Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 40
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFIIR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í stma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað t DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ1999
Iðnskólinn:
Ingvar iðrast
Ingvar Ásmundsson, skólameist-
ari Iðnskólans, bað samstarfsmenn
sína afsökunar á kennarafundi í
skólanum síðastliðinn þriðjudag.
Með því reyndi
skólameistari að
slá á þær
hatrömmu deilur
sem geisað hafa
innan skólans að
undanfórnu. Var
Egill Guðmunds-
son, deildarstjóri
hönnunardeildar,
sérstaklega beðinn
afsökunar en Ingv-
ar hafði slengt til
hans hendi og kall-
að hann niðurrifsmann þegar verst
lét á kennarafundum. Guðni Kol-
beinsson, formaður Kennarafélags
* Iðnskólans, sem sagði upp í kjölfar
deilnanna við skólameistara, ætlar
að standa við uppsögn sina þrátt
fyrir áskoranir samkennara um
annað. Segist hann hvorki hafa
tíma né taugar til að standa í því
þrasi sem fylgir því að kenna við
Iðnskólann.
-Effi
Ingvar Ás-
mundsson.
>
■*
Dragdrottning og
dreifbýlistúttur
í Fókus, sem fylgir DV á morgun,
er birt ítarleg útlistun á því hveijir
koma hvaðan, til borgarinnar, og
hvernig landsbyggðin plummar sig í
bænum. Bogomil Font ræðir um nýj-
ustu hljómsveit sína Dip og kemur
inn á að ástarlíf hans sé í rúst. Rætt
er við Atla Rafn leikara, stjömuna úr
Rent, en hann er ótvíræður senuþjóf-
ur í því verki. Fólkið í auglýsingun-
um segir frá því af hverju það seldi
sál sína. Með Fókusi fylgir svo auka-
blað um yngstu og efnilegustu kvik-
myndagerðarmennina, Hallgrímur
Helgason reynir að rifja upp eitthvað
, af þeim 1003 bíómyndum sem hann
* hefur séð og áttar sig á því að hann er
búinn að gleyma 959.
Ólafur Ftagnar Grímsson, forseti íslands, er í opinberri heimsókn í Eyjafirði. Heimsóknin hófst í gær en í dag heim-
sækir forsetinn m.a. Dalvíkurbyggð og á morgun Hrísey og Grímsey. Á myndinni sést forsetinn ásamt Ingibjörgu
Sigurlaugsdóttur, prestsfrú í Laufási í Grýtubakkahreppi, en þangað lá leið forsetans m.a. í gær. Þau eru að skoða
muni í „gamla bænurn" í Laufási.
Tóbaks- og vínbarinn ehf.:
Stefnir Borg-
inni og Baugi
„Ég get staðfest
að málið verður
þingfest fyrir Hér-
aðsdómi Reykja-
víkur í dag,“ sagði
Guðmundur
Pálmason lögmað-
ur um skaðabót-
mál sem Tóbaks-
og vinbarinn ehf.
ætlar að höfða á
hendur Reykjavík-
urborg, Baugi og fyrrum eigendum
hússins þar sem Nýja bíó stóð eitt
sinn en er nú gapandi grunnur við
Lækjargötu.
Forsaga málsins er sú að að-
standendur Tóbaks- og vínbarsins
höfðu lagt í verulegar fjárfestingar
við innréttingar á veitingastað sem
reka átti þar sem eitt sinn var
Blús-barinn og þar áður afgreiðslu-
staður Flugleiða við Lækjargötu.
Jón Ásgeir Jó-
hannesson.
Viku áður en átti að opna veitinga-
staðinn brann húsið og í kjölfarið
var það riflð. Fyrir bragðið varð
ekkert af fyrirhuguðum veitinga-
rekstri Tóbaks- og vínbarsins í
húsinu og fjárfesting sem lagt
hafði verið í að engu orðin. Skaða-
bótakröfur nema rúmum sjö millj-
ónum en það var sá kostnaður sem
forsvarsmenn Tóbaks- og vínbars-
ins, þeir Tómas Ragnarsson og
------1 Reynir Guð-
mundsson, höfðu
1 lagt í nýja veit-
tó... ingastaðinn sem
fy allt í einu hvarf.
Þeir félagar stefna
v Jóni Ásgeiri Jó-
JÉÍa hannessyni, for-
WmM stjóra Baugs, Ingi-
Leó Löve. björgu Sólrúnu
Gisladóttur borg-
arstjóra og félög-
unum Leó Löve og Jóni Guð-
mundssyni sem voru skráðir eig-
endur byggingarinnar við Lækjar-
götu áður en hún brann.
Tóbaks- og vínbarinn hafði eng-
an skriflegan húsaleigusamning
við þá aðila sem þeir hafa stefnt en
byggja málsókn sína á þvi að
munnlegur samningur jafngildi
skriflegum í íslensku réttarkerfi.
-EIR
Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir.
Veðrið á morgun:
Slydduél
á Vest-
Á morgun verður norðan- og
norðvestanátt, stinningskaldi
vestan til en hægari á Austur-
landi. Slydduél og hiti 1 til 4 stig
á Vestfjörðum en skúrir og hiti 3
til 9 stig annars staðar.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Stjórnar-
myndun
gengur vel
Samkvæmt upplýsingum úr for-
sætisráðuneytinu ganga stjórnar-
myndunarviðræður vel og enginn al-
varlegur ágreiningur er milli flokk-
anna. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
halda því hins vegar fram að samstað-
an milli flokkanna sé ekki eins góð og
menn vilja vera láta. Margrét Frí-
mannsdóttir, talsmaður Samfylking-
arinnar, segir það óvenjulegt að flokk-
ar sem hafi starfað saman fjögur ár í
rikisstjórn og varla hafi borið neitt á
milli i stefnu fyrir kosningar skuli
taka sér jafnlangan tima og raun ber
vitni til að mynda ríkisstjórn. „Auð-
vitað þurfa menn að vanda vel til
verka en maður hefði ætlað að það
tæki flokkana ekki meira en tvo til
þrjá daga að mynda nýja stjórn. Ég tel
þetta vísbendingu um að samstaðan
milli flokkanna sé ekki eins mikil
eins og af er látið og mér kæmi ekki á
óvart að töluverður ágreiningur sé
milli flokkanna um aðgerðir í efna-
hagsmálum í ljósi frétta um aukna
þenslu," sagði Margrét.
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra segir það af og frá að milli
flokkanna ríki ekki fullt traust. „Þetta
blasir nú ekki svona við mér, enda
ekki meira en rétt rúmlega vika frá
kosningum. Viðræðumar taka að
sjálfsögðu sinn tíma en hér gildir hið
fomkveðna: vel þarf að vanda það
sem lengi skal standa." -kjart
Sýslumaður
þögull
Vettvangsannsókn sýslumannsins
á Patreksfirði, Þóróifs Halldórssonar,
á kæmmáli Fuglaverndarfélagsins
vegna sinubruna í hólma í landi Mið-
húsa á Barðaströnd lauk í gær.
Kærendur telja að tilgangur sinu-
brunans hafi verið sá að ílæma burtu
amarhjón frá varpstað í hólmanum.
Sýslumaður vildi i samtali við DV
engu svara um hvers hann hefði orð-
ið áskynja í hólmanum. Hann sagði að
gagnasöfnun í málinu væri ekki lokið
og rannsókninni þaðan af síður.
Spurningu um hvort vettvangskönn-
un hans í fyrradag í hólmanum benti
til þess að sjálft amarhreiðurstæðið
og nánasta umhverfi þess hefði verið
brennt eða ekki óskaði hann ekki að
svara.
Ásamt sýslumanni fóru í vett-
vangskönnunina út í hólmann lög-
reglumaður, bóndinn á Miðhúsum og
Ævar Petersen, fuglafræðingur frá
Náttúrufræðistofnun. Ævar sagðist í
samtali við DV ekki geta greint frá
því sem hann sá í hólmanum. Hann
hefði farið þessa for að beiðni sýslu-
manns, hann væri eiðsvarinn honum
um leynd í málinu og ætti eftir að gefa
sýslumanni skriflega skýrslu. -SÁ
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA