Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1999, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1999, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 1999 lennmg 11 Simone de Beauvoir og„hitt kynið"gs§ Um þessar mundir eru liðin fimmtíu ár síðan franski rithöfundurinn og heimspek- ingurinn Simone de Beauvoir gaf út tima- mótaverk sitt Hitt kyniö sem margir telja að hafi hafi hleypt af stað svokallaðri „annarri bylgju" femínismans. Af því tilefni hafa bæði bókmenntamenn og kvennafræðingar víða um heim, þar á meðal hér á íslandi, skipu- lagt málþing og aðrar uppákomur de Beauvoir til heiðurs. Rannsóknarstofa í kvennafræðum lætur ekki sitt eftir liggja og stendur fyrir málþingi í Hátíðarsal Háskóla íslands kl. 14-17.30 á fostudaginn. Þar mun Vilhjálmur Ámason halda erindi sem hann nefhir Tvírœö frelsunarsiöfrœöi: Samanburöur á Sartre og de Beauvoir og Sig- ríður Þorgeirsdóttir og Irma Erlingsdóttir tala báðar um Hitt kynið en út frá mismun- andi sjónhomum. Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir fjallar síðan um áhrif de Beauvoir á íslenska kvennabaráttu, Soffia Auður Birgisdóttir segir frá viðhorfum skáldkonunnar til meðgöngu og móðurhlut- verks - de Beauvoir var oftlega sökuð um að gera lítið úr hvort tveggja - og loks heldur Dagný Kristjánsdóttir erindi um skáldsögur de Beauvoir sem nefnist Úr ástinni í eldinn. Það er engum vafa undirorpið að de Beauvoir er meðal merkari hugsuða úr röð- um kvenna á þessari öld. Hún lagði meginá- herslu á frelsi kvenna og að þær nytu réttar til jafns við karla og mótmælti því að hlut- skipti þeirra sem „hitt kynið“ skerti mögu- leika og tækifæri þeirra til persónulegrar og starfslegrar fullnægju. Af þeim sökum gagn- rýndi hún einm.itt hugmyndir um áskipaða hlutverkaskiptingu kynjanna, byggða á lif- fræði. Með fleygri setningu, sem birtist í kafla um bamæskuna í bókinni Hitt kyniö, nefnilega „maður fæðist ekki kona, heldur verður kona“, leitaðist de Beauvoir við aö sýna fram á að kyn væri ekki „lífíræðileg ör- lög“ sem dæmdu konur til ófrelsis. Heimspeki tvíræðninnar Sennilega höfðar de Beauvoir meir til karlmanna í skáldsögum sínum og ritgerð- um um heimspekileg málefni, til dæmis íHún kom til að vera (1943), þar sem hún fjall- Simone de Beauvoir. ar betur en flestir aðrir um „tilvist á tímum fáránleikans". Uppáhaldsskáldsaga umsjón- armanns er hins vegar Pótintátar (Mandar- ins) frá 1954 þar sem ástir og pólitísk von- brigði franskra menntamanna em til um- ræðu. Skáldsagan er rituð í þann mund sem mestur eldmóður cmdspymuhreyfingarinnar var ranninn af frönskum menntamönnum og brestir voru komnir í pólitíska samstöðu þeirra. Er talið að helstu söguhetjumar séu byggðar á de Beauvoir sjálfri, Sar- tre auðvitað, en einnig Albert Cam- us. Þau de Bauvoir og lífsfórunautur henn- ar, Jean-Paul Sartre, voru alla tíð kennd við tilvistarstefnuna - exístentíalismann - vora þau aldrei fyllilega sátt við að láta eymamerkja sig með þeim hætti. Áhöld era um það hvort þeirra de Beauvoir eða Sartre hafi „átt“ meira í þeirri stefnu. Sjálf- um þykir mér skil- greining de Beauvo- ir á eðli tilvistar- stefnu öllu meira að- laðandi en ýmislegt það sem Sartre hafði um hana aö segja. Hún lýsti henni sem „heimspeki tvíræðn- innar" þar eð hún áréttaði þá spennu sem það hefði í for með sér að lifa í „nú- inu“ en vera samt meðvitaður um „endanleika" lífsins. De Beauvoir hélt því blákalt fram að tilvistar- stefnan væri í rauninni jákvæð heimssýn því samkvæmt henni væri fólk hvorki gott eða vont að eðlisfari. „í fyrstunni er einstak- lingurinn ekki neitt; hann ákveður síðan hvort hann eigi að vera góður eða vondur, eftir því hvort hann notar sér frelsi sitt eða hafnar því.“ -AI Dr. Jackie og Mrs Hilary - um myndina um Jacqueline du Pré Hilary and Jackie, sem sýnd er í Háskólabíói um þessar mundir, er kvikmynd um systur sem báðar vora undraböm í tónlist. Lífshlaup þeirra átti þó eftir að verða býsna ólíkt, önnur varð bóndakona uppi í sveit, en hin heimsfræg- ur sellóleikari. Myndin er byggð á sannri sögu, því fræga systirin er engin önnur en Jaqueline du Pré, heimskunnur sellóleikari sem lést úr MS-sjúkdómnum árið 1987, aðeins 42 ára gömul. Myndin spannar nokkra áratugi, hún hefst í upphafi sjötta áratugarins og endar þegar Jackie deyr. Leikstjórinn, Anand Tucker, er mjög á persónulegu nótunum, og er kjaminn í myndirmi kjaftasaga um að Jackie hafi sofið hjá mági sínum með leyfi systur sinnar. Sagan kom fyrst fram í bókinni A Genius in The Family eftir systkini Jackies, og er myndin byggð á henni. Mikið hefúr verið smjattað á þessum meinta ástarþríhymingi síðan bókin út, og kemur ekki á óvart að bókin og myndin skuli hafa vakið mikla reiði meðal þeirra sem þekktu Jackie persónulega. Þar á meðal era heimsfrægir tón- listarmenn á borð við Yehudi Menuhin, Itzhak Perlman, Mstislav Rostropovich og Pinchas Zu- kerman. Frá þeim kom sú yfirlýsing skömmu fyrir frumsýningu myndarinnar í London að myndin væri ómakleg árás á konu sem getur ekki varið sig, Jackie í myndinni væri ekki sú Jackie sem þeir þekktu, heldur væri hún gerð að eigingjömu skrímsh sem reyndi að stjóma öllum í kringum sig. Óneitanlega kemst maður ekki hjá að vor- kenna píanóleikaranum og hljómsveitarstjór- anum Daniel Barenboim, eiginmanni Jackie, sem sagði opinberlega um bókina og höfunda hennar: „Gátu þau ekki beðið uns ég var all- ur?“ Eins og áður sagði era það bróðir og syst- ir Jackie sem skrifuðu bókina, og verður að segjast eins og er að maður skilur ekki alveg tilganginn. Kánnski vildu þau ná sér niðri á sfjömunni í fjölskyldunni; þeim hefur greini- lega ekki tekist að vinna úr afbýðiseminni sem á Emily Watson í hlutverki Jacqueline du Pré. heltekur gjaman systkini undrabama. Svo hafa peningar sjálfsagt spilað þar inn í líka, því fátt selst betur en kjaftasögur um heimsfrægt fólk. En kjaftasagan er í rauninni nauðaó- merkileg, og er bara safarík vegna frægöar eins aðilans. Venjulegt líf og óvenjulegt Þrátt fyrir þetta er myndin að mörgu leyti ágætlega gerð. Emily Watson sýnir tilþrifamik- Kvikmyndir Jónas Sen inn leik sem Jackie, og Rachel Griffiths sömuleiðis sem Hilary. En James Frain er óttalega aulalegur Daniel Barenboim og hefur ekki þá útgeislun sem maður skynj- ar frá ofurpíanóleikaranum í ótal sjónvarpsviðtölum og uppi á sviði. Áhugaverður er saman- burðurinn á „venjulegu" og „óvenjulegu" lífi, að sá sem er heimsfrægur skuh þrá jafnheitt hið hversdagslega líf og meðalmaðurinn sviðs- ljósið. í myndinni er hvorug- ur lífsstílhnn betri, því þó Jackie sé rik og fræg og ferð- ist til fjarlægra landa, missir hún tökin á sjálfri sér í öh- um hamaganginum. Á end- anum flýr hún i sveitasæl- una til systur sinnar, sem er sjálf afbrýðisöm og bitur yfir að hafa ekki náð langt á tón- listarbrautinni. Ekki verður hjá því komist að bera HUary and Jackie saman við myndina Shine, um ástr- alska píanóleikarann David Helfgott. Shine var óneitanlega miklu skemmthegri mynd, t.d end- aði hún vel, sem skiptir máli fyrir marga plebba á borð við undirritaöan. Svo var Helfgott mun bijálaðri en systumar ógurlegu tU samans, og æsUeg tónlistin eftir Rachmanin- off og Rimsky-Korsakoff mun áheyrUegri en drungalegur seUókonsert Elgars. Saga Helfgotts var líka áhugaverð, og þurfti ekki kjaftasögu tU að gera hana spennandi. Þegar upp er staðið er Hilary and Jackie því ekki bitastætt verk, hún er að vísu ágæhega unnin og leikurinn oftast góður, en sagan sem hún byggist á bara enn eitt kynlífshneykslið. Og hver þarf það? Anna Guðjónsdóttir hlýtur styrk úr Edstrandssjóðnum Edstrandssjóðurinn sænski er áreiðanlega stöndugasti myndlistar- sjóður á Norðurlöndum en úr honum eru veittir i árlegir styrkir til mynd- listarmanna á öUum Norður- löndunum auk þess sem haldin er sérstök sýn- ing á styrkþegum í Rooseum-safninu í Malmö. Sjóðurinn heitir í höfúðið á þremur systkinum, Reinhold, Theklu og GunhUd Edstrand, sem voru miklir listunnendur og komu sér upp mUdu einkasafni bæði sænskrar og alþjóðlegrar mynd- listar við upphaf þessarar aldar. Safn þeirra var síðar selt og ágóðinn settur tíl ávöxtunar í ofan- greindum sjóði. í dag er tæpum 14 miUjónum ís- lenskra króna deUt á miUi átta norrænna lista- manna. Meðal styrkþega í ár er íslenska listakon- an Anna Guðjónsdóttir sem býr og starfar í Ham- borg þar sem hún rekur einnig gaUerí. DV óskar henni hér með tU hamingju með viðurkenning- una og vegleg verðlaunin. Aðrir norrænir styrk- þegar eru Carl Michael von Hausswolff frá Sví- þjóð, Joachim Koester frá Danmörku, Henrietta Lehtonen frá Finnlandi og Bjame Melgaard frá Noregi. Verk þessara listamanna verða síðan tU sýnis í Rooseum-saihinu dagana 3. júlí-29. ágúst. Allt í himnalagi Þeir sem búnir eru að lesa upp tU agna eintak- ið sitt af DV i dag ættu að teygja sig í útvarpstæk- ið og opna fyrir góðu gömlu Gufúna, en eftir smástund eða kl. 13.05 hefst þar útvarpsleik- ritið Klóraöu mér á bakinu, elskaneftir Þor- stein Marelsson. Það er eitt af mörgum ís- lenskum leikritum sem frumflutt veröa nú í mars og apríl. í tilkynningu segir að leikritin séu „ólík að innUialdi og formi en eigi það sameiginlegt að lýsa fólki sem felur og bælir sinn innri mann en viðheldur um leið þeirri blekkingu að aUt sé i himnalagi". Persónur í verki Þorsteins eru eldri hjón sem taka sig upp einn góðan veðurdag og aka norður í land i því augnamiði að heimsækja dóttur sína og tengdason. Þegar líður á ferðalagið kemur ým- islegt fram sem varpar ljósi á eiginlegan tílgang ferðarinnar. Það eru þau Margrét Ólafsdóttir og Steindór Hjörleifsson sem fara með hlutverk hjónanna, en leikstjóri er Halhnar Sigurðsson. Skert dómgreind Hingað tU hefúr umsjónarmaður menningar- síðu stUlt sig um að fara í skóna myndlistargagn- rýnandans, enda er DV með slikan rýni á sínum snærum. Getur hann þó ekki orða bundist vegna sérkennUegrar sýningar sem nú blasir við í einu höfuðvígi islenskrar menningar, sjálfri Þjóð- arbókhlöðunni. Þar er í fyrsta sinn blásið tU einkasýningar á verk- | J um núlifandi myndhst- armanns, sem er út af fyrir sig bæði vel tU fúnd- ið og fréttnæmt. Því er fremur óskemmtUegt að þurfa að skýra frá því að sá núlifandi listamaður sem hér um ræðir er engan veginn í stakk búinn tU að sýna á þessum stað; hefúr augljóslega hvorki tU þess hugmyndalegar né tæknUegar for- sendur. Dómgreindarleysið er víðar en hjá stjóm Þjóðarbókhlöðunnar því sýningunni fylgir skrá með uppáskrift Kristjáns Kristjánssonar, heim- spekings á Akureyri, og Jóns Proppé sem tiUaður er aUt í senn „listfræöingur, A curator, techer, art expert and critic", en málfarið á skránni er dáldið í þessu líki. Því miður, það verður ehifaldlega að gera meiri kröfur til Þjóðarbókhlöðu vorrar en kaffistofú úti í bæ. Möguleikhús, kaífileikhús og dansleikhús hljóta styrki í gær var tUkynnt um árlega úthlutun styrkja tU atvinnuleikhópa. Þar fengu Flugfélagið Loftur 3 mUljóna króna starfsstyrk til eins árs, LeUcfélag íslands 2 mUljóna króna starfsstyrk tU eins árs og Möguleikhúsiö það sama og KaffUeikhúsið 1 milljónar króna starfsstyrk tíl eins árs. Síðan hlutu Dansleikhús með ekka, Leikfélagiö Annað svið og Leikfélagið Fljúgandi fískar 1 milijón hvert tU uppsetningar ákveðinna verka. Brúðu- leUchúsið Tíu fingur, LeUchópurinn Á senunni og Nótt og dagur fengu einnig 750 þúsund krónur og 500 þúsund tU undirbúnings eða uppsetningar verka. Umsóknír bárust frá 39 aðUum tU rúmlega 70 verkefna. TU úthlutunar voru samtals 21 milljón króna. Þar af runnu 8 miUjón krónur tU Hafnar- fjaröarleikhússins Hermóðs og Háövarar vegna tveggja ára starfssamnings við leikhúsið, en þetta ágæta leikhús hlaut Menningarverðlaun DV fyr- ir leUcsýningu fyrir nokkrum árum. Umsjón Aðalsteinn Ingólfsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.