Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 9 i>v Útlönd Viöræöur um myndun heimastjórnar á N-Irlandi: Samkomulag í augsýn Sniðganga ESB- fund vegna tungumáladeilu Þjóöverjar tilkynntu í gær að þeir myndu sniöganga óformleg- an fund iðnaðar- ráðherra Evrópu- sambandsins, ESB, í Finnlandi um helgina. Ástæðan er sú að Finnar, sem hafa tekið við for- mennsku í ráð- herraráði ESB, ætla ekki að láta túlka á þýsku á fundinum. Gerhard Schröder Þýska- landskanslari hefur krafist þess í bréfi til Paavos Lipponens, for- seta Finnlands, að túlkað verði á þýsku, ensku, frönsku og finnsku á öllum ESB-fundum. Venjan er að þegar um óformlega fundi er að ræða að túlka eingöngu á ensku, frönsku og tungumáli þess lands sem fer með formennsku. Enginn komst lífs af úr kláfslysinu Tuttugu manns létu lífið er kláfur hrapaði til jarðar í við bæ- inn Saint-Etienne-en Devoluy í frönsku Ölpunum í gærmorgun. Enginn farþeganna í kláfinum komst lifs af. Kláfurinn var smíðaður á ní- unda áratugnum og var siðast skoðaður í mars á þessu ári. Tals- maður fyrirtækisins sem rekur kláfana fúllyrti í gær að kláfurinn hefði verið í fullkomnu lagi. Rannsókn á slysinu fer fram í næstu viku. Útilokað er talið að um skemmdarverk hafi verið að ræða. Flestir hinna látnu voru starfsmenn stjömuathugunar- stöðvar. Viðræður um myndun heima- stjórnar á N-írlandi halda áfram í dag, fimmta daginn í röð. Tony Bla- ir, forsætisráðherra Breta, og Bertie Ahern, forsætisráðherra írlands, munu leggja fram tillögur um hugs- anlega lausn mála í deilu Sam- bandssinna og Sinn Féin. Forsætis- ráðherramir hafa heitið skjalfestri yfirlýsingu þar sem lagt verður mat á þann árangur sem þegar hefur náðst i viðræðunum. Fresturinn sem Tony Blair hafði gefið deiluaðilum til að ganga frá samningi vegna heimastjómar rann út á miðnætti á miðvikudagskvöld en þrátt fyrir það héldu viðræður áfram í gær. Lítið þokaðist hins veg- ar á fundinum í gær og litlu munaði að upp úr slitnaði endanlega. Það er ljóst að enn ber mikið á milli deiluaðila og að mati frétta- skýrenda er samkomulag ekki í aug- sýn. Tillögur forsætisráðherranna í dag kunna þó að færa viðræðumar inn á nýjar brautir. Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin, vera afar vonsvikinn yfir gangi mála í gærkvöld. Kvaðst hann hafa gert allt sem í sínu valdi stæði til að koma til móts við kröfur Sambandssinna. David Trimble, leiðtogi Sam- bandssinna, er ófáanlegur til að skrifa undir stjómarsáttmála við Sinn Féin ef IRA fæst ekki til að gefa út skriflega yfirlýsingu um af- vopnun. I tilboði Sinn Féin felst lof- orð um afvopnun en það er ekki nóg að mati Sambandssinna. Þá hefur Trimble farið fram á að IRA afhendi hluta vopna sinna við undirskrift samkomulagsins. Mikill viöbúnaður er á N-írlandi vegna fyrirhugaðrar göngu Óraníu- manna um Drumcree á sunnudag og hafa tæplega 4000 breskir her- menn verið sendir á svæðið. Ellilífeyrisþegar heimta afsögn Milosevics Mótmælin gegn Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta halda áfram. Hundruð fátækra ellilíf- eyrisþega söfnuðust saman í mið- borg Belgrad í Serbíu í gær og kröfðust afsagnar Milosevics. Elli- lifeyrisþegarnir báru spjöld þar sem á var letrað: „Við erum svöng“ og „Milosevic, þú verður að segja af þér“. Hagfræðingurinn Mladjan Dinkic sagði á fundi i bænum Kragujevac í gær að Júgóslavía kæmist ekki af án aðstoðar er- lendis frá. í borginni Novi Sad handtók lögreglan í gær fjóra menn sem dreiföu flugritum áður en efnt var til mótmælafundar gegn stjórn Milosevics. Sagt var að hinir handteknu hafi verið í Jafnaðar- mannaflokknum í Vojvodina. Tveimur hinna handteknu var sleppt strax. Annar þeirra sagöi að honum hefði verið misþyrmt. Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin, sagðist í gærkvöld vera vonsvikinn með gang mála. Viðræðurnar haida áfram í dag. Símamynd Reuter DRÁTTARBEISU - DRÁTTARBEISU Subaru, Daewoo, Galloper, Toyota, Opel, Mitsubishi, Volvo. Sœnsk gœðavara á góðu verði. Takmarkað magn. Fjaðrabúðin Partur Eldshöfða 10, Reykjavík, símar 567 8757, 587 3720. Merc. Benz E 200 Elegance 1996 ek. 105 þ.km. silfurgrár ssk. abs. ets. 16" álfelgur ofl. verð áður: 3.380.000,- verð nú: 2.980.000,- Góðir bílar á tilboðsverði Merc. Benz E 230 Classic 1996 ek. 102 þ.km. dökkblár ssk. abs ets álfelgur ofl. verð áður: 3.380.000,- verð nú: 2.950.000,- Merc. Benz C 220 Classic 1996 ek. 56 þ.km. azurit blár ssk. abs. toppl. álfelgur ofl. verð áður: 2.950.000,- verð nú: 2.780.000,- Merc. Benz 200 E 1991 ek. 188 þ.km. hvitur ssk. abs. toppl. álfelgur ofl. verðáður: 1.495.000,- verð nú: 1.280.000,- Merc. Benz E 220 1994 ek. 110 þ.km. bornit ssk. abs. raf.rúður álfelgur ofi. verð áður: 2.180.000,- verð nú: 1.980.000,- Range Rover 4,6 HSE 1995 ek. 104 þ.km. svartur ssk. toppl. leðurinnr. ofl. verð áður: 5.400.000,- verð nú: 4.900.000,- BMW 325 ia Cabrio 1988 ek. 118 þ.km. blár ssk. abs leðurinnr. álfelgur ofl. verð áður: 1.390.000,- verð nú: 1.250.000,- Ssang Yong Korando 1999 ek. 6 þ.km. vínrauður ssk. fjarstart cd álfelgur ofl. verð áður: 2.850.000,- verð nú: 2.680.000,- Landr. Discovery Windsor 4,0 1998 ek. 10 þ.km. dökkblár ssk. toppl. abs álfelgur ofl. verð áður: 3.410.000,- verð nú: 3.280.000,- Bílarnir eru til sýnis við ALP bílaleiguna Umferðarmiðstöðinni BSÍ Útvegum bíla erlendis frá eftir séróskum Upplýsingasímar 896 12 16-897 1928 BMW 525 ix 4x4 1992 ek. 108 þ.km. steingrár ssk. toppl. leðurinnr. 16" álf. ofl. verð áður: 2.280.000,- verð nú: 1.980.000,- Merc. Benz E 200 Avantgarde 1997 ek. 54 þ.km. silfurgrár ssk. abs ets 17" álfelgur ofl. verö áður: 4.100.000,- verð nú: 3.780.000,- Merc. Benz E 240 Classic 1998 ek. 22 þ.km. svartur ssk. abs asr glertoppl. ofl. verð áður: 3.950.000,- verð nú: 3.780.000,- Merc. Benz C 220 Elegance 1996 ek. 99 þ.km. silfurgrár ssk. abs raf.rúður álfelgur ofl. verð áður: 3.120.000,- verð nú: 2.880.000,- Merc. Benz 200 E 1991 ek. 194 þ.km. dökkþlár ssk. abs armpúöi ofl. verðáður: 1.490.000,- verð nú: 1.320.000,- Merc. Benz E 220 1994 ek. 113 þ.km. silfurgrár ssk. abs toppl.álfelgur ofl. verð áður: 2.280.000,- verð nú: 1.980.000,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.