Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 36
 irmingstölurlaugardaginn: 03. 07.’9^3g£ÍÍ3 Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð 1. 5 af 5 0 2.912.700 2. 4af S+I® 1 306.990 3. 4 af 5 52 9.180 4. 3 af 5 1.904 580 ..jgjfei - i V -r i 'í Jókertölur vikunnar: 9 2 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Kópavogur: Ragnar Róbertsson lét Kit Kat-jeppann vaða í þverhnípt stálið í 6. braut DV Sport-torfærunnar sem fram fór við Akrafjall á laugardaginn. Þrátt fyrir fífldjarfa tilraun tókst Róbert ekki að komast upp brautina og valt niður brekkuna. Allt um torfæruna á bls. 27. DVmynd JAK Kennarasambandið fær Qölbreyttari mál á borðið: Sex skólastjór- ar hafa fokið - foreldrar hika ekki við að kæra ákvarðanir Slegist um lóðir „Ég vona að ég sé ekki að grobba *T)f mikið þegar ég segi að við í Kópa- vogi erum með puttann á púlsinum og vitum hvernig hann slær, enda streymir fólkið hingað," sagði Birg- ir Sigurðsson, skipulagsstjóri Kópa- vogsbæjar, í samtali við DV, en frestur til þess að sækja um lóðir fyrir 400 íbúðir sem auglýstar voru til umsóknar hjá Kópavogsbæ rann út á fimmtudaginn. Mikill atgangur var þessa 10 daga sem umsóknar- frestur stóð og má gera ráð fyrir því að um 20-25 manns séu að berjast um hverja lóð. Að sögn Birgis muna elstu menn ekki svo margar um- sóknir og það þakkar hann m.a. góðu skipulagi bæjarins. „Við höf- um hin síðari ár verið heppin með •áíýtingu á svæðum og færri hafa fengið en vildu. Þetta sýnir að Kópa- vogur er spennandi sveitarfélag i mikilli sókn.“ Næstu daga verður unnið úr um- sóknum en mikill fjöldi þeirra setur vitaskuld strik í reikninginn. -þhs Demantssíld: Kvótinn er - búinn hjá okkur - segir ráðherra „Kvótinn er bú- inn,“ sagði Ámi M. Mathiesen sjávar- útvegsráðherra í gærkvöld þegar DV bar undir hann óá- nægju þeirra sem horfa á Norðmenn nú veiða stóra demantssíld, upp- lagða til söltunar, úr norsk-íslenska -^íldarstofhinum. Kvóti íslendinga, sem var 202 þús- und tonn, er hins vegar uppveiddur og aflinn sem barst á land var að stærst- um hluta bræðslusíld. Árni sagði að vertíðin í ár væri sú fyrsta sem íslendingum tækist að ná öllum úthlutuðum kvóta en yfirleitt hefur síldin ekki veiðst eftir sjó- mannadaginn þannig að nú væru uppi nýjar aðstæður sem menn áttu ekki von á. Hugsanlega þurfl að taka tillit til þessara nýju aðstæðna næst þegar fyrirkomulag veiða verður ákveðið. „Við byggjum okkar aðgerð- ir á þeirri reynslu sem við höfum af því að veiða þessa síld og hegðan hennar núna bætist þá í þann 't'eynslusarp næst,“ sagði sjávarút- vegsráðherra. -SÁ „Hingað berast miklu fleiri kvart- anir vegna alvarlegri mála en áður. Foreldrar hika' ekki við að kæra ákvarðanir. Það er þessi mikla ná- lægð. Svo koma inn mál vegna ógn- ana og ofbeldis af hálfu nemenda. Nýmæli er að gripið sé til þess ráðs að reyna losna við skólastjórann. Að minnsta kosti sex skólastjórar hafa verið látnir fjúka frá því 1996 þegar grunnskólinn var færður undir sveitarfélögin. í einhverjum tilfell- um hefur maður það á tilfinning- unni að menn hafi beðið eftir flutn- ingnum og síðan notað fyrsta tæki- færi sem gafst.“ Þetta sagði Guðrún Ebba Ólafs- dóttir, varaformaður Kennarasam- bands íslands, um þá þróun sem orð- ið hefur á eðli mála sem borist hafa til sambandsins á seinni árum. Guðrún Ebba kvaðst alls ekki vera að tala gegn flutningnum sem slíkum. Hann hefði verið af hinu góða og haft marg gott í fór með sér. „Én fyrir hann var búið að lofa öll- um svo miklu. Það var búið að lofa sveitarfélögum því að nú fengju þau aukið vald yfir kennurum. Það var búið að lofa foreldrum að nú hefðu þeir miklu meira um skólann að segja heldur en þeir hafa lögum sam- kvæmt. Foreldraráð hafa umsagnar- rétt um skólanámskrána en eru ekki hluti af stjórnkerfi skólanna. Laun kennara áttu að rjúka upp og menn að sýna meiri skilning o.s.frv. Það er alltaf hættulegt þegar menn lofa meiru en þeir geta staðið við. Stóru loforðin hafa spillt einna mest fyr- ir.“ Guðrún Ebba benti á að fræðslu- skrifstofurnar hefðu átt sér stoð í grunnskólalögunum sem liður í stjómkerfinu milli ráðuneytis og skólanna. Nú segði ekkert í lögum að fræðsluskrifstofa ætti að vera til staðar. Skólaskrifstofur veittu nú ákveðna þjónustu en hefðu ekkert vald yfir skólunum. Þetta hefði í för með sér visst óöryggi. -JSS Banaslys við Eiðar Banaslys varð þegar Volvo-vöm- bifreið fór út af við Borgarfjarðar- veg, rétt sunnan við Eiðar. Bifreiðin var á leið til Egilsstaða þegar slysið varð. Ökumaðurinn, sem kominn var á sjötugsaldur, lést samstundis. Að sögn lögreglu er málið enn i rannsókn en líkur bentu til þess að sprungið hefði dekk á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. -EIS Höfuðborgarsvæðið: Umferðarteppa Mikil og þung umferð var til höfuð- borgarinnar í gær eftir ferðalög lands- manna viða um landið. Fyrsta helgin í júlí er orðin næstmesta ferðahelgi ársins á eftir verslunarmannahelg- inni. Vora Reykjavíkurbúar margir hverjir fastir í umferð í nokkra klukkutíma. Tók meira en tvær klukkustundir að aka frá HvalQarðar- göngunum og til Reykjavíkur þegar umferðin var sem mest. Að sögn lög- reglu gekk umferðin þó að mestu leyti áfallalaust. -EIS Fljótavík: Bjarg hrundi á barn Ung stúlka slasaðist þegar steinn hrundi á hana. Málsatvik voru þau að nokkrir krakkar voru að leik í grjót- brekku þegar grjót hrundi. Öllum krökkunum nema stúlkunni tókst að forða sér undan steinunum. Steinninn sem valt á stúlkuna var um 70-80 kíló, að sögn fóður hennar. Var hún flutt með þyrlu á Sjúkrahús Reykjavíkur. Komið með stúlkuna til Reykjavíkur. DV-mynd S Þyrlan var um það bO fjóra tíma að ná í stúlkuna og koma henni á Sjúkrahús Reykjavíkur. Fyrstur á vettvang var lögreglumaður frá ísafirði en hann flaug frá ísafirði yfir til Fljótavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lækni á vakt voru meiðsli stúlkunnar ekki eins alvarlegt og virtist í fyrstu. Að sögn læknisins er stúlkan talsvert marin og með heilahristing en betur fór en á horfðist. -EIS Arni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra. Veðrið á morgun: Hæg breytileg átt Hæg, breytileg átt verður á landinu og víða léttskýjað. Hiti verður 8 til 16 stig. Veðrið í dag er á bls. 45. Pantið í tíma 25 da^ar í Þjóðhátíð ú FLUGFÉLAG ÍSLANDS 570 3030

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.