Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 8
Útlönd MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 Stuttar fréttir :dv Fundur utanríkisráöherra Bandaríkjanna og Rússlands í Noregi: Rússar hika við að þrýsta á Serba DV, Gardermoen: Gagnlegt en tilgangslaust. Þetta varð niðurstaðan af fundi utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna og Rússlands á Gardermoen í Noregi í gær. ígor ívanov, utanrikisráðherra Rússlands, hikaði þegar hann var krafinn um að fara á fund Slobod- ans Milosevics, forseta Júgóslavíu, og biðja hann að láta undan í deil- unni um Kosovo. Vinningaskrá 4S. úcdráttur 8. aprfl 1999. íbúðarvinningur Kr. 2.000.000____________Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 42594 1 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) | 14024 24200 38784 52592 Ferðavinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 16447 30138 46816 52584 64070 73828 25920 46745 48645 60063 66361 79291 Húsbúnaðarvinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) 263 10821 22787 33654 43150 51454 64854 74573 1861 12414 23057 35425 43486 53723 65787 75132 2231 13057 23863 35622 44001 55622 66119 75147 2338 14666 24287 38204 44328 55840 67014 75900 2373 15575 25196 38405 44903 56755 67461 75904 286S 16291 25262 39058 45279 58287 68137 76272 5883 16561 27085 39692 46214 58697 68178 76527 6181 17615 28543 39866 46995 59020 68553 76652 6923 17890 28557 40527 47776 59585 68976 76669 8407 18456 28878 41258 48830 60551 70984 8674 19480 31529 41564 49105 62972 72854 9059 20816 31727 41872 49553 63953 73163 9297 21740 32442 41908 50971 64425 73956 Húsbúnaðarvinningur Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvðfaldur) 44 8609 16944 26559 36802 48377 58864 68456 ÍTT 9217 17304 26731 37044 48441 58881 68544 148 9417 17395 26830 38054 48470 59076 68708 167 9620 17869 27064 38387 48555 59145 69535 266 9728 18030 27074 38418 48618 59248 69924 323 9831 18334 27255 38577 49046 59771 69981 407 9868 18390 27410 38590 49456 60104 70115 499 9876 18402 27887 38791 49706 60225 70463 60S 9892 18556 27936 39483 49754 60278 70476 1160 9929 18614 28090 40027 49994 60589 70624 1224 10029 18709 28187 40312 50079 60698 70907 1345 10054 19268 28375 40475 50161 60762 71029 1497 10072 19469 28413 40814 50513 60814 71427 2107 10180 19630 28828 41077 50957 60965 71474 2268 10478 19729 28951 41175 50999 61282 71535 2423 10675 20120 29331 41337 51419 61634 71971 2596 10924 20136 29350 41761 51949 61671 72299 2852 10926 20293 29368 42297 52111 61758 72318 3294 10944 20375 29482 42523 52205 61784 72342 3336 11014 20456 29542 42854 52562 61979 72982 3358 11453 20595 29770 42938 52601 62045 73028 3476 11747 20645 30084 43066 52627 62564 73233 3670 12026 20793 30240 43584 52752 62614 73391 3791 12056 20887 30273 43629 53241 62762 73494 4004 12166 20924 30312 43800 53249 63006 73799 4417 12578 21446 30390 44016 53891 63319 73877 4563 12747 21913 30563 44119 54226 63395 74348 4584 12995 22337 30832 44255 54242 63833 74408 4949 13005 22350 31051 44435 54560 63849 74926 5228 13222 22504 31428 44512 55163 63870 75170 5498 13699 22631 31454 44613 55292 64227 75532 5636 13881 22670 31618 44760 55507 64253 76387 5732 13979 23383 32307 45078 55S76 64423 76431 5814 13982 23428 32526 45116 56249 64694 76645 5818 13996 23474 32680 45378 56253 65128 76780 5839 14286 23578 32767 45429 56411 65487 76927 5939 14789 23989 32885 45668 56461 65912 77124 6486 14814 24194 33049 45786 56503 65947 77281 6505 15121 24476 33088 45874 56689 66144 77482 6565 15464 24604 33115 46048 57052 66599 77881 6839 15623 24729 34263 46174 57087 66837 77890 7103 15640 24839 35077 46310 57848 66997 77944 7267 15655 24870 35079 46383 57872 67087 77997 7321 16009 25420 35176 46739 57934 67131 78152 7481 16065 25478 35955 46830 58147 67258 78313 7986 16298 25517 36129 46833 58153 67299 78338 8005 16377 25716 36231 47169 58226 67890 78429 8020 16402 25746 36591 47508 58414 68188 78558 8063 16848 25927 36725 47890 58751 68240 78939 8401 16867 26554 3676S 48072 58762 68441 79417 Nœstu útdrœttir fara frani 15.22. & 29. apríl Hcimasíða á Intcmcli: lltlp://www.itn.is/das „Fundurinn var gagnlegur," sagði ígor ívanov á blaðamanna- fundi eftir viðræðurnar við Made- leine Albright, utanrikisráðherra Bandaríkanna. Fulltrúi DV var þar og hlustaði á. Albright sagði lika að fundurinn hefði verið gagnlegur, og þá var öllum ljóst að þetta var gagnslaus fundur. Og í gærkvöldi komu svo tíðindin um að NATO ætlaði að herða enn meir aðgerðir sínar á Balkanskaga: Fleiri flugvélar og fleiri sprengjur. Fundur ráðherranna stóð tveim- ur tímum lengur en áætlað var og það vakti vonir um að eitthvað nýtt væri á seyði. Bæði ívanov og Al- bright urðu að hringja heim il for- seta sinna og spyrja ráða, en niður- staðan var sú sama: Rússar hika og NATO sprengir. „Við höfúm rætt þessi mál í síma oft áður og ræddum þau enn nú. Við erum sammála um að Serbar verði að láta af ógnarverkum í Kosovo, að þeir verði að kalla allt vopnað lið sitt út úr héraðinu og að alþjóðlegt lið gæti friðar í Kosovo á eftir,“ sagði Albright eftir fundinn. Albright lét vera að nefna hvers slags lið það yrði, og þar greinir Bandaríkjamenn og Rússa á. Al- bright segir að NATO verði að skipa kjama liðsins, en Rússar vilja að friðsirgæsla í Kosovo verði í hönd- um óháðs liðsafla - þegar og ef Serbar gefa eftir. í þessu efni gefa heldur ekki Bandaríkjamenn og NATO eftir. Vandinn er að engir fulltrúar Serba hafa til þessa mætt á fund NATO. Serbar viðurkenna ekki Rússa sem fulltrúa sína - fyrirlíta raunar Rússa - og á meðan svo er þjónar það litlum tilgangi þótt full- trúar Rússa og Bandaríkjamanna ræðist við í bróðemi. Slobodan Milosevic fer sínar eigin leiðir eftir sem áður. Norska lögreglan stendur nú grá fyrir járnum nótt sem nýtan dag fyrir utan raðhús séra Kjells Magnes Bondeviks í úthverfi Óslóar og bíður þess að Serbar geri alvöm úr hótunum sínum um að drepa for- sætisráðherrann. Eftir að átökin í Kosovo brutust út hefur séra Kjell Magne fengið hótanir bæði skriflega og símleiðis. -GK Bólusetningar eru alls staðar jafnhvimleiðar. Þessi mynd var tekin þegar verið var að bólusetja lítið albanskt barn sem varð að flýja heimkynni sín f Kosovo vegna voðaverka Serba. Sprengjur falla enn á Júgóslavíu: Þjóðverjar vinna að friðaráætlun Þýsk sfjómvöld greindu frá því í gær að þau væru að vinna að friðar- áætlun fyrir Kosovo. Þar er gert ráð fyrir að júgóslavneskar hersveitir yfirgefi Kosovo, að allir flóttamenn frá héraðinu snúi heim og að alþjóð- leg friðargæslusveit, undir merkj- um SÞ en undir stjóm NATO, fram- fylgi gerðum samningum. „Unnið hefur verið að þessari áætlun í margar vikur,“ sagði Ludger Vollmer, aðstoðamtanríkis- ráðherra Þýskalands, í viðtali við þýska útvarpið. Ráðheirann sagði ekki hvenær áætlunin yrði lögð fram. Herflugvélar NATO héldu loft- árásum sínum á Júgóslavíu áfram í gær og sprengdu meðal annars upp vatnsorkuver. Bill Clinton Banda- ríkjaforseti sagði að lofthemaður- inn, sem staðið hefur í þrjár vikur, væri smám saman að gera júgóslav- neska herinn óvígan. McCain í framboð Repúblikaninn John McCain frá Arizona tilkynnti í gær að hann sæktist eftir tilnefningu flokks síns fyrir forsetakosning- arnar á næsta ári. Bibi sakaður um lygar Yitzhak Mordechai, fyrrum varnarmálaráðherra ísraels, hef- ur sakað Benja- min Netanyahu forsætisráð- herra um að hafa logið að ráðherrum sín- um og þing- heimi. Þetta gerðist í fyrstu kappræðum þeirra fyrir kosning- arnar sem verða í næsta mánuði. Stjómmálaskýrendur segja að Mordechai hafi haft betur í kapp- ræðunum. Uppsagnir hjá Kværner Norsk-enska fyrirtækið Kværner ASA hyggst hætta skipasmíði og hefur sagt 25 þús- und manns upp, eða þriðjungi starfsliðsins. Afturkallar uppreisn Uppreisnarforinginn Xanana Gusmao á A-Tímor mun í dag taka aftur orð sín um uppreisn gegn* her Indónesa. Þess í stað mun Gusmao ítreka þann vilja sixm að íbúar A-Tímor verji sig sjálfir gegn yfirgangi hersins. Hague í baráttu íhaldsmenn á Bretlandi hófú í gær kosningabaráttu vegna kom- andi kosninga. Á næstu tveim- ur mánuðum verður kosið í sveitarstjómir, á skoska og velska þingið auk Evrópu- þingsins. Bar- áttan nú er talin mælistika á vin- sældir leiðtoga íhaldsmanna, Williams Hague, auk þess að verða dómur um árangur tveggja ára stjórnar Verkamannaflokks- ins á Bretlandi. Rokk og ról virkar best Breskir tómatabændur hafa komist að þeirri merkilegu nið- urstöðu að rokktónlist virki vel á vöxt plantnanna, ekki síst ef þær em hristar í takt við tónlistina. Réðst á ferðamenn Dómstóll í Miami dæmdi í gær mann í 20 ára fangelsi fyrir að hafa stýrt glæpaklíku sem hafði það að markmiði sínu að ráðast á erlenda ferðamenn. Sex slösuðust í ókyrrð Flugvél breska flugfélagsins British Airways lenti í mikilli ókyrrð yfir Singapore í gær með þeim afleiðingum að sex farþegar slösuðust talsvert. Treysti poppgoðinu Poppgoðið ' Michael Jackson heldur því fram í viðtali við breska blaðið Mirror að Díana heitin prinsessa hafi oftsinnis hringt í sig og trúað sér fýrir sínum innstu hjartans mál- um. Jackson segir engan vafa leika á því að Dodi A1 Fayed hafi gert prinsess- una hamingjusama. Kafbátar upp í skuld Stjómvöld í S-Kóreu íhuga að taka kafbáta upp í skuldir Rúss- lands við landið. Skuld Rússa nemur um 140 milljörðum króna. Hættir við framboð Romano Prodi ítrekaði í gær vilja sinn til að stuðla að róttæk- um umbótum á framkvæmda- stjóm ESB. Prodi, sem hefur ver- ið útnefndur næsti forseti fram- kvæmdastjórnarinnar, er hættur við framboð til Evrópuþingsins. \ ’Vc*- /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.