Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
17
Sviðsljós
Stakk af frá
reikningnnm
Prince, sem núna kallar sig Lista-
manninn, kom að næturlagi á tísku-
veitingastaðinn Madame X í New
York og krafðist þess að hluta stað-
arins yrði lokað svo að hann og kon-
an í fylgd hans gætu verið í friði.
Prince lét líka loka salerninu svo að
hann gæti talað ótruflað í símann
sinn þar. Síðan hélt parið á brott án
þess að borga reikninginn.
Jackson kominn
á fætur á ný
Söngvarinn Michael Jackson er bú-
inn að jafna sig eftir að hafa þurft að
yfirgefa sviðið á tónleikum í
Múnchen í vikunni. Popparinn var
fluttur á sjúkrahús og voru alls kyns
sögur í gangi um orsök þess. Orðróm-
ur var á kreiki um að hann hefði
fengið taugaáfall, hjartakveisu eða
brennst af flugeldum. Nú er hann
hress á ný og sendi ljósmyndurum í
Beverly Hills dónalega kveðju.
Catherine Zeta-Jones :
Berbrjósta í
faðmi Douglas
Kvikmyndadísin Catherine
Zeta-Jones viðurkennir í viðtali
við tímaritið Hello að hún sé í
mjög sérstöku vináttusambandi
við Michael Douglas. Það væri
reyndar erfltt fyrir kynbombuna
að neita því að sambandið sé sér-
stakt vegna nýtekinna mynda af
henni þar sem hún hvílir ber-
brjósta í faðmi Douglas.
„Hann er þannig persónuleiki
að það er gaman að vera með hon-
um,“ segir Catherine í viðtalinu.
„Hann hefur veitt mér mikinn
stuðning þegar ég hef þarfnast
þess. Hann er sjarmerandi og mik-
ill sjéntilmaður," greinir
Catherine frá.
Myndin af Catherine og Douglas
í faðmlögum var tekin við hús
hans á Mallorca. Catherine segir
að þau hafi kynnst á kvikmynda-
hátíð í fyrra og síðan hafi þau ver-
ið í sambandi hvort við annað.
Catherine leikur á móti
hjartaknúsaranum Sean Connery í
myndinni Entrapment og er fullyrt
að það hafi neistað á milli þeirra
við tökur myndarinnar.
Þeir sem þykjast þekkja til í
kvikmyndabransanum fullyrða að
þó að Catherine sé nú orðin fræg
muni samband hennar við Dou-
glas frekar auka frægð hennar og
frama heldur en afrekin á hvíta
tjaldinu.
Ekki er langt síðan haft var
eftir Catherine að hún hefði ekki
tima til að eiga fastan kærasta.
Ætti hún kærasta vildi hún fara
með honum í rúmið sex sinnum í
viku og til þess hefði hún ekki
tíma aflögu.
Catherine Zeta-Jones og Michael Douglas eru í sérstöku sambandi
Símamynd Reuter
DiCaprio kjörinn
sem Hughes
Leonardo DiCaprio verður ef til
vill í hlutverki iðnjöfursins Howards
Hughes í væntanlegri mynd um
hann. Ævisöguritarinn Charles
Higham, sem segist hafa fundið
sannanir fyrir því að Hughes hafi
verið samkynhneigður, er á þeirri
skoðun að DiCaprio sé kjörinn í
hlutverkið. Hughes hafi verið
barnalegur á ýmsan hátt og
upptekinn af sjálfum sér. Hann hafi
einnig verið verndaður og
Lífi blásið í
Ofurmanninn
Handritahöfundurinn Bill Wisher
vill að Nicolas Cage verði sá sem
skreyti sig með stóru S-i á brjóstinu
í nýrri mynd um Ofurmanninn.
Hún hefur verið í bígerð um stund.
Sjálfur hefur Cage mikinn áhuga á
að leika hetjuna fljúgandi. Wisher
og Cage vonast því báðir til að
verðandi leikstjóri myndarinnar
hafi ekkert á móti því að hann taki
við af Christopher Reeve.
Langur laugardagur í miðborginni
Langur laugardagur 3. júlí nk.
Nú eru kaupmenn á Laugaveginum
á fullri ferð við að undirbúa laugardag-
inn en þá er langur laugardagur og
búðir opnar til kl. 17.
Félagar úr Harmoníkufélagi Reykja-
víkur verða út um allt á Laugavegin-
um og spila fyrir gesti og gangandi og
bjóða landsmönnum upp í dans. Sér-
staklega eru eldri borgarar boðnir vel-
komnir í bæinn til að stiga dansinn við
dynjandi harmoníkuleik og sýna yngri
kynslóðinni hvemig sporin era tekin.
Línudansarar, með Jóhann Öm í
broddi fylkingar, verða með kántri-
stemningu fyrir utan Kjörgarð frá kl.
14-15.30.
Andlitsteiknarinn Tómas Pinto
verður á svæðinu og verður hægt að fá
andlitsmyndir af fjölskyldumeðlimum
gegn vægu gjaldi. Að auki verður frí
andlitsmálun fyrir börnin frá kl. 13 fyr-
ir framan Landsbanka íslands, Lauga-
vegi 77.
Ævar skóburstari verður á ferli og
burstar skó í boði verslana - ekki ama-
legt að nýta sér það fyrir þá sem
hyggja á dansleikjaferð þegar kvölda
tekur.
Fyrir þá sem hugsa sér að skreppa
út fyrir borgarmörkin verður ferðafé-
lagið Útivist með kynningu í Útivistar-
búðinni.
Eins og sjá má er af nógu að taka á
Laugaveginum á laugardaginn en ýms-
ar verslanir eru líka byijaðar að rýma
fyrir haustvörum og verður þvi fjöldi
góðra tilboða í gangi, auk þess sem
margar verslanir eru að heQa útsölur.
Frítt er í öll bílastæðahús á laugar-
dögum en fritt í stöðu- og miðamæla
eftir kl. 14.
í miðborginni eru um 300 verslanir
og ótrúlegur fjöldi veitinga- og kaffi-
húsa.
BESTA BÓKIN umgetnað,
meðgöngu og feðingu
D,M.^ST0PP^
AÐ
*SSS**T
tSLf* ■
♦ Áreiðanleg, nútímaleg og
auðskilin bók um fæðingu
barns og umönnun áfyrsta
æviskeiði, * Fjallað er um
efnið bæði frá sjónarhóli
móóur og barns, • Ljósmyndir. ' \
teikningar, ómsjármyndir og
línurit
— samtals yfir 500 lítmyndir.
: í Qtóm hrntí
FORLAGIÐ
Laugavegi 18 • Stmi 515 2500 « Stðurnúla 7 » Stmi 510 250cT
ar:
1.150,-
1.650,-
kr. 2.150,-
kr. 2.950,-
ttu þess að gæða þér á safaríkum
úklingurinn og kryddið erokkarvörumerki.
ÍOUTHERN
FRIED á staðnum eða
CHICKEN tekið með heim
Við hliðina á Svörtu Pönnunni v/Tryggvagötu • s. 551 6480
Sj
'8