Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Page 11
Liam Howlett horfir á japanska garðinn sinn,
gerir mixplötu og hugsar sér til hreyfings
með nýja Prodigy-plötu.
ft Q 1 ,1* i . íjllsffé
J J J ,v iSH
1 #
I f t
aö fara i
r :i
■ r • i’
Fyrir suma er nóg að taka uppá-
haldslögin sln upp á spólu og senda
vinum sínum. Aðrir verða að mixa
lögunum saman á disk og hræra og
dudda í þeim þangað til splunku-
nýr tónn hefur myndast. Plötu-
snúðar úr rappdeildinni riðu vitan-
lega á vaðið með mixdiskana, enda
er tónlistarsköpun þeirra í eðli
sínu sambræðsla og upphræringur
á efni annarra. Mixdiskamir eru
vinsæl tómstundaiðja popparanna
þegar þeir nenna ekki að semja eig-
ið efni. Nýlegir mixdiskar eru t.d.
diskar Fatboy Slim og Chemical
Brothers sem komu út í fyrra, en
nú er Liam Howlett, höfuðpaur
The Prodigy, búinn að gefa út mix-
diskinn „The dirtchamber sessions
volume one“ og gefur í skyn að bú-
ast megi við fleirum.
Upphafið að diskinum má rekja
til útvarpsþáttar sem Liam sá um.
„Fyrst kærði ég mig ekki um að
gefa þetta út,“ segir hann, „en svo
hugsaði ég, því ekki? Ég hef raðað
lögum saman á teip siðan ég var 14
ára - ímyndaði mér að ég væri
Grandmaster Flash í svefnher-
berginu mínu. Öll tónlistin á plöt-
unni lýsir mér mjög vel - þetta er
það sem hefur haft áhrif á Prodigy.
Platan selst kannski ekki mikið, en
mér flnnst gott að aðdáendur okkar
geti heyrt hvað flýtur um í hausn-
um á mér þegar ég sem lög.“
Liam sendir föx
Platan er góð í gervifætinum,
grasserandi af gömlu eðalrappi,
breikbíti og stundum bregður brot-
um úr Prodigy-lögum fyrir. Inn á
milli reka svo t.d. Sex Pistols,
Primal Scream, The Charlatans og
Jane’s addiction upp gólandi haus-
inn. Liam fékk þó ekki leyfi fyrir að
nota Bítlalagið „Sgt. Pepper’s", sem
hann blandaði saman við „Chemical
beats“ Kemísku bræðranna í út-
varpsþættinum. Liam sendi Paul
McCartney fax og reyndi að fá leyfi.
„Ég skrifaði: ég vona að þú hafir
áhuga á að vera með á þessari plötu,
sem mér fannst fyndið því hvers
vegna í ósköpunum ætti honum
ekki að vera skítsama? Mér til mik-
illar furðu faxaði hann til baka og
sagði ókei, en kannski var hann
bara að reyna að vera svalur?"
Hinir Bítlarnir voru þó ekki eins
hrifnir af hugmyndinni og ekki
fékkst leyfi.
John Lydon úr Sex Pistols var
heldur ekki hrifinn og neitaði að
gefa Liam leyfi. „Ég skildi ekki af
hverju hann vildi þetta ekki, svo ég
faxaði honum - John, bjallaðu, þetta
er Liam úr Prodigy, ég vil nota eitt
Sex Pistols-lag á mixdisknum mín-
um - Hann hringdi svo í mig daginn
fyrir gamlársdag og sagði, jæja þá.
Hann var bara í vondu skapi þegar
hann fékk faxið.“
Hinn endanlegi pönk-
smellur
En mixdiskurinn er bara stund-
argaman og ný Prodigy-plata er á
teikniborðinu. Síðast þegar Liam
fór í hljóðver gekk illa og hann
þjáðist af stressi og fannst pressan
vera of mikil á sér. Nú er annað
hljóð í strokknum: „Ég hlakka
virkilega til að fara í hljóðver aft-
ur. Ég hef þegar samið nýtt lag, það
er gegnheilt pönklag, en hljómar
ekki enn þá eins og smellur. Það
fyrsta sem ég vil gera er að taka
upp hinn endanlega pönksmell fyr-
ir þennan áratug, ég vil ná kraftin-
um og andanum sem ríkir. Mig
langar ekki til að vinna í laginu
„Ghost town“ (eftir The Specials)
sem við höfum spilað á tónleikum.
Það fer í mesta lagi í einhverja bíó-
mynd.“
Fyrir utan allt þetta hefur Liam
verið að dunda í garðinum sínum,
en hann keypti risajörð og búgarð
uppi í sveit á Englandi. „Þegar þú
ert í skapandi starfl sannfæristu
um að þér sé ekkert skapandi óvið-
komandi. Svo ég setti upp japansk-
an garð. Ég eyddi mánuðum í að
rannsaka fræðin, viða að mér sér-
stökum trjám og gróðri, en auðvit-
að hjálpuðu mér margir. Þetta er
mjög zen þegar maður kemst inn í
þetta. En ég er ekki svo mikið zen.
Þegar ég sit í eldhúsinu og fæ mér
að reykja þá lítur garðurinn bara
djöfull flott út fyrir utan glugg-
ann.“
-glh
Ný plata er komin út með bresku
poppurunum 1 XTC. Það eru sjö ár
liðin frá slðustu plötu en töfin kem-
ur til vegna flókinna lagalegra
vandræða sem XTC átti í við gamla
útgáfufyrirtækið sitt. Á meðan
bandið gat ekki gefið neitt út vegna
málsins sömdu þeir Andy Partridge
og Colin Mouldings helling af lög-
um og á nýju plötunni, Apple Ven-
us pt. 1, er að finna fyrri hlutann
úr þeim mikla sarpi. Á þessari
plötu er yfirborðið rólegt og flestar
útgáfurnar órafmagnaðar með stór-
karlalegum strengjaútsetningum. Á
seinni helmingnum á svo að taka á
og rokka. Platan átti upphaflega að
vera tvöfold en fallist var á að gefa
hana frekar út í tveimur hlutum.
Á þessum sjö árum taldist það
helst til tíöinda að Andy skildi við
konuna sina og semur um það ferli
hinn bitra sorg-
armars „Your
Dictionary". Þá
hætti þriðji
meðlimur XTC,
gitarleikarinn
Dave Gregory,
skömmu áður
en lokahönd
var lögð á upp-
tökurnar vegna hins sígilda tónlist-
arlega ágreinings.
Hljómsveitin hefur ekki spilað á
tónleikum siðan 1982 en þá fékk
Andy hræðslukast sökum sviðs-
skrekks og hefur ekki lagt í að fara
á svið síðan. Þeir ætla að kynna
nýju plötuna með því að fara milli
plötubúða og árita - og kannski
verður gripið í kassagitar ef sviðs-
skrekkurinn verður ekki of lam-
andi.
5. mars 1999 f Ó k U S
11