Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 11 DV Fréttir Uppreisnarmaður á Patreksfirði bíður eftir ákæru: Tapar 150 þúsund krónum á dag - og semur fiskveiðilög á meðan „Ég er að bíða eftir ákæru frá saksóknara. Á meðan liggja báðir bátarnir minir bundnir við bryggju og það kostar mig 150 þús- und krónur á dag,“ segir Svavar Guðnason, útgerðarmaður á Pat- reksfirði, sem sendi Vatneyri BA á kvótalausar veiðar fyrr á árinu til að mótmæla framkvæmd kvótalag- anna. „Ég er sannfærður um að vinna málið og mun að sjálfsögðu setja þennan kostnað og perónu- legt tap mitt inn í skaðabótakröfu á ríkið.“ Útgerðarfyrirtæki Svavars á sem kunnugt er tvo báta, Vatneyr- ina og Háhyrning. Það kostar hann tvær og hálfa milljón á mán- uði að láta Vatneyrina liggja bundna við bryggju og Háhyrning- ur kostar hann eina og hálfa millj- ón á mánuði. „Það styttist í að ég fari á haus- inn ef þetta heldur svona áfram,“ segir Svavar, en hann sito ekki auðum höndum á meðan. Hann hefur samið tillögu að lögum um stjórn fískveiða í 15 liðum, þar sem segir meðal annars í 1. grein: „Öllum réttbomum íslendingum skal tryggður rétto til að stunda þann atvinnurekstur sem nefnist fiskveiðar innan íslenskrar fisk- veiðilögsögu, sem er 200 sjómílur frá ströndum íslands." „Ég vona bara að saksóknari fari að drífa í því að kæra mig. Ég er sigurviss," segir Svavar Guðna- son, útgerðarmaður á Patreksfírði. -EIR DV-mynd ÞÖK Samnorræn söfnun Lionshreyfingarinnar, Rauða fjöðrin til styrktar öldruðum, er hafin. Söfnunin fer fram með sölu á rauðum fjöðrum samtímis á Norðurlöndunum. 20% söfnunarfjárins renna í samnorrænan sjóð, en 80% verður var- ið hér heima til rannsókna á öldrun og öldrunarsjúkdómum, ekki sfst aizheimer, og til að auðga líf aldraðra borgara. Á myndinni festir Halldór Kristjánsson, verkfræðingur og Lionsmaður, fyrstu rauðu fjöðrina í þessari söfnun í jakka- boðung Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands. DV-mynd JAK Bræðurnir Ólafur Þór og Stefán Þór Haraldssynir við gömlu túrbínuna. DV-mynd Örn SR-mjöl Siglufiröi: Raforkufram- leiðslu hætt DV, Siglufixði: Nokkur kaflaskil urðu í starf- semi SR-mjöls á Siglufirði fyrir skömmu þegar fyrirtækið hætti eigin raforkuframleiðslu og hér eftir mun öll orka sem verksmiðj- an þarfnast verða keypt af RARIK. Ástæðan fyrir að þetta gerist nú er sú að fljótlega verður tekin í notkun nýbygging sem í er hluti af vélbúnaði fyrirtækis- ins og þá voru þær vélar, sem notaðar hafa verið til orkufram- leiðslu undanfarið, komnar veru- lega til ára sinna. „Þessi vél er búin að framleiða liðlega 27,3 milljónir kílóvatt- stunda á 54 árum sem hún hefur verið í notkun. Hún er fyrsta gufutúrbínan sem kom til lands- ins, hefur gengið afar vel og ver- ið ódýr í viðhaldi. Þetta hefur verið mikið öryggistæki fyrir verksmiðjuna því orkan frá vél- inni nægði til að við gátum brætt á hálfum afköstum þótt við misst- um rafmagnið frá Skeiðsfoss- virkjun sem stundum hefur nú komið fyrir,“ sagði Ólafur Þór Haraldsson, vélstjóri hjá SR- mjöli, þegar fréttamður kom við hjá honum fyrir skömmu. Túrbínan góða fékk afl sitt frá heljarmiklum gufukatli. í hann var leidd öll sú gufa sem varð til í verksmiðjunni þegar bræðsla fór fram. Auk þess hafði verk- smiðjan yfir að ráða 1000 ha. dísilvél sem stundum var notuð til raforkuframleiðslu, jafnvel fyrir bæjarfélagið þegar bilanir hafa orðið á háspennulinunni til Siglufjarðar. Hún er fyrsta gufu- túrbinan sem kom til landsins. -ÖÞ Auglýsing frá yfirkjönstjórn Reykjaneskjöndæmis um móttöku fnamboöslista. Framboðsfrestur til alþingiskosninga, sem fram eiga að fara þann 8. maí 1999, rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 23. apríl nk. Framboðslista skal afhenda yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis þann dag, kl. 10-12, í íþróttahúsinu í Kaplakrika, Hafnarfirði. Á framboðslista skulu vera að lágmarki nöfn 12 frambjóðenda og eigi fleiri en 24. Framboðslista skal fylgja yfirlýsing þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Flverjum lista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í Reykjaneskjördæmi. Skulumeðmælendur vera 240 hið fæsta og eigi fleiri en 360. Enginn kjósandi getur mælt með fleiri en einum framboðslista.Þá skal fylgja framboðslista skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans. Tilgreina skal skýrlega fullt nafn frambjóðanda, kennitölu, stöðu og heimili. Við nöfn meðmælenda skal greina kennitölu og heimili. Fundur yfirkjörstjórriar með umboðsmönnum framboðslista, skv. 38. gr. laga nr. 80/1987 um kosningartil Alþingis, verður haldinn í Iþróttahúsinu í Kaplakrika, Hafnarfirði, laugardaginn 24. apríl, kl. 10. Meðan kosning fer fram laugardaginn 8. maí 1999 verður aðsetur yfirkjörstjórnar í íþróttahúsinu í Kaplakrika, Hafnarfirði, og talning atkvæða mun fara fram á sama stað. Reykjavík, 12. apríl 1999. Yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis Sigríður Jósefsdóttir Jónas A. Aðalsteinsson Páll Ólafsson Vilhjálmur Þórhallsson Þórunn Friðriksdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.