Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Qupperneq 19
19
NBA í nótt
Handknattleikur:
Lasse i Hauka
1. deildar lið Hauka í hand-
knattleik hefur fengið góðan lið-
styrk fyrir næsta keppnistímabil
en félagið hefur gert samning við
Norðmanninn Lasse Steinseth, 24
ára gamlan homamann sem leik-
ið hefur með Drammen i Noregi.
Steinseth hefur undanfarin 6
ár leikið með Drammen og hin
síðari ár hefur hann jafnan verið
einn markahæsti leikmaður liðs-
ins. Hann skoraði 124 mörk í 20
leikjum Drammen i norsku deild-
inni á síðustu leiktið og gerði sér
lítið fyrir og setti nýtt norskt með
þegar hann skoraði 21 mark í
deildarleik með Drammen.
Steinseth er ætlað að fylla i
skarð Þorkels Magnússonar sem
er á leið utan í nám næsta haust.
Norðmaðurinn er annar leikmað-
urinn sem Haukar fá í sinar rað-
ir en á dögunum gekk Gylfi
Gylfason í raðir þeirra frá
Gróttu/KR en hann leikur í
hægra hominu.
Þar með verða tveir Norðmenn
í herbúðum Hauka á næstu leik-
tíð en Kjetil Ellertsen á eitt ár eft-
ir af tveggja ára samningi sínum
við Hafnarfjarðarliöið.
-GH
Lasse Steinseth.
Einar áfram
með lið
Grindavíkur
Einar Einarsson hefur skrifað
undir nýjan samning við úrvalsdeild-
arlið Grindavikur í körfuknattleik og
gildir samningurinn til næstu
tveggja ára. Einar þjálfaði tvö lið á
síðustu leiktíð. Hann byrjaði hjá
Haukum en eftir að hann var rekinn
frá félaginu réðu Grindvíkingar
hann til starfa um miðbik timabils-
ins og leysti hann Guðmund Braga-
son af hólmi.
„Ég geri ekki ráð fyrir miklum
breytingum á okkar liði. Að vísu má
búast við því að við missum Herbert
en hann er að leita fyrir sér erlendis.
Stefnan er að þétta hópinn og koma
með sterkara lið til leiks í haust. Við
vomm í hælunum á Keflavík og
Njarðvík og með smáheppni hefðum
við getað slegið Keflavík út í undan-
úrslitunum,“ sagði Einar í samtali
við DV í gær. -GH
Bikarinn for til Romaborgar
ítalska llðið Lazio varð í gærkvöld Evrópumeistari bikarhafa í knattspyrnu eftir 2-1 s!gur gegn Mallorca frá
Spáni en iiðin léku til úrslita á Villa Park í Birmingham. Fögnuður leikmanna Lazio var mikill í leikslok og á
myndinni eru Marcelo Salas og Attilio Lombardo í sjöunda himni með bikarinn á milli sín. Símamynd Reuter
Siguröur Jónsson fundar með Dundee United í dag:
„Þaö er allt opiö“
„Það verður fúndur með öllum leikmönnum félagsins
í dag og eftir hann veit ég hvar maður stendur. Það er
ekkert launungarmál að ég stefni að því að komast frá fé-
laginu. Ég æfi af fúllum krafti þessa dagana til að halda
mér i formi varaðandi landshðið sem á leik gegn Armen-
um heima þann 5. júní,“ sagði Sigurður Jónsson, lands-
liðsmaður hjá skoska Uðinu Dundee United, í samtali við
DV.
Sigurður sagði í samtalinu að hann kæmi til íslands á
mánudag. Hann var inntur eftir því hvort möguleiki
væri á því að hann léki hér á landi i sumar.
„Það er aUt opið í þeim efnum,“ sagði Sigurður. -JKS
Miljkovic
með ÍBV
í kvöld
Zoran Miljkovic, vamarmað-
urinn öflugi frá Júgóslavíu, er
kominn með leikheimild frá
júgóslavneska knattspyrnusam-
bandinu og því er ekkert til fyr-
irstöðu að hann geti leikið gegn
Leiftursmönnum í úrvalsdeUd-
inni í knattspymu í Eyjum í
kvöld.
Miljkovic er sigursælasti er-
lendi knattspyrnumaðurinn sem
leikið hefur hér á landi en í þau
5 ár sem hann hefur spilað á Is-
landi hefur hann í öll skiptin
orðiö íslandsmeistari, fyrstu
þrjú árin neð Skagamönnum og
síðustu tvö árin með Eyjamönn-
um.
-GH