Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Side 14
14
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
Sport
DV
KR-ingar
færðu Andra
fartölvu
Samherjar Andra Sigþórssonar
í KR heimsóttu hann á Landspít-
alann fyrir bikarleikinn gegn
Fylki i fyrrakvöld. Þeir færðu
Andra fartölvu til að stytta hon-
um stundirnar í veikindum hans.
Það er annars að frétta af
Andra að hann er á batavegi og
er farinn að geta stigið í fætuma.
En eins og kom fram í DV sl.
mánudag var hann lagður inn á
spítalann um síðustu helgi en
hann gat ekki lengur stigið í fæt-
urna vegna sýkingar að talið var.
Á myndinni má sjá þá Atla Eð-
valdsson, þjálfara liðsins, Guð-
mund Hreiðarsson aðstoðarþjálf-
ara, Þormóð Egilsson, Sigurð
Öm Jónsson og Sigþór Júlíusson.
-JKS/E.ól.
Sevilla og Vallecano fóru upp
Sevilla og Rayo Vallecano tryggðu sér sæti i A-deild spænsku
knattspymunnar. Sevilla sigraði Villareal, 1-0, og samanlagt 3-0. Rayo
Vallecano sigraði Extremadura, 2-0, og samanlagt 4-0. Extremadura og
Villareal, sem bæði komust upp í A-deildina í fyrra, urðu því ekki langlíf
í efstu deild. Sevilla er komið í hóp þeirra bestu á nýjan leik en liðið féll
í B-deildina fyrir fjórum áram. -JKS
Platt næsti stjóri hjá Forest
David Platt verður næsti knattspyrnustjóri Nottingham Forest.
Formleg tilkynning þessa efnis var gefin út í gær. Forsvarsmenn liðsins
lögðu þunga áherslu á að sem fyrst yrði gengið frá þessu máli. Platt
þjálfaði ítalska liðið Sampdoria um tíma á sl. tímabili en dæmið gekk
ekki upp þar. Platt lék á sínum tima 62 landsleiki fyrir Englendinga og
var í 14 ár atvinnumaður I knattspyrnu. -JKS
General Electric
á Jaðarsvelli við Akureyri 3. - 4. júlí 1999.
jsbfwjjdf mimomMim:
Tvo mork
- skoruð á Sindra í sumar
Sindri frá Hornafírði er eina
taplausa lið landsins í deild og
bikar þaö sem af er sumrinu
1999. Það má ekki síst þakka
góðri vöm og markvörslu en
liðið hefur ekki fengið nema tvö
mörk á sig í 9 taplausum leikjum
sumarsins og haldið hreinu í sjö
þeirra. Þar af hefur liðið leikið
þrjá bikarleiki án þess að fá á sig
eitt einasta mark.
Einu liðin til að skora á Sindra
era Leiknir og HK í 2. deild en
Sindri hefur unnið 5 leiki og gert
4 jafntefli í sumar. -ÓÓJ
Bikarkeppnin í knattspyrnu:
Eyjamenn á
36 holur með og án forgjafar.
Hámarksforgjöf 24.
Hornafjörð
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin með
og án forgjafar í flokkum karla og kvenna.
Meðal verðlauna er:
Glæsilegur tvöfaldur ísskápur frá GE.
Þvottavél og þurrkari frá GE.
Tveir dekkjagangar frá Goodyear.
Flugferð til London með leiguflugi á vegum Samvinnuferða-Landsýnar.
Tvær flugferðir fyrir 2 með íslandsflugi Akureyri - Reykjavík - Akureyri.
Ýmis smátæki frá Electric raftækjaverslun Heklu.
á holu 4,6,11,14, og 18. báða dagana.
J-JDJLá\ J LJDGjGJ...
á 18/hoÍu og þú vinnur GE-Profile.
ÞM'nr-zmj s jal d sTlMljjj j <
Þátttökugjald er kr. 2.500 á mann.
Skráning og pantanir á rástíma er í síma 462-2974.
Skráningu lýkur föstudaginn 2. júlí kl. 17:00.
General Electríc
ÍSLANDSFLUG
gorir fiolrum fært &6 ftjúga
Samvinnuferðir
Landsýn
m
HEKLA
RAFTÆKJAVERSLUN
IAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 569 5770
Bikarmeistarar Eyjamanna dróg-
ust gegn Sindra frá Hornafirði í 8
liða úrslitum bikarkeppninnar í
knattspymu en drátturinn fór fram
í gær. Sindri, sem leikur í 2. deild-
inni, hefur komið mjög á óvart með
frammistöðu sinni til þessa i keppn-
inni. Liðið sló m.a. lið Leifturs út úr
keppninni í 32 liða úrslitum. Þess
má geta að liðið hefur ekki tapað
leik í 2. deildinni í sumar, unnið tvo
leiki, gert fjögur jafntefli og fengið á
sig aðeins tvö mörk. Sindramenn
eru sýnd veiði en ekki gefin fyrir
Eyjaliðið. Viðureignin verður 7.
júlí.
Víkingar drógust gegn Skaga-
mönnum og verður leikið 8. júlí.
Breiðablik fær Val í heimsókn 8.
júlí og Stjaman fékk KR á heima-
velli og verður leikið 7. júlí.
KR-stúlkur í Garðabæinn
Stjaman dróst gegn KR í 8 liða
úrslitum bikarkeppni kvenna og
verður leikið í Garðabænum. Sam-
eiginlegt lið Þórs og KA leikur gegn
Grindavík, ÍBV leikur gegn Val og
RKV fær Breiðablik í heimsókn.
Allir leikimir fara fram 13. júlí.
-JKS
Evrópubikarkeppnin í tugþraut:
Allir bestu verða
með í Huddinge
íslenska karlalandsliðið í tugþraut
tekur um helgina þátt Evrópubikar-
keppninni sem haldin verður í
Huddinge í Svíþjóð. íslendingar
unnu sig upp í 1. deild á síðasta ári
og etja því kappi nú við bestu tug-
þrautarmenn heims. Auk Islands í 1.
deild eru Finnland, Svíþjóð, Eist-
land, Pólland, Rússland, Italía og
Bretland/Norður írland.
Meðal keppenda má nefna Erki
Nool, Eistlandi, Eduard Hamalainen,
Finnlandi, Lev Lobodin, Rússlandi,
Sebastian Chmara, Póllandi.
íslenska liðið verður skipað þeim
Jóni Arnari Magnússyni, Tinda-
stóli, Ólafi Guðmundssyni, HSK,
Bjarna Þór Traustasyni, FH, og
Reyni Loga Ólafssyni úr Ármanni.
Þjálfari liðsins er Kári Jónsson.
1996 voru íslendingar í 1. deild en
féllu strax niður í 2. deild. Tvö af
efstu liðunum, sem keppa í Hudd-
inge, komast upp í úrvalsdeildina
en tvö neðstu falla í 2. deild.
-JKS