Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 32
ÍII8fi8f V I K I N G A LfTlV - að,uínna -f ..’itMr J(L m í ll'Mj FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað T DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 Reiði vegna Smugusamnings meðal norskra útgerðarmanna: Þetta er siðleysi - segir Audun Marak. Færeyingar reiðir DV, Ósló: „Þetta er samnningur sem felur í sér að íslendingar fá tvöfalt verðmæt- ari afla i norskri lögsögu en þeir láta i staðinnn. Og þetta fá þeir gegn þvi að lofa að hætta að stela fiski. Við erum einfaldlega á móti svona vinnu- brögðum," segir Audun Marak, fram- kvæmdastjóri Landssambands norskra útvegsmanna, við DV um Smugusamninginn sem undiritaður var í Moskvu í gær. Lán í óláni er þó - fyrir Norðmenn - ef Peter Angelsen, sjávarútvegsráð- ■%Éierra Noregs, fer að ráðum fiskifræð- inga í haust að þá verður enginn þorskur ætlaður íslendingum i Barentshafi á næsta ári. Smugusamn- ingurinn er miðaður við 480 þúsund tonna heildarþorskkvóta í Barents- hafi og kvótar íslendinga faila niður ef heildarkvótinn fer undir 350 þús- und tonn. Fiskifræðingar vildu fyrir þetta ár skera þorsk- kvótann í Barents- hafi niður í 350 þúsund tonn en Angelsen ákvað Audun Marak. að fresta þvi um eitt ár. Annars er gert ráð fyrir að ís- lendingar fái 8.900 tonn af þorski í Barentsháfi og að sá afli verði að jöfnu tekinn af norskum og rússnesk- um kvótum. „Fyrir þetta fáum við Norðmenn 2.700 þorskígildi en engin loforð um að íslendingar ætli sé ekki að beita al- þjóðadómstólnum í Haag til að kom- ast inn lögsöguna við Svalbarða og engin loforð um að þeir hefji ekki rækjuveiðar í Smugunni," segir Marak. í Færeyjum hafa sjómenn lýst óá- nægju sinni með að íslendingar upp- skeri veiðiheimildir í Smugunni. Fær- eyingar hafi að vísu byrjað á Smugu- veiðunum en hætt strax til þess að gera ekki á móti vilja Norðmanna. Nú komi hins vegar á daginn að fyrir þetta fá þeir ekkert en íslendingar séu verðlaunaðir fyrir Smuguveiðamar. „Þetta sýnir best hugsunarháttinn sem býr að baki samningnum. Þeir fá mest sem fara með mestum yfirgangi og neita að virða rétt annarra þjóða. Þannig skapa menn sér samnings- stöðu. Þetta köllum við siðleysi," sagði Marak og taldi skást fyrir Norð- menn að hafa engan samning um Smuguna enda væru engar líkur á afla þar næstu árin. Nánar á bls. 2 -GK Stóðhesturinn Galsi frá Sauðárkróki seldur að hluta: Hesturinn 14 millj- óna króna virði - Galsi sinni 73 hryssum á ári. Folatollurinn 187 þúsund á hryssu í sex ár Eftir töluvert langa samningalotu hefur Andreas Trappe selt Hrossa- ræktarsamtökum Suðurlands, Skaga- fiarðar og Austur-Húnvetninga 44 pró- senta hlut í stóðhestinum Galsa frá Sauðárkróki. Eftir söluna er Galsi um Leikskóladeila: Uppsagnir farn- ar að berast Uppsagnir leikskólakennara í Kópavogi eru byrjaðar að berast á bæjarskrifstofuna, að sögn Gunnars I. Birgissonar, forseta bæjarstjórnar. Leikskólakennar- ar krefiast sambærilegrar endur- skoðunar á gildum kjarasamn- ingi sínum og gerð hefur verið í Hafnarfirði og á Seltjarnamesi. Þá standa yfir samningaviðræður viö leikskólakennara í Garðabæ um sambærilegar breytingar. Gunnar sagði að þriggja manna viðræðunefnd við leikskólakenn- ara hefði verið skipuð. Gunnar sagði að vel væri búið að leik- skólakennurum í bænum og þess- ar uppsagnir nú virtust hluti eins konar keðjuverkunar. -SÁ 14 milljóna króna virði. Hlutur Hrossa- ræktarsamtaka Suðurlands kost- aði 3 milljónir króna auk virð- isaukaskatts. Baldvin Ari Guðlaugsson á sem fyrr 10% í Galsa og má nota hann á 7 hryssur, Hrossa- ræktarsamtök Suðurlands eiga 21,66% og notkunarrétt á 16 hryssum, Hrossaræktarsamtök Skagfirðinga eiga 10,84% og notkunarrétt á 8 hryss- um, sama hlut og notkunarrétt eiga Hrossaræktarsamtök Austur-Hún- vetninga og sjálfur á Trappe 46,66% og notkunarrétt á 34 hryssum. Stefiit er að því 'að taka 50 sæðis- skammta úr Galsa í mars og apríl ár- lega. „Við eigum rétt á að halda sextán hryssum undir Galsa og tryggðum okkur notkun á honum sex næstu árin með því að selja fýrirfram hlut til hrossaræktarsamtaka og einstaklinga á 187 þúsund krónur hvem hlut,“ seg- ir Kristinn Guðnason, formaður Hrossaræktar- samtaka Suður- lands. „Eftir sex ár verður Galsi í eigu Hrossarækt- arsamtaka Suður- lands. Mér finnst þetta mjög skyn- samlegt form því það tryggir að hesturinn verður notaður af mörg- um einstakling- um á margar ólík- ar hryssur, ekki einokaður innan hlutafélags," segir Kristinn. „Með þessum kaupum erum við að tryggja að Galsi verður á íslandi um ókomna framtíð. Það er mikilvægt fyrir ímynd íslenskrar hrossaræktar að sigurvegurum sé haldið innan- lands,“ segir Jón Vilmundarson ráðu- nauiur. Galsi er undan Ófeigi frá Flugu- mýri og Gnótt frá Sauðárkróki. Hann vakti feikna athygli á sýningu á Stóð- hestastöðinni í Gunnarsholti vorið 1994 en þá fékk hann 8,44 í aðalein- kunn. Hæfileikamir gáfú 9,01. Galsi stóð einnig efstur í A-flokki gæðinga á landsmótinu á Melgerðis- melum i sumar. -EJ Óveður á Austurlandi Þrátt fyrir að vorið sé hinum megin við hornið er óvenju mikið fannfergi á Egilsstöðum. í gær var vonskuveður en í morgun var búið að lægja. Snjór- inn var þó enn á sínum stað. Æskunni finnst alitaf spennandi að leika sér í snjónum, þótt hann sé þyrnir í augum margra fullorðinna. DV-mynd Teitur Veðrið á morgun: Snjókoma eða él Á morgun verður norðaustan stinningskaldi eða allhvass vind- ur, en hægari fram eftir degi suð- austan til. Víða verður snjókoma eða él. Frost á bilinu 0 til 5 stig. Veðrið í dag er á bls. 45. Ný, öflugri °g öruggari SUBARU IMPRF7A IIVI r l\Li.r\ Ingvar Helgason hf. Scevarhöfba 2 Sími 525 8000 www.ih.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.