Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1999, Blaðsíða 15
Kvikmyndahátíðin í Cannes hófst á dögunum. Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerðarmaður er
sérfræðíngur Fókuss í slíkum hátíðum og því ekki úr vegi að hann útskýri konseptið fyrir lesendum
Lummur
lambakjöt
Kvikmyndahátiðin í Cannes er
lagskipt kaka, brotin upp í hina
ýmsu flokka og ekki fyrir óinn-
vígða að átta sig á öllu farganinu.
Gróflega má þó skipta myndaflóð-
inu i tvennt, þær sem eru hluti af
„hinu opinbera vali“ hátiðarinnar
og síðan þær myndir sem sýndar
eru á markaðinum því Cannes er
ekki bara kvikmyndahátíö heldur
einnig stærsti kvikmyndamarkað-
ur heimsins.
Höldum okkur við fyrrnefnda
flokkinn, hið opinbera val.
Gullpálminn
(Palme d’ or)
Efst trónar keppnin sjálf þar sem
22 myndir viðs vegar úr heiminum
keppa um gullpálmann góða. Lung-
inn af leikstjórunum eru gamlir
kunningjar á borð við Leos Carax,
Almodovar, Chen Kaige, Egoy-
an, Greenaway, John Sayles,
Jarmusch og David Lynch. Hafa
sumir orðið tO að gagnrýna valið,
sagt það einkennast af gömlum
lummum og gott hefði verið að fá
svolítið meira af nýju blóði. Þó að
erfitt sé að skjóta á líklegan sigur-
vegara, vegna þess að fæstar mynd-
imar hafa fengið umfjöllun í kvik-
myndapressunni, segir mér svo
hugur að ef Carax hefur sett saman
gott stykki (og nógu dýr var Pola X)
sé hans tími kannski kominn.
David Cronenberg er formaður
dómnefridar að þessu sinni sem
auk hans skipa leikstjórarnir
Andre Techine, Doris Dorrie,
Maurizio Nichetti og George
Miller, ieikaramir Jeff Goldbl-
um, HoUy Hunter og Dominique
Blanc, rithöfundurinn Yasmina
Reza (Listaverkið) og óperusöng-
konan Barbara Hendricks.
Síðan koma undirflokkarnir:
Af sérstökum toga
(Un Certain Regard)
Flokkur mynda sem ekki keppa
um guilpálmann en þykja annars
athyglisverðar. Samtals 23 myndir
í ár. Gullpálmahafinn Youssef
Chahine frá Egyptalandi birtist
hér með nýjustu mynd sína E1 Akh-
ar (“Hinn“), David Mamet teflir
fram períódudramanu The
Winslow Boy og Chris Doyle töku-
maður Wong Kar-Wai (Fallnir
englar) sýnir fnnnraun sína Away
with Words, svo einhverjar séu
nefndar. Restin er þverskurður af
veraldarbíói með sterkum austur-
lenskum áherslum.
Utan keppni
(Out of Competition)
Hér er hægt að ganga að góðvin-
um hátíðarinnar, gjaman leikstjór-
um sem unnið hafa gullpálmann og
skapað sér nafn, einnig era þama
sýndar stórar fallbyssur frá
Hollywood-maskínunni og fleira.
Samtals 7 myndir í ár. Opnunar-
mynd hátíðarinnar, The Barber of
Siberia, tilheyrir þessum flokki og
er leikstýrt af Nikita Mikhalkov
(Burnt by the Sun), þetta er þriggja
tíma stórmynd með Juliu Ormond
og Richard Harris í aðalhluverk-
um (var ekki fullreynt með þau í
Smillu?). Þrillerinn Entrapment
eftir Jon Amiel er og þama til
heiðurs Sean Connery, Kevin
Smith sýnir Dogma með Matt
Damon og Ben Affleck, Soder-
bergh dúkkar upp með nýjustu
mynd sína The Limey og gamli
skröggurinn Werner Herzog segir
okkur frá besta óvini sínum í sam-
nefndri mynd.
Stuttmyndir
(Short Films)
Samkeppni þar sem nýtt hæfi-
leikafólk fær að spreyta sig og leið-
ir það gjarnan til þátttöku í öðram
flokkum hátíðarinnar síðar meir.
Dæmi um það er skólasystir min
úr National Film and Television
School í Bretandi, Lynne Ramsay,
sem í fyrra vann þessa samkeppni
með stuttmynd sinni og birtist nú í
„Un Certain Regard" með fyrstu
bíómynd sína, Ratcatcher, uppvaxt-
arsögu frá Glasgow áttunda áratug-
arins. Samtals 12 myndir í ár. Leik-
stjóri Festen, Thomas Vinterberg,
er formaður dómnefndar.
Hálfur mánuður leikstjóra
(Director’s Fortnight)
Vettvangur fyrstu mynda leik-
stjóra og mynda sem þykja merki-
legar uppgötvanir, þó ekki teljist
hann til hins opinbera vals. Sam-
tals 21 mynd í ár. Athygli vekur að
nýjustu mynd Spike Lee, Summer
of Sam, er að finna hér en aðstand-
endur hafa lýst því yfir að með
þessu séu þeir að heiðra minningu
fyrrum umsjónarmanns þessa
flokks, Pierre-Henri Deleau, sem
David Chronenberg. „Vandræðabarnið"
sem leiðir dómnefndina í Cannes í ár.
á sínum tíma „uppgötvaði" Lee
með mynd hans She’s Gotta Have
It. Franskar myndir eru einnig
áberandi hér, en sérstakur flokkur
þeirra hefur verið lagður niður. í
þeim hópi er að finna fyrstu bíó-
mynd íslenska leikstjórans Sól-
veigar Anspach, Haut les coeurs,
um ófríska konu sem fær krabba-
mein. Sólveig hefur starfað við
heimildarmyndagerð í Frakklandi
um árabil.
Gagnrýnendavika
(Critic’s Week)
Heimssamtök kvikmyndagagn-
rýnenda sýna hér sjö myndir og
velja eina sem þeir telja skara fram
úr. Þetta apparat stendur utan við
hina formlegu hátíð en er engu að
síður orðið fastur liður og fær jafn-
an mikla athygli.
Ekki má svo gleyma Gullmynda-
vélinni (Camera d’or) sem era önn-
ur verðlaun hátiðarinnar og veitt
athyglisverðustu frumraun leik-
stjóra.
Eins og ávallt blæs hressilega
um hátíðina því þetta er tilfinn-
ingasamur bransi. Kínverski leik-
stjórinn Zhang Yimou dró tvær
myndir sínar, Not One Less og The
Road Home, til baka og sakaði að-
standendur hátíðarinnar um að
hafa einstrengingslega pólitíska
sýn á kínverskar kvikmyndir. Gil-
les Jacob, sem venjulega þræðir
heimsbyggðina með háttvísi
diplómatsins, svaraði því aðeins til
að aðrar kinverskar myndir hefðu
verið valdar í keppnina að þessu
sinni. Það er þó athyglisvert að
Yimou, sem hingað til hefur ekki
skotið upp kollinum í Cannes þeg-
ar myndir hans hafa verið valdar í
keppnina, skuli draga Not One
Less til baka þegar hún hefur verið
valin í „Un Certain Regard". Hvað
varðar hina myndina þá hafa að-
standendur bent á að hún hafi ekki
verið valin í eitt eða neitt.
Hollywood er minna áberandi i
ár en oft áður og vill Jacob kenna
um skorti á gæðamyndum frá kvik-
myndaverunum, auk þess sem
tímasetning hátiðarinnar stangist
á við markaðsáætlanir myndver-
anna. John Sayles bendir einnig á
hina eilífu klemmu stórmógúlanna;
þeim líki hátíðin vel en hafi
áhyggjur af að fá „listrænan"
stimpil á myndir sínar með því að
sýna þær í Cannes og draga þannig
úr aðsókn á þær.
Það er vandlifað í þessum heimi.
íslenskir framleiðendur munu
herja á hátíðina til að kynna mynd-
ir sínar og leita fjármagns í ný
verk. Engin íslensk mynd er innan
vébanda hins opinbera vals að
þessu sinni en koma tímar og koma
ráð ... Ásgrímur Sverrisson
jlachei
\
r ■
„Að þurfa aBeins vera falleg og fá ekkert ann-
aö aö gera er þaB leiBinlegasta sem ég get
hugsaB mér,“ segir Mlchelle Pfelffer sem leik-
ur aBalhlutverkiB í Deep End of the Ocean
sem Stjörnubíó hefur hafið sýningar á. Pfeif-
fer, sem margir telja aö hafi mesta útgeislun
Hollywoodstjarna sem komar eru á fimmtugs-
aldurinn, hefur í gegnum árin flakkað milli
dramatískra hlutverka (Dangerous Liasons,
Love Reld, The Age of Innocence, Dangerous
Minds) og gamanhlutverk (Married to the
Mob, Batman Returns, One Rne Day) með
miklum glæsibrag og reisn og er yfirleitt efst á
listum framleiðenda sem eru í leit aB leikkonu
I aöalhlutverk.
Michelle Pfeiffer er fædd og uppalin í Kaliforn-
íu og var kassastúlka í stórmarkaöi þegar hún
tók þátt i feguröarsamkeppninni Miss Orange
County og sigraði. Með draum í bijósti um aö
verða kvikmyndaleikkona fór hún til Hollywood
og reyndi að koma sér á framfæri. Fljótt fékk
hún lítil hlutverk í sjónvarpsserium og auglýs-
ingum, nánast eingöngu út á útlitið. Ekki var
byrjunin í kvikmyndum glæsileg því fyrsta aðaF
hlutverkiö sem hún fékk var í Grease 2, sem
allir eru sammála um að sé sérlega vond kvik-
mynd. Það bjó samt mikið í Pfeiffer og þaö
sýndi hún í sinni næstu kvikmynd, Scarface,
þar sem hún lék eiginkonu Al Paclno. Nú fór
boltinn að rúlla og hún lék í hverri myndinni af
annarri og eftir frammistöðu hennar í Danger-
ous Liasons og Married to the Mob var hún
komin efst á stjörnuhimininn í Hollywood.
Fæðlngardagur og ár: 29. aþril 1958.
Fæðlngarstaður: Santa Ana, Kaliforníu.
Stjörnumerkl: Sól f nauti, tungl í meyju.
Elglnmaöur: David Kelley, sjónvarpsframleið-
andi (Chicago Hope, Ally McBeal).
Fyrrum elglnmaður: Peter Horton, leikari.
Böm: Claudia Rose (ættleidd), John Henry
(með Kelley)
Kvlkmyndlr:Hollywood Knights (1980), Callie
and Son (1981), Grease 2 (1982), Scarface
(1983), Ladyhawke (1985), Into the Night
(1985), Sweet Liberty (1986), The Amazon
Woman on the Moon (1987) The Witches of
Eastwick (1987), Tequila Sunrise (1988),
Dangerous Liasons (1988), Married To The
Mob (1988), The Fabulous Baker Boys
(1989), The Russia House (1990), Frankie &
Johnnie (1991), Batman Returns (1992),
Love Field (1993), The Age of Innocence
(1993), Wolf (1994), Dangerous Minds
(1995), One Fine Day (1996), To Gillian on
Her 37th Birthday (1996), Up Close and Per-
sonal (1996), A Thousand Acres (1997), The
Deep End of the Ocean (1999).
4
r
14. maí 1999 f Ókus
15