Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999
33
DV
Victoria Kryddpía:
Vill helst verða
ólétt strax aftur
Kryddpían Victoria Adams vill
ólm verða barnshafandi á ný, aðeins
þremur mánuðum eftir að hún eign-
aðist soninn Brooklyn. Hún vill
verða ólétt núna strax.
„Það stórkostlegasta sem hefur
komið fyrir mig var að verða móðir.
Vandamálið við að eignast barn er
að ég vil eignast eitt í viðbót,“ segir
Victoria í viðtali við breska slúður-
blaðið The Sun.
Ekki kemur fram í viðtalinu
hvort barnsfaðirinn og unnusti
Victoriu, knattspymukappinn Dav-
id Beckham, sé sama sinnis.
„Brooklyn er svo yndislegur. Það
yrði dásamlegt ef hann fengi ein-
hvern til þess að leika sér við,“ seg-
ir Victoria Adams.
Ekki eru nema nokkrar vikur
þangað til Victoria og David verða
gefin saman. Hún segist ekki geta
orðið hamingjusamari.
Victoriu finnst yndislegt að vera
orðin móðir. Símamynd Reuter
„Ég hlakka til brúðkaupsins og til
þess að Brooklyn litli eignist systur
eða bróður. Það er stundum erfitt að
vera móðir en ég myndi alls ekki
vilja að líf mitt væri öðruvísi en það
er í dag,“ segir Kryddpían vinsæla.
David lýsir því líka hversu ham-
ingjusamur hann er. „Þetta hefur
verið ótrúlegt ár. Ég er orðinn faðir.
Ég gifti mig 3. júlí næstkomandi og
liðið mitt varð Englandsmeistari,
Evrópumeistari og bikarmeistari.
Þeir sem fylgst hafa með Victoriu
og David í ýmsum samkomum að
undanfórnu segja að það fari ekki á
milli mála að þau séu að springa af
hamingju. Þau kyssist og faðmist án
afláts og hafi ekki augun hvort af
öðru. Fyrstu mánuði eftir að
Brooklyn kom í heiminn hafði
Victoria hann með sér hvert sem
hún fór. Hún gat ekki hugsað sér að
skilja hann eftir í umsjá annarra.
Pierce Brosnan fór á dögunum
í óvænta heimsókn til al-
saklausra ferðamanna sem
höfðu leigt sér lítið sumarhús í
Comwall. Pierce var á leið til
glæsihótels síns í þyrlu, ásamt
frúnni og börnunum, þegar þoka
neyddi flugmanninn til að lenda.
Brosnan hafði verið við tökur á
nýjustu Bond-myndinni.
Brosnan og fylgdarlið hans
leituðu ásjár hjá Ashley Keene
og fjölskyldu hennar um stund-
arsakir.
Austur í Kasakstan dunda menn sér við að hann falleg föt, eins og þessi
mynd ber svo sannarlega með sér. Fatnaðurinn er eftir Kuralay Nurkadilovu.
Fatahönnunin er að verða svo blómleg iðn þarna austur frá að Kasakkar
efndu til fyrstu tískuvikunnar í síðasta mánuði.
Tom Hanks er
langálitlegastur
Stundum er sannleikurinn
lyginni likastur. Það á svo sann-
arlega við um fréttirnar vestan
úr Hollywood þar sem leikarinn
Tom Hanks var kjörinn álitleg-
asta og gróðavænlegasta stjarn-
an í glansborginni. Hanks velti
þar með Tom Cruise úr sessi í
könnun sem gerð var meðal
kvikmyndaframleiðenda.
Hanks fékk 100 stig af 100 en
fast á hæla hans kom bamakarl-
inn Mel Gibson með 99,4 stig.
Brosnan heim-
sækir túrista
Liz bauð Larry í
skemmtisiglingu
Kvikmyndadísin Elizabeth
Taylor, sem er orðin 67 ára, bauð
fyrrverandi eiginmanni sínum,
Larry Fortensky, með sér í róman-
tíska siglingu um Miðjarðarhafið.
Hún reyndi fyrst að fá tannlækn-
inn Cary Schwartz með sér í ferð-
ina. Sambandið var hins vegar eitt-
hvað stirt þannig að ekkert varð úr
því að tannsi kæmi með. Liz ákvað
þá að fara á næsta bæ og bauð
Larry sem er sagður vera bæði
fyllibytta og ofbeldismaður.
Skemmtisiglingin er ekki ókeyp-
is því kvikmyndaleikkonan þarf að
greiða tæpar 20 milljónir íslenskra
króna fyrir túrinn. Innifalin em
laun hjúkrunarkonu sem á að sjá
um velferð Larrys. Hann er ekki
alveg heill heilsu eftir að hafa
hrapað í stiga fyrir nokkrum mán-
uðum.
Sviðsljós
George Michael smekkmaður:
Féll fyrir húsi á
frægu málverki
Breski popparinn George Mich-
ael getur að minnsta kosti alltaf
huggað sig við það að hann
er smekkmaður þegar hús
og híbýli eru annars vegar.
Popparinn féll kylliflatur
fyrir húsi einu i Goring í
Oxfordskíri á Englandi.
Ekki minni maður en sá
frægi málari William Turn-
er féll líka fyrir húsinu fyr-
ir tvö hundruð árum og málaði
húsið á léreft. Málverkið þykir nú
eitt af meistaraverkum Tumers
og er til húsa í hinu fræga Tate
listasafni í Lundúnum. Myndin
heitir Myllan og kirkjan í Goring.
Sérfræðingur í verkum Turners
segir að málarinn hljóti að hafa
haft sólina beint í bakið
þegar hann málaði mynd-
ina.
Nánasta umhverfi húss-
ins í Goring hefur nú eitt-
hvað breyst í tímans rás
en að sögn eins íbúa bæj-
arins er það alltaf
jafnsjarmerándi. Og Ge-
orge vissi strax að húsið væri hið
eina rétta og taldi ekki eftir sér að
greiða fyrir það tæpar tvö
hundruð milljónir króna. Smá-
munir miðað við að málverkið
færi á milljón.
^öðkaupsveislur — útisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og tl. og fl. og fl.
feafiðld - v®0§0(u)ff®0(o)c
„og ýmsir fylgihlutir
rt’77 Ekki treysta á veðrið þegar
~ skipuleggja á eftimninnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það marg borgar sig.
T|öld af öllum stcerðum
frá 20 - 700 m2.
Leigjum einnig borð
og stóla í tjöldin.
táaDsBgai slkátta
..með skátum á heimavelli
simi 562 1390 • fax 552 6377 • bis@scout.is
S.S. GUNNARSSON HF.
VELSMIÐJA
Rennismíði - Vélsmíði
Dráttarkúlur - Varahlutir í fiskvinnsluvélar
Tánnhjól - Ásar - Fóðringar
Nipplar -Valsar - Slífar
Eigum á lager ryðfrítt vökvafittings.
Framieiðum eftir pöntunum.
Fljót og góð afgreiðsla.
S.S.G
Trönuhrauni 10, Hafnarfirði. Sími 555 3343. Fax 565 3571. GSM 898 7449
Bílakaup
Bílasala
Innflutningur
Ráðgjöf
Sími 553 5555
GSM 899 5555
Fax 581 2474
Til sölu:
Mjög fallegur og vel
búinn bfll,
s.s. leður, sjálfsk.,
loftkæling,
cruisecontrol o.fl.
Sem nýr.
Þetta er bfll fyrir vandláta.
4-
Bílastíll er bílasala fyrír fólk sem gerir kröfur um glæsilegt útiit og gæði,
_______á góðu verði.lnnfl. notaðra, nýlegra bila á hagstæðu verði._
^ Löggildur söluaðili - Útvegum bílalán. v
staðgreiðslu-
og greiðslukortaafsláttur o»t milff him/fa _
og stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
DV
550 5000