Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ1999 Messur Árbæjarkirkja: Guösþjónusta kl. 11 árdegis. Organleikari Pavei Smid. Prestarnir. Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Ámi Bergur Sigurbjörnsson. Breiöholtskirkja: Messur falla nið- ur vegna sumarleyfa starfsfólks fram í miðjan ágúst. Bent er á guðsþjón- ustur í öðrum kirkjum prófastsdæm- isins. Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Kl. 20.30. Kvöld- söngur með altarisgöngu. Prestur sr. Gunnar Siguijónsson. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Dómkirkjan: Messa kl. 11 í Fríkirkj- unni í Reykjavík. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Organleikari Mar- teinn H. Friðriksson. Dómkórinn syngur. Viðeyjarkirkja: Messa fyrir heyrn- arlausa kl. 14. Sr. Miyako Þórðarson messar. Táknmálskórinn syngur. Allir eru velkomnir. Staðarskoðun eftir messu verður túlkuð á tákn- máli. Bátsferð úr Sundahöfn kl. 13.30. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.15. Prestur sr. Halldór Gröndai. Organisti Kjartan Ólafsson. Fella- og Hólakirkja: Kvöldmessa kl. 20.30. Umsjón Guðlaug Ragnars- dóttir. Organisti Pavel Smid. Prest- amir. Frikirkjan í Reykjavík: Fermingar- messa kl. 14. Fermdur verður Páll Þráinsson. Allir hjartanlega vel- komnir. Sr. Hjörtur Magni Jóhanns- son. Grafarvogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Anna Sigriður Pálsdóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari. Org- anisti er Guömundur Sigurðsson. Kór Grafarvogskirkju syngur. Prest- amir. Grensáskirkja: Messa kl. 11. Altar- isganga. Prestur sr. Hreinn S. Há- konarson. Kammerkórinn Cantemus frá Danmörku syngur ásamt kirkjukór Grensáskirkju. Organisti Árni Arinbjamarson. Tónleikar danska kammerkórsins Cantemus kl. 17. Sr. Ólafur Jóhannsson. Hallgrímskirkja: Messa ki. 11. Sögustund fyrir bömin. Fermd verð- ur Björg Maria Acchiano frá Banda- ríkjunum, Laugamesvegi 106. Hópur úr Mótettukór syngur. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Sigurður Pálsson. Orgeltónleikar kl. 20:30. Mark A. Anderson frá Bandaríkjun- um leikur. Landspitalinn: Messa kl. 10. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Org- anisti Halldór Óskarsson. Sr. Tómas Sveinsson. Hjallakirkja: Guðsþjónustur i Hjallakirkju falla niður í júlímánuði. Fólki er bent á helgihald í öðrum kirkjum prófastsdæmisins. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prestamir. Kópavogskirkja: Vegna sumarleyf- is starfsfólks fellur guðsþjónustan niður en kirkjan verður opin á messutíma. Sóknarprestur. Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. 11 í safnaðarheim- ilinu. Fermd verður Karen Ósk Pét- ursdóttir. Prestur sr. Jón Helgi Þór- arinsson. Organisti Jón Ólafur Sig- urösson. Félagar úr Kór Langholts- kirkju syngja. KafFisopi eftir messu. Laugarneskirkja: Vegna sumar- leyfa starfsfólks Laugarneskirkju er bent á guösþjónustu í Áskirkju. Neskirkja: Messa kl. 11 í safnaðar- heimilinu. Prestur sr. Halldór Reyn- isson. Organisti Reynir Jónasson. Selfosskirkja: Messa kl. 11. Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Altar- isganga. Kór Rangæingaféiagsins syngur. Stjómandi er Elín Ósk Óst* arsdóttir. Organisti er Jón Óiafur Sigurösson. Prestarnir. Seltjarnameskirkja: Kvöldmessa kl. 20. Athugiö breyttan messutima. Prestur sr. Sigurður Grétar Helga- son. Organisti Sigrún Steingríms- dóttir. U.C.UJ. Lein/afninDar hreinsa og móto ollonn líkomo þinn ón sfrongrar megrunor eðo æfingo og gerir húðina ofor stinno og silkimjúko. KioveisK heilsulini) Ármúla 17o • Sími 553 8282 Afmæli Jóhann Hjálmarsson Jóhann Hjálmarsson, skáld og blaðamaður, Brekkutanga 23, Mos- fellsbæ, er sextugur í dag. Starfsferill Jóhann fæddist í Reykjavík en ólst upp á Hellissandi til níu ára aldurs en þá fluttu foreldrar hans aftur til Reykjavíkur. Hann stund- aði prentnám og var síðan í námi erlendis. Jóhann starfaði hjá Pósti og sima 1964-1990. Hann varð deild- arstjóri þar 1980, útibússtjóri 1981 og skipaður blaðafulltrúi fyrirtækis- ins 1986. Hann hefur verið bók- menntagagnrýnandi Morgunblaðs- ins frá 1966, haft umsjón með leik- listargagnrýni blaðsins 1967-1988 og verið blaðamaður Morgunblaðsins frá 1990. Jóhann átti sæti í stjórn Félags ís- lenskra rithöfunda 1968-1972 og i stjóm Rithöfundasambands íslands á sama tímabili. Hann sat i frí- merkjaútgáfunefnd 1982-88. Hann hefur setið í dómnefnd bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs nær óslitið frá 1981 og formaður hennar um tveggja ára skeið. Þá var hann formaður Samtaka gagnrýnenda frá 1986-1988. Jóhann hefur enn fremur verið fulltrúi í Þýðinganefnd Evr- ópuráðsins, Ariane, undanfarin þrjú ár. Út hafa komið fimmtán ljóðabæk- ur eftir Jóhann Hjálmarsson: Aung- ull í tímann 1956, Undarlegir fiskar, 1958, Malbikuð hjörtu, 1961, Fljúg- andi næturlest, 1961, Mig hefur dreymt þetta áður, 1965, Ný lauf, nýtt myrkur, 1967, Athvarf i himin- geimnum, 1973, Myndin af langafa, 1975, Dagbók borgaralegs skálds, 1976, Frá Umsvölum, 1977, Lífið er skáldlegt, 1978, Ákvörðunarstaður myrkrið, 1985, Gluggar hafsins, 1989, Rödd í speglunum 1994 og Mar- líðendur 1998. Ljóðaþýðingar Jóhanns hafa kom- ið út í fimm bókum. Eigin ljóð Jóhanns hafa verið þýdd á mörg tungumál og komið út í fjölda erlendra safnrita, og úrval ljóða hans komið út á sænsku, en það heitir Landet vilar i egen dikt, og á spænsku, en sú bók nefnist Antologia. Jóhann samdi bók um íslenska nútímaljóðlist sem kom út 1971. Hann sá um útgáfu á Trúarlegum ljóðum ungra skálda 1972 og Til landsins, ísland, í ljóðum sautján nútímaskálda 1974. Hann sat í rit- stjórn Forspils 1958-59 og Birtings 1958-61 og var einn af ritstjórum ljóðaárbókar AB 1988 og 1989. Þá er Jóhann einn ritstjóra Nordisk Post tidskrift sem er tímarit norrænu póststjórnanna. Fjölskylda Jóhann kvæntist 29.4. 1962 Ragn- heiði Stephensen, f. 11.2.1939, hjúkr- unarforstjóra Hrafnistuheimilanna í Reykjavík og Hafnar- firði. Ragnheiður er dóttir Péturs Stephensen, múr- arameistara í Reykjavík, og konu hans, Kristrúnar Arnórsdóttur Stephensen en þau eru bæði látin. Jó- hann og Ragnheiður eiga þrjú börn. Þau eru Þorri, f. 1963, rithöfundur sem vinnur við kvikmynda- gerð. Sonur hans er Hrólf- ur Þeyr f. 1989, og barns- móðir hans er Hlín Svein- bjömsdóttir; Dalla, f. 1968, dagskrárgerðarmaður, í sambúð með Kjartan Pierre Emils- syni eðlisfræðingi; og Jóra, f. 1971, ljósmyndari, í sambúð með Krist- jóni FVey Sveinssyni hagfræðingi. Systkini Jóhanns eru Katrín, kennari í Reykjavík; Gerður Elin, lést í bemsku; Gerður Elín, lyfja- tæknir í Reykjavík; Þorvarður, rit- höfundur, búsettur í Reykjavik; og Örn, verslunarstjóri, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Jóhanns voru Hjálmar B. Elíesersson, skipstjóri og útgerð- armaður, f. 13.12. 1913, d. 3.10. 1972, og kona hans, Jensína Ágústa Jó- hannsdóttir húsmóðir, f. 8.6.1918, d. 26.3. 1988. Ætt Hjálmar var sonur Elíesers, út- gerðarmanns á Seyðisfirði, Sigurðs- sonar, sem bjó á Refsteinsstöðum og i Litlu-Hlíð í Vesturhópi, Eiríksson- ar, í Litlu-Hlíð, Jóhannssonar. Móð- ir Sigurðar var Sigurlaug, systir Halldóru, langömmu Jóns á Torfa- læk, föður Jónasar fræðslustjóra, fóður Ögmundar, alþingismanns VG. Halldóra var dóttir Sigurðar, bónda í Grundarkoti í Vatnsdal, fóð- urbróður Jóns á Snæringsstöðum, langafa Jónasar læknis, afa Jónasar Kristjánssonar, ritstjóra DV, og Jónasar, formanns Varðar. Sigurð- ur var einnig föðurbróðir Péturs, afa Þórðar, læknis á Kleppi, afa Hrafns og Tinnu Gunnlaugsbama. Systir Sigurðar í Grundarkoti var Þórunn, langamma Jóns, skálds á Helluvaði, föður Sigurðar, skálds á Amarvatni, föður Málmfríðar, fv. alþingismanns. Jón á Helluvaði var einnig faðir Jóns, fv. alþingismanns frá Múla, föður Árna, föður Jónas- ar, rithöfundar og fv. alþingis- manns, og Jóns Múla tónskálds. Sigurður var sonur Jóns, „Harða- bónda“ í Mörk i Laxár- dal, Jónssonar, ættföður Harðabóndaættarinnar. Móðir Sigurlaugar var Ólöf Eyvindsdóttir. Móð- ir Elíesers var Elín, dótt- ir Þorsteins Þórðarsonar frá Borgarholti. Móðir Hjálmars var Þorgerður Albertsdóttir, bónda á Skálum á Langanesi, Finnssonar. Móðir Þor- gerðar var Soffía Ey- mundsdóttir, bónda í Höfða á Langanesi, Eymundssonar. Jensína Ágústa er dóttir Jóhanns stýri- manns, bróður Guðrúnar, móður Sveinbjarnar Péturssonar, ættfræð- ings og matreiðslumanns. Bróðir Jóhanns var Júlíus, faðir kaup- mannanna Jóns í Nóatúni og Guð- mundar í Melabúðinni. Jóhann var sonur Þórarins, hreppstjóra á Sax- hóli í Breiðuvík, bróður Jóns, langafa Friðriks Ólafssonar, skrif- stofustjóra Alþingis. Þórarinn var sonur Þórarins, bónda á Ytra- Rauðamel, Árnasonar, bróður Magnúsar, föður Magnúsar Smith, skákmeistara í Kanada. Móðir Þór- arins Þórarinssonar var Gróa Jóns- dóttir, smiðs á Þórólfsstöðum, Andr- éssonar og konu hans, Guðbjargar, systur Jóns beykis á Reyðarfirði, afa Jóns Norðfjörð, langafa Matthí- asar ritstjóra Morgunblaðsins, og Louisu listmálara. Jón beykir var einnig afl Helgu, langömmu Hans G. Andersen sendiherra. Guðbjörg var dóttir Magnúsar, prests á Kvenna- brekku, Einarssonar. Móðir Guð- bjargar var Gróa Sigurðardóttir réttláta, Jónssonar. Móðir Jóhanns var Jensína Jóhannsdóttir, bónda, Dagssonar og konu hans, Kristínar Árnadóttur. Móðir Jensínu Ágústu var Katrín, dóttir Þorvafðar Þorvarðar- sonar, útvegsbóndá í Hallsbæ á Hellissandi, og Ragnheiðar, systur Ingveldar, ömmu Öergsveins Ólafs- sonar augnlæknis/ Bróðir Ragnheið- ar var Guðmundur í Krossnesi, afi Heimis Þorleifssonar sagnfræðings. Annar bróðir Ragnheiöar var Skúli, afi Sigfinns Sigúrðssonar, fv. bæjar- stjóra í Vestmánnaeyjum. Ragnheið- ur var dóttir 'Skúla Jónssonar frá Fagurey. Ríkharð Guðmundsson Ríkharð Guðmundsson, bUstjóri hjá Húsasmiðjunni, er fertugur í dag. Hann er búsettur að Fléttu-rima 22 í Reykjavík og er kvæntur Stellu Björgvinsdóttur húsmóður. Þau hjónin verða aö heiman á afmælisdaginn. Jóhann Hjálmarsson. DV Til hamingju með afmælið 2. júlí 85 ára Helga Moth Jónsson, Hjallaseli 55, Reykjavík. 80 ára Ragnheiður Valdemarsdóttir Hæðargarði 33, Reykjavík. 75 ára Ragnheiður Benediktsdóttir, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Runólfur Sæmundsson, Sunnubraut 3, Vík. 70 ára Guðný Málfríður Pálsdóttir, Álfhólsvegi 12a, Kópavogi. 60 ára Bjöm Guðmar Maronsson, Hlíðargötu 32, Sandgerði. Salvör Gottskálksdóttir, Bröttukinn 25, Hafnarfirði. Sigurbjöm Bjömsson, Hamrahlíð 12, Vopnafirði. 50 ára Bjöm Hauksson, Heiðarbrún 10, Hveragerði. Erna Svanbjörg Gunnarsdóttir, Njörvasundi 1, Reykjavík. Guðmundur Guðjónsson, Kambaseli 17, Reykjavík. Guðrún Eggertsdóttir, Flókagötu 57, Reykjavík. Gunnlaugur Már Olsen, Arnarsmára 14, Kópavogi. Halla E. Jónsdóttir, Suðurvör 12, Grindavík. Ingi Þór Vigfússon, Barrholti 17, Mosfellsbæ. Jón Sveinsson, Grund 2, Borgarfírði. Margrét Þórisdóttir, Skriðuseli 3, Reykjavík. Páll Mortensen, Vallholti 16, Ólafsvík. Sigurður O. Pétursson, Kambaseli 27, Reykjavík. Þóra Pétursdóttir, Miðstræti 3, Reykjavík. 40 ára Guðmundur Már Stefánsson, Hæðarseli 1, Reykjavík. Harpa Þorbjörg Hólmgrímsdóttir, Lónabraut 33, Vopnafirði. Hulda Hrafnkelsdóttir, Skjöldólfsstöðum 2, Egilsstöðum. Hörður Jónasson, Flúðaseli 61, Reykjavík. Laufey J. Sveinbjörnsdóttir, Gullsmára 4, Kópavogi. Páll Þór Pálsson, Sólheimum 3, Reykjavík. Ragnar Haukur Högnason, Skagavegi 16, Skagaströnd. Samúel Kristján Valsson, Dalseli 21, Reykjavík. Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir, Njarðvíkurbraut 23, Njarðvík. Þorvaldxu- Logi Pétursson, Snekkjuvogi 5, Reykjavik. Þórunn María Þorbergsdóttir, Bragavöllum 9, Keflavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.