldur dansaði fólk uppi á borðum í gleði- rúsi. Á hverju strái voru ljósmynd- arar og erlendir fréttamenn að fýlgjast með okkur barbörunum sem höfðum ekki drukkið bjór op- inberlega í heilan mannsaldur. Þegar bjórinn kom fannst mörgum sem síðasta vígi þess sem gert hafði okkur að íslendingum væri fallið. í DV var haft eftir einum sem keypti tvær kippur: „Ég kunni eiginlega betur við gamla lagið. Það var eitthvað sérstakt við það. Nú getum við keypt bjór, hlustað á margar útvarpsstöðvar og séð sjón- varp á fimmtudögum." Áfengisneysla á fyrsta bjórárinu jókst um 23% miðað við árið á undan inælt í hreinum vínanda. Síðan dalaði áfengisneyslan en jókst aftur upp úr 1993 og var við síðustu mælingar svipuð og á fyrsta ári bjórsins. Skál! Nýjustu mælingar á áfengis- neyslu íslendinga eru frá árinu 1997. Þá drakk þjóðin 373.636 alkó- hóllítra af bjór, 112.556 alkó- hóllítra af léttvínum, en 257.195 alkóhóllítra af sterku áfengi. Á mánudaginn, á tiu ára afmæli bjórsins, verður hægt að drekka bjór á 36 stöðum í miðbæ Reykja- víkur. í Heiðrúnu þar sem bjórúr- valið er mest er hægt að kaupa 55 bjórtegundir í lausu og til viðbótar hægt að sérpanta um 80 tegundir. Árið 1988 fóru 2045 í áfengismeð- ferð á vegum SÁÁ, en 2835 árið 1996. Skál! -glh Hingað til hafa sveitaballaböndin látið sér næ ballmarkaðinn og lítið pælt í meiki í útlöndua skagrúppan Á móti sól „á barmi heimsfrægðar' undir upptökusamning við heimsfrægt hljóðv Selfosssk til útflutnin Surrey Sound er fornfrægt hljóð- ver á Englandi þar sem ekki ófræg- ari menn en Elton John og Cliff Richards hafa tekið upp og hljóm- sveitir á borð við The Police og Beach Boys unnið. I mars fer þang- að skahljómsveitin Á móti sól frá Selfossi til að taka upp lög á aðra plötu sína. Björgvin Hreiðarsson er söngvari sveitarinnar. „Þetta er í raun og veru ekki samningur er- lendis, heldur fáum við boð um það að fara út til að taka upp og séð verður um fjárhagslegu hliðina í gegnum fyrirtæki hér á íslandi," segir hann. „Nokkur lög sem hafa komið út með okkur á íslandi verða svo sungin á ensku og verða jafnvel gefin út af því að þetta ska sem við höfum aðallega spilað er í mikilli uppsveiflu. Meðal annars hafa lögin okkar verið spiluð í útvarpsstöð í Washington einungis til að sýna Kananum hve íslenskan er fáránlegt mál.“ Á móti sól er þekkt á íslandi fyrir „tveggja mínútna lög um uppáferð- ir“, eins og þeir segja sjálfir, lög eins og „Djöfull er ég flottur" og „Stelp- ur“. Bcmdið hóf starfsemi árið 1996 og meðlimimir koma frá Selfossi og Hveragerði. „Þegar við byrjuðum fullir bjartsýni gáfum við út tíu laga plötu sem við viljum sem minnst kannast við. Hún var stór og mikill skandall. Ég á hana einhvers staðar en hún er lengst inni í fataskáp." En þó Á móti sól sé kannski á leið í heimspoppið halda strákarnir tryggð við klakann og sveitaböllin og spila á Sjallanum á Akureyri í kvöld og á Hótel Mælifelli á Sauðár- króki annað kvöld. „Auðvitað dreymir mann alltaf um að komast út og meikaða," segir Björgvin. „Þama er manni gefið tækifæri til að prófa og það sakar ekkert að láta reyna á það. Það er bara að hrökkva eða stökkva. Þó ekkert gerist sér maður ekk- ert eftir þessu upp á reynsluna að gera. Þetta er ævintýri út af fyrir sig.“ Hljómsveitin Á móti sól. 6 f Ó k U S 26. febrúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.