Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1999, Blaðsíða 3
m e ö m æ 1 i e f n i I I i Methúsalem Þórisson heldur partí á ingólfstorgi á morgun '''\ þratt fyrir lítið fylgi í alþingtskosningum. v# ^ ’ Gamall sími meö skífu og ritvél. Viö veröum að fara „back to basics" ef við höfum ekki efni á öllu þessu flotta, nýja og tæknilega. Já, við sem erum plöguö af blankheitum verðum að reyna að vera flott á þv!! fátæktinni og grafa bara upp gamla slmann henn- ar mömmu, ritvélina hans pabba og kaupa okkur svart- hvítt sjónvarp einhverjum ný- látnum afabróður. Og fyrir börnin sem eiga blanka for- eldra er um að gera að læra að taka kvikindisskapnum sem bíður handan veggja heimilisins. Þess vegna er upplagt að gefa þeim ekki hjólabrettið sjálft heldur bara lyklaklppu sem er hjólabrettl. Líf- ið er tík. Austin Mini virkar vel með þessu blankheita- dæmi öllu saman. Hættum að taka þessi hel- vítis bílalán og finnum okkur druslu. Helst eld- gamlan Mini eða Skóda eða jafnvel Lödu. Það er flott að vera á druslu í góðærinu og þá gefurðu! skyn að þér sé skítsama um alla þessa vitleysu. Þótt Havanavindlar séu vinsælir þá er bjórinn Cristal miklu vinsælli. Hann er frá Havana en hægt að kaupa hann í gegnum millilið í Portúgal. Þetta er vinsæll bjór þar og ætti í raun ekki að vera neitt mál fyrir einn af þessum moldríku heildsöl- um að fá umboðið og henda hon- um í rikið. Það er allavega mælt með því. Við skulum horfast í augu við ástandið á íslandi. Ekki fá þér sól- gleraugu, bikini eða sólhlíf. Eini praktíski hluturinn sem vit er í er að fjárfesta í er regnhlíf. En það má samt ekki vera hvaða regnhlíf sem er vegna þess að ísland er heimsins mesta rokrassgat. Þú verður því að verða þér úti um handsaumaða og -smíðaða regnhlíf, og það sem allra fyrst. Quarashi er komin aft- ur. Kombakkið verður í Thomsen í kvöld og innsiglast endanlega í Höllinni 21. maí. Þá verður hallarbylting og Quarashi tekur yfir. Fókus tók púlsinn á Sölva í Quarashi og athugaði af hverju í fjandanum þeir hurfu af markaðinum. yöi i ' „Þessir tónleikar i Höllinni eru mjög jákvæðir. Veljum íslenskt," seg- ir Sölvi Blöndal, forsprakki Qua- rashi-flokksins, en þeir eru ein af hljómsveitunum sem standa fyrir haflarbyltingu í Laugardalshöll 21. maí. Ásamt Quarashi spila hljómsveit- imar Mínus, Ensími og Jagúar í Höll- Qurashi verður á Kaffi Thomsen í kvöld og telur það kraftaverk ef einhver kemst lifandi út úr húsi. inni en í kvöld gefa Sölvi og félagar aðdáendum og öðrum rokkurum for- skot á sæluna á Kaffl Thomsen. En hvaö segiröu, Sölvi, var ekki soldiö óábyrgt hjá ykkur aö hverfa bara í fyrra og leyfa Skítamóral aó taka yfir senuna? „Jú. Við tökum sökina fyllilega á okkur og ætlum að bæta fólkinu það upp í sumar. Við bara fómm yfir um á síðasta ári. Einn af okkur fékk taugaáfall og ég flúði til útlanda.“ Hver fékk taugaáfall? „Við viljum ekki gefa það upp að svo stöddu,“ segir Sölvi dularfullur. Er landslagiö ekki breytt núna og kannski ekkert rúm fyrri Quarashi? „Nei. Þetta er afltaf eins. Sömu popparamir að henda skít í hver annan. Þeir heita kannski öðmm nöfnum í ár en þetta er alltaf það sama. En þið, eru þiö breyttir? „Við erum töluvert breytt hljóm- sveit eins og allar hljómsveitir sem koma úr meðferð." Hvernig þá breyttir? „Við erum orðnir pólitískari. Stefnum að byltingu og höfum gert aftökulista. Ætlum að taka fólk af lífi í sumar,“ segir Sölvi og bætir því við að það verði engin plata í sumar en að öllum líkindum verða þeir félagar með eina stóra í haust. Þangað til munu þeir félagar spila þetta eftir hendinni og passa sig að spila ekki of mikið fyrir landann. „Það má enginn fá óverdós," segir Sölvi. „En í kvöld verður geðbiluð stemning á Thomsen og ef einhver kemst lifandi út þá túlkum við það sem kraftaverk." -MT Eiginmaður Bíbíar og dóttir kusu iiúmanista Versta útkoman sem húmanistar fengu í alþingiskosningunum var á Austurlandí. Einungis 14 manns X-uðu við H og hægt að reikna það allt á persónulegt fylgi Jónínu Óiafsdóttur sem prýddi fyrsta sæti listans. Hún er allavega sú eina á listanum sem er búsett á Austurlandi en aðrir á listanum búa í Reykjavík. Einn þeirra, Methúsalem Þórísson (2. sæti), samþykkti að ræða tapið við Fókus. „Hún Bíbí er nú ekki fædd þarna en annars er ekki á vísan að róa hvað stórfjölskylduna varðar,“ segir Methúsalem Þórisson aðspurður hvort stórfjölskylda Jónínu Ólafs- dóttur (hún var í fyrsta sæti á lista húmanista á Austurlandi, heima- byggð sinni) hefði ekki exað við H. „En maðurinn hennar og dóttir kusu okkur,“ bætir Methúsalem við og má því reikna með að aðeins ellefu at- kvæði hafl komið frá vandalausum. Hvaó klikkaði? „Þetta var af miklum vanefnum sem við buðum fram í öllum kjör- dæmum,“ segir Methúsalem og út- skýrir að Jónína hafi verið sú eina sem er búsett á Austurlandi en hún er samt ekki ættuð þaðan. Aðrir á listanum á Austurlandi eru ættaðir þaðan eins og sjálfur Methúsalem sem prýddi annað sæti listans. En Methúsalem vill samt taka það fram að Bíbí (hann kallar Jónínu því nafni) sé pottþétt mann- eskja sem vinnur hjá verkalýðsfélagi þarna fyrir austan og því sé skýringu fýlgisleysis ekki að flnna í mannafl- anum. „Við erum mjög róttæk hreyfmg og fólk skynjar það og óttast þær breytingar sem við bjóðum,“ útskýr- ir Methúsalem og segir fólk vera hrætt við breytingar vegna þess að það sé búið að veðsetja sig með rað- greiðslum og bílalánum. Nú bauöst þú lika fram í borgar- stjórnarkosningum og náðir ekki miklu fylgi þá? „Við fengum samt heldur fleiri at- kvæði núna, hér í Reykjavík alla- vega. En við höldum ótrauð áfram. Á morgun verðum við til dæmis með hátíð á Ingólfstorgi. Húmanistahreyf- ingin er 30 ára og það má segja að fyrri hálfleiknum sé að ljúka. Næstu 30 eru seinni hálfleikurinn og við vonumst til að sigra í honum,“ segir Methúsalem og kjósendur geta því bókað að húmanistar verða aftur í framboði í næstu kosningum. -MT Robin Todd hljóðmaður: íslendingar kenndu mér að reykja Fyrsti kossinn: Ógeðslegt en vandist Litla stelpan í Rent: Ekki nógu harð- brjósta til að vilja einhvern dauðan Ceri í Catatoniu: „Ég er flflllH af peningun- um sem ég hef grætt“ Q Söngvarinn í Stjörnukisa: „Ég var alltaf úlfurinn“ Lifað í skugga Bjarkar: Getur eitt- hvað 14-15 Bíó: Náttúru- hamfarir, lummur og lambakjöt f ókus á vefnum Nýjungar Páll Oskar 16 Líficf eftir vinnu Nælon og ja FM KR Píaitóbriálæði í Loftkastalar iugvit og hönnun 17-221 f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndina tók Teitur af Úlfi Chaka. 14. maí 1999 f ÓkUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.