Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Samið við Rússa og Norðmenn um Smuguna í Moskvu:
Samningurinn rýr
- og gefur litlar heimildir, segir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ
„Samnmgurinn er mjög rýr og gef-
ur okkur litlar heimildir, miðað við
það sem áður hefur verið. Við þurfum
að endurgjalda Norðmönnum með
mikilvægum stofnum og kaupa 2800
þúsund tonn af
Rússum á verði
sem við vitum
ekki hvert verður.
Því lít ég svo á að
við séum að fá
veiðileyfi fyrir
5000 tonn í
Barentshafi en
ekki 8900, með til-
liti til endurgjalds-
ins,“ segir Krist-
ján Ragnarsson, formaður LÍÚ, að-
spurður um nýja samninginn milli ís-
lendinga, Rússa og Norðmanna í
Barentshafi.
íslendingar fá 1,86% af leyfilegum
heildarafla á þorski i Barentshafi, auk
30 prósenta meðafla í öðrum tegund-
um. Með samningnum sem gerður
var í Moskvu í gær er lokið áralöng-
um deilum um Smuguna sem risu
Kristján
Ragnarsson.
Þeir Halldór Ásgrímsson utanríkisráöherra og Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra kynntu í gær umdeildan samning um Smuguna.
hæst þegar Norðmenn beittu herskip-
um sínum á íslenska togaraflotann. Á
fyrstu árum veiðanna var mikil
þorskveiði en síðustu tvö ár hefur afli
dregist mikið saman. Samningurinn
gildir í fjögur ár en fari leyfilegur
heildarafli á þorski í Barentshafi nið-
ur fyrir 350 þúsund tonn falla veiðar
íslendinga úr stofninum niður, sem
og veiðar norskra fiskiskipa í ís-
lenskri lögsögu. Heildarafli í Barents-
hafi er nú 480 þúsund tonn en búist er
við að kvóti verði skorinn niður á
næstu árum vegna lélegs ástands
þorskstofnsins. Léleg stjóm hefur ver-
ið á veiðum í Barentshafi og hafa
Rússar og Norðmenn lítið sem ekkert
samráð um veiðar úr sameiginlegum
stofnmn. Þannig hefur DV sagt frá því
að rússneskir togarar hafa landað
heilu förmunum af örsmáum þorski á
íslandi. í loftinu liggur að staðfest
verði af fiskiffæðingum að algjört
hrun sé á þorskstofhinum í Barents-
hafi. „Svo dettum við út eftir að þeir
hafa gengið illa um þennan stofn og
þar með erum við úti,“ sagði. -íbk/-rt
Fyrsta „net-brúökaupið“ á íslandi:
Tilhugalífið í tölvunni
- hittust eftir rúmt ár og ákváðu að giftast á Þingvöllum
„Ástin á Netinu er eins og ástin í
lifinu. Við vorum búin að talast við
í tölvunni á annað ár þegar við
ákváðum að hittast. Á þriðja degi
heimsóknarinnar voram við stað-
ráðin í að gifta okkur og gerðum
það á Þingvöllum um síðustu helgi,“
segir Kjartan H. Valdimarsson,
sölumaður hjá Austurbakka, sem
gekk að eiga Leola Francis Valdi-
marsson eftir djúpstætt tilhugalíf á
Internetinu. Þetta mun vera fyrsta
brúðkaupið á íslandi sem rekja má
beint til kynna fólks á Netinu.
Upphaf málsins er það að Kjartan
sat í Frostafoldinni í Grafarvogi, en
Leola í Flórída. Ókunnugt um hvort
annað lentu þau bæði inni á svo-
kallað yrki, þar sem fólk spjallar
saman:
„Ég slysaðist inn á þessa rás og sá
strax að þarna var ágætisfólk.
Smám saman fórum við Leola að
draga okkur út úr og tengjast óskýr-
anlegum tilfinningaböndum. Fyrst
voru það sameiginleg áhugamál
sem tengdu okkur, en svo varð þetta
hjartnæmara þegar við fundum að
viðhorf okkar til lifsins svona al-
mennt runnu í sama farvegi," segir
Kjartan þegar hann reynir að út-
skýra ástina á Netinu. „Við töluðum
saman oft á dag og mjög lengi í
hvert sinn í restina."
í fyrrasumar ákváðu þau að hittast
en fórast á mis. Þau reyndu aftur fyr-
ir skemmstu og hittust loks 6. mars
síðastliðinn. Það urðu fagnaðarfundir
þegar tveir elskendur féllust í faðma á
flugvellinum í Orlando; elskendur
sem aldrei höfðu snerst.
Kjartan og Leola sameinuðust á Netinu - hann í
Kjartan og Leola Francis gengu í hjónaband
í Þingvallakirkju eftir rúmt ár á Netinu.
Frostafold en hún í Flórída.
„Við fundum ekki fyrir
neinni feimni, en það var
mikill titringur í okkur. Við
vorum búin að upplifa til-
hugalífið á Netinu þannig að
þetta var bara lokapunktur-
inn. Það sannaðist á okkur
að tilhugalífið á Netinu er
raunverulegt, því viö þurft-
um ekki nema þrjá daga í
faðmi hvors annars til að
ákveða giftingu. Viö erum
bæði mjög ham-
ingjusöm," segir
Kjartan H. Valdi-
marsson.
Það var séra
Vigfús Þór Árna-
son, sóknarprest-
ur í Grafarvogi,
sem gaf Kjartan
og Leolu saman í
Þingvallakirkju
um síðustu helgi.
Séra Vigfús seg-
ist ekki í vafa um
að Netið verði í
framtíðinni
stærsti hjóna-
bandsmiðlari
heims. Netið eigi
eftir að tengja
saman sálir í öll-
um heimshom-
um.
Kjartan og
Leola era bæði
43 ára gömul.
Leola er ekkja en
Kjartan fráskil-
inn. Leola á þrjú
böm en Kjartan tvö. Öll era börnin
ánægð með ráðahaginn, að sögn
Kjartans, sem starfar sem fyrr sagði
sem sölumaður hjá Austurbakka.
Þar selur hann lækningatæki og
tæki á rannsóknarstofur. Leola er
hins vegar söngvari og lagahöfund-
ur og hefur meðal annars samið lög
fyrir kúrekasöngvarann Vince Gill.
Þá hefur hún einnig samið lag fyrir
Taniu Tucker.
-EIR
DV-mynd ÞÖK
Vesturborg GK 195 aftur til veiða:
Uppreisnarmenn sendir úr landi
„Þeir vissu nákvæmlega hvað
þeir fóru út í. Við borguðum undir
þá farið aftur til Noregs samkvæmt
samningi og þar með er málið úr
sögunni," sagði Andrés Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri hjá Valdi-
mar hf. í Vogum sem gerir út Vest-
urborgina GK 195. „Deilan snerist
um skiptakjör og þau era betri hjá
okkur en í Noregi. Ég skil ekki
hvemig Norðmennirnir gátu farið
að gera ágreining um þetta.“
Eins og greint var frá í DV í gær
óhlýðnuðust fjórir norskir skip-
verjar á Vesturborginni skipstjóra
austur af Vestmannaeyjum í fyrstu
veiðiferð skipsins. Neituðu þeir að
vinna eftir íslenskum skiptaregl-
um. Á sjómannamáli nefnist
óhlýðni við skipstjóra uppreisn og
því ákvað skipstjóri að sigla til
lands með Norðmennina, eftir að
hafa ráðfært sig við útgerðina í
landi.
„Meginástæða þess að siglt var til
lands var að einn skipverja var
veikur, með brjósklos, og þurfti að
komast undir læknishendur," sagði
Andrés framkvæmdastjóri og vildi
sem minnst gera úr uppreisnartil-
rauninni - sagði að útgerð sín væri
þekkt fyrir annað en uppreisnir og
vandræði. Skipiö hefði verið endur-
mannað með íslendingum, þó væru
enn tveir Norðmenn um borð og
þrír Færeyingar.
Vesturborgin var keypt fyrir
skemmstu frá Álasundi í Noregi og
hét áður Vestborg. Skipið er smíðað
1982 en endurbyggt og lengt um sjö
metra 1987.
„Þetta er gott skip og við fengum
það á ágætu verði,“ sagði Andrés
Guðmundsson. -EIR
Komið að reisugilli
Komið er að
reisugilli í bygg-
ingu bæjar Ei-
ríks rauða og
Þjóðhildar-
kirkju. Húsin
eru smíðuð á Is-
landi en verða
síðan reist í
Brattahlíð á Grænlandi og vígð þar í
júlí árið 2000. Ámi Johnsen alþingis-
maður er formaður byggingamefnd-
ar.
Gagnrýnir bæjarstjórn
Rafveitustjórinn á Akureyri gagn-
rýnir harðlega að hvorki Rafveitan
né stjórn veitustofnana hafi verið
höfð með í ráðum þegar AKO/Plast-
os keypti áhaldahús Rafveitunnar.
Einnig segir hann verðið allt of lágt.
Dagur sagði frá.
Aðalstræti 6 selt
Tryggingamiðstöðin hefúr keypt
eignarhluta borgarinnar í húseign-
inni Aðalstræti 6, Morgunblaðshöll-
inni, ásamt 40% af baklóðinni,
Fischersundi 1 og hluta lóðarinnar
Fischersund 5. Kaupverð eignanna
er 114,5 milljónir kr. og greiðist með
jöfnum afborgunum án vaxta mán-
aðarlega á 9 mánuðum.
Týndur í London
Breska lögreglan leitar nú íslend-
ings á sextugsaldri, sem ekkert hef-
ur spurst til síðan í síðustu viku.
Maðurinn var í viðskiptaferð í
Lundúnum. Vísir.is sagði frá.
Vilja ekki fóik
Eigendur landsins við Jökulsár-
gljúfúr hafa auglýst í Lögbirtinga-
blaðinu að umferð fólks þar sé
óheimil nema með leyfi þeirra. Stað-
urinn er skráður sem náttúruminjar
og vafi leikur á heimild landeigenda
til að takmarka aðgang að náttúm-
minjum. RÚV sagði frá.
Aldamótahús
Félag áhugamanna um aldamóta-
hús áformar að byggja i sumar ein-
býlishús við Barðastaði 67 í Grafar-
vogi. Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis fjánnagnar bygginguna sem
hönnuð er af Guðmundi Jónssyni,
arkitekt í Ósló.
Frumsýning í Dresden
Leikritið Fjör-
brot fuglanna eft-
ir Elías Snæland
Jónsson, rithöf-
imd og ritstjóra,
verður frumsýnt
í Dresden í
Þýskalandi nk.
laugardag, 17.
apríl. Óvenjulegt er að íslenskt verk
sé ffumsýnt á erlendri grund.
Sameinaðar slysavarnir
Viðræður standa yfir um samein-
ingu Siysavamafélagsins og Lands-
bjargar. Endanleg ákvörðun verður
væntanlega tekin á þingum samtak-
anna i mai.
Naumur meirihluti
Naumur meirihluti, eða 51% þeirra
sem þátt tóku í atkvæðagreiðslu á
VísLis, styðja innrás landhers NATO í
Júgóslavíu. Nærri 6000 atkvæði vora
greidd þá viku sem atkvæðagreiðslan
stóð yfir. 3094 'styðja slika innrás en
2807 era hennir andvígir. Einungis eitt
atkvæði er talið frá hverri tölvu í at-
kvæðagreiðslu á Vísi.
Fiskréttir í flug
íslenskt franskt eldhús á Akra-
nesi hefúr gert samning um sölu á
2,4 milljónum skammta af svokölluð-
um fiskterrin-sneiðum eða fiskpaté-
sneiðum til bresks flugfélags. Morg-
unblaðið sagði ffá.
Fleiri kennarar
3200 stöðugildi
grunnskólakenn-
ara eru nú á
landinu öllu en
3726 kennarar og
leiðbeinendur
starfa nú í
grunnskólunum
samkvæmt frétt
ffá menntamálaráðuneytinu. Stöðu-
gildum kennara mun fiölga á næstu
árum og telur Bjöm Bjamason
menntamálaráðherra að koma megi
að hluta til móts við aukna kennara-
þörf með meiri flarkennslu. -SÁ