Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Page 17
»
Líf id eftir vinnu
m y n d 1 i. s t
P o p p
1 e í. k h ú s
f y r i r b ö r n
k 1 a s s í k
b i ó
veitingahús
Föstudagur
5. mars
ý: Fókus mælir með
Þaö er sama
hvaö María
Sigurðardóttir
snertir, það verður
allt að gulii.
„Já, hann er oröinn svaka-
stjarna þó hann sé aðeins 28 ára.
Hann hefur fengið mörg verðlaun
og er búinn að skrifa eitthvað um
tíu verk sem hafa verið sett upp
og náð vinsældum. Fegurðar-
drottningin hefur til dæmis feng-
ið fern Tony-verðlaun. Núna er
hann víst að semja við Para-
mount Pictures um kvikmynda-
handrit sem hann er aö skrifa.
Hann sækir sínar fyrirmyndir
nokkuð í kvikmyndir og eftirlæt-
isleikstjórar hans eru Mai'tin
Scorsese og Quinten Tar-
antino."
Er þetta eitthuert undra-
barn?
„Ja. ætli hann sé ekki of-
virkur, ég veit þaö ekki.
3 Hann kemur hingað á frum-
sýninguna ásamt nokkrum
vinum sínum og ég er mjög
spennt að hitta hann.“
Er hann giftur?
„Nei, ég held ekki. En hann
er alveg ofboðslega sætur..."
Skemmtilegast
að ráða öllu
Nýjasta hetjan í leikhúsunum
er María Sigurðardóttir leik-
stjóri. Eftir að hafa verið kvik-
myndaleikstjórum til aðstoðar i
nokkur ár tók hún af skarið, leik-
stýrði sjálf og sló í gegn. Hún leik-
stýrði Þjóni í súpunni, Pétri Pan
og Sex í sveit en það síðasttalda
er einmitt að slá öll aðsóknarmet
í Borgarleikhúsinu um þessar
mundir. Nýjasta verkið sem Mar-
ía tekur sér fyrir hendur er Feg-
urðardrottningin frá Línakri eftir
Martin McDonagh en það verð-
ur frumsýnt næsta fimmtudag í
Borgarleikhúsinu.
Áttu sem sagt betur heima í leik-
húsum en bíómyndum?
„Ekkert endilega. Ég er ekki
hætt í bíómyndununi Er til dæm-
is að fara að vinna með Friðriki
Þór í vor þar sem ég verð aðstoð-
arleikstjóri i Englum alheimsins.
En auðvitað finnst mér skemmti-
legra að vera ekki aðstoðarleik-
stjóri og fá að ráða öllu. Það hef-
ur líka gengið ágætlega hingað til
og mér finnst þetta voða gaman.“
Stendur þá ekki til
bregóa sér í hlutverk aö-
alleikstjóra í kvikmynd
einhvern tlma?
„Jú, það fer að koma
að þvi. Ég fékk styrk frá
Kvikmyndasjóði í fyrra
og er að skrifa handrit
sem byggist á gamalli
smásögu og heitir Móðir
snillingsins. Ég hef bara
ekki haft tíma til að klára
það. Leikstjórn er nokkuð
sem ég hef alltaf haft áhuga
á og reynslan í kvik-
myndunum er dýr-
mæt,“
Hvernig leikrit er
Feguröardrottningin
frá Linakri? .
„Þetta er svört. If-
kaldhæðin kómedía,
mjög sterkt og magnað
stykki, sérstakt og vei
skrifað."
Hvaó um höfundinn,
Martin McDonagh? Er hann
aö slá i gegn þarna úti?
•klúbbar
l/Gusgusarinn dj. Herb Legowitz verður á Vega-
mótum í kvöld. Og allirvita hvað það þýðir.
í Klúbbnum verður dj. Gummi Gonzalez aðal-
maðurinn.
Hljómsveitin Sixties
heldur uppi sveitaball-
astemningu á Kaffi
Reykjavík fyrir þá sem
það vilja. Aðrir finna sér
afvikin horn og ræða
landsins gagn og nauö-
synjar. Undir þrjú færist
örvænting yfir mann-
skapinn, allir rjúka á
dansfólkið og grípa það sem hendi er næst.
Rúnar Júlíusson sýnir Grafarvogsbúum og
nærsveitarmönnum hvernig á að rokka á Pét-
urspöbb.
Hljómsveitin Carpet spil-
ar á síðdegistónleik-
um Hins hússins
kl.17. Carpet er
fimm manna og
fjögurra ára rokk-
hljómsveit með
drengjum á aldrinum
20-25 ára. Tónleikarnir
fara fram að venju á Geysi-Kakóbar, Aðal-
stræti 2, Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og
öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
Dead Sea Appel verður á Gauknum í kvöld og
gefur gestum sýnishorn af prógramminu sem
á að gera þá félaga fræga í Ameriku.
© krár
popp
Hljómsveitin Sín verður á Kringlukránni og
sömuleiðis Sveinn Waage, fyrrverandi sendi-
bílstjóri en núverandi fyndnasti maður lands-
ins. Viðar Jónsson kántríkall verður f
leikjastofunni.
Stuðboltarnir í Pöpun-
um verða á Café
Amsterdam í kvöld
ogfá hvern mann til
halda að
hann sé kom-
inn af Auði
djúpúðgu.
Ari í Ögri er menningarlegur staður. Þar
verður Ijéðaflutningur i kvöld.
Hermann Ingi syngur og leikur gamla slagara
fyrir gesti Fógetans.
í kvöld spilar
sjálfur Bjarni
Tryggva á
Dubliner’s.
Grand Rokk -
eður Stóri
steinn - er fluttur og Geirfuglarnir voru teknir
með. Þeir reyna fyrir sér á nýjum stað í kvöld.
Drykkfelldum gáfumönnum er heimilt að taka
skák.
Eg ætla að vakna
snemma báða
dagana eins og ég
geri ævinlega um helgar.
Þannig nýti ég helgarnar
best. Ég get hvort sem er sofið
út í miðri viku af því að ég er í
skóla og er ekkert að stressa
mig á hlutunum. Sem sagt, á
fætur klukkan sjö um helgina
og beint í sund, það er svo
hressandi. Á sunnudaginn
klukkan ellefu sæki ég svo
guðsþjónustu og þann dag ætla
ég líka að sjá leikritið Hassið
hennar mömmu eftir Dario Fo
sem Nemendafélag Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ er að sýna
Þorkell Máni
Pétursson,
útvarpsmaður á X-inu
um þessar
mundir. Svo
má ekki
gleyma vinn-
unni en milli
klukkan tólf og
fjögur á sunnu-
dag og laug-
ardag er
ég með
þáttinn
lysing.
Það er líka nokkuð öruggt að
ég fer á Kaffi Thomsen, alla-
vega á laugardagskvöldið. Ég
fer nefnilega frekar út á laugar-
dagskvöldum en föstudags-
kvöldum af því að þá er ég ekki
eins þreyttur eftir vikuna.“
Þotuliöiö leikur undir dansi, dufli og daðri í
Naustkjallaranum.
Gullöldin. Hljómsveitin Léttir sprettir leika fyr-
ir dansi.
Á Catalinu í Kópavogi er það Hersveitin sem
heldur uppi aga. Og hún mælist til þess að
fólk mæti í snyrtilegum klæðnaði.
Víkingasveitin heldur uppteknum hætti á
Fjörukránni. Jón IVIdller leikur létt og róman-
tískt í Fjörunni.
Glen Valentine situr enn við píanóið á Café
Romance og grætur horfnar ástir.
Gunnar Páll æfir sig á píanóið á Grand hótel.
Þeir Raggi Bjarna og Stefán Jökulsson verða
á Mímisbar og reyna að kæta lund gesta.
Ölver. Karokee.
bö 11
^Dúettinn Súkkat mæt-
ir með hljómsveit á bak
við sig í Álafoss föt bezt
og slær upp sveitaballi.
Raulararnir í Súkkati og
sveitaball er ekki beint
það sem fólk tengir sam-
an dagsdaglega en við
skulum gefa strákunum
sjens. Þeir eru góðir í rau
góðir I einu eru oftar en ekki góðir I flestu.
Hljómsveit Önnu Vilhjálms er enn að og þeg-
ar þeir Hilmar og Gunnar eru kcmnir til liðs við
sveitina getur enginn setið kyrr. Það sannast í
Næturgalanum í kvöld.
Til er fólk sem finnst enginn dans þess virði
að stíga annar en línudans. Það ætti að vera
í Eldey við Smiðjuveginn í kvöld.
Alabama er f Hafnarfirði og sá
sem öllu ræður þar heitir
Viðar Jónsson kántrf-
kappi. Hann verður hins
vegar að heiman um
helgina og mun því
ekki spila fyrir gesti
sfna. Þess í stað verður
diskótek og þar sem
bossinn er ekki við getur
nánast hver sem er rokið í búrið og spilað það
sem hann vill.
«djass
j/Svartfugiarnir leika djass á milli kl. 17 og
19 á Jómfrúnni við Lækjargötu. Sveifla og
smprrebrpd. Svartfuglarnir eru Sigurður
Flosason sax, Björn Thoroddsen gftar og
Gunnar Hrafnsson bassi.
Tríó Ólafs Stephensen leikur af fingrum fram
á Hótel Húsavík.
Á Hótel Hvolsvelli verður
djassað í kvöld. Og um
það sjá Kristjana Stef-
ánsdóttir söngkona og
tríó Ó. Stolsenwald og
félaga. Gott nafn. Á bak
við það er Ólafur Stol-
senwald og spilar hann á
kontrabassa. Með hon-
um eru engir smákallar, Sigurður Flosason á
sax og Björn Thoroddsen á gftar.
fsveitin
Eyfi Kristjáns og Stebbi Hilmars verða á Krist-
jáni IX. í Grundarfirði f kvöld. Engar sætaferð-
ir úr bænum en hins vegar tekur það tæpa
þrjá tfma að skjótast þetta á sæmilegum bíl.
Bara 2 heitir hljómsveit og hún spilar í kvöld á
Ránnl í Keflavík. Og fólk dansar.
Torfi Ólafsson skemmtir gestum Vitans f
Sandgerði.
Báran, Akranesi. Óli gleðigjafi sér um diskó-
pöbbinn sinn.
Land og synir leika f Sjallanum á Akureyri - f
fyrsta skipti frá áramótum.
“Það verður há-
skélaball (jú
einmitt, það er
kominn háskóli
á Akureyri og
þar af leiðandi
háskólaborgar-
ar sem dansa
ekki innan um annað fólk) í íþróttahöllinni á
Akureyri f kvöld. Hljómsveitin Sóldögg hristir
rykið af mannskapnum og kallar fram í honum
sanna sveitamennsku.
Odd-Vitinn, Akureyri. Amingos laðar fólk á
dansgólfið í kvöld.
Hljómsveitin VIP spilar undir masi gestanna
Við Pollinn á Akureyri.
Buttercup ærir Þingeyinga og aðra á Hótel
Húsavik.
Diddl Hall og Ingimundur eru miklir gleðipinn-
ar og það munu þeir sem bregöa sér á Gamla
Baukinn á Húsavík fá að reyna.
Það er þriréttað konukvöld f Hlöðufelli á Húsa-
vík og Rut Reginalds er ábætisrétturinn.
Stefán Óskarsson leikur fyrir gesti á Hóteli
Norðurljósum á Raufarhöfn í kvöld.
Kaffi Lefolii á Eyrarbakka. Heimasveitin Lif-
andi Bakkamenn mæta og lyfta stemning-
unni.
1eikhús
Hádegisleikhús lönó. Leitum ab ungri stúlku
eftir Kristján Þórð Hrafnsson. Sýningin hefst
kl. 12. Hálftíma sfðar er borinn fram matur. Kl.
13 eiga allir að vera komnir aftur að skrifborð-
unum sfnum. Magnús Geir Þórðarson leikhús-
stjóri leikstýrir en Linda Ásgelrsdóttir og
Gunnar Hansson leika. Sími 530 3030.
Maöur á mislitum sokkum eftir Arnmund
Backman er á Smíðaverkstæöi Þjóðleikhúss-
ins kl. 20.30. Þessi farsi gengur og gengur og
þvf er uppselt í kvöld. Enn eitt gangstykkið
með „gömlu leikurunum”. Að þessu sinnjj.
Þóra Friðriksdóttir, Bessi Bjarnason og Guö-
rún Þ. Stephensen. Sími 551 1200 fyrir þá
sem vilja panta miða á sýningu einhvern tfm-
ann í framtíðinni.
Elddmffsaftfþcffum
um hftfglna!
HKLðlN § « 7 MAfUI
FfiStÍir/«/«ife iÆ Maiii KtisWfté. Mr mm. iMt .
mbmMm w mtmít mm „ **(&«*** SSll
unmtmmf: ,, HatMurmi iÉjt mm, wi rnmirn s&tki M&jiJt tmmttiM I 1111
'A (-ikIui þú
f yr i r <-1 nfivf-r ju?
hciidii i
I' KtDÍl i:-. / íii/ 'Ji'/U
5. mars 1999 f Ókus