Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Qupperneq 37
UV FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
37
Rachel Burton leikur einleik meö
Sinfóníuhljómsveit íslands í Há-
skólabíói í kvöld.
Tónleikar
Erfiður fiðlu-
konsert
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur tónleika í Háskólabíói í
kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru
flögur verk: Þrjár setningar eftir
Karólínu Eiríksdóttur, Fiölu-
konsert nr. 1 og Polanaise í D-dúr
eftir Henryk Wieniawski og Sin-
fónía í D-moll eftir Cesar Franck.
Hljómsveitarstjóri er Vasilu
_________________Sinaski sem
þykir einn
sérstæðasti
hljómsveitar-
stjóri Rússa um þessar mundir og
var meðal annars aðalhljómsveit-
arstjóri Fílharmóníuhljómsveitar-
innar í Moskvu 1991-1996.
Einleikari í fiðlukonsertinum
er Rachel Burton sem þrátt fyrir
ungan aldur er viðurkennd sem
einn fremsti fiðluleikari sinnar
kynslóðar. Hefur hún komið fram
með sinfóníuhljómsveitum í
Chicago, St. Louis, Montreal, Vín-
arborg og Búdapest og unnið með
hljómsveitarstjórum á borð við
Zubin Mehta og Eric Leinsdorf.
Fiðlukonsertinn sem hún leikur
einleik í er sjaldan fluttur á tón-
leikum og er ástæðan sú að hann
er mjög erfíður í flutningi, „algjör
fingurbrjótur“, eins og sagt er, og
ekki nema á færi snillinga að
flytja svo vel fari.
Þriðja leiðin í
stjómmálum
Prófessor Anthony Giddens rektor
heldur fyrirlestur í dag í stofu 101 í
Odda kl. 16. Prófessor Giddens er með
þekktari félagsvísindamönnum nú-
tímans. Verk hans hafa haft mikil
áhrif bæði innan félagsvísindanna og
í stjórnmálum líðandi stundar en
Giddens er talinn einn helsti hug-
myndafræðingur stjómarstefnu
Tonys Blairs í Bretlandi.
Siðfræði og
erfðaupplýsingar
Vísindafélagsfræðingurinn Hilary
Rose flytur fyrirlestur kl. 17.00 í hátíð-
arsal Háskóla íslands. Fyrirlesturinn
nefnist Siðfræði og erfðaupplýsingar
og er öllum opinn.
Sjálfbær þróun
Sakari Kankaapaa, gistifræðimaður
við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar,
flytur fyrirlestur um sjálfbæra þróun
og norðlæga jaðarskóga í aðalsal Há-
skólans á Akureyri í dag kl. 17.15.
Verkefni nemenda í
sjúkraþjálfun
Kynning á BS-verkefni nemenda
námsbrautar í sjúkraþjálfun fer fram
á morgun frá kl 10.30 til 15.40. Kynn-
________________inging fer
fram í Lækna-
Samkomur garði, 3. hæð,
og era allir
sem áhuga hafa velkomnir. Hvert er-
indi er 20 mínútur, 15 mínútur í ffarn-
sögu og 5 mínútur í spumingar og
umræður.
Eðlisfræðifyrirlestur
Dr. Arvi Freiberg, eðlisfræðideild
háskólans í Tartu, Eistlandi, flytur er-
indi á málstofu efnafræðiskorar á
morgun kl. 13.15 í stofu 158, VR-II,
Hjarðarhaga 4-6. Erindið nefnist
Excitons in Photosynthesis. Dr.
Freiberg hefur starfað lengi við eðlis-
ffæðideild eistnesku vísindaakademí-
unnar og nú við háskólann í Tartu.
Allir eru velkomnir að hlýða á erindið.
Rex:
Djass og danstónlistarspuni
í kvöld hefst ný syrpa af Improve
groove kvöldum á veitingastaðnum
Rex. Improve groove er helgað djass
og danstónlistarspuna. Djasstónlist-
armenn spinna yfir for-
vitnilega og krefjandi
tónlistarblöndu plötu-
snúða. Nú er að hefjast
þriðja syrpan af Improve groove á
Rex og það verða saxófónleikarinn
Óskar Guðjónsson og plötusnúður-
inn Margeir sem ríða á vaðið. Mar-
geir og Óskar hafa áður spunnið
saman við mikla hrifningu við-
staddra og vegna ítrekaðra óska
hafa þeir ákveðið að endurtcika leik-
inn. í tilefni vorkom-
unnar geta áheyrendur
búist við suðrænum og
seiðandi áhrifum í tón-
listinni ffá Margeiri og áköfum og
heitum spuna ffá Óskari. Leikurinn
hefst um kl 22.30 og stendur til 1.00.
Aðgangur er ókeypis. Umsjónar-
Margeir plötusnúður.
maður Improve groove er Þorsteinn
Stephensen.
Blues Express á
Grand Rokk
í kvöld skemmtir Blues Express á
Grand Rokk, en sveitin vakti mikla
hrifningu þar fyrir viku. Blues Ex-
press hefúr verið í pásu nokkuð
lengi en hraðlestin er farin aftur af
stað með nokkuð breyttmn mann-
skap. í sveitinni eru eru nú Matthi-
as Stefánsson á gítar, Ingvi R.
Ingvason á trommur, Gunnar Ei-
riksson, söngur, munnharpa, Tómas
Malmberg, hljómborð, og Árni
Björnsson á bassa.
Óskar Guöjónsson saxófönleikari.
Skemmtanir
Veðríð í dag
Skúrir eða
haglél
Yfir vestanverðu Grænlandshafi
er 982 mb lægð sem mun þokast
austur á bóginn.
I dag verður suðaustankaldi og
talsverðar skúrir eða haglél sunnan
og vestan til en hæg suðlæg átt og
léttskýjað á Norðausturlandi. Hæg
breytileg átt sunnanlands og skúrir
eða súld með köflum í nótt en hæg
austlæg átt og þurrt norðanlands.
Hiti 3 til 13 stig, hlýjast á Norðaust-
urlandi síðdegis, en svalast á Vest-
fjörðum.
Á höfuðborgarsvæðinu er suð-
austangola eða kaldi. Hæg breytileg
átt í kvöld en norðvestlæg seint í
nótt. Skúrir. Hiti 4 til 9 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 22.56
Sólarupprás á morgun: 03.52
Síðdegisflóð í Reykjavík: 23.39
Árdegisflóð á morgun: 12.20
Veðrið kl.
Akureyri
Bergsstaðir
Bolungarvík
Egilsstaöir
Kirkjubœjarkl.
Keflavíkurflv.
Raufarhöfn
Reykjavík
Stórhöfði
Bergen
Helsinki
Kaupmhöfn
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Þrándheimur
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Halifax
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
Jan Mayen
London
Lúxemborg
Mallorca
Montreal
Narssarssuaq
New York
Orlando
París
Róm
Vín
Washington
Winnipeg
6 í morgun:
hálfskýjað
alskýjað
skýjað
skýjaö
úrkoma í grennd
skúr á síð.kls. 4
skúr á síð.kls. 5
léttkskýjaó 13
léttskýjað 12
heiðskírt 11
14
alskýjað 10
léttskýjað 9
heióskírt 12
rigning 15
léttskýjað 14
léttskýjað 14
léttskýjað 11
skýjaó 10
skúr á síó.kls. 11
þokumóóa 12
léttskýjaö 13
þoka 2
mistur 13
þoka 10
skýjaö 17
9
heiðskírt -4
alskýjaö 16
léttskýjaö 19
rigning 13
skýjaö 15
heiöskírt 14
heiðskírt 16
13
Einar Atli
Litli drengurinn, sem er í
fangi bróður síns, hefur fengið
nafhið Einar Atli. Hann fæddist
á fæðingardeild Landspítalans
Barn dagsins
10. mars síöastliðinn kl. 13.30.
Foreldrar hans era Ólafia Mar-
ía Gunnarsdóttir og Óskar Júli-
us Bjarnason. Bróðir Einars
Atla heitir Hjalti Freyr og er
hann fjögurra og hálfs árs gam-
all.
Víða aurbleyta
Vegir á hálendi íslands era lokaðir fyrst um sinn
vegna aurbleytu. Aurbleyta hefur einnig gert það
að verkum að öxulþungi er takmarkaður víða og er
það tilkynnt með merkjum við viðkomandi vegi. Yf-
irleitt er takmörkunin miðuð við sjö eða tíu tonn.
Færð á vegum
Vegavinnuflokkai- era að störfum á nokkram stöð-
um á landinu, meðal annars á Snæfellsnesi og á
suðvesturhominu. Að öðra leyti er ágæt færð á öll-
um aðalvegum landsins.
Astand vega
^ Skafrenningur
m Steinkast
E] Hálka
Q) Ófært
® Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
m Þungfært © Fært fjallabílum
Jane Horrocks leikur Lóu og hefur
fengið mikið lof fyrir.
Taktu lagið, Lóa
Taktu lagið, Lóa (Little Voices)
sem Regnboginn sýnir er byggð á
frægu leikriti eftir Jim Cart-
wright. Jane Horrocks leikur Lóu,
einmana stúlku sem á heima í lít-
illi sjávarborg í norðvesturhluta
Englands. Allt frá því að faðir
hennar lést hefur hún ekki talað
en eyðir deginum í að hlusta á
plötur úr miklu safni sem faðir
hennar skildi eftir sig. Móðir
hennar Mari (Brenda Blethyn) er
löngu hætt að syrgja eiginmann
sinn og skemmtir sér mikið. Dag
einn kemur nýr maður inn í líf
Mari, vafasamur karakter,
Ray Say (Michael
Caine) sem er um- ’/////////
Kvikmvndir
boðsmaður skemmti- V
krafta. Um sama leyti
kynnist Lóa feimnum ungum
manni, Bill (Ewan McGregor) og
hún fær áhuga á lífinu aftur. Þetta
verður til þess að hún syngur
meira og dag einn heyrir Ray
hana syngja og verður hrifinn.
Hann sér mikla peninga í hæfi-
leikum hennar og hefur undirbún-
ing að því að gera hana aö
stjörau.
Bíóhöllin: 8MM
Saga-Bíó: Varsity Blues
Bíóborgin: True Crime
Háskólabíó: Forces of Nature
Háskólabíó: Arlington Road
Kringlubíó: Belly
Laugarásbíó: Free Money
Regnboginn: Taktu lagið, Lóa
Stjörnubíó: Deep End of the Ocean
«r,
w
Krossgátan
1 2 3 4 5 6
7 8 9
10 11
12 13
14 15 16 17
18 19
20 21
Lárétt: 1 stækur, 5 þykkni, 7 hin-
um, 8 kyrrð, 10 gæla, 11 stöngin, 12
þáttinn, 14 varðandi, 16 þrái, 18 sef-
ar, 19 armur, 20 blöð, 21 flas.
Lóðrétt: 1 reykur, 2 aur, 3 undir-
föral, 4 svíðingur, 5 lítinn, 6 hvel, 9
ofn, 13 rekald, 15 svörður, 17 utan,
19 píla.
Lausn á sfðustu krossgátu:
Lárétt: 1 hrátt, 6 ám, 8 völ, 9 árla, 10
okar, 11 ofn, 13 togaðir, 16 trosi, 18
má, 19 oft, 20 taum, 22 salur.
Lóðrétt: 2 rök, 3 álag, 4 tárast, 5
troði, 6 ál, 7 man, 8 vott, 12 fimur, 14
orfs, 15 rámi, 17 ota, 19 ok, 21 au.
Gengið
Almennt gengi LÍ 20. 05.1999 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollgengi
Dollar 73,590 73,970 73,460
Pund 118,530 119,140 118,960
Kan. dollar 50,090 50,400 49,800
Dönsk kr. 10,5250 10,5830 10,5380
Norsk kr 9,4700 9,5220 9,4420
Sænsk kr. 8,7080 8,7560 8,8000
Ft. mark 13,1605 13,2396 13,1780
Fra. franki 11,9289 12,0006 11,9448 >
Belg. franki 1,9397 1,9514 1,9423
Sviss. franki 48,8700 49,1400 48,7200
Holl. gyllini 35,5077 35,7211 35,5548
Þýskt mark 40,0079 40,2483 40,0610
jt. líra 0,040410 0,04065 0,040470
Aust. sch. 5,6866 5,7207 5,6941
Port escudo 0,3903 0,3926 0,3908
Spá. peseti 0,4703 0,4731 0,4710
Jap. yen 0,590400 0,59400 0,615700
írskt pund 99,355 99,952 99,487
SDR 98,850000 99,45000 99,580000 *
ECU 78,2500 78,7200 78,3500
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270