Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Qupperneq 29
I>v FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
29
Viðfangsefni Sigríðar Gísladóttur
eru karlmenn.
Óður til karlmanna
Sigríður Gísladóttir frá Bjamar-
fossi í Staðarsveit er með mál-
verkasýningu á Snæfellsnesi þessa
dagana og stendur hún tU 20.
ágúst. Sýningin er helguð Jóns-
messunóttinni og karlmönnunum í
lífi Sigríðar eins og hún segir sjálf.
Hún samanstendur af þrettán olíu-
málverkum, máluðum á striga.
Verkin eru hreyfiverk, vind- og
veðurverk, mitt á milli flugdreka
og fána, unnin með hreyfiolíum,
svo sem smurolíum, matarolíum
--------------og yfirleitt
Sýningar Þefrri
olíu
kemur hlutunum á hreyfingu. Sýn-
ingarstaðir eru á fimm afmörkuð-
um stöðum á girðingum við þjóð-
veginn í Staðarsveit á Snæfellsnesi
á 20 km löngum kafla.
Sigríður Gísladóttir útskrifaðist
úr málaradeild MHÍ 1993 og nam
eftir það sem gestanemi við Kun-
stakademiet i Ósló 1994 og Seminar
on Art, MHÍ og HÍ, ‘97 og ‘98, auk
annarra styttri námskeiða. Sigríð-
ur hefur haldið nokkrar einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum.
Þess má geta að Sigríður er nú að
halda þriðju útisýninguna á mál-
verkum. Sú fyrsta var í skógi við
Gardemoen í Noregi og í vetur var
málverkasýning fyrir Ríkissjón-
varpið undir berum himni.
Marta Guðrún Halldórsdóttir syngur
í Akureyrarkirkju.
Biblíusöngvar og sálmar
Þrettánda árið í röð er efnt til
sumartónleika í Akureyrarkirkju
og verða þeir fyrstu á sunnudaginn
kl. 17. Það er Marta Guðrún Hall-
dórsdóttir sópran og Kári Þormar
orgelleikari sem riða á vaðið i tón-
leikaröðinni. Á efhisskrá þeirra eru
meðal annars Bihlíusöngvar eftir
Dvorák sem séra Magnús Guð-
mundsson, prestur í Ólafsvík, og
Þórður Möller þýddu á íslensku,
sálmar úr kvæðabók séra Ólafs
Jónssonar frá Söndum, kirkjulög
við texta Hallgríms Péturssonar og
útsetningar Jóns Leifs. Einnig
verða flutt orgelverk eftir Pál ísólfs-
son og Widor.
Marta Guðrún Halldórsdóttir hef-
ur haldið einsöngstónleika og kom-
ið fram á tónlistarhátíðum víða, svo
sem á Bachfest í Múnchen, Listahá-
tíð í Reykjavík, Vorhátíðinni í Buda-
pest og verið
tíður gestur á
sumartónleik-
um í Skátholti.
Þá hefur Marta Guðrún sungið ein-
söng með Sinfóníuhljómsveit íslands,
Kammersveit Reykjavíkur og á Vín-
artónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands og sungið í óperum og
söngleikjum.
Kári Þormar lauk framhaldsnámi
í orgelleik í Þýskalandi og hefur
haldið fjölmarga tónleika, bæði
heima og erlendis, þar á meðal á
skandinavískri menningarhátíð í
Essen og alþjóðlegri tónleikaröð í
Múhlhausen í Þýskalandi. Hann
spilaði einnig í tónleikaröðinni
Sumarkvöld við orgelið í Hallgrims-
kirkju og hefur víða haldið tónleika
á íslandi. Kári starfar sem organisti
og kórstjóri við Kópavogskirkju.
Tónleikar
Hunang á Gauknum
I kvöld og annað kvöld ætlar vin-
sæla ballsveitin Hunang að vera
með comeback á höfuðborgarsvæð-
inu. Munu þeir félagar Jakob Jóns-
son, Karl Olgeirs, Ingólfur Sigurðs
og Hafsteinn Valgarðs lofa geðveiku
djammi á Gauki á Stöng og ættu
þeir að vera vandanum vaxnir enda
gamlir hundar í bransanum. Á
sunnudagskvöld mun svo Botnleðja
rokka feitt á Gauknum enda þjóðhá-
tíðardagur Kana í miklu uppáhaldi
hjá Hafnfirðingunum fjórum.
OFL á faraldsfæti
Hljómsveitin OFL frá Selfossi
verður á faraldsfæti um helgina.
Tveir nýir viðkomustaðir eru á
landakortinu sem hljómsveitin hefur
ekki spilað á fyrr en það eru Stykk-
ishólmur og Húsavík. í kvöld leikur
OFL á---------------------
1 Skemmtanir
hólmi en á
laugardag verður haldið norður fyr-
ir heiðar og spilað af ákafa á Hlöðu-
felli á Húsavík. Hljómsveitina skipa
Baldvin Árnason, Guðmundur Karl
Sigurdórsson, Helgi Valur Ásgeirs-
son, Leifur Viðarsson og Þórhallur
Reynir Stefánsson.
Gullöldin
Um helgina skemmta þeir Sven-
sen junior og Hallfunkel gestum
Gullaldarinnar til kl. 03:00. Það þarf
enginn að efast um stemninguna
þegar þessir heiðursmenn skemmta
og ekki eru afkomendumir af lak-
ara taginu.
Hljómsveitin Hunang leikur á höfuðborgarsvæðinu eftir nokkurt hlé.
Veðríð í dag
Víða þokubakk-
ar að næturlagi
Milli íslands og Noregs er 1003
mb lægð sem hreyfist austnorðaust-
ur. Um 1100 km suður í hafi er all-
víðáttumikil 990 mb lægð sem þok-
ast norðaustur. 1018 mb hæð er yfir
Grænlandi.
í dag verður hæg breytileg átt eða
hafgola. Víða þokubakkar að nætur-
lagi við ströndina en annars létt-
skýjað víðast hvar. Hiti 10 til 19 stig
að deginum, hlýjast i innsveitum.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
hæg breytileg átt eða hafgola. Þoka
að næturlagi, en yfirleitt léttskýjað
að deginum. Hiti 9 til 15 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.56
Sólarupprás á morgun: 03.08
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.49
Árdegisflóð á morgun: 09.11
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri
Bergsstaöir
Bolungarvík
Egilsstaöir
Kirkjubœjarkl.
Keflavíkurflv.
Raufarhöfn
Reykjavík
Stórhöföi
Bergen
Helsinki
Kaupmhöfn
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Þrándheimur
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Halifax
Frankfurt
Hamborg
Jan Mayen
London
Lúxemborg
Mallorca
Montreal
Narssarssuaq
New York
Orlando
París
Róm
Vín
Washington
Winnipeg
hálfskýjaö 6
hálfskýjaö 6
léttskýjaö 9
8
þoka í grennd 9
þoka 9
skýjaö 6
þoka 9
súld 7
rign. á síö. kls. 11
hálfskýjaó 22
rign. á síó. kls. 15
rign. á síö. kls. 13
16
alskýjað 9
skýjaö 14
rign. á síö. kls. 17
léttskýjaö 21
skúr á síö. kls. 17
léttskýjaö 21
skýjaó 15
þokumóöa 16
skýjaö 17
þokumóöa 16
þoka í grennd 6
þoka á síð. kls. 14
þoka 14
skýjaö 20
þoka 22
léttskýjaó 8
skýjaö 24
hálfskýjaö 22
skýjaö 16
þokumóöa 22
léttskýjaö 21
hálfskýjaö 23
heióskírt 10
Hálendisvegir
að opnast
Góð færð er víðast hvar á landinu.Hálendisvegir eru
nú að opnast hver af öðrum. Nú er til að mynda orðið
fært um Fjallabaksleið nyrðri, í Lakagíga, um Kjalveg,
í Kverkfjöll og Þríhymingsleið, einnig er fært í Dreka-
gil við Öskju.
_________Færð á vegum______________
Víða á vegum er verið að leggja bundið slitlag og eru
vegfarendur sérstaklega beðnir um að virða merkingar
um lækkaðan umferðarhraða á vinnusvæðum vegna
hættu á skemmdum á bílum og vegum.
Út vikuna verður Grafningsvegur nr. 360 lokaður í
Sigríðarkleif.
Viljar Hansen
Litli drengurinn á
myndinni, sem fengið hef-
ur nafnið Viljar Hansen,
fæddist á fæðingardeild
Landspítalans 22. apríl
síðastliðinn. Við fæðingu
Barn dagsins
var hann 2863 grömm og
48 sentímetrar. Viljar var
skírður á sjómannadag-
inn, 6. júní, af sr. Hjálm-
ari Jónssyni. Foreldrar
hans em Brynja Eir
Thorsdóttir og Evald
Ægir Hansen og er hann
fyrsta bam þeirra.
Jackie Chan teflir á tæpasta vaö.
Hver er ég?
Laugarásbíó sýnir nýjustu
kvikmynd Jackies Chans, Who
Am I? í myndinni leikur Chan
einn í málaliðaflokki sem rænir
þremur vísindamönnum. I rimmu
sem fylgir í kjölfarið eru félagar
Jackies allir drepnir og hann sjálf-
ur fellur út úr þyrlu sem hann
reynir að forða sér í. Hann rotast
í fallinu og þegar innfæddir,
sem hafa náð hon-
um á sitt vald, /////////
Kvikmyndir
-^jl
spyrja hvað hann
heiti svarar hann Who
Am I? þar sem hann er búinn að
missa minnið. Þeir innfæddu
halda að þetta sé nafn hans og
kalla hann Who Am I? Smátt og
smátt fær Jackie minnið og ákveð-
ur að reyna að grafast fyrir um af-
drif vísindamannanna og þeirra
sem sviku hann og félaga hans.
Nýjar myndir f kvikmyndahúsum:
Bíóhöllin: Matrix
Saga-Bíó: Entrapment
Bíóborgin: Lolita
Háskólabió: Perdita Durango
Háskólabíó: Celebrity
Kringlubíó: lOThings I Hate
about Her
Laugarásbíó: Austin Powers
Regnboginn: She's All That
Stjörnubió: Cruel Intentions
Krossgátan
1 2 3 4 5 6 7
8 9
10 11
12 13 14
15 16 17 18 j
19 20 21
22
Lárétt: 1 finnast, 6 leit, 8 annars, 9
tunga, 10 kátir, 12 nudd, 13 tuddi, 15
hljóða,17 tangi, 19 guðs, 20 fersk, 22
vondan.
Lóðrétt: 1 þjónustustúlka, 2 hita, 3
hávaða, 4 alltaf, 5 leiði, 6 grömu, 7
virðingar, 11 hlífði, 14 svara, 16
gljúfur, 18 aftur, 19 belti, 21 bogi.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lóðrétt: 1 árátta, 7 hel, 7 óart, 10
Elín, 11 rís, 13 il, 14 kakan, 16 trafali,
19 sælar, 21 æð, 22 þrá, 23 rass.
Lóðrétt: 1 áheits, 2 rell, 3 álíka, 4
tón, 5 aría, 6 at, 9 arkar, 12 sniðs, 15
afar, 17 rær, 18 læs, 20 lá.
Gengið
Almennt gengi LÍ 02. 07. 1999 kl. 9.15
Eininn Kaup Sala Tollgenqi
Dollar 74,520 74,900 74,320
Pund 117,330 117,930 117,600
Kan. dollar 50,660 50,980 50,740
Dönsk kr. 10,2580 10,3150 10,3860
Norsk kr 9,4530 9,5050 9,4890
Sænsk kr. 8,7660 8,8150 8,8190
Fi. mark 12,8278 12,9049 12,9856
Fra. franki 11,6274 11,6972 11,7704
Belg.franki 1,8907 1,9021 1,9139
Sviss. franki 47,5000 47,7600 48,2800
Holl. gyllini 34,6100 34,8180 35,0359
Þýskt mark 38,9965 39,2308 39,4763
ít. lira 0,039390 0,03963 0,039870
Aust. sch. 5,5428 5,5761 5,6110
Port. escudo 0,3804 0,3827 0,3851
Spá. peseti 0,4584 0,4611 0,4640
Jap. yen 0,615400 0,61910 0,613200
írskt pund 96,843 97,425 98,035
SDR 99,250000 99,85000 99,470000
ECU 76,2700 76,7300 77,2100
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270