Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
Viðskipti
Þetta helst: ... Lítil viðskipti á Ví, 450 m.kr ... 193 m.kr. á skuldabréfamarkaði ... 159 m.kr. á
peningamarkaði Mest viðskipti í Baugi og FBA en litlar gengisbreytingar ... Vinnslustöðin hækkar
enn, 4,1% í gær .. Tryggingamiðstöðin um 3% ... Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,144% ...
Atvinnuleysi minnkar enn
- lítið atvinnuleysi og launahækkanir fara illa saman
Atvinnuleysi á íslandi er nú með
minnsta móti. Atvinnuleysi hefur
ekki mælst minna árum saman og
þrátt fyrir að launavísitölur hafi
hækkað mikið þá er enn mikil eftir-
spum eftir vinnuafli í ýmsum stétt-
um og vísbendingar á lofti að launa-
skrið haldi áfram. Kjarasamningar
era lausir í haust og gaf Kjaradóm-
ur tóninn á dögunum er hann
kynnti launabreytingar æðstu emb-
ættismanna þjóðarinnar. 1 ljósi
þessarar þróunar er eðlilegt að
spyrja hvort íslenskt hagkerfi þoli
Atvinnuleysi í apríl
- skipt eftir kynjum og svæðum
Svæði Konur Kariar ftlls
Höfuðborgarsvæði 3J% 1,8% 2,4%
Landsbyggðin 2,9% u% 1,9%
Vesturland u% 0,9% 11%
Vestfirðir 1,4% 0,4% 11%
Norðuriand vestra 5,4% 2,7% 3,8%
Norðuríand eystra 3,4% 1,9% 2,5%
Austuriand 2,0% V% u%
Suðuriand 2,8% 0,7% 1,6%
Suðumes 3,8% 0,5% u%
ftllt landið 31% u% 21%
Heimild: Vinnuméiastofnun Effil
þessa þróun. Miklar launahækkanir
auka tekjur fólks og kaupmátt þess
og ef þessar hækkanir fara umfram
ákveðin mörk getur verðbólga kom-
ist af stað. Davíð Oddsson sagði við
gerð síðustu kjarasamninga að þær
launahækkanir sem samið var um
þá væru alveg á mörkunum og því
er full ástæða til að óttast frekari
launahækkanir.
Atvinnuleysi spilar í þessum efn-
um stóra rullu. Mjög lítið atvinnu-
leysi stuðlar að hærri launum því
atvinnurekendur eru i samkeppni
um starfsfólk og ef aliflestir hafa
vinnu verða atvinnurekendur að
bjóða hærri laun. Því getur samspil
litils atvinnuleysis og mikilla launa-
hækkanna verið varhugavert. Það
er því ljóst að það verður erfitt verk
að tryggja áframhaldandi stöðug-
leika í kjölfar komandi kjarasamn-
inga og líklegt er að aðilar vinnu-
markaðar verði allir að gefa eitt-
hvað eftir, þar með talið hið opin-
bera.
Áfram minnkandi atvinnu-
leysi
Gera má ráð fyrir að atvinnuleysi
lækki enn í maí því undanfarin 10
ár hefur atvinnuleysi alltaf minnk-
að frá apríl til maí eða um 8,7% að
meðaltali. Vinnumálastofnun gerir
ráð fyrir að það verði 1,8-2,0% í
þessum mánuði. Atvinnuástand hef-
ur batnað á öllu landinu. Það hefur
minnkað hlutfallslega mest á Vest-
urlandi og á Austurlandi en at-
vinnulausum hefur samt fækkað
langmest á höfiðborgarsvæðinu.
Það vekur athygli að atvinnuleysi
víðar er nánast ekki neitt. Á Vest-
fjörðum er það 0,8%. Það vekur at-
hygli í ljósi þess mikla fólksfjölda
sem flust hefur þaðan á undanforn-
um árum. Það sama á í raun við á
allri landsbyggðinni að meðaltali.
Hins vegar er ljóst að staðbundin
vandamál eru á nokkrum stöðum.
Til dæmis er atvinnuleysi kvenna á
Norðurlandi vestra 5,4% og er það
nokkurt áhyggjuefni og gæti hugs-
anlega ýtt undir frekari fólksfækk-
un. -BMG
Skagamenn auka viöskipti í Reykjavík:
Unga fólkið versl-
ar í Reykjavík
DV, Akranesi:
Atvinnumálanefnd Akraness og
Átaks Akraness létu gera könnun á
viðskiptavenjum Akurnesinga í
október 1997. Tilgangurinn var sá
að kanna stöðu verslunar á Akra-
nesi áður en Hvalfjarðargöng yrðu
opnuð. Þessi könnun var endurtek-
in nú í febrúar sl. til að fá saman-
burð. Fyrst var spurt í hvaða mat-
vöruverslun stærsti hluti innkaupa
til heimilisins færi fram. Rúmlega
90% svöruðu því til að þau væru
gerð á Akranesi en 96% I könnun-
inni 1997. Verslun Einars Ólafsson-
ar er sem fyrr með mesta markaðs-
hlutdeild eða 65%. Um ástæður inn-
kaupa á Akranesi svöruðu rúm 50%
að það væri vegna lágs verðs. Þá
var spurt um hvar meginhluti fatn-
aðar væri keyptur. Nú svöruðu 56%
því að keypt væri á Akranesi en
voru 63% í síðustu könnun. Um 33%
Hvalfjarflargöng hafa aukið verslun-
arferðir til Reykjavíkur
sögðu fotin keypt í Reykjavík en
voru 24% í síðustu könnun. Hlutfall
þeirra sem kaupa í útlöndum er
óbreytt eða 7%. Það virðist einkum
vera unga fólkið á aldrinum 16-24
ára sem fer til innkaupa í Reykjavík
og ástæðan er meira vöruúrval.
Hlutfall þeirra sem keyptu inn bygg-
ingavöra hefur lækkað úr 82% í
67%.
-DVÓ
Aðsetur þekkingar
- breytingar hjá íslandsbanka
í gær gerði íslandsbanki
breytingar. í stað fyrirtækjasviðs
kemur íslandsbanki - Fyrirtæki og
markaðir, í daglegu tali F&M. Inni-
falið i F&M verður m.a. viðskipta-
stofa og fyrirtækjaþjónusta bank-
ans. Nýjar áherslur verða í starf-
inu, nýtt merki og ný aðstaða. „Það
má segja að það sem við erum að
gera er að skipta um gír. Við erum
á sama bílnum en erum búnir að
mála hann, skerpa útsýnið og stíga
á bensíngjöfina. Við erum komin
með heiti á starfsemina sem er lýs-
ir henni vel. í annan stað erum við
að bæta aðstöðuna til að mæti
þeirri fjölgun sem hér er og breyt-
ingum í tækniumhverfi nútímans.
Við eram að byggja upp aðsetur
þekkingar og eram með gott starfs-
fólk og tölvukerfi. F&M verður
sjálfstæð afkomueining innan Is-
landsbanka og við teljum að með
þessu þá náum við betur að tryggja
árangur fyrir viðskiptavini okkar“,
segir Tryggvi Pálsson, forstöðumað-
ur F&M. Aðspurður hvort hér sé
Tryggvi Pálsson.
um nýjan fjárfestingarbanka þá seg-
ir Tryggvi að þeir þurfi þess ekki
því þeir hafi íslandsbanka enn að
baki sér. Áhersla er nú lögð á að
íslandsbanki veiti alla þá þjónustu
sem fyrirtæki þurfa. -BMG
viðslcipta-
molar
Óbreyttir vextir
í Bandaríkjunum
Seðlabanki Bandaríkjanna
ákvað i fyrradag að halda stýri-
vöxtum sínum óbreyttum, eða í
4,75%. Margir óttuðust að bank-
inn myndi hækka vexti í kjölfar
þess að verðbólga mældist 0,7% í
einum mánuði. Þessi ótti hafði í
for með sér lækkun á hlutabréfa-
verði og lækkun ávöxtunarkröfu
skuldabréfa. Seðlabankinn segir
hins vegar að vel kunni að vera
að vextir hækki síðar á árinu. í
kjölfarið féll Dow Jones um 110
stig.
Þjóðverjar og
Frakkar lægstir
Þýskt fyrirtæki, Sulzer Hydro,
átti lægsta tilboð í vél- og rafbún-
að en franska fyrirtækið Alstom
Hydro hauð lægst í lokur og faill-
pípur 1 útboði vegna Vatnfells-
virkjunar. Tilboð þessi vora bæði
langt úndir kostnaðaráætlun eða
55,4% og 75,4%.
21,2% verðbólga
í Rússlandi
Það sem af er þessu árs hefur
verðlag hækkað um 21,2% í Rúss-
landi. Sam-
kvæmt fjárlaga-
frumvarpi síð-
asta árs var gert
ráð fyrir að
verðbólga færi
ekki upp fyrir
30% á árs-
granni. Þó er óvíst að það takist
því Borís Jeltsín forseti rekur
reglulega yfirmenn efnahags-
mála.
Á fyrsta þriðjungi ársins hefúr
verðlag hækkað um 21,2% í Rúss-
landi en gengið var út frá því í
fjárlagafrumvarpi rikisstjórnar-
innar að verðbólga færi ekki upp
fyrir 30% á árinu öllu
Leiðrétting
í frétt DV um verðbólgu og að-
gerðir gegn henni féll út texti frá
Almari Guðmundssyni, hagfræð-
ingi hjá FBA. Þar lagði hann
áherslu á að stjómtæki Seðla-
bankans væra bestu skammtíma-
úrræðin til að slá á þenslu því
þau virkuðu strax. Hins vegar
þyrfti ríkið að stuðla að aðgerð-
um sem skiluðu sér til lengri
tíma litið.
Það er mikilvægt að taka
vel igtuadaða ákvörðun*
Nýjustu ISDN-símstöðvarnar frá Siemens hafa svo
sannarlega hitt í mark hérlendis. Því bera frábærar
viðtökur viðskiptavina okkar órækt vitni.
Fjölbreyttir möguleikar kerfanna, s.s. tölvutengingar,
talhólf, sjálfvirk svörun, beint innval, þráðlausar
lausnir og margt fleira, nýtast breiðum hópi notenda
allt frá einstaklingum upp í stærstu fyrirtæki og
stofnanir landsins.
Við bjóðum afbragðsbúnað, fyrsta flokks þjónustu
og hagstætt verð. Láttu í þér heyra. Fáðu verðtilboð.
Það margborgar sig.
SIEMENS
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4
P 105 Reykjavík
” Sími 520 3000
www.sminor.is
*... það gerðu þau:
• Gula línan • Sjúkrahús Reykjavíkur
• Ríkisútvarp-Sjónvarp
Félagsþjónustan í Reykjavik
• Skeljungur • ÍSAL * íslenskir aðalverktakar
• Rugmálastjórn • Ræsir hf • Domus Medica
• Mjólkursamsalan • Hallgrímskirkja
• Grímsneshreppur* Magnús Kjaran
• Hótel Keflavík • Rafiðnaðarskólinn
• Sameinaði lífeyrissjóðurinn
• St Jósepsspítali • Taugagreining
• Tölvu- og verkfræðiþjónustan
• Dagvist bama • Rauði kross íslands
• Plastprent* Ölgerð Egils Skallagríms
• íslenskmiðlun hf.
o.fl. o.fl.