Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Síða 24
24
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
Gíraffar í uppáhaldi
Uppstoppaður kettlingur
teygir fram loppurnar á
skrifstofu Margrétar Dagg-
ar Halldórsdóttur, rekstrarstjóra og
dýrahirðis í Húsdýragarðinum.
Hún er búfræðingur og gæti ekki
hugsað sér lífiö án dýra. „Ég verð
að vera innan um dýr.“ Hún er
borgarbam en var í sveit á sumrin
á æskuárunum. „Ég á allt of mikið
af dýrum.“ Hún á skoskan smala-
hund sem hún hefur með sér í vinn-
una, kött, hesta og fiska.
Vorverkin eru í fullum gangi í
garðinum en þau felast m.a. í að
bera áburð á grasið og taka á móti
ungviðinu. í ár hefur verið óvenju-
mikið um ígrip i fæðingum kind-
anna. „Sum árin þcirf að hjálpa öll-
um kindum. Ég veit ekki hvers
vegna.“
Margrét Dögg leggur áherslu á að
starfsmenn Húsdýragarðsins eyði
tíma með dýrunum. „Þetta snýst
ekki bara um að þrífa heldur að
kynnast dýmnum en þá er maður
fljótari að sjá ef eitthvað er að. Þaö
fer oft töluverður tími í að sitja og
spjalla við þau.“
Böm em í meirihluta gesta í Hús-
dýragarðinum en algengt er að
skólaböm komi í heimsókn. „Starf-
ið snýst mikið um fræðslu. í garðin-
um er starfandi fræðsludeild og
dýrahirðarnir vinna náið með
henni.“
Margrét Dögg segir að aðsókn
annarra gesta en bama sé mjög góð
og sé alltaf að aukast yfir vetrartím-
ann. „Ég hef á tilfinningunni að
hingað komi margir fastakúnnar
með böm sem komi jafnvel tvær
helgar í mánuði." Útlenskir ferða-
menn láta líka sjá sig. „í útlöndum
þekkist aö fullorðnir fari í dýra-
garða en mörgum íslendingum
finnst þeir þurfa að hafa
börn með sér. Það er eins
og það sé skilyrði fyrir því
að koma. En það er það alls
ekki. Garðurinn er fyrir
alla.“
Selimir eru vinsælastir. Síð-
an koma refimir og svinin. Mar-
grét Dögg er hætt að gera upp á
milli dýranna. „Fyrst eftir að ég
byrjaði var eitt dýr í uppáhaldi
þann daginn og annað þann næsta.
Ég á reyndar eitt uppáhaldsdýr sem
er ekki hér í garðinum en það er
gíraffi. Ég hef einu sinni séð gíraffa
og ég var alveg dolfallin."
Börn sem koma í Húsdýragarð-
inn fá að vita nöfh dýranna. Meðal
ungviðisins sem hefur komið í
heiminn í vor er kvígukálfurinn
Sóldögg og kiðlingurinn Hrollur.
Margir kannast eflaust við nautið
Guttorm sem í vetur var mælt og
reyndist
stærsta og
þyngsta naut á
landinu.
Margrét Dögg
nefnir fræðslugildið
þegar hún er spurð
hver sé nauðsyn þess að dýragarður
sé í borg. „Það er orðið miklu sjald-
gæfara að böm séu send i sveit. Mér
fmnst nauðsynlegt til að víkka sjón-
deildarhringinn að fólk kynnist dýr-
um og læri að umgangast þau. Dýr-
in era hluti af náttúranni og mér
finnst það eitt af grundvallarlögmál-
unum að lifa i sátt við hana.“
-SJ
Hani, krummi,
hundur, svín
Vorið er komið í heim manna og dýra. í Húsdýragarðinum hitt-
ast þessir niðjar náttúrunnar, horfa hver á annan og tala jafn-
vel saman. Þessir niðjar tilheyra sömu tilveru. Tilveran leit inn
í Húsdýragarðinn og tók tali menn og einstaka dýr.
„Mér finnst nauðsyn-
legt til að víkka sjón-
deildarhringinn að
fólk kynnist dýrunum
og læri að umgang-
ast þau.“ Hér er Mar-
grét Dögg og kiðling-
urinn Hrollur.
DV-myndir ÞÖK
Yngri börnin taka
við af þeim eldri
Hestarnir vekja mestan áhuga
Fjósiö var síðasti viðkomustað-
ur fjölskyldunnar frá Grund-
arfirði sem varð á vegi Tilver-
unnar í Húsdýragarðinum. Þau
Helga Pétursdóttir og Marvin ívars-
son voru komin alla leið til Reykja-
víkur meðal annars í þeim tilgangi
að bjóða frumburðinum ísak
Snorra, 16 mánaða, í Húsdýragarð-
inn.
„Þó að við komum reglulega til
Reykjavíkur þá er þetta fyrsta
skipti sem við komum hingað í Hús-
dýragarðinn. Við erum líka að
fagna eins árs brúðkaupsafmælinu
og fannst tilvalið að gera eitthvað
skemmtilegt með ísak Snorra,"
sagði Marvin.
„Drengurinn skemmtir sér ekk-
ert síður en við, enda garðurinn í
alla staði mjög skemmtilegur. Hest-
amir vekja mestan áhuga ísaks en
hann á svo sem ekki langt að sækja
það því hann er þegar farinn að
fylgja pabba sínum í hesthús fyrir
vestan. Við höfum aðallega komiö
til Reykjavíkur til þess að fara í
leikhús og bíó en ég held þaö sé al-
veg ljóst að Húsdýragarðurinn er
kominn á listann yfir það sem við
geram í borgarferðum í framtíð-
inni, sagði Helga Pétursdóttir.
-aþ
Þetta er fyrsta ferð tvíbur-
anna í Húsdýragarðinn en
undanfarin ár höfum við
komið reglulega með eldri bömin
hingað þannig að við höldum því
væntanlega áfram,“
sagði Guðrún
Hákonardóttir
sem var
ásamt eigin-
manninum,
E i n a r i
Helgasyni
og tví-
burunum
Bjarghildi
Það getur verið gott að láta mömmu og pabba halda á sér. Tvíburarnir Bjarg-
hildur Vaka og Hróðmar Vífill ásamt foreldrum sínum, Guðrúnu Hákonar-
dóttur og Einari Helgasyni úr Grindavík.
ísak Snorri ásamt foreldrum sínum, Marvin ívarssyni og Helgu Pétursdóttur.
Helga og Marvin með soninn Isak Snorra:
Vöku og Hróðmari Vífli, að spóka
sig í Húsdýragarðinum þegar Til-
veran var þar á ferð.
Þau sögðu votviðrið engu skipta
enda væru þau ýmsu vön úr
Grindavík þar sem þau eru búsett.
„Það er alltaf gaman að koma hing-
að og við ætlum að skoða allan
garðinn venju samkvæmt. Það er þó
kostur að sýningarsvæðið er bæði
inni og úti en mér finnst bæði nauð-
synlegt og skemmtilegt fyrir böm
að kynnast íslensku hús-
dýranum með þess-
um hætti,“ sagð
f' St Einar Helgason.
__ I -aþ