Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 13
f I MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 Blóm segja oft meira en mörg orö. Blóm hafa skýra táknræna merkingu auk þess aö vera fögur og ilm- rík. Saga blóma er löng, táknmál blóma og lita er fyrst talin hafa borist frá Egyptalandi til Evrópu. Blóm Hýasintur: festa og tryggð. Bláar: ákveðni, ég helga þér líf mitt. Hvít- ar: ég met þig mikils. Litir Litum blandaö saman í blómvönd táknar gleði og frið. Purpurarautt táknar hátíð. Hvítur lUjur tákna hreinleika, aðr- ir liljulitir tákna hreysti og styrk. Fölbleikt og Ijósrautt eru tákn æsku og fegurðar. Klukkublátt er tákn vonarinnar. Fjólublátt er tákn iðrunar og yfir- bótar. Appelsínugult er tákn frjósemi og hamingju. Hvít blóm tákna samúð eða sak- leysi. Rauð blóm tákna ást og kærleik. Fjólulitur er tákn þess að vera trúr og tryggur. Rósmarín (sigrænn runni) og murta eru tákn minninganna. Rauðar rósir: ást. Hvítar rósir: afneitun, ég elska þig ekki. Gular rósir: afneitun, ég elska ann- an /aðra. Orkedlur: munaður, ég geri líf þitt sem dans á rósum. Nellikur: hrifning, þetta var fallega gert af þér. Túlípanar: játning, ég játa þér ást mína. íris: tilfinningahiti, hjarta mitt brennur af ást. Gladíólur: sársauki, tillitsleysi þitt Mímósur: næmleiki, þú ert of særir mig. fljót/fljótur á þér. Hvitar chrysanthemum: sannleik- Gleym-mér-ei: minning, hugsaðu ur, aðrir litir styrkur. til mín. SS Flestar brúðir leggja mikið upp úr að verða sér úti um glæsilegan undirfatnað i tilefni dagsins. Brúðkaupsnóttin er sveipuö vissri dulúó. Brúðirnar lœóast yfirleitt einar í nærfataverslanir til að velja brúðarnœrfötin og fœr brúóguminn ekkert að sjá né vita fyrr en brúökaupsnóttina. Aó sögn Sigríóar í und- irfatabúðinni Ég og þú leggja brúðir meiri og meiri áherslu á brúðarnœrfötin. „Við erum með gífurlegt úrval af brúðarnærfötum, korselett, sokka- bönd, t-buxur og sokka við og er þetta mestallt handunnið í litlu þorpi á Spáni. Þannig að allar brúðir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nærfót- in eru yfirleitt valin með brúðarkjól- inn í huga, þó ætti brúðirnar í raun að velja nærfotin fyrst þar sem sumir kjólar eru svo fleygnir að erfitt getur verið að finna nærfot sem ganga við þá.“ Sigríður segir að ljósir litir verða yfirleitt fyrir valinu. „Beisliturinn hefur verið rikjandi síðustu árin en hvíti liturinn nýtur aukinna vin- sælda. Brúðirnar vilja yfirleitt hafa eitthvað blátt í nærfótunum en gömul hjátrú segir að það auki hamingjuna í hjónabandinu. Það eru yfirleitt sokkaböndin sem eru blá eða með blárri slaufu," segir Sigríður. Sokka- böndin eru fyrst og fremst ætluð sem skraut og segir Sigríður að brúðgum- inn eigi að færa brúðina úr öðru sokkabandinu eftir kirkjuathöfnina og henda því til gesta þar sem ungir menn geta barist um það líkt og gert er með brúðarvöndinn. Brúðgumar í nœrfatabúðum Sigríður segir aö brúðgumar komi í auknum mæli til að versla. „Þeir koma bæði til að huga að morgungjöfinni og til að kaupa nær- fot í tilefni dagsins. Tilgangurinn er þó oftar að finna morgungjöf og velja þeir þá yfirleitt fallegan silki- náttkjól og jafnvel slopp við.“ Að sögn Sigríðar er það algengara að brúðurin sjái um að kaupa nærfot á sinn verðandi bónda. „Silkiboxer buxur eru vinsælastar og velur brúðurin oftast eitthvað sem passar við hennar eigin nærfót. Einnig ger- ist það í auknum mæli að vinkonur brúðar komi hingað með hina verð- andi brúði í gæsapartíum og láti hana velja og máta nærfót. Það er oft líf og fjör hérna,“ segir Sigríður, glöð. Hún leggur að lokum áherslu á að brúðamærfótin eigi að velja tím- anlega og i góðu næði. „Það er allt of algengt að þetta sé gert á seinustu stundu og þá vill stress og tímaleysi skyggja á allan brúðkaupsundirbún- inginn sem á að vera skemmtilegur og rólegur tími.“ SS JI ART GALLERY raudarársiIg 105 REYICJAVÍK SÍMI/TEL 551 0400 Rauðarárstíg 14, sími 551 0400 Kringlunni, sími 568 0400 fold@artgallerifold.com irci opnctr nyjo glæsilcgo húsgognoverslun í Bæjorlind 6 17. opríl nk. || IWm |p|g| Mikiö úrval of gjafovörum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.