Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Page 15
Leikarahópurinn í The Thin Red Line
minnir einna helst á Woody Allen-mynd.
Það er eins og hann sé samansettur úr
blaðagrein um athyglisverðustu
karlleikara síðasta áratugar.
í myndinni The Thin Red Line
er fjallað um vináttubönd sem
myndast á milli manna í herdeild-
inni „C-for-Charlie“ á meðan hún
er að berjast í Guadalcanal. Mynd-
in markar endurkomu leikstjórans
Terrence Malick til Hollywood og
að sögn var slegist um hlutverk í
henni. Jafn stjömum prýdd mynd
hefur varla sést síðan The Tower-
ing Inferno var og hét.
Sean Penn fer með hlutverk Ed-
wards Welsh liðþjáifa. Welsh er
maður sem hefur engan áhuga á
stríði og er bara í hernum af því
að hann var kvaddur til. Penn er
mörgum kunnur fyrir hlutverk sín
í myndum á borð við Carlito’s
Way og Dead Man Walking og þó
ekki síður fyrir að hafa verið gift-
ur Madonnu og ráðist á ófáan pap-
arazzi ljósmyndarann. John
Cusack leikur John B. Gaff höf-
uðsmann. Hann ætti að vera áhorf-
endum góðkunnugur enda hefur
hann leikið í fjölda mynda og ber
þar helst að nefna BuIIets over
Broadway eftir Woody Allen og
Grosse Point Blank. Ben Chaplin
leikur óbreyttan Bell, mann sem
getur ekki hætt að hugsa um konu
sína sem bíður eftir honum heima.
Chaplin þessi er tiltölulega óskrif-
að blað og man maður helst eftir
honum úr Merchant-Ivory mynd-
inni Remains of the Day þar sem
hann lék persónu
sem hét Charlie!
Chaplin segist
hafa tekið hlut-
verkinu hiklaust
og vonar að
myndin verði sí-
gild eins og fyrri
tvær myndir
Malicks. Nick
Nolte fer með
hlutverk Gordons
Tall. Tall er mað-
ur sem er dauð-
hræddur við að
tapa og verður að
sýna yfirmönnum
sínum hvað í hon-
um býr. Nolte er
einn af þessum
gömlu bransaköll-
um; veðurbarinn
og pírir augun.
Hann segir Malick
vera leikstjóra
sem sé einstakt
tækifæri að fá að
vinna með og að í
hvert skipti sem
hann leikstýri
mynd geri hann
það eins og hún
sé hans síðasta.
Hann hefur leik-
ið í ótal mynd-
um, t.a.m. 48
Hours-myndun-
um og Night
Watch, endur-
gerðinni af
Nattevagten.
Woody Harrelson fer með
hlutverk Kecks liðþjálfa. Keck er
maður sem er til í að fórna sér fyr-
ir aðra og sannast það í myndinni.
Harrelson lék m.a. í White Men
Can’t Jump, People vs. Larry Flynt
og að ógleymdum Staupasteini sem
var á dagskrá sjónvarpsins í mörg
ár. Storm liðþjálfi er leikinn af
John C. Reilly. Reilly þessi hefur
mestmegnis leikið lítil hlutverk í
Grease og Pulp Fiction. Það er
fyndið að maður eins og Travolta
sé orðinn einhvers konar „Grand
Old Man“ myndarinnar og feti þar
með i fótspor manna á borð við
Fred Astaire sem lék líka smáhlut-
verk í mynd sem var einnig stjörn-
um prýdd; The Towering Infemo.
Svona er nú tíminn fljótur að líða.
stórum myndum eins og Hoffa,
Shadows and Fog og Boogie Nights.
John Savage fer með hlutverk
McCron liðþjálfa. George Clooney
leikur Charles S. Bosche höfuðs-
mann og svo er John Travolta
með hálfgert „cameo“ hlutverk sem
Quintard hershöfðingi. Travolta er
nú flestum kunnur bara fyrir
myndimar Saturday Night Fever,
Terrence Malick, leikstjóra The Thin Red Line, hefur verið hampað fyrir að að hunsa Hollywood:
Tók
til
ser
að
Terrence Malick, leikstjóri
myndarinnar „The Thin Red
Line“, er goðsagnakennd vera í
Hollywood. Eftir að hafa leikstýrt
tveimur feikna vinsælum mynd-
um á áttunda áratugnum hvarf
hann af kortinu. Það er fyrst núna,
tuttugu ámm síðar, að hann er bú-
inn að leikstýra nýrri mynd.
Malick hlaut ómælt lof fyrir
myndir sínar „Badlands" frá-1973
og „Days of Heaven" frá 1978. Að
gerð hennar lokinni dró hann sig í
hlé sem varð að lokum öllu lengra
en hann áætlaði. Malick hafði á
sínum tíma áhuga á að gera mynd
um John Merrick, eða fílamann-
inn eins og hann var kallaður, en
hætti svo við þegar leikrit var sett
upp á Broadway um sama efni.
Síðan þá hefur hann ferðast um
heiminn, kynnt sér Búddatrú og
vasast í hinu og þessu. Að eigin
sögn var hann að „leita að sjálfum
sér“. Hann hefur þvertekið fyrir
öll viðtöl og ljósmyndatökur og oft
verið uppnefndur „The J.D. Salin-
ger of Hollywood“. Nú þegar hléið
er orðið tuttugu ára langt kveður
hann sér hljóðs á nýjan leik með
myndinni „The Thin Red Line“
sem byggð er á sögu eftir James
Jones, sem skrifaði einnig „From
Here to Eternity". Myndin fjallar
um hersveitina C-for-Charlie sem
er send til Guadalcanal. Hún bygg-
ir á reynslu bókarhöfundar sem
tuttuau
leita að sjálfum
lýsir því hvemig sveit af hörðum
hermönnum umbreytist í eina
stóra fjölskyldu. Þegar í bardag-
ann er komið fjallar myndin ekki
endilega um bardagann sem slíkan
heldur um hvaða vináttubönd
myndast undir því álagi sem strið
er. Að lokum eru þeir ekki að berj-
ast fyrir föðurlandið heldur ein-
vörðungu til að halda vinum sin-
um, sönsum og lífí.
Malick fékk þá hugmynd að
kvikmynda söguna árið 1988 og
nálgaðist þá þegar framleiðendur
sína með að kaupa kvikmyndarétt-
inn frá ekkju James Jones. Upp-
haflega hafði hann bara í huga að
skrifa handrit myndarinnar og
láta einhvern annan sjá um leik-
stjóm hennar en í fyllingu tímans
ákvað hann smátt og smátt að
„ T h e
Thin Red
L i n e “
s k y 1 d i
v e r ð a
h a n s
næsta leik-
stjórnar-
verkefni.
Hann hófst
handa við
að tína til
það sem eft-
ir stóð af
tökuliði sínu
og bætti þar
við tökumanninum John Toll og
tónskáldinu Hans Zimmer. Hann
réð fræga leikara í öll aðalhlut-
verkin átta og hafði fyrirfram
ákveðnar hugmyndir um hver
skyldi leika hvað. Leikararnir
voru í engri aðstöðu til að velja sér
hlutverk. Þeim var gert að þiggja
það sem þeim var boðið og jafnvel
stórlax eins og John Travolta lét
það ekkert á sig fá þó að honum
væri bara boðið smáhlutverk. Með
yfir fimmtíu talandi hlutverk var
ekki lítið mál að velja leikara en
Malick og framleiðendumir vom
ákveðnir í að láta tiltölulega
óþekkta leikara leika lykilhlut-
verkin, til að mynda Jim Caviezel
sem leikur óbreyttan Witt.
Síðan myndin var frumsýnd í
byrjun árs hefur hún vakið mikla
athygli og hlotið einróma lof gagn-
rýnenda og vonandi kemur hún
hingað til lands á næstunni.
Friðrik Þór og Hal Hartley eru víst óg-
urlegir veiðfélagar.
Hal Harlley
í sjóbirling
Leikstjórinn Hal Hartley er
væntanlegur til landsins. Hann
ætlar að heimsækja vin sinn,
Friðrik Þór Friðriksson, og elta
uppi sjóbirting í svo sem eins og
fjóra daga. En þeir Friðrik eru
víst ógurlegir veiðifélagar. Ann-
ars ætti Hal Hartley að vera öll-
um unnendum svokallaðra list-
rænna bíómynda kunnur. Hann
hefur sent frá sér myndirnar
Trust, Amateur, Simple Men og
nýjasta afurðin er Henry Fool
sem Hal hefur verið að kynna í
Skandinavíu á undangengnum
vikum og mun Friðrik ömgglega
verða margs vísari um myndina
eftir veiðiferðina. En Henry Fool
verður svo sýnd hér á landi á
kvikmyndahátíðinni Vorvindum
sem verður i Háskólabíói í april.
26. febrúar 1999 f Ókus
15
i