Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Page 40
jr fPfppM
V I K I N G A
*■' 7:> . - ii , a> - , ’ ,
■**i)i
LtTTC
^tunnpr
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ1999
íslensk erfðagreining:
í eigu ís-
lendinga
í gær voru undirritaðir samningar
um kaup Landsbankans, Búnaðar-
banka, Fjárfestingarbanka atvinnulífs-
ins og Hofs á stórum hlut í íslenskri
erfðagreiningu.
Eftir kaupin verð-
ur íslensk erfða-
greining að mestu
í eigu Islendinga
eða um 70 prósent.
Seljandi hiutarins
eru bandarískir
stofnfjárfestar og
var hlutur þeirra
Kári Stefánsson. 48,5 prósent. Is-
lensku aðilamir
sem nú kaupa ætla sér bæði að selja
hluta af bréfimum á innlendum mark-
^aði en munu ætla sjálfum sér einhvem
hluta. Einnig er stefnt að þvi að bjóða
hluta bréfanna út á alþjóðlegum hluta-
bréfamarkaði.
Kári Stefánsson, forstjóri Islenskrar
erfðagreiningar, vildi í morgtm ekkert
tjá sig um málið og sagðist mundu bíða
eftir fréttamannafundi sem haldinn
yrði síðar í dag. Forsvarsmenn þeirra
sem kaupa bréfin vOdu heldur ekkert
tjá sig um málið að svo stöddu.
Heilbrigðisráðherra:
-Milljarðurinn
á leiðinni
„Milljarðurinn sem við lofuðum í
fikniefnavamir í kosningabaráttunni
er á leiðinni. Þvi get ég lofað,“ sagði
Ingibjörg Pálma-
dóttir heObrigðis-
ráðherra í morg-
un. „Þetta mál
þarf að vinna vel,
skipuleggja með
sérfræðingum og
dreifa fénu tO lög-
gæslu, tollyfir-
valda og í með-
ferðarúrræði svo
—jótthvaó sé nefnt.
iln mOljarðurinn kemur ekki aUur í
einu. Hann dreifist á aOt kjörtímaþO-
ið enda aldrei gert ráð fyrir öðm,“
sagði heObrigðisráðherra.
Sjá nánar um fikniefnavandann á
bls. 4._______________-EIR
Kristján hættir
Kristján Ragnarsson lætur af
störfum sem framkvæmdastjóri LÍÚ
á stjórnarfundi sambandsins í dag
eins og Vísir.is greindi fyrstur frá í
gær. Kristján mun þó áfram gegna
formennsku í fullu starfi. Nýr fram-
kvæmdastjóri verður Friðrik J.
Arngrimsson, lögmaður og skipa-
sali. Jónas Haraldsson, skrifstofu-
stjóri LÍÚ til fjölda ára, lætur af
'fótörfum vegna óánægju með þessar
ráðstafanir. -hlh
Ingibjörg
Pálmadóttir.
Hogni Hoydal, Færeyjum, Jonathan Motzfeldt, Grænlandi, Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Peter Angelsen,
sjávarútvegsráðherra Noregs, voru að vonum kát eftir vel heppnaða heimsókn samstarfsráðherra af Norðurlöndum.
Farið var víða um landið og skoðaðar margar af náttúruperlum landsins. DV-mynd Teitur
Skólameistari á ísafirði vill ekki nemendur með undir 5:
Opnar 0-deild
á Patreksfirði
- „samræmdu“ fallistarnir áfram í heimabyggð
„Við verðum með sérstaka O-deOd
á Patreksfirði næsta vetur vegna út-
komunnar á samræmdu prófunum
þar í vor. Af þeim 22 nemendum
sem ekki náðu 5 hafa 16 sótt um í 0-
deildinni," sagði Björn Teitsson
skólameistari á ísafirði en O-deOd er
undirbúningsbekkur fyrir nám í
framhaldsskóla. „Við höfum verið
með útstöð á Patreksfirði í nokkur
ár með hléum fyrir framhaldsnám
en þetta er í fyrsta skipti sem við
verðum bara með O-deOd. Fyrir
tveimur árum var útkoman í sam-
ræmdu prófunum aOgóð á Patreks-
firði en fámennið veldur því að
sveiflurnar verða meiri en ella.“
Eins og greint var frá í fréttum
DV í gær þá náði aðeins einn af 23
nemendum í grunnskólanum á Pat-
reksfirði 5 í meðaleinkunn á sam-
ræmdu prófunum í vor.
“Það er ekki lengur hægt að faUa
i grunnskóla. AUir nemendur eiga
rétt á skólavist í framhaldsskóla
sama hvaða ein-
kunn þeir fá,“
sagði Amalía
Björnsdóttir hjá
Rannsóknarstofn-
un í uppeldis- og
menntamálum, en
bætti því við að
hver skóli gæti sett
sín mörk um lág-
markseinkunn
þeirra sem teknir
væru inn.
“Við drögum mörkin yfirleitt við
5 og aOt þar fyrir neðan er faU að
mínu viti þó skoða verði hvert tO-
feUi fyrir sig,“ sagði Björn Teitsson
skólameistari á ísafirði og undir
það tók Anna Sigríður Pétursdóttir
aðstoðarskólastjóri í Breiðholts-
skóla: „Bömin búa tU sitt eigið við-
mið og líta á það sem faU að fá
minna en 5. Þessi falltala býr í
hjörtum okkar þó svo lög og reglu-
gerðir geri ekki ráð fyrir því að faU
í grunnskóla sé tU. Þeir sem fá
minna en 5 eru undantekningalítið
sendir í 0-deUd.“
Afleitur námsárangur grunn-
skólanemanna á Patreksfirði hefur
dregið meðaltal einkunna á sam-
ræmdu prófunum á Vestfjörðum
verulega niður. Á Isafirði gerðust
hins vegar þau tíðindi að þar tókst
grunnskólanum að fleyta nemend-
um sínum í fyrsta sinn yfir lands-
meðaltal í samræmdu prófunum:
“Við höfum sett okkur það sem
takmark að ná landsmeðaltali í
þeim fjórum greinum sem prófað er
i á samræmdu prófunum og í fyrsta
sinn tókst okkur að komast yfir það
í ár. Það er gleðilegt," sagði Krist-
inn Breiðfjörð skólastjóri grunn-
skólans á ísafirði.
Landsmeðaltal í einkunnum í
samræmdu fögunum í vor var eftir-
farandi: íslenska 6,4, danska 6,6,
stærðfræði 5,7 og enska 6,3. -EIR
Sjá nánar á bls. 4
L____________s__
Björn Teitsson
skólameistari. -
Allt fyrir neðan 5
er fall.
Veðriö á morgun:
Fer að rigna
suðaustanlands
Sunnan og síðan suðaustan 8-13
m\s og rigning vestantil. Vestan
5-8 m\s og skýjað með köflum
fram eftir degi austantO en suðlæg
átt síðdegis og það fer að rigna
suðaustanlands. Hiti 5 tO 15 stig á
morgun, hlýjast norðaustantil..
Veðrið í dag er á bls. 45
M3
Tölur við vindfjaðrir sýna metra á sekúndu
Byggðastofnun:
Rauðsída
slegin af
Niðurstaða fundar stjórnar og for-
stjóra Byggðastofnunar í gærkvöld
um 100 mOljóna króna lán tO Rauð-
síðu á Þingeyri tO að geta haldið
áfram starfsemi frystihússins á
Þingeyri er sú að fyrirtæki Rauða
hersins svo-
nefnda, sem rek-
ur frystihúsið á
Þingeyri og fleiri
frystihús á Vest-
fjörðum, hafi
ekki uppfyUt þau
skOyrði sem sett
voru fyrir 100
miUjóna króna
láni Byggðastofn-
unar. Lánið sem
stjórn Byggða-
stofnunar hugðist veita fyrirtækjun-
um verður því ekki greitt út að
sinni í það minnsta.
EgUl Jónsson stjómarformaður
Byggðastofnunar sagði við DV í
morgun að ekki hefði nein ný álykt-
un verið gerð í málinu á fundinum
í gær. Hann kvaðst hafa boðað tU
fúndarins í gærkvöld og óskað eftir
því að Guðmundur Malmquist, for-
stjóri Byggðastofnunar, legði fram
skriflega greinargerð um málið.
Samkvæmt henni hefði Rauðsíða
ekki uppfyllt þau skOyrði sem voru
sett fyrir útborgun lánsins. „Stjóm-
in kaUaði ekkert til baka, en féUst á
að skOyrðunum væri ekki full-
nægt,“ sagði EgiU. Ekki náðist í
Guðmund Malmquist, forstjóra
Byggðastofnunar, í morgun. -SÁ
Þingeyri:
Þrumulostin
„Ég er þrumulostin og það sama á
við um aðra ibúa
hér á Þingeyri.
Ég skU ekki að
svona hafi þurft
að fara eftir yfír-
lýsingar forráða-
manna Byggða-
stofnunar. Nú
veit ég ekki hvað
verður um okk-
ur,“ sagði Ragn-
heiður Ólafsdótt-
ir, formaður íbúasamtaka Þingeyr-
ar, um ástandið á staðnum eftir að
Rauðsíða var slegin af.. -EIR
Ragnheiður
Ólafsdóttir.
Egill Jónsson,
stjórnarformað-
100 tonna kast
Á ýmsu gengur við sfldveiðamar
norður í Barentshafi. I fyrrinótt var
þar ágætisveiði hjá mörgun skipanna
og fékk m.a. Sigurður VE 100 tonn í
einu kasti.í gær og nótt var hins veg-
ar minna um að vera á miðunum,
sem em mjög norðarlega, eða um 480
mílur í norður frá Eskifirði. -gk
Dúkkuvagnar og
kerrur í miklu úrvali
Símar 567 4151 &. 567 4280
, Heildverslun með leikfóng og gjafavörur