Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 Viðskipti Þetta helst: .. .Mikil viðskipti á Verðbréfaþingi, 1.404 m.kr. ... Ávöxtunarkrafa húsbréfa snarlækkar í 4,39%- ... Hlutabréfamarkaður fjörugur ,,, Um 163 milljóna viðskipti með bréf SH sem lækka ,., FBA hækkar um 6,1% í 86 m.kr. viðskiptum ... Breskur fjárfestir til liðs við Netverk ,,. Evran styrkist lítillega ... Viðskiptamáti framtíðarinnar - rafræn viðskipti gjörbylta viðskiptaháttum Rafræn viðskipti eru að gjörbylta hefðbundnum viðskiptaháttum. Viðteknar viðskiptavenjur breytast, milliliðum fækkar, viðskiptakostn- aður minnkar, nánara samband rik- ir á milli fyrirtækja og neytenda og nýir markaðir og vörur spretta upp. Þetta er mat Finns Ingólfssonar við- skiptaráðherra. Umfang rafrænna viðskipta hefur vaxið gríðarlega með tilkomu Netsins og allt bendir til að vöxturinn muni aukast enn hraðar á næstu misserum. Helsti ótti manna varðandi rafræn við- skipti hefur verið varðandi öryggis- mál. Það eru ekki nema þrjú ár síð- an margir bankar á íslandi töldu óhugsandi að hefðbundin banka- starfssemi færi fram á Netinu milli einstaklinga. í dag reka allir bankar heimabanka og öryggi i þessu við- skiptum virðist vera viðunandi. Hins vegar hefur skort á ítarlega lagasetningu og réttaróvissa hefur verið töluverð í rafrænum viðskipt- um hér á landi. Af þessum sökum lét Finnur Ingólfsson viðskiptaráð- herra lögfræðingana Gunnar Thoroddsen og Skúla Magnússon taka saman ítarlegt lögfræðilegt yf- irlit um þau íslensku lög er varða rafræn viðskipti. Þetta framtak mun án efa styrkja áframhaldandi uppbyggingu rafrænna viðskipta og stuðla að frekara öryggi. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra opnaði fyrsta snertibankann á íslandi síðastiiðinn mánudag. Nýir gjaldkerar Á mánudag var opnaður fyrsti rafræni snertibankinn á íslandi. Það var Geir H. Haarde fjármálaráð- herra sem vígði bankann í Spari- sjóði Hafnafjai'ðar. í þessum banka verður hægt að framkvæma allar helstu aðgerðir sem venjulegt fólk hefur þörf fyrir. Þessi þróun hefúr án efa í för með sér að starf gjald- kerans mun breytast á næstu árum og fækka muni í stéttinni. Þessi þróun hefur gerir það að verkum að bankaútibúum mun fækka. Margir íbúar landsbyggðar- innar hafa lýst áhyggjum vegna þessarar þróunar og ótt- ast að eini bankinn á mörgum stöð- um verði kassi með snertiskjá. Vissulega er það óvenjuleg þróun að banki verði ekki stærri en síma- klefl og skiljan- legt að sumir sjái á eftir hefö- bundnun bankaútibúum. Þetta er hins vegar viðskiptamáti framtiðarinnar og hefur í för með sér mikla hagræð- ingu bæði fyrir banka og neytend- ur. Flugeldasýning á hluta- bréfamörkuðum Nýherji byggir í Borg- artúni Nýherji hefur gert samning við Hörð Jónsson byggingar- verktaka um kaup á 6400 fm skrifstofuhúsnæði sem rísa mun á gatnamótum Borgar- túns, Sæbrautar og Kringlu- mýrarbrautar. Húsið verður flmm hæðir auk kjallara og mun rúma alla starfsemi Ný- herja sem nú er til húsa bæði í Skaftahlíð 24 og Skipholti 37. Markmið kaupanna er að mæta þeirri auknu húsnæðis- þörf sem leitt hefur af hröð- um vexti fyrirtækisins og koma allri starfsemi Nýherja fyrir á einum stað. Húsið hef- ur verið hannað eftir óskum Nýherja í samræmi við þann rekstur sem fyrirtækið er í. Kaupverð húsnæðisins verð- im fjármagnað með sölu nú- verandi fasteigna Nýherja, með hlutafjáraukningu og lánsfé. Áætlað er að flytja starfsemi Nýherja í nýja hús- ið i apríl árið 2000. Arkitekt hússins er Guðni Pálsson, VSÓ sér um hönnun en Verk- fræðistofa Stanley Pálssonar um verkeftirlit. Þetta kemur fram á viðskiptavef Vísis. Hlutabréf um allan heim tóku kipp upp á við í gær. Ástæðan er óvænt hækkun sem varð á Wall Street. Almennt var búist við að bréf myndu lækka í verði í kjölfar afkomuviðvörunar frá bandaríska tölvurisanum Compac. Áður en markaðir voru opnaðir á Wall Street á mánudag lækkuðu hluta- bréf alls staðar í heiminum en ástandið var ótryggt uns ljóst yrði hvernig bandaríski markaðurinn myndi túlka fréttimir. Ótti manna Heildartekjur íslenska hátækni- fyrirtækisins Össurar hf. námu um 1.034 milljónum króna á árinu 1998. Til samanburðar voru tekjur 783 milljónir árið 1997 og 652 m.kr. 1996. Hagnaður eftir skatta var 79 millj- ónir króna 1998 en var til saman- burðar tæpar 12 milljónir árið á undan og 6 milljónir árið 1996. Hagnaður félagsins af heildartekj- um óx þannig Úr 1,53% 1997 í 7,64% árið 1998. Eigið fé Össurar hf. var 183 milljónir 31. desember 1998 og eiginfjárhlutfall 35,7%. Arðsemi heildarfjármagns eftir skatta er 22% og arðsemi eigin fjár var 77%. Þetta kemur fram á viðskiptavef Vísis. Ástæðu þessarar aukningar má helst rekja til þess að margar nýjar vörur komu á markað á árinu. Sala Össurar hf. á árinu skiptist í megin- drátum þannig eftir markaðssvæð- um að sala til Bandaríkjanna nam var ástæðulaus og hækkaði Dow Jo- nes hlutabréfavísitalan um 1,6% og var í lok viðskiptadag komin í 10.339,51 stig. Þegar fréttir af þessari hækkun bárust tóku hlutabréf í Asíu að hækka og nam hækkunin 1,3-1,65%. í gærmorgun, þegar markaðir voru opnaðir í Evrópu, var sama uppi á teningnum. Hluta- bréf hækkuðu i öllum helstu kaup- höllum Evrópu. Xetra Dax-vísitalan í Frankfurt hækkaði strax um 1% í 5.217,53 stig og SMI-vísitalan í Sviss hækkaði svipað. Búist var sömu- leiðis við því að FTSE-vísitalan í London myndi hækka er viðskipti hæfust þar. Þar var talið að helst mætti vænta frétta af bréfum í Barclays-banka, sem spáð var að myndu lækka vegna óvæntrar af- sagnar nýskipaðs bankastjóra, Michaels O’Neill, af heilsufarsá- stæðum. Þessar verðhræringar voru allflestar úr takt við það sem spáð var og því má segja að fram- haldið sé óljóst. -BMG um 45% af heildarsölu fyrirtækisins og sala til EES-landa var um 40%. Þess má geta að sala til stríðs- hijáðra svæða í heiminum var 1% af sölu fyrirtækisins. Starfsfólki Ös- urar hf. hefur fjölgað stórum undan- farin ár. Þannig störfuðu 67 manns hjá fyrirtækinu 1996 en I ársbyrjun 199 voru starfsmenn orðnir 110 tals- ins. Að undanförnu hefur verið unnið að nýrri stefnumótun Össur- ar hf. Tilgangurinn er að efla sam- keppnishæfni fyrirtækisins og und- irbúa komu þess á hlutafjármarkað hér á landi og/eða erlendis. For- stjóri Össurar hf., Jón Sigurðsson, væntir þess að félagið verði talið álitlegur fjárfestingarkostur þar sem ijárfesting í ört vaxandi fyrir- tæki með mikla vaxtamöguleika sé spennandi kostur fyrir fjárfesta hér á landi sem ytra. Ossur hf. með 79 milljóna hagnað Vaxtalækkanir á Noröurlönd- um Almennt er talið að vextir verði lækkaðir fljótlega í Noregi og Svíþjóð. Hins vegar ber mönnum ekki saman um hvenær af þessu gæti orðið. Margir telja að norski seðla- bankinn lækki strax í þessari viku, en aðrir telja að af þessu verði með vorinu og beðið verði eftir niðurstöðum kjarasamn- inga sem eru lausir. Verðbólgutölur verða birtar í dag í Svíþjóð og munu eflaust hafa áhrif á ákvörðun sænska seðlabankans. Vextir hafa lækk- að alls staðar i Evrópu á undan- fömum vikum og vaxtamunur milli íslands og Evrópu eykst stöðugt. Verö á karfa hækkar Verð á íslenskum karfa hefur hækkað mikið undanfarið. Ástæðan er sú að Evrópusam- bandið hefur bannað innflutn- ing á Nílarkarfa úr Viktoríu- vatni í Afríku. Framboð hefur því minnkað töluvert í Evrópu og njóta íslendingar þess í hækkuðu verði. Ástæða banns- ins eru sögusagnir um að eitur sé notað við veiðarnar og einnig hefur fundist óeðlilegt magn af saurgerlum í fiskinum. Talið er að bannið muni gilda eitt ár og kemur það sér vel fyrir íslend- inga. Frá því að bannið var sett á hefur verðið hækkað um 46%. Þetta bann hefur líkar slæmar hliðar því Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna er einn stærsti söluaðili í Evrópu á ferskum Nílarkarfa. Hins vegar er ágæt- ur markaður fyrir þessa vöru í Asíu og á meðan bannið gildir verður karfinn seldur frosinn til Asíu. Afkoma BGB hf. ágæt Útgerðarfyrirtækið BGB hf. á Árskógssandi skilaði ríflega 28,5 milljóna króna hagnaði í fyrra. Velta ársins var sú sama og árið áður, 729 milljónir króna, en þá var hins vegar 27,6 milljóna tap á rekstrinum. Að teknu tilliti til hlutdeildar í tapi dótturfélags, sem BGB keypti hlut í í lok síð- asta árs, nam hagnaðurinn í fyrra 13,6 milljónum króna. BGB hf. gerir út þrjú skip og rekur flskvinnslu á Dálvík og Árskógs- sandi. Heildareignir BGB voru bókfærðar á 1.213 milljónir króna í árslok og námu veltuijár- munir þar af 132 milljónum. Heildarskuldir voru 806 milljónir króna og langtímaskuldir þar af um 170 milljónir. Eigið fé var 406 milljónir og veltufé frá rekstri nam 98 milljónum króna. Starfs- menn BGB eru 65 talsins og hlut- hafar í fyrirtækinu eru 68. Sænska krónan veikist Sænska krónan hefur veikst nokkuð eftir að sænski fjármála- ráðherrann, Eric Ásbrink, sagði af sér á mánudag. Arftaki Ásbrink verður Bosse Ringolm og eru menn ekki á eitt um hvort hann sé rétti maðurinn i starflð. Ringholm hefur séð um vinnu- og félagsmál. Liklegt er þó að þessi veiking sé aðeins til skamms tíma og að gengiö muni fljótlega fara aftur í fyrra horf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.