Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 9
Fyrir brúðhjónin
Brúökaup
Það er mikil og stór ákvörðun
að ganga í hjónaband. Fólk virð-
ist taka þessa ákvörðun seinna
á lífsleiðinni en það gerði fyrir
þrjátíu til fjörutíu árum. Á ár-
unum 1966 til 1970 var meðalald-
ur brúðguma 26,2 ár og brúðar
23,9 ár en á árunum 1996 til 1997
var meðalaldur brúðguma 34,5
ár og brúða 31,9 ár. Algengasti
aldur brúðguma á árunum 1966
til 1970 var 21 ár en brúða 19 ár.
Á árunum 1996 til 1997 var hann
aftur á móti 27 ár hjá brúðgum-
um en 28 ár hjá brúðum. Sam-
tímis því að aldur brúðhjóna
hefur hækkað hefur hjónavígsl-
um fækkað jafnt og þétt á þess-
um árum. Á árunum 1971 til
1975 voru gefin saman 8649 pör
en á árunum 1991 til 1995 gengu
6244 pör í hjónaband. SS
Allt tilbúið - nú vantar
einungis brúðhjónin.
MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1999
Ikvikmyndum sjáum viö oft skreytta bíla meö dósir í eftir-
dragi og á bílnum er gjarnan skilti sem á stendur „just
married“. Slíkt er sjaldséð á íslandi. íslensk brúöhjón
leggja þó í auknum mœli áherslu á aö veröa sér úti um sér-
stakan brúðarbíl. Skreyttir eðalvagnar eru þá fengnir til aö
koma brúðhjónunum á milli staöa.
Bílaleigan Hasso hefur til dæmis
komið sér upp sérstökum brúðarbíl.
Það er Rolls Royce Silverspirit og
gegnir hann einungis því hlutverki
að vera brúðarbíll. Að sögn Sigurð-
ar Bjarnasonar, annars eiganda
bilsins, er hann þó einnig til taks ef
mikil fyrirmenni eru á landinu.
„Þetta er eini bíllinn sinnar tegund-
ar á landinu og án efa flottasti brúð-
arbillinn," segir Sigurður. „Þetta er
rúmlega 38 milljóna króna bíll,
fimm metra langur, en þó bara
fimm sæta og er því mjög rúmgóð-
ur. Hann er með viðarinnréttingu
og með hágæðaleðri á sætum sem
unnið er úr ellefu nautshúðum.
Framendinn er prýddur gegnheilli
silfurgrind, auk handsmíðaðrar siif-
urstyttu."
Sérmenntaður
„chauffeur"
Glæsikerruna keyrir einungis sér-
menntaður einkennisklæddur bíl-
stjóri. Hjalti Garðarsson hefur gengið
í „chauffeurskóla" í Bandaríkjunum
og segir hann brúðarakstur nokkuð
frábrugðinn öðrum akstri. „Þetta er
til dæmis í eina skiptið sem konan á
að sitja hægra megin í bílnum og er
sagt að hún sé hægri hönd manns
síns þennan dag. Hin almenna regla
er sú að æðri aðilinn sitji hægra meg-
in.“ Að sögn Hjalta veitir ekkert af
hinum breiðu dyrum á Rolls Roycin-
um því kjólar brúðanna eru yfirleitt
fyrirferðarmiklir. Hjalti segist alltaf
hafa aukasokkabuxur meðferðis.
„Þær geta alltaf komið að góðum not-
um. Auk þess er kampavín alltaf til
taks ef þess er óskað.“
Að sögn Hjalta er brúðaraksturinn
sá þáttur sem er einna mest vanmet-
inn á brúðkaupsdeginum. „I raun
ætti fólki að þykja jafnsjálfsagt að
kaupa sér brúðarakstur eins og að fá
kokk til að sjá um matinn. Með því
að kaupa brúðaraksturinn vinnst
margt. Állir vinir og vandamenn geta
til dæmis tekið þátt í athöfninni, bíll-
inn sem er notaður er 1. flokks, með
stórum hurðum, og síðast en ekki
síst er þjónustan „professional". Það
er ekki sama hvernig dyr eru opnað-
ar, hvar hver situr í bílnum né
hvernig bíllinn snýr við kirkjuna,"
ítrekar Hjalti að lokum. SS
Séríslenskar brúðkaupshefðir eru
fátíðar en tíðkast það þó einungis hér-
lendis að konur sitji vinstra megin í
kirkjunni en karlar hægra megin við
hjónavígslur. Það var venja hér áður
fyrr að fólk kysstist í lok messu og
þótti sumum sem að tilgangi
messnanna væri ekki þjónað sem
skyldi er sóknarbömin huguðu mest
að því að velja sér álitlegan sessunaut.
Því var brugðið á það ráð að kynja-
skipta kirkjunni.
Það er einnig gömul hefð að brúð-
guminn taki brúði sína í fangið og
beri hana yfir þröskuldinn. Táknar
það að hann hyggist verða stoð henn-
ar og stytta í lífinu og hjálpa henni í
gegnum alla erfiðleika.
Gömul munnmæli segja að brúður-
in eigi að bera eitthvað gamalt, eitt-
hvað lánað og eitthvað blátt og þá
helst blá sokkabönd á brúðkaupsdag-
inn og muni hjónabandið þá verða
hamingjusamt.
Siðir og venjur þjóna nú til dags
fyrst og fremst skemmtanagildi og
erum við ötul að taka upp siði og venj-
ur erlendis frá til að auka enn á fjöl-
breytileikann. SS
Þegar brúðhjónin nýgift stíga óör-
ugg en hýr á brá út um kirkjudym-
ar rignir yfir þau hrísgrjónum þar
sem allir nærstaddir virðast hafa
fyflt vasa sína af tilteknum vamingi.
Þetta kann að þykja frekar köld
kveðja til hjónakomanna nýgiftu ef
maður veit ekki betur. Hrísgrjónin
eru nefnilega tákn frjósemi og er því
í raun verið að óska brúðhjónunum
barnaláns. í rás tímans hafa margir
siðir og venjur myndast í kringum
brúðkaup og þó að upphaflegur til-
gangur þeirra sé gleymdur haldast
hefðirnar óbreyttar.
Ofástleitnir
og koddinn
íHcEncjurfatagerðiti
Baldursgötu 36,
sími 551 6738.
BORÐSKREYTINGAR