Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
5
DV
Fréttir
Framleiðsla Plastos Umbúða til Akureyrar:
Reglugerö um ferliverk:
Flutningnum lokid
fyrir áramót
- 40-50 ný störf skapast á Akureyri
DV, Akureyri:
Samningar hafa tekist milli Akur-
eyrarbæjar og Plastos Umbúða hf.
um kaup Plastos Umbúða á hús-
næði Rafveitu Akureyrar fyrir 86
milljónir króna. Plastos Umbúðir
eru að stærstum hluta í eigu Upp-
hafs ehf. á Akureyri sem jafhframt
á AKO-plast og meirihluta í Kex-
verksmiðjunni á Akureyri og á
næstunni verður unnið að samein-
ingu AKO-plasts og Plastos Umbúða
i eitt öflugt fyrirtæki á Akureyri.
Markmiðið með kaupunum á
húsi Rafveitunnar á Akureyri er að
koma framleiðslustarfsemi hins
sameinaða fyrirtækis undir eitt þak
á Akureyri og til að það megi takast
verður ráðist í byggingu um 2 þús-
und fermetra viðbyggingu við hús-
næði Rafveitunnar. í þær fram-
kvæmdir verður ráðist á næstu vik-
um og er gert ráð fyrir að flutningi
verði lokið fyrir næstu áramót.
Með flutningi á framleiðslu og yf-
irstjórnar Plastos Umbúða til Akur-
eyrar munu skapast 40-50 ný störf á
Akureyri en meginhluti markaðs-
deildar ásamt lager og dreifingu
verður áfram á höfuðborgarsvæðinu
og þar munu starfa 12-15 manns.-gk
Kuldaboli mun tapa:
Beðið eftir vorinu
á Vestfjörðum
DV, ísafirði:
Sól og einstaklega gott veður um
páskana gaf íbúum ísafjarðar og ná-
grannabyggða tilefni til bjartsýni
um að nú væri vetur á enda og vor-
ið að ná yfirhöndinni. Eitthvað hafa
veðurguðimir bmgðist væntingum
Vestfirðinga og íbúa um norðanvert
landið í þessum efnum og snarlega
stöðvað vorkomuna með frosti og
jafnvel snjókomu.
Krakkamir í Bakkaskjóli í Hnífs-
dal létu þetta þó ekkert á sig fá og
léku við hvern sinn fingur í snjón-
um við leikskólann þegar blaða-
mann DV bar að garði í gær. Þar á
bæ eru menn þess líka fullvissir að
kuldaboli muni skíttapa í barátt-
unni við vorið. -HKr.
Krakkarnir í Bakkaskjóli.
DV-mynd Hörður
Beðið birt-
ingar reglu-
gerðar
Tryggingastofnun er ekki enn
farin að taka þann aukna þátt í
greiðslu fyrir svonenfnd
ferliverk á
spitölum og
heilsu-
gæslustöðv-
um sem
henni ber,
samkvæmt
reglugerð
sem Ingi-
björg
Pálmadóttir
heilbrigðis- ingibjörg Pálma-
ráðherra dóttír heilbrigðis-
gaf út í síö- ráðherra.
ustu viku
um há-
marksgreiðslur fyrir ferliverk.
Ástæðan er sú að auglýsing um
þessa reglugerð hefur enn ekki
birst í Stjórnartíðindum. Þangað
til hún hefur birst endurgreiðir
stofnunin ekki kostnaðinn, en
eftir að hún hefur birst mun
ferliverkakostnaður fólks vænt-
anlega verða endurgreiddur frá
útgáfudegi reglugerðarinnar, 7.
april sl.
Samkvæmt reglugerðinni
skulu sjúklingar greiða mest
5000 krónur fyrir þessi verk, en
greiðslur gátu áður numið tug-
um þúsunda. „Reglugerðin hef-
ur verið undirrituð og tekið
gildi. Eftir henni á að fara eins
og öðrum reglugeröum," sagði
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra. -SÁ
L ..
Opnum kukkan fólf!