Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfusýóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vfsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgalds. Verkefni nýs forstjóra Þórarinn V. Þórarinsson hefur tekið við sem for- stjóri Landssímans, eftir nokkrar hræringar innan fyrirtækisins, sem hafa orðið efni í ýmsar sögusagn- ir og kenningar. Þegar fram líða stundir skipta þær minnstu en hvernig nýjum forstjóra tekst til við stjórnun Landssímans skiptir mestu, enda fyrirtæk- ið hluti af lífi allra íslendinga. Varla finnst sá ís- lendingur sem ekki hefur skoðun á Landssímanum. Leiða má sterkar líkur að því að margt muni breytast í starfsháttum Landssímans nú þegar Þór- arinn V. Þórarinsson, fyrrum framkvæmdastjóri VSÍ, hefur tekið við daglegum rekstri. „Ég ætla ekki að verða ósýnilegur forstjóri sem er lokaður inn á skrifstofu, heldur vinna með starfsmönnum fyrirtækisins,“ sagði forstjórinn í yfirheyrslu hér í DV í gær. Sem stjórnarformaður sama fyrirtækis hefur Þórarinn staðið í deilum við samkeppnisyfirvöld og á stundum látið þung orð falla í garð þeirra. Flest bendir til að Landssíminn eigi eftir að glíma enn frekar við yfirvöld samkeppnismála. Fyrirtækið er með yfirburðastöðu á íj arskiptamarkaði eftir að hafa setið eitt að markaðinum í skjóli ríkisverndað- ar einokunar. Nú þegar lítil en ört vaxandi og fram- sækin fyrirtæki í eigu einkaaðila sækja inn á fjar- skiptamarkaðinn má búast við átökum þar sem Landssíminn er í hlutverki Golíats. Hraðar tækni- framfarir munu einnig gera erlendum aðilum kleift innan fárra ára að bjóða íslenskum símnotendum þjónustu sína, óháð landfræðilegri staðsetningu. Það verður því sótt að Landssímanum úr öllum átt- um. Hlutverk Þórarins verður að verjast þessari samkeppni. Mikilvægasta verkefni hins nýja forstjóra Lands- símans verður að undirbúa einkavæðingu á fyrir- tækinu. Eignarhald fyrirtækisins er tímaskekkja, eins og flestir eru búnir að átta sig á. Fyrir örfáum árum þótti það jaðra við landráð að setja fram hug- mynd um einkavæðingu Landssímans. Viðhorf al- mennings virðist vera allt annað nú og aðeins fá- einir forpokaðir afturhaldsmenn leggjast gegn því að fyrirtækið sé selt. Einkavæðing Landssímans verður langstærsta einkavæðing sem ráðist hefur verið í hér á landi og því er mikilvægt að rétt sé að málum staðið. Margt bendir til að heillavænlegt sé að reyna að selja stór- an hluta félagsins til erlendra aðila, samhliða því sem einstaklingum, fyrirtækjum og stofnanafjár- festum hér heima, eru boðin hlutabréf á jafnréttis- grunni og skapa þannig frið um söluna. Eina spurningin sem vert er að svara áður en hafist er handa við söluna er hvort eðlilegt og skynsamlegt sé að brjóta fyrirtækið upp í tvær einingar, þar sem önnur starfi á samkeppnismarkaði en hin annist dreifikerfið, sem verður öllum opið. Tækniframfar- ir kunna hins vegar að gera slíkt óþarft. Með einkavæðingu Landssímans verður stigið mikilvægt skref í þá átt að draga ríkið út úr rekstri fyrirtækja sem það á ekki að vasast í. Það er vert að hafa þá óþægilegu staðreynd í huga að einungis þriðjungur eigna landsmanna er í eigu einkaaðila en tveir þriðju eru í eigu ríkis og sveitarfélaga, samvinnufélaga eða sjálfseignarfélaga með óljóst eignarhald. Óli Björn Kárason / ?S3 g m n i | Bj 2íl , 1 . 11 Barnaspítala hefur verið valinn staður þar sem hann í raun rúmast ekki þótt mun betri kostir séu fyrir hendi. Prívatfirrur eða réttmæt sjónarmið? Guðmundur Andri Thorsson rit- höfundur fjallaði nýlega í DV um kæru íbúa í nágrenni Landspítala- lóðar vegna framkvæmda við barnaspítala. Hann segist reyndar ekki þekkja ástæður kærunnar og kvartar yfir að fiölmiðlar hafi ekki gegnt hlutverki sínu að greina frá þeim. Hann munar samt ekki um að kalla íbúa kæruóða og segir fólk- ið hafa fundið sér þá hugsjón í líf- inu að vera á móti barnaspítala. Kemur á óvart að Guðmundur Andri Thorsson skuli leitast við að gera kærendur tortryggilega og leiða hjá sér að kanna staðreyndir málsins. Gagnrýni fagfólks á stærð og staðsetningu Stærð fyrirhugaðs barnaspítala og staðsetning hans á Landspitala- lóð hefur sætt gagnrýni fagfólks. í greinum í Morgunblaðinu undan- fama mánuði hafa læknar og hjúkr- unarfræðingar bent á að bamaspít- alinn sé of lítill frá upphafi enda ræðst stærð hans af þröngri lóð en ekki þörfum veikra barna. Yfir- læknir bama- og unglingageðdeild- ar sagði barnaspítalann ekki allra barna spítala, enda er geðveikum bömum úthýst þaðan, sem kunn- ugt er. Fagfólkið bendir á að sjálf staðsetningin komi í veg fyrir að unnt verði að stækka spítalann og þróa starfsemina í framtíðinni. Bamaspítala hefur verið valinn staður, þar sem hann í raun rúm- ast ekki, þótt mun betri kostir séu fyrir hendi. Umferð sprungin að dómi borgarinnar Ekki dugir að afgreiða umferðar- og bílastæðamál Landspítalans með aulafyndni um hugarfar íbúa í ná- grenni hans. Umferðaröngþveiti ríkir á Landspítalalóð og nálægum íbúðargötum og hefur skipulags-og umferðamefnd Reykjavíkur bókað að ástandið sé „sprungið". Umferð- arkönnun sýnir að starfsfólk, sjúk- lingar á göngudeild og heimsóknar- gestir lenda í „hremmingum" þegar leggja þarf bílum við spítalann. Mér er til efs að þessu fólki sé hlátur í huga þegar bílastæðavanda Land- spítalans ber á góma. Yfirlæknir á Landspítala segir mikið umferðar- öngþveiti inn og út úr miðbænum á álagstímum vera óheppilegt fyrir Landspítalann vegna mögulegra umferðartafa. Hann bendir á að líf getur legið við að koma mikið veik- um eða slösuðum sjúklingum á sjúkra- húsið á sem skemmstum tíma og að starfsfólk geti ekki brugðist við út- köllum án tafa vegna umferðaröng- þveitis. Borgaryfir- völd höfðu engin svör um úrræði þeg- ar íbúar spurðu þau um vanda vegna að- komuleiða og bUa- stæða. Hávaði og loft- mengun við barnaspítala Spítalabygging á flugvallarins. Samkvæmt upplýs- ingum borgaryfirvalda á að reisa spítalann í einni aðflugsleið Reykja- víkurflugvaUar sem vafasamt er að Standist ákvæði heilbrigðisreglu- gerðar. Leita þarf undanþágu frá reglum gegn hávaðamengun tU að spítalann megi reisa á þessum stað. Skýtur skökku við að slíkum vörn- um skuli rutt á brott og gripið tU undanþágu þegar í hlut á barnaspít- ali þar sem dveljast börn sem eru viðkvæm fyrir hávaða. Alvarlegir gallar á undirbúningi málsins í nýjum lögum um skipulags- og byggingar- mál eru skyldur lagðar á herðar sveitarstjóm- um um undirbúning framkvæmda og íbúum tryggður kæmréttur ef út af er bragðið. Ákvæð- um laganna ber að fylgja, alltaf en ekki bara stundum, jafnvel þótt framkvæmd sé tal- in brýn. íbúar í ná- Kjallarinn Ólafur ísleifsson hagfræðingur „Spítalabygging á Landspítala- lóð virðist ekki standast kröfur um loftmengun og hávaðameng■ un frá umferð bíla og flugvéla. “ Landspítalalóð virðist ekki standast kröfur um loftmengun og kröfur um hávaðamengun frá umferð bíla og flugvéla. Loftmengun hefur sam- kvæmt upplýsingum ' borgaryfir- valda farið yfir leyfileg mörk við fyrirhugaðan barnaspítala og virð- ist ekki gert ráð fyrir að sjúklingar geti verið úti við ef svo ber undir. Hávaðamengun er hálfu meiri en æskilegt þykir og er þá ótalinn há- vaði frá flugvélum sem líklegt er að færist i aukana með umferð milli- landaflugs eftir endurbyggingu grenni Landspítalalóð- ar telja að Reykjavík- urborg hafi við undir- búning málsins og málsmeðferð alla brot- ið gegn ákvæðum laga. Borgaryfirvöld hafa ekki sinnt ítrekuðum ábendingum íbúa sem áttu því ekki annarra úrkosta en beina málinu til úrskurðamefndar. Nefndin staðfesti með úrskurði í febrúar að kæra íbúanna hafi átti við rök að styðjast og verið rétt- mæt. Guðmundur Andri Thorsson verður að eiga við sjálfan sig telji hann það „skrípamynd af lýðræð- inu“ að fólk leiti réttar síns eftir lögmætum leiðum ef það er haldið þeirri „prívatfirru" að lög hafi ver- ið brotin á því. Ólafur ísleifsson Skoðanir annarra Hagvöxtur áfram næstu árin „Óhætt er að segja, að endurmatið á efnahagshorf- um í ár er bæði jákvætt og neikvætt. Aukning hag- vaxtar kemur nokkuð á óvart og er rakin til vaxandi útflutnings og minni samdráttar í íjárfestingu en reiknað var með. Hagvöxtur verður því um og yfir 5% í fjögur ár samfleytt og verður það að teljast mik- ill árangur á alþjóðlegan mælikvarða. Þá reiknar Þjóðhagsstofnun með áframhaldandi hagvexti næstu árin, þótt hann verði hægari en verið hefur. At- vinnuleysi er og úr sögunni og vinnuaflsskortur er í ýmsum atvinnugreinum." Leiðari Morgunblaðsins 1. júlí. Eigandinn ekki með í ráðum „Svokallaður eigandi félagsins, „þjóðin", var vit- anlega ekki höfð með í ráðum og það tók handhafa hlutabréfs félagsins, samgönguráðherra, einungis fimm minútur að skipta um stjórnarformann. Talsmenn ríkiseignar telja það oft lýðræðislegra fom, atburðimir í Landssímanum sýna svo ekki verður um villst að þvi er einmitt þveröfugt farið. Raunar hefur verið bent á það áður i þessum dálki að ef ríkishlutafélög eigi að vera lýðræðisleg væri nærtækast að velja stjórnarmenn af handahófi úr þjóðskrá." í þættinum Undarleg vika er fjallað um forstjóra- skiptin hjá Landssímanum og „tálsýn sem fylgdi há- effun" ríkisfyrirtækja. Halldór í forsvari evrópskrar fordæmingar „Það hefur komið í hlut Halldórs Ásgrimssonar, sem formanns í Evrópuráðinu, að vera í forsvari hinnar evrópsku fordæmingar á dauðadómnum ásamt ýmsum forustumönnum Evrópubandalagsins. Það er sérstaklega ánægjulegt að bæði Halldór og aðrir fullmegtugir evrópskir forystumenn virðast einhuga í fordæmingu sinni á dauðarefsingunni. En það rýrir á engan hátt gildi þessarar fordæmingar þó á það sé bent að þessir höfðingjar mættu gjaman halda þessari sömu prinsippafstöðu sinni hátt á lofti I samskiptum við önnur ríki sem beita dauðarefs- ingu og vilja eins og Tyrkir eiga mikil og góð sam- skipti við Evrópu. Jafnvel þó þeir dæmdu séu ekki eins mikilvægir og Öcalan. í þeim efnum hljóta menn auðvitað að horfa vestur um haf.“ Birgir Guðmundsson, aðstoðarritstjóri Dags, i for- ystugrein.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.