Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 Viðskipti DV Þetta helst: Lítil viðskipti á Verðbréfaþingi, 381 m.kr. ... Mest með ríkisvíxla, 147 m.kr. . Húsbréf 115 m.kr. ... Hlutabréf 90 m.kr .Mest með FBA og TM, 18 m.kr .Gengi Sæplasts hækkaði um 50% .. Töluverð hækkun á Úrvalsvísitölu, 0,52% ... Sæplast og Skýrr flutt á Aðallista Bensín hækkaði í gær um 1,2 kr. I Lindarmálinu loksins lokið: Málalok: in niðurstaða og enginn þarf að axla ábyrgð Einu mesta hneykslismáli íslands- sögunnar, Lindarmálinu, er nú loksins lokið. Málið hefur alla kosti sem gott hneyksli hefur upp á að bjóða nema einn, það vantar endinn. Ríkissaksóknari gaf í vik- unni út yfirlýsingu þess efnis að embættið sæi ekki ástæðu til að ákæra neinn í málinu og þar með lauk málinu án þess að neinn væri dreginn til ábyrgðar. Hvað sem ákærum líður þá hlýtur einhver að vera ábyrgur fyrir því að Lands- bankinn, banki allra landsmanna, tapar mörg hundruð milljónum vegna eins fyrirtækis. Varla var þetta óheppni, síður en svo. Glæstar vonir slokkna Lind hf. var stofnað árið 1987 af Samvinnubankanum, Samvinnu- sjóðnum og franska bankanum Banque Indosuez. Félaginu var ætlað að vera eignarleigufyrirtæki og var annað fyrirtækið á markaðnum á þessu sviði á sínum tíma. Þrátt fyrir að herfilega hafi tekist tO við rekstur félagsins hefðu möguleikar fyrirtæk- isins á góðum árangri átt að teljast nokkrir. Helsti keppinautur Lindar var Lýsing hf. Það fyrirtæki gengur enn þann dag í dag ágætlega og því virðist hæpið að kenna öðru en óstjóm um hvemig endanlega fór fyr- ir Lind hf. Glæstar vonir manna um árangur Lindar vora því fljótar að slokkna. Skólabókardæmi Rekstur Lindar hf. er skólabókar- dæmi um hvernig ekki á að reka fyr- irtæki. Nánast allir sem þangað gengu inn og báðu um lán fengu það þótt augljós vanskOaglampi væri í augum þeirra. Eftir að fyrirtækið varð gjaldþrota kom í ljós að van- skOamenn voru mörg hundruð og námu meðalvanskO hvers og eins 1,8 mOljónum króna. Einnig var mark- aðsstefna fyrirtækisins eins röng og hugsast gat og gjörsamlega úr takt við það sem var að gerast í þjóðfélag- inu á sínum tíma. Náðarhögg Lindar sem gerði endanlega út um rekstur- inn voru glórulaus lán tO kaupa á vinnuvélum frá Toyota. Þá var fyrir- tækið reyndar komið í eigu Lands- bankans. Kaup Landsbankans á Lind hf. era enn ein mistökin í þessu hneyksli. Banki allra landsmanna Landsbanki íslands og forráða- menn hans gegna lykilhlutverki í þessu máli. Þótt tap bankans í þessu Sverrir Hermannsson. Björgvin Vilmundarson. Halldór Guðbjarnarson. Finnur Ingólfsson. Asta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Þórður Ingvi Guðmundsson. máli sé mikið þá er það reyndar smáræði miðað við heOdarútlána- töp bankans. Bankinn er i eigu rík- isins og oftar en ekki voru það önn- ur sjónarmið en bein hagsýnissjón- armið sem réðu útlánum. Útlánum var stýrt þangað sem stjórnmála- menn töldu að heppOegt væri að veita fjármagn en ekki þangað sem lánastarfsemi skOaði arði. Einnig eru kaupin á Lind á sínum tíma nánast óskOjanleg. Eina skynsam- lega skýringin er að bankinn hafi verið undir pólitískum þrýstingi og verið að hjálpa Sambandinu sáluga. En bankinn keypti líka hlut franska bankans og tók á sig skuldbinding- ar hans; því er skýringin sennilega fólgin í því að hér sé um fáránleg mistök að ræða og glapræði opin- berra starfsmanna. Eina leiðin tO að fyrirbyggja að svona misstök endurtaki sig er að einkavæða bankana og láta eigin- hvata einkaframtaksins ráða ríkj- um í fjárfestingarákvörðunum. Enginn sekur Lögreglurannsókn var ætlað að leiða í ljós hvort HaUdór Guðbjarn- arson, stjómarformaður Lindar eftir 1991 og fyrrverandi banka- stjóri Landsbankans, og Þórður Ingvi Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Lindar, hefðu brotið lög. Einnig átti rannsóknin að leiða í Ijós hvort bankastjórarnir fyrrverandi, Björgvin VOmundar- son og Sverrir Hermannsson, hefðu gerst brotlegir i starfi. Ríkis- saksóknari telur að minnsta kosti ekki ástæðu tO að kæra en ekki hefur verið gefið upp hvort það er vegna þess að ekki séu nægar sannanir fyrir sakfellingu eða að málið sé einfaldlega fyrnt. Einföld niðurstaða Nú þegar þetta stærsta fjármála- hneyksli íslandssögunnar er tU lykta leitt er rétt að líta tU baka og reyna að átta sig á niðurstöðum þessa máls. Engum dylst að flestir sem að málinu koma una sáttir við þessa niðurstöðu. Fyrrverandi bankastjórar Landsbankans, þeir Sverrir Hermannsson, Björgvin Vilmundarson og HaUdór Guð- bjarnarson, eru lausir aUra mála. Finnur Ingólfsson iðnaðar- og við- skiptaráðherra var ánægður með að málinu væri lokið og taldi að sitt mannorð hefði verið hreinsað þegar málið var látið niður faUa. Frá því að hneykslið kom fyrst upp hafa ófá gífuryrði faUið í garð Finns og reyndi hann ávaUt flm- lega að verja sig. Það voru einkum Sverrir Hermannsson og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir sem gagnrýndu Finn harkalega. Ásta Ragnheiður stendur enn teinrétt fyrir sinn þátt í málinu. Hún var einn af upphafsmönnum þess að hneykslið var gert opinbert þegar hún spurði Finn út í málefni Lindar í júní 1996 en hún getur varla verið sátt við þessa niður- stöðu. Einnig hlýtur Þórður Ingvi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Lindar, að vera feginn eftir að hafa stýrt Lind hf. einstaklega Ula. Það er alveg ljóst að í þessu máli eru einhverjir ábyrgir. En hverjir þeir eru og af hverju þeir axla ekki ábyrgðina verður ósvarað enn um sinn. Niðurstaða málsins er því sú að það er engin niðurstaða. -bmg Borgarbyggð: Reynt að bjarga Eðalfiski hf - kauptilboði upp á eina krónu hafnað? DV, Vesturlandi: Bæjarstjóm Borgarbyggðar ætlar með öllum tiltækum ráðum að reyna að bjarga rekstri matvælafyr- irtækisins Eðalfisks í Borgarnesi en fyrirtækið hefur verið rekið með miklu tapi á undanfornum árum. Nú verður bæjarfélagið að hlaupa undir bagga með aUt að 32 mOljóna króna framlagi. Eðalfiskur velti á síðasta ári 150 mOljónum og skapar störf fyrir 20 manns í Borgamesi. Samkvæmt heimOdum DV þá gerði erlendur aðOi tOboð upp á 1 kr. fyrir skömmu en því tilboði hef- ur ekki verið svarað. Fyrir skömmu var samþykkt í bæjarstjórn Borgar- byggðar að leggja fram nýtt hlutafé í Eðalfiski að upphæð 31 m. kr. Hlutafé þetta verður greitt með yfir- töku skuldabréfa sem Borgarbyggð hefur ábyrgst hjá Sparisjóði Mýra- sýslu og Lífeyrisjóði Vesturlands. Bæjarráð Borgarbyggðar samþykkti þann 3. júní að óska eftir tUboðum i langtímalán Framkvæmdasjóös að upphæð kr. 35 miUjónir, vegna hlutafjárkaupa í Eðalfiski og á fundi bæjarráðs þann 24. júni var sam- þykkt að framlengja ábyrgð á hrá- efniskaupum Eðalfisks tU áramóta. Þetta er ekki eina fyrirtækið í Borg- arbyggð sem á I vandræðum. Bæjar- stjóm Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 10. júní að faUast á nauðasamninga við Afurðasöluna í Borgamesi sem er mjög mikið skuldsett. Lögin flókin Evrópskir atvinnurekendur eiga langt í land með að ná tökum á þeim hundruðum lagaákvaða sem eru í vinnumarkaðslögum Evrópusam- bandsins. Aðeins einn af hverjum finrni atvinnurekendum segjast vera tObúnir að framfylgja öUum þeim lög- um og reglum sem þeim er skylt að framfylgja. Ástæðan er fyrst og fremst að um svo margar reglugerðir er að ræða og flókinn lagabókstaf. Lítil áhrif á neytendur Almennt virðast sérfræðingar sam- mála um að vaxtahækkun Seðla- banka Bandar&janna i fyrradag muni hafa lítO áhrtf á neyslumynstur neytenda. Undanfarin ár hafa lágir vextfr drifið áfram neyslu neytenda sem að mUdu leyti hefur verið ijár- mögnuð með ódýru lánsfé. Ástæðan er meðal annars sú að nefndin, sem ákveður vexti, gaf sterklega tO kynna að vextir yrðu ekki hækkaðir aftur á næsíunni. Steindór ráðinn forstjóri Steindór Guð- mundsson verk- fræðingur hefur verið ráðinn for- stjóri KeflavOí- urverktaka. Steindór tekur við af Jóni H. Jónssyni sem heftn verið for- stjóri um árabft. Steindór er 52 ára gamaU og hefur langa og víðtæka reynslu á sviði verklegra fram- kvæmda. SíðasOiðin ár hefur Stein- dór verið forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins en áður rak hann eigin verk- fræðistofu. Fúlir og fegnir Vaxtahækkunin í BandarUrjunum hefúr mælst misjafnlega fyrir. Margir sérfræðingar vestra hafa gagnrýnt hana nokkuð og eru nokkuð fúlir yfir henni. Hins vegar segja margir þeirra að þeir séu fegnir því þeir heföu aUt eins búist við enn meir vaxtahækkun en raun varð á. Gagnrýnin er á þá leið að Seðlabanki Bandaríkjanna sé að bregðast við verðbólguþrýstingi sem í raun og veru sé ekki tO. Vaxta- hækkun kemur verst niður á þeim sem minna mega sín og eru fyrst nú að fá sinn skerf af því góðæri sem ríkt hefur undanfarin 9 ár. Hækkanir í kjölfarið Bæði hlutabréf og skuldabréf hækkuðu í verði í kjötfar vaxtahækk- unar. Það ber að skOja sem svo að fjárfestar hafi liflar áhyggjur af frek- ari vaxtahækkunum á næstunni. Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 1,44% , S&P 500 hækkaði um 1,57 og Nasdaq hækkaði um 1,67%. Viltu öraggan sparnað sem er eignaskattsfrjáls? Sjóður 5 er sérsniðinn fyrir þá sem vilja spara til lengri tíma á öruggan, þægilegan og hagkvæman hátt. Hann fjárfestir einungis í ríkisskuldabréfum og er því eignaskattsfrjáls. Hann er alltaf innleys- anlegur og nafnávöxtun undanfarin 2 ár hefur verið 9,3% að meðaltali. Hægt er að kaupa í honum í áskrift eða fyrir hvaða upphæð sem er. Kostir Sjóðs 5 eru fjölmörgum fjárfestum kunnir enda er hann næststærsti verðbréfasjóður landsins með 7.270 milijónir kr. (VÍB Sjóður 7 er stærstur). VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Kirkjusandi • 155 Reykjavík Sími: 560 89 00 • Myndsendir: 560 89 10 Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.