Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999
Fréttir
Glóðvolgur listi yfir árangur í samræmdum prófum:
Álftamýrarskólinn
bestur í Reykjavík
- Reykholtsskóli í Biskupstungum þó betri
„Það er von okkar að með birt-
ingu þessa lista takist að bæta
skólastarflð. Skólastjórnendur sjá
þá hvar þeir standa samanboriö
við aðra og geta tekið mið af því,“
sagði Bjöm Bjarnason mennta-
málaráðherra þegar samantekt á
árangri nemenda í samræmdum
prófum grunnskólanna í landinu
lá fyrir í gær.
Besti grunnskóli Reykjavíkur,
samkvæmt meðaltali listans, er
Álftamýrarskólinn en Háteigsskóli
fylgir fast á hæla honum. í þriðja
sæti er svo Austurbæjarskóli.
Neðstu þrjú sætin verma Rima-
skóli, Klébergsskóli og Fellaskóli
sem er með meðaleinkunnina 4,47
á meðan Álftamýrarskólinn flagg-
ar meðaleinkunninni 6,28. Árang-
ur i skólum í nágrenni Reykjavik-
ur er að meðaltali eilítið slakari en
Topp 22
-samræmdu prófin í Reykjavík
Álftamýrarskóli 6,28
Háteigsskóli 6,11
Austurbæjarskóli 6,06
Hvassaleitisskóli 6,04
Hlíöaskóli 5,92
Hagaskóli 5,67
Laugalækjarskóli 5,67
Réttarholtsskóli 5,53
Hamraskóli 5,40
Foldaskóli 5,23
Vogaskóli 5,23
Langholtsskóli 5,21
Breiðholtsskóli 5,19
Seljaskóli 5,14
Húsaskóli 5,14
Ölduselsskóli 5,11
Árbæjarskóli 5,08
Tjarnarskóli 5,04
Hólabrekkuskóli 4,79
Rimaskóli 4,60
Klébergsskóli 4,49
Fellaskóli 4,47
Álftamýrarskólinn á toppnum
í höfuðborginni en þó góður miðað
við það sem gerist víða á lands-
byggðinni þar sem nær því allir
nemendur falla í einstökum skól-
um eins og fram hefur komið í DV.
Þannig er meðaleinkunnin í
grunnskólanum á Patreksfirði að-
eins 3,8 og meðaleinkunn í dönsku
2,5.
„Það er ljóst að skólastjómend-
ur á Patreksfirði og reyndar víðar
verða að standa sig betur ef þeir
ætla að útskrifa nemendur til
framhaldsnáms," sagði mennta-
málaráðherra um sérstakan vanda
margra skóla á landsbyggðinni.
Skólar í Norðurlandi vestra
koma mun betur út en skólar í
Norðurlandi eystra og skólar á
Austurlandi og Suðurlandi virðast
vera í sæmilegum farvegi. Þannig
getur Reykholtsskóli í Biskups-
tungum státað af meðaleinkunn
sem slær meira að segja Álftamýr-
arskólann út, eða 6,36.
Samræmdu prófln samanstanda
af fjórum fögum; stærðfræði, ís-
lensku, ensku og dönsku.
-EIR
Lífeyrissjóður VestQarða og Básafell:
t fordæmi
- ítrekar Skarphéðinn Gíslason skipstjóri
„Þetta er hættulegt fordæmi,"
endurtekur Skarphéðinn Gíslason,
skipstjóri á ísafirði, um kaup Líf-
eyrissjóðs Vestfirðinga á hlut í
sjávarútvegsfyrirtækinu Básafelli.
Skarphéðinn segist tala sem ein-
staklingur í máli þessu en ekki
sem formaður Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Bylgjunnar á
Vestfjörðum enda hafi félagið ekki
fjallað um málið á sínum vett-
vangi. í DV þann 9. júní voru
sömu ummæli höfð eftir Skarp-
héðni og hann kynntur sem for-
maður Bylgjunnar. Skarphéðinn
segist hafa talið á þeim tíma að
verið væri að spyrja um sínar per-
sónulegu skoðanir á fjárfestingum
lífeyrissjóða í heimafyrirtækjum.
Þaö er því fyrir misskilning að for-
mennska hans er tilgreind í þeim
texta. Allt sem haft var eftir
Skarphéðni í DV stendur.
í Morgunblaðinu í gær er látið
að þvi liggja að rangt hafi verið
haft eftir Skarphéðni í DV varð-
andi Lífeyrissjóð Vestfjarða og
kaup sjóðsins í Básafelli. Skarp-
héðinn hefur nú staðfest að svo er
ekki. -rt
Ekki
taka mark á mér
ar“. Það er sem sé ekkert að marka það sem Mar-
grét sagði og hún hefur séð ástæðu til að taka það
fram opinberlega aö ekki megi gera of mikið úr
því sem hún segir og biður fólk um að hafa það í
huga þegar hún talar næst.
Það er sem sé ekki nóg með það að Samfylking-
in sé ekki flokkur og Samfylkingin eigi sér ekki
formann og það er ekki nóg með það að talsmað-
ur fylkingarinnar vilji helst formann utan frá,
heldur er ekkert marka það sem talsmaðurinn
segir fyrir hönd fylkingarinnar og tekur það fram
að gefnu tilefni að ekki megi gera of mikið úr því
sem hún segir.
Hún varar meö öðrum orðum við sjálfri sér og
segir að allt sem hún segi, sé með þeim fyrirvara
að ekki megi gera of mikið úr því.
Synd var að Margrét Frímannsdóttir skyldi
ekki skýra frá þessu strax og fyrir kosningar, því
þá hefði Samfylkingin eflaust fengið fleiri at-
kvæði, ef kjósendur hefðu vitað það fyrirfram að
allt það sem Margrét sagöi, væri marklaust og
enginn mætti taka hana alvarlega eða gera of
mikið úr því sem hún segöi.
Hér eftir munu kjósendur og viðmælendur
Margrétar auðvitað hafa þetta í huga og til örygg-
is væri ráð fyrir talsmann Samfylkingarinnar að
fá sér talsmann, til að túlka það sem talsmaður-
inn segir, svo það verði ekki misskilið eða tekið
of alvarlega eða gert of mikið úr því sem hún
kann að segja, þegar hún meinar ekkert með því
sem hún segir.
Dagfari
í gærdag fjallaði
Dagfari um þá ágætu
hugmynd Samfylking-
arinnar og talsmanns
hennar, að fá „ein-
hvem utan frá“ til að
stýra nýjum flokki,
þegar hann verður
stofnaður og ef hann
verður stofnaður.
Margrét Frímanns-
dóttir hefur verið tals-
maður Samfylkingar-
innar ffá þvi fyrir
kosningar og eftir að
henni hafði tekist að
leggja Alþýðubandalag-
iö niður. Enginn
ástæða er til annars en
aö taka hana alvarlega
þegar hún setur fram
jafn snjallar tillögur
eins og þær að ná í for-
mann, sem ekki er í
flokknum. Þannig náði
Framsókn í Kristin Gunnarsson án þess að hann
hefði verið í flokknum og setti hann í framboð
fyrir vestan, og þar náði hann kjöri, enda þótt
hann hefði alls ekki veriö í flokknum fram að því
- og svo var Kristinn kjörinn formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins, enda þótt að hann
hafi allt aðrar skoðanir en flokkurinn í utanrík-
ismálum og öðrum málum sem honum hugnast
að hafa einkaskoðanir á. Þetta gerir ekkert til og
er bara betra og hvers vegna ætti þá Samfylking-
in ekki að gera eins og kjósa sér formann sem er
ekki endilega sammála flokknum.
Nú hefur Margrét hins vegar dregið í land og
segir að „of mikiö hafi verið gert úr oröum henn-
R-listinn klofnar
Yfirgnæfandi likur eru taldar á
því að dagar Reykjavíkurlistans
verði taldir þegar kosið verður til
borgarstjórnar eftir tæp þrjú ár.
■ Talið er að Vinstri
■r'r' ^ hreyfingin - gi’ænt
■L S framboð muni
I ,,-Sl bjóða ffarn sér til
V > • ■ borgarstjórnar en
Jk þar hefur helst
' JB verið horft til
Svanhildar
h Kaaber, fyrrum
leiðtoga Kenn-
arasambands-
ins, en hún er talin ein helsta von-
arstjarna hreyflngarinnar. Þá hef-
ur Halldór Ásgrímsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, sagt það
í sjónvarpi að síðustu kosningar
voru þær síðustu sem flokkur
hans byði fram með R-listanum.
Það lítur því allt út fyrir að gamla
fjórflokkakerfið verði til á nýjan
leik í borginni...
Nýr varðhundur
íslenska álfélagið hefur loks
fengið sér upplýsingafulltrúa til
að verjast fréttum fjölmiðlanna
með kjafti _ og klóm. Nýi varð-
hundurinn, Hrann-
ar Pétursson,
áður fréttamaður
hjá Ríkissjónvarp-
inu, er sagður
eiga að svara nán-
ast hverju og
einu einasta orði
sem fram kemur
í fjölmiðlum um
ísal. Er nú beðið
með mikilli eftirvæntingu hvort
fleiri fyrirtæki fari sömu leið, t.d.
gætu öll ráðuneyti, allir ráðherr-
ar, bankar og stórfyrirtæki fengið
sér upplýsingafufltrúa og fyllt les-
endasíður dagblaðanna dag eftir
dag með lífsnauðsynlegum at-
hugsasemdum...
MR í kuldanum
Þau tíðindi að fleiri komist að í
hinum fomfræga skóla MR en
vilja hafa vakið mikla athygli. Sú
var tíð að í MR var hafnað fleiri
umsóknum en í öðr-
um skólum. Nú
vilja flestir í Verzl-
unarskóla íslands
og næstur að vin-
sældum er
Menntaskólinn
við Sund. Svo er
að sjá sem ekki
höfði tfl ung-
dómsins þær
fomu hefðir sem félagslíf MR
byggist á. Málið er talið vera
Ragnheiði Torfadóttur , rektor
skólans, áhyggjuefni. MR-ingar
vita fátt vitlausara en tískufríkin
í Versló en nú er ljóst að það við-
horf er ekki uppi hjá þeim nem-
endum sem lokið hafa samræmd-
um prófum. Ekkert Fiöluball,
takk, og glamúrinn blivur...
Jafnrétti
Önnur lögmál í klæðaburði
virðast gilda skýjum ofar en hér á
jörðu niðri. Kvenréttindameyjar
ræða hástemmdar um að karl-
rembusvín séu í
Flugleiðum og
hversu fáránlegt er
og úr takti við nú-
tímann að þvinga
konur til að vera í
pilsum. Hafa
sumar líkt þessu
við gömlu einka-
skólana sem
leyfa konum ekki að ganga
um eins og þeim finnst best. Vera
kann að þessi klæðastefna Flug-
leiða taki breytingum þegar Einar
Sigurðsson hefur fullkomnaö út-
litsbreytingu félagsins síðar á ár-
inu. En einn góður maður benti þó
á að hjá Flugleiðum ríki þegar
fullkomið jafnrétti þar sem fyrir-
tækið uni þvi alls ekki að karl-
menn gangi í pilsum...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is