Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
7
Fréttir
Togararallið alveg marklaust
- segir Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Gylli
„Það er farið að verða þó nokkuð
af steinbít. Við höfum verið að
reyna fyrir okkur með hann enda
virðist vera þokkalegt af honum. En
það er útilokað að ná honum nema
að mikið af þorski fylgi með, enda
allt fúllt af honum um allan sjó og
inni á fjörðum. Það er ekki nokkur
leið að koma niður veiðarfæri án
þess að fá upp mikið af þorski. Mað-
ur getur valið um stærðir eftir því
hvar maður leggur línuna. í vetur
höfum við eingöngu verið með stór-
an og vænan fisk og meðalþyngdin
er miklu meiri en var hér fyrir
nokkrum árum,“ segir Rúnar Frið-
þjófsson, skipstjóri á Gylli ÍS frá
Flateyri.
Línubáturinn Gyllir er búinn
sjálfvirkri beitningavél og stundar
útileguróðra en landar afla sínum í
fiskvinnslu Básafells á Flateyri.
Mikill afli hefur verið hjá Flateyrar-
bátum það sem af er vetri. Vestfirð-
ingar hafa til margra ára talið nú-
verandi fiskveiðistjórnunarkerfi
andstætt byggð í fjórðungnum og
viljað breytingar þar á.
„Það er óhætt að auka töluvert
við þorskvéiðiheimildir án þess að
nokkuð þurfi að óttast um stofninn
enda ljóst að hann er stórlega of-
verndaður. Það gerist af sjálfti sér
þegar mikið er af fiski og lítið um
æti að þá fer stofninn að éta undan
sér. Það hlýtur að vera til bóta að
auka heldur við veiðamar. Alla
vega er fiskveiðistjórnunin eins og
hún er núna á hreinum villigötum
og nauðsynlegt að bæta þar úr sem
Hópur álfta hefur að undanförnu verið á ósnum við bæinn Óseyri, sem er
innanvert við Stöðvarfjörð. Þetta eru fimm álftir, auðsjáanlega unglr fuglar,
alhvítir á hálsi. Þrjár álftanna eru með merki á fæti. Hafa fuglarnir greinilega
verið innan um mannfólkið áður, því þegar fréttaritari fór til að ná myndum
af þeim komu þær rakleiðis í land og var alveg hægt að fara til þeirra. For-
eldrar hafa farið með börn sín til að gefa þeim brauðbita og hefur þeim líkað
það vel. DV-mynd Garðar, Stöðvarfirði
Ingunn Jensdóttir í Eden.
DV-mynd Eva
Litasýning leikstjórans
DV, Hverageiði;
Um þessar mundir stendur yfir
málverkasýning Ingunnar Jensdótt-
ur í Eden. Á sýningunni eru silki-
og vatnslitamyndir og er þetta 8.
sýning listamannsins, málarans og
leikstjórans í Hveragerði. Ingunn
hefúr mikið unnið með áhugaleikfé-
lögum um allt land og leikstýrði síð-
ast verkinu „Síldin kemur og síldin
fer“, sem Ungmennafélag Biskups-
tungnahrepps sýndi.
eh
Rúnar Friðþjófsson skipstjóri.
DV-mynd Guðm. Sig.
allra fyrst."
í fréttum í síðustu viku mátti lesa
að niðurstöður togararallsins hefðu
verið vonbrigði, því ekki hefði
mælst minni þorskur í rallinu í tíu
ár.
„Þorskurinn torfar sig ekki eins
og oft hefur gerst þannig að togarar
hafa ekkert verið að gera sérstaka
hluti á Vestfjarðamiðum þó línu-
skipin mokfiski. Togararallið segir
því ekkert um þorskgengdina og er
alveg marklaust. Ég var búin að
segja að torararallið yrði ekki neitt,
ekki neitt fyrr en komið væri meira
æti þannig að fiskurinn þjappaði
sér saman. Þeir ná honum einfald-
lega ekki við þessar aðstæður," seg-
ir Rúnar.
G.Sig.
Skilmannahreppur:
Hætt við sameiningu
DV, Akranesi:
í haust skipuðu hrepparnir
sunnan Skarðsheiðar, það er
Skilmannahreppur, Leirár- og
Melahreppur, Hvalfjarðar-
strandarhreppur og Innri Akra-
neshreppur, samstarfsnefnd sem
átti að kanna sameiningu þess-
ara fjögurra sveitarfélaga. At-
hygli ehf. gerði skýrslu um kosti
og galla þess að sameina sveitar-
félögin. Það var niðurstaða At-
hygli að enginn fjárhagslegur
ávinningur væri að sameina
þau, að sögn Jóns Þórs Guð-
mundssonar, oddvita Skil-
mannahrepps.
„Við ákváðum því að hætta
þessum viðræðum þar sem að
við töldum að það hefði minna
komið út úr þessu heldur en við
væntum. Ég veit ekki um það
hvort hinir hreppamir haldi
áfram að ræða saman, en for-
ráðamenn þeirra geta gert það
upp við sig hvort þeir gera það,“
sagði Jón oddviti við DV.
DVÓ
f=\
m
i"
/999
Fegurðardrottning Reykjavíkur verður valin
úr liópi 18 keppenda fimmtudaginn 15. apríl á Broadway.
C&tes &<(Xari!a5 FACE I BLUES
Hórstofa 111=11«™ ■ STOCKHOLM I •< « ' " « l u n n .
OWOBLU
KNICKERBOX
KARL K. KARLSSON
w<
Grafarvcgs
Canon
QtcUUÓ ehf
Glæsileg söng- og dansatriði.
Tískusýning íra BI.IIES, keppendur sýna.
K\nnir: Bjarni Olal'ur Guðniundsson.
Miða- og borðapantanir m
í síma 533 1100.
BYbGINGA
Verð 5.200 fyrir matargesti. -1.950 kl. 22:00. Afi
BFÖ80W*7 a *
T- Fordry kkur í boði heildverslunar
^ Kíirls K. Karlssonar.
^ Glæsilegasta hlaðborð landsins.
HOTEL ISLANDI