Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Side 18
18
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
Meðal effnis:
Upplýsingar um alla
aldrifsbíla sem í boði eru
á íslenskum markaði ásamt
hliðstæðum upplýsingum um mótorhjól
11\ Ifiui 1 fíTTí rtfSI 1H i nTirmi
Fréttir
DV
Árni Sigfússon, tii hægri, afhendir Guðmundi Jóhannssyni, formanni stjórn-
ar HAB, nýja stjórnkerfið. Fyrir aftan er Magnús Oddsson, framkvæmda-
stjóri Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. DV-mynd Daníel
Hitaveita Akraness og BorgarQarðar:
Nýtt stjórnkerfi
í eitt lengsta
veitukerfi heims
Umfjöllun um jeppa: Sigurður Hreiðar, netfang: shh@ff.is
Jóhannes Reykdal, netfang: jreykdal@isafold.is
Umfjöllun um mótorhjól: Njáll Gunnlaugsson, netfang: adalbraut@islandia.is
Umsjón auglýsinga: Sigurður Hannesson, sími 550 5728, netfang: sh@ff.is
Viki'ÉM
Krakkar, komið og smakkið
Starburst- ávaxtakaramellurnar.
Krakkar! Ef þið eruð á aldrinum 3 til 12 ára
getið þið tekið þátt í litasamkeppninni okkar.
Komið og heilsið upp á Tígra og Crayola- kailinn
og nálgist litabasklinginn. V\ð getið litað hann
á staðnum eða farið með hann heim
og sent okkur hann þegar hann er tilbúinn.
Það ertil mikils að vinna.
Krakkar,'
hittumst í Kringlunni
1. vinningur: Lita-, + teiknibox
2. vinningur: Föndurkommóða
3. vinningur: Litir í tösku/trönur
4. vinningur: Litaföndurtaska
5. vinningur: Litir + bretti fyrir ferðalög
6. 100 aukavinningar: Túss-stimplasett
, “.,c ■■ m
■■■■—■■...... ........... ■■■
DV, Vesturlandi:
Árni Sigfússon, forstjóri Tækni-
vals, afhenti 12. maí þeim Guðmundi
Jóhannssyni, formanni stjórnar HAB,
og Magnúsi Oddssyni, framkvæmda-
stjóra Hitaveitu Akraness og Borgar-
fjarðar, nýtt stjórnkerfi fyrir hitaveit-
una. Síðla árs 1997 var undirritaður
samstarfssamningur milli Akranes-
veitu og Tæknivals um uppsetningu á
FIX stjóm- og eftirlitskerfí fyrir Hita-
veitu Akraness og Borgarfjarðar og
vatnsveitur á Akranesi og í Borgar-
nesi.
Aðalveitukeríi HAB er eitt lengsta
sinnar tegundar í heimi. Lengd þess
með hliðargreinum er um 75 km. Hið
nýja stjórn- og eftirlitskerfi býður upp
á mjög nákvæma rennslisstýringu
sem draga mun úr bilunum og
skemmdum á aðveituæðum og minnk-
ar hættu á umhverfisspjöllum. Það
eykur hagræði, bætir gagnaöflun og
eykur möguleika á úrvinnslu upplýs-
inga og lækkar bilanatíðni.
Með tölvuvæddari stjórnbúnaði er
hægt að stýra öllu mun betur og með
meiri nákvæmni en áður var. Meðal
annars er búið að setja skynjara víða
á lögnina sem aftur tengist inn á
dælustöðvarnar. Dælustöðvarnar eru
svo módemtengdar við kerflsráðana á
Akranesi og í Borgamesi.
FIX er eitt af stærstu og þróuðustu
skjámyndakerfum í heimi. Hér heima
er kerfið svo forritað og aðlagað is-
lenskum aðstæðum og kemur til með
að hjálpa við stjómun, skráningu og
framsetningu gagna. -DVÓ
Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, Ásdís Pálmadóttir og börn þeirra, Val-
gerður Björk, Hildur Björk og Páll Orri. Varaformaður Ness, Hafsteinn Ingi-
bergsson, tekur við bogunum. DV-mynd-HBB
Ólafur bóndi á Þorvaldseyri var að herfa flag. DV-mynd Njörður
Fötluðum gefnir bogar
DV, Suðurnesjum:
Blaðið Vikmfréttir í Keflavík færði
íþróttafélaginu Nesi nýverið fimm
boga að gjöf, að andvirði 100 þúsund
krónur, í tilefni þess að blaðið er að
hefja tuttugasta útgáfuár sitt.
Ritstjórinn, Páll Ketilsson, og fjöl-
skylda hans afhentu Hafsteini Ingi-
bergssyni, varaformanni Ness, og fé-
lögum í íþróttafélagi fatlaðra á Suður-
nesjum bogana á sumardaginn fyrsta
i íþróttamiðstöð Njarðvíkur.
-AG
Vorhugur í bændum
DV, Suðurlandi:
Sunnlenskir bændur eru nú
komnir af krafti í vorverkin. Víðast
er sauðburður langt kominn og
margir eru búnir að sá komi. Jörð
hefur víðast komið vel undan vetri,
undir Eyjafjöllum er orðið grænt
upp í miðjar hlíðar og tún tekin að
spretta. NH