Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1999, Blaðsíða 4
. siggi m og.f#;..^v Soó'tt. '^r&a-' ty' j* .tfernxiiMíWjin a r .lW* . Viðtöl við fólk á þriðja glasi Með hausverk á barnum Þao er ekki a hverjum degi sem aðalhljóðmaður H^\ íslenskrar kvikmyndar $5^ %v' skilur ekki bofs í því Psem leikararnir I segja. En þannig var É það hjá danska Bretanum Robin Todd Kljtítp sem vann við Y;:. kvikmyndina Fíaskó. Hann samþykkti að rifja upp dvöl sína hér á landi og segir farir sínar ekki sléttar hvað fyllibyttur, konur sem þykjast vera óléttar og íslensku forndönskJn varðar. Þátturlnn slvinsæli og geðfrikaði, Með hausverk um helgar, fer í sum- arbúning í kvöld. Hann hættir á laugardögum og verður hér eftir sýndur á föstudagskvöldum frá 21-23 og undir slagorðinu: Ekki fyrir viðkvæma (hvað sem það þýðir). Siggi Hlö og Valli Sport halda að sjálfsögðu áfram að stjóma þættinum og láta hann fjaila um fínt fólk, frægt fólk, rikt fólk og stund- um jafnvel bara um venjulegt fólk, á milli þess sem þeir ýta á „play“ og sýna bestu myndböndin. En þáttur- inn verður þó með aðeins breyttu sniði í sumar því það verður minni hausverkur og meira stuð. Léttari þáttur í sumarskapi, næturlífinu gerð góð skil og fólki komið út á djammið með boðsmiðum á heitustu staðina. Ljósmyndarar á vegum þáttarins ryðjast inn í partí og sýna svo skandalana á Skjá 1 og strákarn- ir luma á þeirri nýjung að sviðs- mynd þáttarins samanstendur af bar. Já, það verður því ekta djús- arastemmning 1 þættinum Með hausverk um helgar og viðtölin verða með skrautlegri hætti en gengur og gerist. Barinn verður nefnilega opinn og viðmælendur (þeir sem ekki eru í AA) verða iðulega á þriðja glasi. Nýjung i sjónvarpsbissnessnum og vonandi að Hemmi Gunn spái í þessu ef hann ætlar að vera með kombakk á aldamótum. Annars gæti Þorsteinn Joð tekið þetta upp 1 fjarveru Jóns Arsæls, svona til að losa aðeins um málbein viðmælendanna. En það er sem sagt um að gera að vera rétt stiUt í kvöld. , bara a hljoðið," segir Todd og aug- ljóst er að reynsla hans af íslandi hefur i meira lagi verið furðuleg. Hvernig hljómar þetta tungumál sem þú hlustaöir á? „Eins og norska, geðklofa norska. Stundum eins og fólkið væri að tala i gegnum lélegan far- síma og stundum fannst mér ég heyra tyrknesk orð inni á milli. En ég var samt undir tungumálið bú- inn. Þegar ég sagði foreldrum mín- um að ég væri að fara til íslands sagði mamma: „Frábært. Þá færðu að kynnast tungumáli sem er mjög líkt fornnorrænu. Eða sagði hún forndönsku?" segir Robin og fliss- ar. Islendingar nndu mér a reykja „Ég hef búið í London undanfar- in þrjú ár,“ segir Robin Todd en hann sá um hljóð í kvikmyndinni Fíaskó sem verður frumsýnd í haust. „Ég er hér í The London Intemational Film School og hef eytt síðasta ári í að berja saman lokaverkefnið mitt.“ Robin er annars hálfur Dani, hálfur Kani sem ólst upp í Kali- forníu en dvaldist hér við tökur í mars og apríl. Hann var að vinna með leikstjóranum Ragnari Bragasyni, framleiðendunum Þóri Snæ Sigurjónssyni og Skúla Malmquist og leikurum á borð við Björn Jörund, Eggert Þorleifs og Silju Hauksdóttur. En hvaö er þaö nákvœmlega sem þú hefur aö atvinnu? „Fyrir utan þessi hljóðverkefni sem ég hef yfirleitt gert fyrir ekki neitt þá hef ég eiginlega enga at- vinnu, enn þá.“ íslenska = forndanska „íslendingar eru villimenn Skandinavíu," segir Robin og bætir því auðvitað við að þannig vilji hann alla vega ímynda sér þá eftir þessi stuttu kynni. „Þetta er þjóð sem hefur hugarfar berserkja, nú- timalega menntun og þjóðernis- hroka sem krefst mjög hás lífsstíls. En kannski er það bara eðlilegt ef maður býr undir norðurljósunum helminginn á árinu, það er alla vega hætta á að fólki finnist það vera ofsalega sérstakt við þær að- stæður." En hvernig var aö vinna sem hljóömaöur hér á landi og skilja ekki upp né niöur í því sem leikar- arnir sögöu? „Jú, jú. En það tala allir ensku á íslandi og þar sem ég tala ágætis dönsku reyndi ég að fá fólk til að tala hana. Það gekk illa þvi allir hata dönsku vegna þess að þið vor- uð neydd til að læra hana í skóla. Það er samt erfitt að vinna á setti þar sem ókunnugt tungumál er að- alsamskiptatækið. Með tímanum gleyma flestir að þú skilur ekki það sem sagt er og því endaði ég í raun- inni bara einn úti í homi. Siðan kom kannski einhver úr mat og sagði: „Oh, no one told you it was lunch?“ Og með tímanum gleymdi maður bara að tala og hlustaði Islendingar eru fyllibyttur Hvernig líkaöi þér viö íslendinga, eignaöistu einhverja vini? „Vini,“ segir Robin hugsi. „Á setti, já, en þegar við áttum fri þá var fólk auðvitað upptekið við að lifa lífinu sínu svo ég náði helling af gæðatíma, einn, með sjálfum mér. En fyrir utan settið kynntist ég nokkrum. Ein lánaði mér snjó- bretti og leyfði mér að hanga heima hjá henni og lesa listasögu- bækur, önnur var stúlka sem þótt- ist vera ólétt, síðan kynntist ég stúlku sem hleypti mér inn á lista- safn þegar það var lokað og enn önnur var alltaf að reyna að út- skýra fyrir mér mikilvægi popp- menningar. Síðan bauð einhver mér hákarl sem var búið að míga á og sú vildi nú líka gera mig að grænmetisætu.“ Og voru þessar stelpur hér á ís- landi sœtari en þœr bresku? „Ég verð að segja að fallegustu stelpurnar sem ég hef séð eru frá Venesúela. En jú, þið haíið helvíti góðan litningastofn á íslandi.“ En eru allir íslendingar alkó- hólistar? „Já. íslendingar eru fyllibyttur en það sem verra er þá kennduð þið mér að reykja. Áður en ég kom til landsins hafði mér tekist að forðast sígarettur. En eftir að hafa umgengist reykingamenn í einn mánuð voru lungun farin að venj- ast ofbeldinu og farin að heimta meira. Svo ég prófaði að reykja, hóstaði ekki og er farinn að reykja hátt í tvo pakka á dag.“ -MT Stendur þú fyrir einhverju? Sendu upplýsingar i e-mail fokus®tokus.is / fax 550 5020 JÆ3A. ÞÁ ER VORIÐ LOKSINS KOMIÐ... JÁ EINMtTT, í>A0 HLAUT AÐ VERA... AUAR StELPURNAR LÆ.R.A... ERU HEIMA AB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.