Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999
Fréttir
Stuttar fréttir dv
16 ára stúlka sem var við dauðans dyr vegna fikniefnaneyslu:
Hefði aldrei lifað
ársbið eftir meðferð
- löng bið eftir plássi á Stuðlum meðan 15 ára stelpur selja sig fyrir dóp
„Það er hræðilegt að heyra um
fækkun plássa og þennan óskaplega
biðtíma sem er eftir plássi á Stuðlum.
Þar er unnið mjög gott og lífsnauðsyn-
legt starf. Ég var í mikilli dópneyslu á
sínum tíma og get fullyrt að ég hefði
aldrei lifað ársbið eftir meðferð. Ég var
mjög langt leidd í neyslu á hörðum efn-
um, þjáðist af miklu þunglyndi og
sjálfsmorðshugsunum. Ég varð því að
fá tafarlausa hjálp. Hefði ég ekki feng-
ið hana væri ég ekki á lífi í dag. Þvi
hugsa ég með hryllingi til þeirra
mörgu krakka sem ég veit að eru á
kafi í dópneyslu í dag og eru virkilega
hjálpar þurfi,“ segir 16 ára unglings-
stúlka sem DV ræddi við í gær. Hún
vill ekki láta nafns síns getið en við
köllum hana Svönu.
Biðtími eftir plássi á Stuðlum, með-
ferðarstöð fyrir unglinga, hefur lengst
mjög undanfarin misseri, er allt að eitt
ár. Þvi koma fréttir um helmingsfækk-
un plássa úr 5 í 3 í sumar eins og reið-
arslag fyrir foreldra unglinga í flkni-
efnavanda.
Svana hefur verið edrú í 16 mánuði.
Hún hefur farið allan rúntinn í dóp-
neyslu og sukki, reyndar með skamm-
vinnum hléum í kjölfar meðferða. Hún
drakk sig fyrst fulla 11 ára gömul, í
fíkti. 13 ára eignaðist hún gjörbreyttan
vinahóp, fór að hanga í spilasölum og
víðar í bænum.
„Við drukkum um hveija helgi,
rændum bjórkútum úr portum við
skemmtistaðina eða fengum áfengi eft-
ir öðrum leiðum. Ég drakk mikið og
átti í miklum hegðunarvandamálum,
var á móti öllu og öllum. Ég kynntist
síðan strák, þremur árum eldri, sem
reykti hass á hverjum degi. Ég gerði
það þá líka og notaði einnig örvandi
efni eins og amfetamín. TOveran gekk
út á partí þar sem allir voru meira eða
minna rænulausir og strok að heim-
an,“ segir Svana.
Harðari neysla
Svana var fyrst send í neyðarmót-
töku að Stuðlum 14 ára gömul. Hún
var i einangrun í tvær vikur, likaði
alls ekki sú ráðstöfun og var reið út í
foreldra sina og starfsmenn. Hún lof-
aði öllu fógru en reykti hass eða „fékk
sér haus“ um leið og hún slapp út. Allt
fór í sama farið og neyslan varð harð-
Tveir þriggja
ára óku í
gegnum hurð
Þriggja ára tvíburar í Grafar-
vogi gerðu sér lítið fyrir um há-
degisbilið í gær og tóku fjöl-
skyldujeppann og keyrðu i gegn-
um bílskúrshurð. Móðir drengj-
ana var að fara út með þá en á
sama tíma fóru þeir og náðu í
bíllyklana. Settust þeir undir
stýri og störtuðu bílnum. Bíllinn
sem var í gír skaust áfram og
mölbraut bílskúrshurð. Hún var
ekki löng ökuferö drengjanna en
viðburðarík var hún. Inni í bíl-
skúmum er herbergi unglingsins
á heimilinu en örlítið bil er á
milli bílhurðarinnar og veggjar
herbergisins. Herbergið hefði far-
ið í rúst að sögn móður drengj-
anna ef veggurinn hefði verið
upp við bílskúrshurðina. „Þeir
eru mjög uppátækjasamir og
koma sér í ólíklegustu vandræði,
litlu skæruliðamir,“ segir móðir
drengjanna.
-EIS
Þessi 16 ára stúlka var nær dauða en iífi í botnlausri dópneyslu. Hún segir tíma til kominn að stjórnmálamennirnir,
sem lofuðu öllu fögru fyrir kosningar, milljarði til lausnar fíkniefnavandanum og fleiru, hætti að hjala en láti verkin
tala. Ef þeir bretti ekki upp ermarnar muni margir jafnaldrar hennar ekki sjá aðra útgönguleið úr dópneyslunni en
dauðann. DV-mynd Hilmar Þór
ari og harðari. E-pillur og LSD bættust
við neysluna. Veröldin var á hvolfi.
Enn lá leiðin á Stuðla og enn og aftur.
En allt kom fyrir ekki. Reyndar var út-
litið þokkalegt eftir 4 mánaða meðferð
þar og einnar viku eftirmeðferð en allt
kom fyrir ekki.
„Reyndar var allt öðmvísi starf á
Stuðlum þá en er í dag. Aginn var gríð-
arlegur og unnið með aikóhólisma,
dópneyslu og hegðunarvandamál í ein-
um graut. Ég var með sjálfsmorðspæl-
ingar, handónýta sjálfsmynd og fannst
ég ein í heiminum, að enginn vildi
hjálpa mér. En samt var fjöldi fólks á
kaupi við að hjálpa mér. Sérfræðingar,
meðferðarfuiltrúar og löggan sem leit-
aði mig uppi þegar ég strauk að heim-
an eða frá Stuðlum. Eftir þunga og
langa dópneyslutöm var ég nær dauða
en lífi en komst þá i 9 mánaða meðferð
úti í sveit. Ég gat lengt meðferðina um
þrjá mánuði og fékk mikla hjálp frá
AA-samtökunum þegar henni lauk. Nú
er ég í fúllri vinnu, sæki AA-fimdi dag-
lega, held stundum fyrirlestra fyrir
unglinga og foreldra þeirra og fyrir þá
sem eru að Stuðlum. Þar er ungt fólk
að taka þá mikilvægu ákvörðun að
verða edrú, ákvörðun sem ég gaf skít í
á sínum tíma.“
Hraðari en pitsan
- Þekkir þú marga unglinga sem eru
í harðri neyslu í dag?
„Ég umgengst enga þeirra en veit
um marga sem eru mjög langt leiddir.
Fimmtán ára stelpur eru að sprauta
sig og selja sig síðan til að eiga fyrir
efni. Þannig var nærri farið fyrir mér.
Það er minnsta mál í heimi að fara í
dópneyslu. Það er bara að taka upp
símann og dópið er komið, mun hrað-
ar en pitsan. Það er því tími til kominn
að stjómmálamennimir, sem lofuðu
öllu fógra fyrir kosningar, milljarði til
að leysa fíkniefhavandann, og fleira,
taki sig saman í andlitinu, hætti að
hjala en láti verkin taia. Ef þeir taka
ekki á málunum munu margir jafn-
aldrar mínir ekki sjá aðra útgönguleið
úr botnlausri dópneyslu en dauðann."
Svana segist engan veginn hólpin,
hún taki einn dag fyrir í einu. Hún lof-
ar það starf sem unnið er hjá Virkinu,
SÁÁ og fleiri aðilum. Ekki veiti af.
„Það virðist ekki skipta miklu máli
hvort unglingar eiga vel stæða foreldra
eða fátæka eða hversu góðir uppalend-
ur þeir era taldir vera. Svona hlutir
gerast oft í fikti, eiga sér stundum
flóknar orsakir og geta fljótt náð því
stigi að ekki verður aftur snúið. Ég er
sátt við foreldra mina í dag, hef lært að
þykja vænt um sjálfa mig og er öll að
braggast. Ég vildi ekki skipta á lífi
mínu nú og því lífi þegar ég fór skítug
og illa haldin milli húsa í leit að dópi.“
-hlh
Seðlabankinn bregst við verðbólguþrýstingi:
Áhrif vaxtahækkunar óljós
Bankastjóm Seðlabanka íslands ætl-
ar að hækka vexti í viðskiptum sinum
við lánastofhanir. Þetta er gert, að
sögn bankans, til að bregðast við aukn-
um verðbólguþrýstingi sem einkum
hefur birst í hækkun neysluverðsvísi-
tölu undanfama mánuði. Sú hækkun
er til komin vegna hækkunar á olíu-
verði auk þess að innlend eftirspum
virðist hafa leitt til hækkunar á verði
vöra og þjónustu. Markmið vaxta-
hækkunarinnar er því að slá á eftir-
spum innanlands, styrkja gengi krón-
unnar og stuðla þar með að lágri verð-
bólgu. Hækkun vaxta nú er hálft pró-
sent og nú verða vextir bankans 8,4
prósent. Þetta mun án efa hafa í för
með sér vaxtahækkun viðskiptabanka
og slævandi áhrif á fjármagnsmarkað
hér á landi. Til viðbótar við þessa
vaxtahækkun mun lausafjárkvöðin
sem bankinn setti á í mars leggjast af
fullum krafti á lánastofnanir í júlí að
loknum aðlögunartíma. Lausa0árkvöð
er ætlað að takmarka getu lánastofn-
ana til útlána með því að skylda þær
til að eiga meira laust fé. Þar að auki
munu hærri vextir letja fyrirtæki og
einstaklinga til að taka lán og fjárfesta.
Tómas Ottó Hansson, forstöðumað-
ur hjá íslandsbanka F&M, sagði í sam-
tali við DV að þetta kæmi ekki á óvart.
„Við eram búnir að eiga von á þessu
og þetta er eðlileg ráðstöfun hjá bank-
anum. Við teljum að vaxtahækkunin
hafi jákvæð áhrif á íslensku krónuna
en heOdaráhrifin era óljós vegna stöðu
á markaðnum," segir Tómas. -BMG
Sjávarútvegsnefnd breska þingsins hefur verið hér á landi síðustu daga til
að skoða íslenskan sjávarútveg. DV-mynd Teitur
Rússar staðfesta
Rússneska rikis-
stjórnin hefur
staðfest Smugu-
samning íslend-
inga og norska
Stórþingið gerir
það i dag. Stein-
grimur J. Sigfús-
son kvaðst á Alþingi i gær ekki
myndu greiða honum atkvæði sitt.
Stórsigur á Litháen
íslenska sveitin á Evrópumeist-
aramótinu í bridge á Möltu vann
stórsigur á Litháen í 6. umferð í gær
í opna flokknum, -25-3, en gerði síð-
an jafntefli í sjöundu umferð við ísr-
ael, 15-15. Eftir 7. umferðir er ísland
í 16. sæti með 108 stig. Norðmenn
era efstir með 150 stig og Svíar í
öðra sæti með 145 stig. hsim
Áhyggjur
Sameiginlegur fundur stjóma KÍ
og HÍK hefur áhyggjur af ástandi
skólamála í Reykjavík og telur að svo
marga kennara muni vanta næsta
haust að útilokað sé að manna allar
stöður nema takist aö fá þá sem sagt
hafa upp, tO starfa að nýju.
Flugumferð
Ásgeir Pálsson, framkvæmda-
stjóri flugumferðarsviðs Flugmála-
stjómar, hefur verið kjörinn for-
maður 'skipulagsnefndar flugum-
ferðar á N-Atlantshafi. Níu þjóðir
eiga aðOd að nefhdinni.
Mestir frumkvöðlar
Snorri Sturluson, Jón Sigurðsson
og Einar BenedOítsson eru helstu
framkvöðlar síðustu 1000 ára hér á
landi ef marka má kosningu sem er
hafin á Vísi.is og er samstarfsverk-
efhi DV, Bylgjunnar, SS og Visis.is
undir heitinu íslands 1000 ár.
Áfram formaður
Margrét Frí-
mannsdóttir segir
við Dag að hún
sækist áfram eftir
forystu í Alþýðu-
bandalaginu
næstu ^ögur árin.
Vilja ræða flugvöllinn
Samtök um betri byggð hafa beð-
ið borgarráð að frestað verði af-
greiðslu á breyttu deOi- og aðal-
skipiOagi Reykj av íkurflugvall ar svo
betra ráðrúm gefist tO lýðræðislegra
og opinna umræðna um málefiii
flugvaOarsvæðisins, stöðu miðborg-
ar Reykjavíkm- og framtíð höfuð-
borgarinnar. Vísir.is sagði frá.
Yfir 8000 farnir
Rúmlega 8000 manns hafa sagt sig
úr gagnagrunni á heObrigðissviði
samkvæmt nýjustu tölum frá Land-
læknisembættinu. Frestur tO að
segja sig úr grunnninum, sem áður
hafði verið auglýstur 17. júní, hefur
verið framlengdur um óákveðinn
tíma. Vísir.is sagði frá.
Gegn Fljótsdalsvirkjun
Náttúravemdarsamtökin World
Wide Fund for Nature (WWF) ætlar
að skera upp herör gegn virkjunará-
formum á Austurlandi. Fulltrúar sam-
takanna í Noregi gengu á fund Norsk
Hydro á dögunum og lýstu yfir
áhyggjum af málinu. Vísir.is sagði frá.
Landsvirkjun ræður
Finnur Ingólfs-
son iðnaðarráð-
herra segir við Dag
að Landsvirkjun
ráði því alfarið
hvort umhverfis-
mat fari fram á
Eyjabakkasvæðinu
og að fyrirtækið sé að láta fara fram
mát á eigin vegum. Stjórnarþing-
mennimir Ólafur Öm Haraldsson og
Kah'in Fjeldsted era fylgjandi um-
hverfísmati. Þar með er meirihluti
fýrir þvi í umhverfisnefnd þingsins. -
Kaupa Nýkaupsbúðir
Kaupás, rekstrarfélag verslana
KÁ, Nóatúns og 11-11, keypti í gær af
Baugi hf. verslanir Nýkaups í Hóla-
garði og í Grafarvogi.
Seldu Jóni
12 fyrirtæki Stöðvar 3 hópsins svo-
kaUaða hafa selt hlutabréf sín i Stöð 2
til Jóns Ólafssonar. Meðal þefira era
Árvakur hf., Burðarás hf, Sjóvá-Al-
mennar hf„ Skeljungur hf., VÍS o.fl.
Viðskiptablaðið sagði frá. SÁ