Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
Eftirmál vegna fasteignaviðskipta:
- til að forðast eftirmál vegna „leyndra" galla
Alla galla
skal skrá
Maður sem seldi raðhús sitt fyrir
nokkrum mánuðum stóð síðan
frammi fyrir því sex mánuðum síð-
ar, þegar kaupandi átti að standa
skil á síðasta hluta útborgunarinn-
ar í húsinu, aö kaupandinn tók að
halda uppi málþófi um ýmsa galla í
húsinu sem honum hefði ekki verið
kunnugt um áður. Seljandi hússins
stendur á því fastar en fótunum að
hafa sýnt kaupandanum allt húsið
hátt og lágt áður en kaupin voru
gerð og greint honum skilmerkilega
og samviskusamlega frá því sem
finna mætti að því, enda hefði hús-
ið verið verðlagt í samræmi við
ástand þess. Kaupandinn þrætti
hins vegar fyrir að hafa nokkru
sinni heyrt neitt slíkt af munni selj-
anda. Endir málsins varð sá að selj-
andi sló af 60 þúsund krónur. Kaup-
andinn, sem hafði krafist hundraða
þúsunda afsláttar, sætti sig við 60
þúsundin.
Fasteignasalar sem Hagsýni DV
ræddi við í gær sögðu það nokkuð
algengt að mál af þessu tagi kæmu
upp og stundum væru ástæðumar
þær að kaupandi væri einfaldlega
aðþrengdur peningalega og ætti
ekki fyrir því að efna kaupsamning-
inn að fullu og gripi því til örþrifa-
ráða. „Það er því mjög góð venja að
setja allt slíkt inn í kaupsamning.
Munnlegir samningar eiga auðvitað
að halda en annað hefur því miður
komið á daginn þegar á reynir,"
segir Elías Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri fasteignasölunnar
Hóls, í samtali við DV. Elías sagði
það allM affarasælast að greina
kaupanda samviskusamlega frá öllu
sem viðkæmi húsinu og svara sam-
viskusamlega öllum spurningum
hans og skrá allt slíkt inn í kaup-
samninginn. Þannig sé skynsamlegt
að skrá þar t.d. að kaupanda sé
kunnugt um óþétta svalahurð og
kaupanda sé kunnugt um raka í
kjallara o.s.frv. Með því tryggi selj-
andi sig betur fyrir eftirmálum af
þessu tagi. „Ef ekkert er skráð, svo
ekki sé talað um ef ekki er minnst á
neitt, er hætta á að erfið eftirmál
komi upp,“ sagði Elías.
-SÁ
Elías Haraldsson,
framkvæmdastjóri
Fasteignasölunnar
Hóls.
í kaupsamning
Endurnýjar gamla bílinn með gömlum bíl:
„Mánaðarbílar“ af
hagkvæmnisástæðum
- mikið til af góðum eldri bílum - segir Ólafur Geirsson blaðamaður
um eldri bílum á markaðnum á
verðbilinu frá 300-500 þúsund
sem geta dugað vel i allmörg ár
enn. Meðan meginhluta bíleig-
enda dreymir um að eignast nýj-
an bíl og endurnýja slðan reglu-
lega skapast rými fyrir þennan
hóp sem ég tilheyri og endurnýj-
ar meðvitað bíla sína með þess-
um hætti, en ég veit svo sem
ekki hvað hann er stór,“ segir
Ólafur.
Hann á núna 12 ára gamlan
Fiat Croma en sá bíll varð upp-
haflega til i samstarfi Saab, Fiat
og Lancia. Saabinn sem út úr
þessu samstarfl kom var Saab 900
en hjá Lancia var það Lancia
Thema, en allt er þetta að grunni
til sami bíllinn. Aðspurður hvaða
bíltegund hafi dugað honum
einna best nefnir Ólafur Nissan
Sunny. „Sá bíll stoppaði aldrei og
á endanum var ég orðinn leiður á
honum og losaði mig við hann
þess vegna en ekki af því að hann
hefði gefist upp,“ sagði Ólafúr
Geirsson.
-SÁ
Notaður bíll keyptur og allt kaupverðið lánað í átta ár:
90 þúsund í mín-
us eftir átta ár
Framboð á lánspeningum til
kaupa á nýjum og notuðum bílum
hefur verið mikið að undanfórnu
og bílar boðnir til kaups þannig
að allt kaupverðið er lánað jafnvel
til 100 mánaða, sem eru tæplega
átta og hálft ár.
Við skulum nú hugsa okkur
mann sem kaupir sér vel með far-
inn þriggja ára gamlan bíl sem upp-
haflega kostaði 1,5 milljónir króna.
Kaup á notuðum bfl
- allt lánað til 8 ára
Upphaflegt verð bíls
Verb bílsins ab átta árum liðnum
Vextir og afborganlr samtals á tímabilinu
Mismunur
Kaupverð bílsins er 1.122.000 kr. og
fær kaupandi allt kaupverðið lánað
til 96 mánaða, eða átta ára. í lok láns-
tímans er bíilinn orðinn 11 ára og
hann fengi kannski fyrir hann um
370 þúsund krónur, hafi hann farið
vel með hann og haldið honum eðli-
lega við. í þessi átta ár hefur hann
borgað lánið upp og greitt af því
vexti samtals um 460 þúsund krónur.
Ef hann nú selur bílinn þá stendur
hann í rauninni uppi
með um 90 þúsund
króna halla eftir
átta ár þegar
hann ætlar að
endurnýja
gamla bíl-
inn. Þar að
auki hefur
hann rek-
ið bílinn
og keypt
á hann
bensín,
smurt
h a n n
og látið
halda
honum
1.122.000 kr.
370.000 kr.
460.000 kr.
-90.000 kr.
við að öðru leyti. Hafi ekkert stór-
vægilegt komið fyrir bílinn og engar
viðgerðir þurft að gera á honum, þá
hefur rekstur hans að meðtöldum
sköttum, tryggingum og viðhaldi
kostað til viðbótar á þessu átta ára
tímabili um 3.280.000 kr. Það er hins
vegar önnur saga.
í þessu dæmi er reiknað með láns-
kjörum sem nú tíðkast á bílamark-
aðnum. Verðfall bílsins er reiknað út
frá þeim forsendum sem Félag ísl.
bifreiðaeigenda gengur út frá þegar
félagið reiknar ársfjórðungslega út
reksturskostnað heimilisbíla. í þessu
tilbúna dæmi má einnig segja að bíl-
kaupandinn hafi verið skynsamur að
kaupa þriggja ára gamlan bíl, því að
verðfall er mest á nýjum bílum á
fyrstu þremur árunum en síðan hæg-
ir á því. Á móti kemur að eftir þrjú
ár má reikna með því að þurfa að
endumýja dekkjaganginn undir bíln-
um og bíllinn byrjar aö kalla eftir
viðhaldi. Þannig má búast viö því að
útblásturskerfið þurfi að fara að end-
urnýja og það þurfi að fara að líta á
hemlakerfið og það þarf nýi eigand-
inn að sjálfsögðu að kosta.
-SÁ
Ólafur Geirsson blaðamaður við núverandi „mánaðarbíl11 sinn.
heldur nokkurra ára gamla og vel
með farna og keyrir þá út. Hann
segir að yfirleitt hafi þetta tekist
vel hjá sér. Hann hafi eignast
góða bíla fyrir tiltölulega lágt
verð og þeir hafi langflestir dugað
honum án teljandi vandamála.
„Ég geri mér grein fyrir þvi að
það geta ekki allir verið i þessu
vegna þess að þetta byggist á því
að bílafloti landsmanna endurný-
ist tiltölulega ört. Ör endurnýjun
er hagstæð fyrir okkur sem leys-
um bilamál okkar með þessum
hætti. Ef bilaflotinn endumýjast
hægt þá þrengist svigrúmið," seg-
ir Ólafur.
Ólafur segist yfirleitt ekki eyða
meiru í bílakaup en sem nemur
aðarbíla. Hann velur bíla af
sæmilega góðum og vönduðum
tegundum sem einhverra hluta
vegna eru ekki eftirsóttir og fást
því tiltölulega ódýrt. Hann fái
ætíð fagmann með sér til að
skoða bílinn sem hann hefur
augastað á og kaupi hann siðan ef
hann er í lagi og hefur hlotið góða
meðferð og stenst ársskoðun.
Hann á síðan bílinn þar til hon-
um finnst ekki taka því lengur að
gera hann út. Þá losar hann sig
við hann, gjarnan með því að
selja hann til niðurrifs. „Reynsla
mín af þessu er sú að þetta hefur
margfaldlega borgað sig miðað
við það að kaupa nýlega eða nýja
bíla. Það er heilmikið til af góð-
„Upphaflega fór ég út í þetta af
þörf því að tekjur mínar minnk-
uðu mjög mikið en ég hélt því síð-
an áfram af hreinum hagkvæmn-
isástæðum," segir Ólafur Geirs-
son blaðamaður. Ólafur hefur þá
reglu að hann kaupir aldrei nýja
b í 1 a
eins mánaðar
launum sín-
um í
mesta lagi
og nefnir
þá af þeim
sökum mán-