Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999
11
Fréttir
Hanze Poulsen kominn í land úr síðasta síldartúrnum. DV-mynd gk.
Fjórir dæmdir fyrir smygl á 4 þúsund lítrum af áfengi:
10,5 milljóna
króna sekt
Fjórir menn úr Reykjavík og
Kópavogi voru í síðustu viku
dæmdir til að greiða samtals 10,5
milljónir króna í sekt til ríkissjóðs
fyrir að hafa staðið að smygli á
rúmum 4000 lítrum af vodka og
gini til landsins í gámi síðastliðið
sumar. Þrír mannanna, eigendur
góssins, voru dæmdir í 3ja mánaða
skilorðsbundið fangelsi. Málið var
talið stórfellt, um sexfait að um-
fangi miðað við Goðafosssmyglið
(700 lítrar) á seinni hluta síðasta
vetrar.
Eigendumir þrír keyptu áfengið
í Bandaríkjunum og smíðuðu átta
trékassa utan um það áður en góss-
ið var sent til íslands frá Boston. Á
farmbréf gámsins voru skráð hús-
gögn og notuð fiskvinnsluvél.
Babb í bátinn í Boston
Eftir að skip það sem gáminn
flutti kom frá Bandaríkjunum
fylgdist lögreglan náið með, enda
hafði hún fengið upplýsingar um
smyglið frá „einhverjum starfs-
mönnum Eimskipafélags íslands",
eins og segir i dóminum eftir ein-
um sakbominganna.
Reyndar höfðu þremenningamir
komist á snoðir um „lekann",
stöðvað upphaflega sendingu með
skipi Samskipa, einn þeirra selt
innihald þriggja trékassa ytra og
beðið síðan með að senda fimm
kassa en þá með einu af skipum
Eimskipafélagsins.
Gámurinn var síðan fluttur til
landsins frá Boston, skipað í land i
Sundahöfn og hann fluttur yflr á
starfssvæði Samskipa þar. Þegar
toliverðir og lögregla opnuðu gám-
inn komu húsgögn í Ijós en fyrir
innan voru trékassarnir fimm,
fullir af vodka og gini í 1,75 lítra
plastflöskum. Áfengið var tekið en
trékössunum og húsgögnunum
komið fyrir aftur í gáminum, hon-
um lokað og reynt að ganga þannig
frá innsiglinu að ekki væri hægt
að sjá að búið væri að fara inn í
gáminn.
Samskipamaðurinn átti
að fá 60 kassa
Lögreglan hafði síðan eftirlit
með gáminum. Eigendurnir höfðu
fengið fjórða manninn með sér, þá-
verandi verkstjóra hjá Samskip-
um, til að færa gáminn. Er hann
var opnaður gripu þeir í tómt -
áfengið var farið. Þeir fjarlægðu
engu að síður trékassana úr hon-
um og settu fiskvinnsluvél inn -
vél sem þeir höfðu leigt húsnæði á
Eldshöfða til að geyma i áður en
gámurinn kom til landsins.
Eigendurnir þrír voru handtekn-
ir fljótlega en Samskipamaðurinn
nokkru síðar. Við yfirheyrslur
kom fram að sá síðastnefndi átti að
fá 60 kassa af áfengi fyrir greiðann.
Dómurinn taldi brot fjórmenn-
inganna sönnuð. Fangelsisrefsing-
arnar eru skilorðsbundnar þar
sem sakaferill þremenninganna
sem þær hlutu var ekki talinn hafa
áhrif á brot þeirra nú. Greiði þeir
ekki hver sina 3 milljónir (tveir
menn) og 3,5 milljónir (einn mað-
ur) í sekt innan 4ra vikna frá
dómsuppkvaðningu er þeim gerð
vararefsing upp á 6-7 mánaða fang-
elsi. Samstarfsmaður mannanna í
landi fékk 1 milljón króna í sekt og
3ja mánaða vararefsingu verði hún
ekki greidd innan 4ra vikna. Sigur-
jóna Sigurðardóttir, settur héraðs-
dómari, kvað upp dóminn. -Ótt
Síldarvertíð lokið:
Færeyingur í leit að
ævintýrum á íslandi
DV, Þórshöfn:
„Ég kom hingað til íslands fyrir
nokkrum árum; það var atvinnu-
leysi heima í Færeyjum svo ég dreif
mig bara hingað. Ég er hálfgerður
ævintýi'amaöur," sagði Færeying-
urinn Hanze Poulsen, skipverji á
nótaskipinu Neptúnusi ÞH sem gert
er út frá Þórshöfn á Langanesi.
DV hitti hann á Þórshöfn fyrir
nokkrum dögum en þá var verið að
landa síðasta sildarfarminum á
vertíðinni að þessu sinni. „Við
fengum 1000 tonn í þessum túr, fína
síld. Við vorum „andskoti" langt í
burtu, 300 mílur frá íslandi, og túr-
inn tók alls fimm daga. Nú er síld-
in búin og þá tekur loðnan við,“
sagði Hanze.
Hann hefur stundað sjómennsku
á íslenskum skipum í nokkurn
tíma. „Fyrst var ég á Hágangi 2
sem m.a. gerði það gott í Smugunni
á sínum tíma,“ segir Hanze og
hlær. „Svo var ég á Júlla Dan og
loks fór ég á Neptúnus. Þetta er fint
líf og ég kann vel við þessa vinnu,“
sagði færeyski ævintýramaðurinn.
-gk
Tilkynning
frá utanríkisráðuneytinu
Utanríkisráðuneytið býður íyrirtækjum, samtökum, stofnunum
og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra íslands þegar þeir
em staddir hérlendis til þess að ræða hagsmunamál sín erlendis,
viðskiptamöguleika og önnur málefni þar sem
utanríkisþjónustan getur orðið að liði.
Kristinn F. Ámason, sendiherra íslands í Noregi, verður
til viðtals í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 12. ágúst nk.
kl. 9-12 eða eftir nánara samkomulagi.
Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Króatíu, Makedóníu,
Póllands, Slóvakíu og Tékklands.
Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar
ísíma 560 9900.
Jajyaa'jíi-it oy BílháíiJMþ^pSSp
ihírðáo ooyy - wm ■ suiwrii
Opið virka daga kl. 9 - 18 og lauejardaga kl//l2
Verð írá 40.000.- til 4.000.000
Lánamoguleigar til allt að S ára
Tokum notaða bíla upp í notaða