Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 199S
Útlönd
Stuttar fréttir :dv
Bandarísk börn:
4 milljónir svangar í háttinn
Fjórar milljónir bandarískra
bama fara svangar í háttinn á
hverju kvöldi samkvæmt óopin-
berum útreikningum. Bandaríkja-
mönnum, sem eiga 1 milljón doll-
ara eða meira, mun fjölga úr
þremur milljónum í tiu milljónir
á næstu fimm árum. En bara
börnin í þeim fjölskyldum, sem
lifa undir fátæktarmörkum, eru
fjórtán milljónir talsins. Þjóðfé-
lagsfræðingar segja hyldýpi á
milli ríkra og fátækra í Bandaríkj-
unum.
Einstæðum foreldrum hefur
fjölgað gifurlega og margir þeirra
þéna ekki nóg til að sjá fyrir fjöl-
skyldu.
Aðeins
opið til
16. júní
kl. 10-23
alla daga
HAMRAhUð
AÐEINS KR.
Stakkahlíð17 Sími: 568 5544
Við getum boðið þennan skap
á sérstöku tilboðsverði á meðan
birgðir endast.
STÆRÐ:___________________
Cl/ómirinn ar caman coftiir
Við erum hér
UPPBOÐ Uppboö munu byrja á skrifstofu embættisins aö Skógarhlíö 6, Reykjavík, sem hér segir á eftir- farandi eignum: Leirubakki 36, 55,9 fm verslunarhúsnæði á 1. hæð m.m., Reykjavfk, þingl. eig. Sigtún 7 ehf., gerðarbeiðendur Samvinnu- lífeyrissjóðurinn og Samvinnusjóður ís- lands hf., mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00.
Leirubakki 36, 88,6 fm verslunarhúsnæði á 1. hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. Sigtún 7 ehf, gerðarbeiðendur Samvinnu- lífeyrissjóðurinn, Samvinnusjóður íslands hf. og Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00.
Grettisgata 3, 72,5 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð t.h. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Gunnvant Baldur Ármannsson, gerðar- beiðandi íbúðalánasjóður, mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00.
Hvassaleiti 34, ósamþykkt húsnæði undir báðum bflskúrum, Reykjavík, þingl. eig. Garðar Bergendal, gerðarbeiðendur Landsbanki íslands hf., Grindavík, og Lífeyrissjóður sjómanna, mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00. Sólvallagata 21, 75 fm íbúð á 2. hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. Kristjana Sif Bjamadóttir, gerðarbeiðandi íbúðalána- sjóður, mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00.
Vesturgata 27, steinhúsið 15,5% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Höfðagrill ehf, gerðarbeiðandi Sameinaði lífeyrissjóður- inn, mánudaginn 21. júm' 1999 kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK.
Kleppsvegur 26, 3ja herb. íbúð á 2. hæð t.h., Reykjavík, þingl. eig. Albert ísfjeld Harðarson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóð- ur, mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00.
Leirubakki 36, 108 fm geymsluhúsnæði í kjallara m.m., Reykjavik, þingl. eig. Sigtún 7 ehf., gerðarbeiðendur Samvinnu- lífeyrissjóðurinn og Samvinnusjóður fs- lands hf, mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00. UPPBOÐ
Leirubakki 36, 135 fm geymsluhúsnæði í kjallara m.m., Reykjavflc, þingl. eig. Sigtún 7 ehf., gerðarbeiðendur Samvinnu- lífeyrissjóðurinn og Samvinnusjóður ís- lands hf., mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir:
Krummahólar 6, 2ja herb. íbúð á 1. hæð merkt C og B, Reykjavík, þingl. eig. Halldór tílfar Halldórsson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, mánudaginn 21. júní 1999 kl. 16.30.
Leirubakki 36, 174,8 fm iðnaðarhúsnæði í kjallara m.m., Reykjavík, þingl. eig. Sigtún 7 ehf., gerðarbeiðendur Samvinnu- lífeyrissjóðurinn og Samvinnusjóður ís- lands hf, mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00
Stíflusel 1, 3ja herb. íbúð á 3. hæð t.h. merkt 3-2, Reykjavík, þingl. eig. Kristín Björg Ásmundsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki íslands hf., höfuðst., mánu- daginn 21. júní 1999 kl. 15.00. Teigasel 11, 3ja herb. íbúð á 2. hæð merkt 2-1, Reykjavík, þingl. eig. Auður Jóns- dóttir, gerðarbeiðendur Gunnar Öm Pét- ursson, íbúðalánasjóður, íslandsbanki hf., höfuðst. 500 og Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn 21. júní 1999 kl. 13.30. SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK
Leirubakki 36, 244,9 fm verslunar- og þjónustuhúsnæði á 1. hæð m.m., Reykja- vík, þingl. eig. Vonameisti ehf, geiðar- beiðendur Samvinnulffeyrissjóðurinn og Samvinnusjóður íslands hf., mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00.
Leirubakki 36, 54,8 fm verslunar- og þjónustuhúsnæði á 1. hæð m.m., Reykja- vík, þingl. eig. Sigtún 7 ehf., geiðafbeið- endur Samvinnulífeyrissjóðurinn og Sam- vinnusjóður íslands hf., mánudaginn 21. júní 1999 kl. 10.00.
Öflugur jarðskjálfti í Mexíkó:
Fimmtán
týndu lífi
Fimmtán manns að minnsta kosti
týndu lífi í öflugum jarðskjálfta sem
varð í gær í mið- og suðurhluta
Mexíkós. Hundruð manna hlutu sáir
og byggingar hrundu. Skjálftinn
varð um miðjan dag að staðartíma.
Samkvæmt fyrstu upplýsingum
mældist skjálftinn 6,7 stig á Richter.
Skjálfti af þeim styrkleika getur
valdiö umtalsverðu tjóni á mann-
virkjum, enda minnti hann marga
Mexíkóa á skjálftann mikla haustið
1985 þegar allt að tíu þúsund týndu
lífi í Mexikóborg.
Emesto Zedillo Mexíkóforseti
lýsti þegar yfir neyðarástandi á
skjálftasvæðunum og hélt þegar frá
sumarleyfisstaðnum Cancun til
borgarinnar Puebla þar sem mestu
skemmdimar urðu.
„Við hörmum mannfallið en allt
annað er hægt að gera við,“ sagði
Zedilla við komu sína til borgarinnar.
Puebla þykir ekki einungis meðal
fegurstu borga, heldur er hún mikil-
Öflugur jarðskjálfti olli nokkru tjóni í
borginni Puebla í Mexíkó í gær.
Fimmtán fórust.
væg iðnaðarborg þar sem meðal
annars er að finna verksmiðju
Volkswagen sem framleiðir nýju
Bjölluna.
Thomas Pickering, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, gengur hjá
kínverskum lögregluþjóni sem stendur vörð um bandaríska sendiráðið í
Peking. Pickering ætlar að reyna að milda reiði Kínverja vegna sprengju-
árásarinnar á sendiráð þeirra í Belgrad fyrir nokkru.
Forsetaskipti í Suður-Afríku:
Mandela hverfur
af sviðinu í dag
Nelson Mandela
hverfur úr opinberu
lífi í Suður-Afríku í
dag þegar hann stígur
upp úr forsetastóli og
eftirlætur hann Thabo
Mbeki, manninum
sem hann valdi sjálfur
sem eftirmann sinn.
Hálft fimmta þús-
und gesta, þar af þrjá-
tíu forsetar, aðallega
frá öðram Afríkulönd-
um, verður vitni að
því þegar Mbeki sver
embættiseið sinn og
hinn áttræði Mandela hverfur af
stjómmálasviðinu.
Mandela var kjörinn forseti Suð-
ur-Afríku fyrir fimm áram, í fyrstu
lýrðræðislegu kosn-
ingunum með þátt-
töku allra kynþátta.
Hann hafði áður
barist í áratugi gegn
kynþáttaaðskilnaðar-
sflóm hvíta minni-
hlutans og setið 27 ár
í fangelsi.
í augum milljóna
manna um heim allan
var Mandela hold-
gervingur frelsisbar-
áttunnar og göfug-
lyndi hans í garð fyrr-
um leiðtoga þykir til
fyrirmyndar. Á fundi með erlendum
fréttamönnum nýlega sagði Mand-
ela: „Ég hef á lítinn hátt gert skyldu
mina við land mitt og þjóð.“
Nelson Mandela, fráfarandi
forseti Suður-Afríku.
Kók í Belgíu innkallað
Kókakólafyrirtækið í Belgíu
hefur innkallað milljónir flaskna
og dósa af gosdrykkjum sínum
eftir að fjöldi belgískra barna
veiktist. Rangt gosefni hafði verið
sett í drykkina.
Stefnubreyting
Bresk yfirvöld hafa nú skipt
um stefnu og leggja til að refsiað-
gerðum gegn írak veröi aflétt
svari írösk yfirvöld spurningum
um gereyðingarvopn.
Clinton til Evrópu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hélt í gær í sjö
daga ferð um
Evrópu ásamt
Hillary eigin-
konu sinni og
dótturinni Chel-
sea. Friðar-
gæsla í Kosovo
verður eitt
helsta málið á dagskrá Clintons
og leiðtoga þeirra Vestur-Evrópu-
ríkja sem hann heimsækir.
Samstiga tvíburar
66 ára tvíburabræður í Detroit í
Bandaríkjunum voru fluttir á
sjúkrahús nær samtímis eftir að
þeir höfðu fengið verk fyrir
brjóstið er þeir voru að slá gras-
flötina við heimili sín.
Díoxínlaust í Frakklandi
Frönsk yfirvöld sögðu í gær að
ekkert díoxín hefði fundist við
rannsóknir hjá þeim nautgripa-
og kjúklingaræktendum sem sett-
ir höfðu verið í sóttkví.
Kennarar sáu rautt
Kennarar í bænum Newport í
Wales í Bretlandi sáu rautt þegar
táningsstúlkan Sabrina Cohen
braut skólareglur og litaði hárið á
sér rautt. Var Sabrina neydd til
að sitja með hárkollu í prófunum.
Viðvörun frá Blair
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, var-
aði í gær stjóm-
málamenn á N-
írlandi við því
að friðarferlið
væri í hættu
vegna deilna æM
þeirra um af- *
vopnun írska
lýðveldishersins, IRA. Bað Blair
mótmælendur og kaþólikka um
að hvetja leiðtoga sína til að sýna
sveigjanleika.
Loftárásir í írak
Vestrænar herflugvélar gerðu i
gær árásir á óbreytta borgara í
írak, að því er talsmaður íraska
hersins greindi frá.
Varðskipi sökkt
Tíu fiskibátar frá N-Kóreu nálg-
uðust í morgun svæði S-Kóreu í
Gulahafi. Ekkert sást til n-
kóreskra varðskipa. ígær sökkti
s-kóreski sjóherinn varðskipi frá
N-Kóreu.
Lífstíðarfangelsi
Dómstóll í Rúanda dæmdi í gær
einn mann í lífstíðarfangelsi
vegna þátttöku í þjóðarhreins-
uninni 1994.
Þrýst á Persson
Þrýstingurinn jókst á Göran
Persson, forsæt-
isráðherra Sví-
þjóðar, í gær
um að hætta viö
að fresta
ákvörðun um
hvort Svíþjóð
taki upp evr-
una. Bæði fjöl-
miðlar og stjómmálamenn hvöttu
Persson tU þess að ákveða dag
fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um
málið.
Barin með fiski
Nicholas Vitalich í Kaliforníu
var handtekinn í gær fyrir að
hafa barið kærastuna sína með
stórum túnfiski eftir rifrildi í
stórmarkaði. Var Vitalich kærður
fyrir árás með banvænu vopni.