Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Sendibílstjóri í vanda:
Fæðingin kostaði
hundrað þúsund
„Þetta er búinn að vera skrípa-
leikur frá upphafi. Ég vissi ekkert
um þetta þótt ég hefði spurt,“
sagði Kristján Jónsson sendibíl-
stjóri sem fékk reikning upp á
rúmar eitt hundrað þúsund krón-
ur eftir að dóttir hans fæddist á
fæðingardeild Landspítalans.
Kristjáni var gert að greiða allan
fæðingarkostnað vegna þess að
barnsmóðir hans er taílensk og
hefur ekki enn fengið dvalarleyfi
hér á landi. Á reikningi frá Ríkis-
spítölum stendur skýrt og skorin-
- af því aö konan var taílensk
ort: Dvalarkostnaður 26.-27. apríl
29.100 krónur. Fæðingarhjálp
72.850 krónur. Samtals 101.950
krónur.
„Konan mín átti dóttur okkar
klukkan hálfþrjú að nóttu og fór
heim sama dag. Ef hún hefði legið
á fæðingardeildinni í fjóra daga
eins og venja er þá hefði reikning-
urinn flogið yfir 200 þúsund krón-
ur,“ sagði Kristján sem kynntist
Choosri Thongkha hér á landi og
hefur búið með henni í hálft ann-
að ár. Sjálfur hefur hann aldrei til
Taílands komið. „Ég er ekki met-
inn neitt í þessu dæmi og þótt við
séum búin að skíra dóttur okkar
Sonju verður hún ekki Kristjáns-
dóttir fyrr en við Choosri höfum
skráð okkur formlega í sambúð.
Ég velti því fyrir mér hvernig
þetta hefði verið ef ég væri Taí-
lendingur og Choosri íslensk. Eitt
er víst að barnið er mitt alveg jafn-
mikið og hennar,“ sagði Kristján
Jónsson sem vonast eftir því að fá
reikninginn frá Ríkisspítölunum
endurgreiddan fyrr en seinna.
Að auki hefur Kristján þurft að
greiða sérstaklega fyrir alla skoð-
anir sem Choosri fór í á meðgöng-
unni og þá vöknuðu grunsemdir
hjá honum að ef til vill þyrfti hann
líka að greiða fyrir fæðinguna:
„Ég reyndi að spyrja en enginn gat
svarað mér. En að þetta yrði svona
dýrt og að dóttir mín mætti ekki
kenna sig við föður sinn; það datt
mér aldrei í hug,“ sagði Kristján
Jónsson sem þrátt fyrir allt er í
sjöunda himni með litlu Sonju
sina þótt hún hafi kostað sitt. -eir
Leitaö aö Skotum:
Fundust
þrekaðir viö
Öræfajökul
DV, Öræfum:
30-40 manns úr 6 björgunar-
sveitum hófu leit að 3 Skotum á
Vatnajökli og Skaftafellsfjöllum I
gærmorgun. Ekki þurfti að leita
lengi því um klukkustund eftir að
leit hófst fundust þeir við rætur
Sandfells í Öræfajökli, blautir og
þrekaðir en heilir á húfi.
Skotamir lögðu af stað 12. maí í
ferð sem átti að taka 5 daga, frá
Sandfelli á Hvannadalshnjúk
norður á Vatnajökul og hugðust
þeir koma í Skaftafell 17. maí.
Þeir komust að Skarðatindi í
S kaftafellsfj öllum en tókst ekki að
finna færa leið niður í þjóðgarð
svo að þeir gengu sömu leið til
baka. Þeir segjast vera vanir
fjallaferðum en að ísl. veðrátta
hafi komið þeim í opna skjöldu.
Þeir hafi ætlað sér um of. Að von-
um voru björgunarmenn fegnir
að þeir fundust svo fljótt. Ausandi
rigning var í Öræfum og skyggni
mjög lítið og ljóst að leit hefði ver-
ið mjög erfið í bröttu fjalllendi
Skaftafellsfjalla.
-ERIS
Skotarnir komnir í leitirnar.
Steingrímur
Njálsson fluttur
á Vatnsstíg
Kynferðisafbrotamaðurinn
Steingrímur Njálsson er fluttur í
bæinn og býr nú í félagslegri íbúð
aö Vatnstíg 11. Bjallan er sem
stendur ómerkt en staðfest er að
Steingrímur búi í íbúðinni. „Mér
finnst alveg skelfilegt að þessi
maöur skuli vera fluttur í hverfið
og ég sé mér ekki annað fært en að
halda bömum mínum inni,“ sagði
tveggja bama móðir í nágrenninu.
Að sögn konunnar em íbúar í
hverfmu skelfmgu lostnir og reið-
ir. Þá finnst mörgum sér í lagi
óhugnanlegt aö Steingrímur skuli
búa i næsta nágrenni við leikskól-
ann Lindarborg.
Lögreglan í Reykjavík hefur
staðfest að kvartað hafi verið við
lögreglu vegna komu Steingríms.
Þó sé ekki hægt að aðhafast neitt
þar sem Steingrímur hefur afþlán-
að sinn dóm og ekki gerst sekur
um saknæmt atferli síðan svo vit-
að sé. Þá sé heldur ekkert eftirlit
haft með Steingrími þar sem ekki
sé mannskapur fyrir hendi til þess
að fylgjast með honum.
SH hættir starfsemi sinni á Akureyri:
Akureyringar sviknir
DV, Akureyri:
„Það hvarflaði aldrei að mér að
Sölumiðstöðin myndi ekki halda úti
starfsemi hér á Akureyri nema í þrjú
ár, ég held að enginn maður hafl lagt
þann skilning í málið á sínum tíma,“
segir Gísli Bragi Hjartarson, fyrrver-
andi bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins á
Akureyri. Gísli Bragi sat í meirihluta
bæjarstjómar ásamt fimm fulltrúum
Framsóknarflokksins þegar samið var
við SH í hinu sögufræga „ÚA-máli“ á
sínum tíma en þar hafði SH betur í
kapphlaupi við íslenskar sjávarafurð-
ir um afurðasölumál Útgerðarfélags
Akureyringa og „beitan" var m.a. að
ilytja hluta af starfsemi SH til Akur-
eyrar og koina að frekari atvinnuupp-
bygginu í bænum.
Nú leggur SH starfsemi sína á Ak-
ureyri niður og á Akureyri er allt
annað en ánægja með þá ákvörðun.
Jakob Björnsson, sem var bæjarstjóri
þegar samningurinn við SH var gerð-
Gísli Bragi Hjartarson: „Er afar von-
svikinn". DV-mynd gk
ur, kallar ákvörðun SH svik og Gísli
Bragi Hjartarson segir að það sé búið
að skipta um menn í brúnni hjá SH og
þar sé lykil- og lausnarorðið nú hag-
ræðing.
Gísli Bragi segir það einungis hafa
ráðið afstöðu sinni í málinu á sínum
tíma að gæta hagsmuna ÚA en afstaða
hans í málinu réð úrslitum. Fram-
sóknarmenn vildu semja við íslenskar
sjávarafurðir sem vildu flytja höfuð-
stöövar sínar til Akureyrar fengju
þeir sölumál ÚA og það er ekki ofsagt
að við hafi legiö að slitnaði upp úr
meirihlutasamstarfi Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks í bæjarstjórn
vegna málsins. Framsóknarmenn
segja nú að hið eina rétta hefði verið
að semja við ÍS á sínum tíma.
SH lofaði 30 störfum í útibúi sinu á
Akureyri. Grunur er um að þeir hafi
ekki fyllt þá tölu starfsmanna nema í
upphafi og nú leggja þeir starfsemina
alveg af í höfuðstað Norðurlands. Þar
í bæ ríkir lítil ánægja með þá ákvörð-
un og það eru fleiri en Jakob Björns-
son, fyrrverandi bæjarstjóri, sem tal-
ar um svik í þvi sambandi. -gk
150 aukamil|jónir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri hélt í gær fund með
skólastjórum
Reykjavikur-
borgar. Þar
sagði hún borg-
ina tilbúna að
leggja fram 150
til 170 miljónir
króna aukalega
fyrir næsta
skólaár megi þaö leysa kennara-
deiluna. Vísir.is sagði frá.
Maðurinn á lífi
Kona sem kom hingað ásamt
fimm bömum sínum frá Kosovo
fyrr i mánuðinum fékk þær frétt-
ir í gær að eiginmaður hennar
væri á lifi í Kosovo. Starfsmenn
Rauða krossins segja að allt verði
gert til þess að sameina fjölskyld-
ima. RÚV sagði frá.
Veitur í fjarskipti
Stjórn Veitustofnana Reykja-
víkurborgar stofnaði í gær nýtt
einkahlutafélag um rekstur fyrir-
tækis á sviði gagnaflutninga og
fjarskipta. Helgi Hjörvar, formað-
ur verkefnisstjómar, býst við að
Orkuveita Reykjavíkur geti boð-
ið upp á netþjónustu í tilrauna-
skyni þegar á þessu ári. RÚV
sagði frá.*
Margir þáðu fiskimjöl
Milli 600 og 700 manns þáðu frítt
fiskimjöl í garða sína sem Krossa-
nesverksmiðjan á Akureyri gaf bæj-
arbúum í vikunni. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins segir við Dag að
eftirspurn hafi verið heldur meiri
en gert var ráð fyrir.
Fullt að gera
Dagur segir að þenslan á bygg-
ingarmarkaði valdi því að tilboð í
verk séu oft nokkuð yfir kostnað-
aráætlunum, eða allt að 35% og
jafnvel meira. Vegna góðrar verk-
efnastöðu fyrirtækja hafi tilboð í
útboösverk verið færri en oft
áöur.
Forsetinn í Eyjafirði
Forseti íslands, hr. Ólafur
Ragnar Gríms-
son, heldur
áfram opin-
berri heim-
sókn um Norð-
urland í dag. í
gær veitti
hann 13 ung-
lingum á Ólafs-
firði hvatningarverðlaun forseta
íslands til ungra íslendinga.
Góð karfaveiði
Karfi veiðist vel á Reykjanes-
hrygg að sögn Bylgjunnar. Um 20
íslenskir frystitogarar era þar að
veiðum og þurfa aö hætta að toga
til að frystingin um borö hafi und-
an. Algeng afköst á skip era 40-50
tonn á sólarhring.
Sektað fyrir naglana
Lögregla tekur nú hart á þeim
bilstjóram sem enn aka um á
nagladekkjum. Kópavogslögregl-
an stöðvaöi 10 bíla í gærkvöld,
alla á nagladekkjum. Bylgjan
sagði frá.
Vitlaust neyðarnúmer
í símaskrá sem gefin er út fyrir
Kópavog er neyðarnúmer lög-
reglu rangt skráð. í stað númers
lögreglu er skráð símanúmer
sýsluskrifstofunnar í bænum.
Lögreglan lítur málið alvarlegum
augum að sögn Bylgjunnar.
Vill stækkun
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður ráðherra-
nefndar Evr-
ópuráðsins,
áréttaði í gær
stuðning við að
Evrópuráðið
verði stækkað.
Hann kvaðst
styðja það að
Bosnía-
Herzegóvína, Armenía,
Aserbaídsjan og Mónakó verði að-
ilar að ráöinu.
-SÁ