Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1999, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1999
5
í
t r»v Fréttir
Sverrir ætlar að berjast fyrir lágmarkslaunum á þingi:
Með fern eftirlaun
- og þingmanns-
laun að auki
- bjóst aldrei við að enda á þingi
„Verkalýðshreyfingin
er ófær um að berjast fyr-
ir þeim sem lægst hafa
launin. Ég mun því beita
mér fyrir því að Alþingi
setji lög um lágmarks-
| laun í landinu," sagði
Sverrir Hermannsson,
| nýkjörinn alþingismað-
ur, í gær. Sjálfur er hann
aftur kominn á launa-
skrá Alþingis þó að hann
þiggi eftirlaun sem fyrr-
verandi þingmaður hjá sömu stofn-
un, auk þess að fá eftirlaun sem ráð-
herra, bankastjóri og framkvæmda-
stjóri hjá Framkvæmdastofnun rík-
isins. Laun Sverris koma því úr
I fimm áttum.
„Þetta var allt stillt af þegar ég
hætti í Landsbankanum og ég veit að
eftirlaun min nema samtals 90 pró-
sentum af bankastjóralaunum hver
sem þau eru í dag. Nú bætist nýtt
þingfararkaup við og því
mundi ég ætla að eftir-
laun mín sem þingmanns
frestuðpst á meðan ég sit
á þingi. En um þetta hef
ég ekki hugmynd því ég
reiknaði aldrei með að
enda á þingi. Ekki einu
sinni á lokaspretti kosn-
ingabaráttunnar,“ sagði
Sverrir og ætlar nú að
ganga á fund skrifstofú-
stjóra Alþingis til að fá
því svarað hvort hann haldi eftir-
launum sem þingmaður þótt hann sé
orðinn þingmaður aftur.
„Það hefur aldrei gerst áður hér
að fyrrum þingmaður sem þiggur
eftirlaun sé kosinn aftur á þing. Ég
hef skoðað þetta mál sérstaklega og
niðurstaðan er sú að sá sem þiggur
þingfararkaup fær ekki eftirlaun á
meðan,“ sagði Friðrik Ólafsson,
skrifstofustjóri Alþingis. -EIR
Þaö var glatt á hjalla í þingflokksherbergi Framsóknarflokksins á manudag-
inn þegar Hjálmar Árnason, Ólafur Örn Haraldsson og ísólfur Gylfi Pálma-
son óskuðu hver öörum til hamingju meö þingmannssætiö. Sem kunnugt er
tryggöu þeir félagar sér þingsætin á elleftu stundu eftir aö hafa verið ýmist
úti eöa inni alla kosninganóttina. DV-mynd Teitur
Klipptu i sundur símalín-
ur Borgarkringlunnar
Menn frá verktakafyrirtækinu
ístaki, sem vinnur við stækkun
Kringlunnar, klipptu í sundur nær
allar símalínur Borgarkringlunnar í
gærmorgun, einar 200 línur, með
þeim afleiðingum að búðir þar voru
síma- og posalausar. Ljóst þykir að
starfsmennirnir frá ístaki hafi ekki
verið með nógu haldgóðar teikning-
ar af símalögnunum. Er ístak skaða-
bótaskylt og þarf að borga viðgerð
Landssímans auk óþæginda búðar-
eiganda fyrir vikið. Viðgerðarmenn
frá Landssímanum voru kallaðir á
vettvang til þess að kippa ósköpun-
um í liðinn og þegar þeir luku sér af
höfðu verslanimar í Borgarkringl-
unni verið símasambandslausar í
rúmlega þrjár klukkustundir.
„Verktakar hafa greiðan aðgang
að teikningum af öllum símalögnum
á Teiknistofu Landsímans. Þess
vegna á svona lagað ekki að koma
fyrir. Menn verða að passa sig að
grafa ekki hugsunarlaust þar sem
þeim hentar án þess að kynna sér
það sem fyrir liggur," segir Ólafur
Stephensen, forstöðumaður upplýs-
inga- og kynningarmála hjá Lands-
símanum. -hvs
Akureyri:
Nýr mengunarvarnar-
búnaður í Krossanes
DV, Akureyri:
Eigendur
Krossanesverk-
smiðjunnar á
Akureyri hafa
ákveðið að setja
upp mjög full-
kominn meng-
unarvamarbún-
að í verksmiðj-
unni og má
reikna með að
búnaðurinn
verði kominn í notkun í verksmiðj-
unni um næstu áramót.
Talsverðar erjur háfa verið milli
eigenda fyrirtækisins og íbúa á Ak-
ureyri sem búa næst verksmiðj-
unni, sem hafa kvartað undan ólykt
frá verksmiðjunni, sérstaklega á
sumrin. Nýi
mengunarvamar-
búnaðurinn á að
leiða til þess að
lykt frá verk-
smiðjunni verði
úr sögunni og
hafa eigendur
verksmiðjunnar
þegar tilkynnt
um nýja búnað-
inn til Hollustu-
vemdar ríkisins.
Búnaðurinn mun
kosta á bilinu 50-00 milljónir króna.
Þá hafa forsvarsmenn Krossanes-
verksmiðjunnar ákveðiö að bjóða
bæjarbúum upp á fiskimjöl sem þeir
geta borið á garða sína. Verður
mjölið afhent í verksmiðjunni nk.
mánudag og þriðjudag. -gk
Krossanesverksmiöjan á Akureyri.
DV-mynd gk
Líttu vel út.
fíOLie/PBLAOC„
ROLLERBLADe
ROLLERBLADE. Zq Zio
Viablade ZX7
ABEC3legur
Glær76mmdekk —
Stærðir 37-47 A
Viablade
ABECIIegur _ ,-s.
Svört 74 mm dekk n *mWI
Stærðir 37-47 +
Z9 64 mm dekk
Stærðir 30-35
Z10 70 mm dekk
Stærðir 34-38 .
ROLLERBLADE\
C-Stunt
WBS Polo
2 í einum: Skór + skauti
ABEC 1 legur QA
Glær74 mm dekk-M
Stærðir 41-47
ABEC 1 legur
Stærðir 38-44
55 mm dekk
3VBki
E4
UTILIF
GLÆSIBÆ • S: 581 2922
ABEC 5 legur
Álgrind, púði í hæl ttCB
Stærðir 39 - 47 » 4?
Glær78 mm dekk
EINN.TVEIROG ÞRÍR32.102