Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 16
16 enmng MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999 DV 7’ 'S ~7P o X—Sa eP—S, /Js/-S c/-S, Það er eins með myndlistarmenn og aðrar starfs- stéttir að verksvið þeirra tekur sí- felldum breyting- um í tímans rás. Einhvern tíma hef- ur gott orðspor sjálfsagt dugað best til þess að koma sér á fram- færi og útvega sér verkefni. Tíminn fann síðar þráðinn og valdi inn á spjöld listasögunn- ar. í dag þurfa listamennirnir sjálfir hins vegar að vera færir um að leggja mat á verk sín og greina samhengið í eigin ferli. Regla númer eitt er að eiga ávallt handbærar upplýs- ingar um sjálfan sig og sín verk. Ótrúlegur tími fer i þessa skrásetn- ingu, að fjölfalda myndir og útbúa möppur handa sýn- ingarstjórum, út- hlutunarnefndum eða hugsanlegum kaup- endum. Hvort þetta er slæm þróun veit ég ekki né heldur hvemig þetta byrjaði en a.m.k. á mappan sér ákveðna hliðstæðu í ferðagalleríi Marcels Duchamps frá 4. áratug aldarinnar. Þótt Gallerí 18 (Ingólfsstræti 8) sé ekki stórt um sig hefur Hreini Friðfinnssyni tek- ist að setja þar upp yfirlitssýningu yfir eigin feril. Á svipaðan hátt og Marcel Duchamp kom kópíum af öllum sínum markverðustu verkum fyrir í sinni haganlegu tösku fleytir Hreinn rjómann af hugmyndum sínum og vísar til verka frá ýmsum skeiðum sem hann metur væntanlega sem sin bestu tímabil. Hann hefur þannig fundið nýtt og frjósamt sjónarhom á þetta fyrirbæri, yfirlitssýning- una. í stað þess að sækja verkin í geymsluna býr Hreinn til ný verk úr þeim gömlu eða hugsunin er. Eg nefni köngurlóarvef- ina sem hann hefur fangað á vinnustofu sinni og rammað inn milli tveggja glerja. Einhvern tíma heyrði ég hann segja að þetta væri það eina sem hefði gerst á vinnustofu hans það árið. Einfaldast væri að álykta að listamaðurinn væri útbranninn enda ör- vænta flestir þegar árangurinn sést ekki á stundinni. Það þarf bæði yfírvegun og staðfestu til að horfast í augu við að fátt hafi gerst áþreif- anlegt. En hvernig mælir maður það sem ger- ist á vinnustofu lista- mannsins? Það er ekki svo einfalt, t.d. hefur þessi næstum því ósýnilegi vefur með þessum lítilláta inngangi í sér fólgna svo djúpa speki að seint verður hægt að koma orðum að henni. Þessa speki má í raun sjá í öllum verkum Hreins og hún hefur dálítið austurlenskt yf- irbragð, lotningu fyrir hinu smáa í alheimin- um og æðruleysið gagnvart dægurþrasi og umbrotum samtímans. Þvi hvernig sem allt veltist eða virðist standa í stað í veröldinni vindur tímanum fram með sínum náttúr- lega hraða og við setjum þar engan punkt, hvorki aftan við eigin verk, vef köngurlóar- innar né annað. Mér er nær að kalla það nautn að skoða verk Hreins Friðfinnssonar. Þau em af þeim toga sem ég vil leyfa mér að kalla myndlist í sinni hreinustu mynd, nefnilega heimspeki sem orkar á skynjunina, beint og orðalaust. Það þarf enga sérstaka þekkingu til að skilja hana, engan tillærðan orðaforða eða skil- greiningar, ekkert nema opinn huga og ein- hverja lífsreynslu. Hreinn Friðfinnsson - Sungames (myndhluti), litljósmynd, 1999. leyfir þeim e.t.v. öllu heldur að halda áfram að þróast. Myndlist Áslaug Thorlacius Það sem ekki er Ásýnd hlutanna skiptir ekki höfuðmáli í verkum Hreins Friðfinnssonar heldur and- inn og hugsunin enda snúast þau gjarnan um eitthvað loftkennt og ósnertanlegt eins og ljósið, vindinn eða það sem ekki er. Þau hafa samt til að bera alveg einstakan þokka og fegurð vegna þess hve einfold og'tær Myndaveisla í Málmey „Þau geta ýmislegt í Malmö sem við ráð- um ekki við hér í Kaupmannahöfn," skrifaði Politiken í vor þegar Tony Oursler sýndi í Malmö Konsthall, þungavigtarmaður í víd- eólistinni. „Þar er sett upp hver dúndursýn- ingin á fætur annarri með listamönnum á heimsmælikvarða, og svo er ókeypis inn.“ íslendingshjartað sló örar við að lesa þessa lýsingu því eins og alþjóð veit er það íslendingur sem stýrir Malmö Konsthall um þessar mundir, fyrrverandi forstöðumaður Listasafns íslands, Bera Nordal. Önnur sýning i sama sal var til umræðu hérna megin sunds í vor sem leið á ljós- myndum Dirks Reinartz frá útrýmingarbúð- um nasista sem hann tók á árunum 1987-1993. Umræður um hana fléttuðust sam- an við þrefið um kvikmyndina Lífið er dá- samlegt eftir Roberto Benigni og sýndist sitt hverjum. Ef til vill er mest um vert að halda áfram að tala um þennan svarta blett á evr- ópskri sögu frá öllum hliðum og sjónarhorn- um; hann gleymist þá ekki á meðan. Kannski eiga ekki margir landar beint er- indi til Malmö í sumarleyfinu sínu en þeim fjölmörgu sem leggja leið sína til Kaup- mannahafnar skal bent á að það tekur aðeins 45 þægilegar mínútur að skreppa með ferj- unni frá Nýhöfninni yfir í Málmeyjarhöfn og þaðan er þægilegur gangur um miðborg Malmö að listasafninu. Þeir sem hafa áhuga á húsum og manngerðu umhverfi yflrleitt geta skemmt sér á leiðinni við að íhuga mun- inn á smekk og stíl Skánverja og Hafnarbúa sem að ári sameinast með mikilli brú í eina Eyrarsundsborg. Sprelllifandi samtímamenn Sumarsýning Malmö Konsthall er á verk- um í eigu safnsins - eða í eigu íbúa Malmö eins og vandlega er tekið fram í sýningar- skrá. Á henni em eingöngu nútímalistaverk héðan og þaðan úr heiminum (engin sænsk) og uppistaðan er listaverkagjöf sænska list- málarans Jules Schyl og Karin konu hans frá 1983. Gjöfinni fylgdu þau skilyrði að hún skyldi aukin og safninu haldið við með kaup- um á erlendum listaverkum sem helst ættu að benda fram í tímann, vera framúrstefnu- list. Safnið á nú um 140 verk en á sýningunni er aðeins tæplega helmingur þeirra. Hugmyndin að sýna þessi verk um ferða- mannatímann er ekki galin því erlendir gest- ir í borginni hafa gaman af að gá hvaða land- ar þeirra eiga verk þar. Og fólk frá Evrópu, Bandaríkjunum og Japan leitar ekki árang- urslaust. Meðal rúmlega flmm- tíu listamanna sem eiga verk á sýningunni má nefna Per Kirkeby frá Danmörku, Imi Knoebel frá Þýskalandi, Mil- orad Krstic frá Júgóslavíu, Son- iu Delauney ffá Rússlandi (og Frakklandi), Guillermo Paneque frá Spáni, Leon Taraschewicz frá Póllandi, Henri Michaux frá Belgíu, Arnulf Rainer frá Austurríki, Matti Kujasalo frá Finnlandi, Olav Christopher Jenssen frá Noregi, Cindy Sherman, Ric- hard Serra og Andres Serrano frá Bandaríkjunum og okkur til sérstaks yndis eiga tveir ís- lenskir listamenn þar skemmti- leg verk, Hreinn Friðfinnsson og Jón Óskar. Örfáir eru listamennirnir fæddir á öldinni sem leið, lang- flestir eru sprelllifandi sam- tímamenn okkar, þeir yngstu á fertugsaldri. Sýningin er spennandi og gef- andi en ef einhverjum gesti skyldi samt sem áður leiðast allur þessi nútími getur sá hinn sami dund- að sér í sérstökum miðbás í hinu stórkost- lega rými (sem sagt er að sé stærsti listsýn- ingarsalur Evrópu, sel það ekki dýrar en ég keypti) við að skoða málverk gefandans sjálfs, Jules Schyls. Þau eru mjög sæt og minna á marga (dálítið eldri) samtímamenn hans í Frakklandi og Þýskalandi. Schyl 1. Malmö Konsthall, S:t Johannesgat- an 7, Malmö, til 5. sept. Opið alla daga kl. 11-17, miðvikud. til kl. 22. -SA Tríó Reykjavíkur hiýtur við- urkenningu úr Sverrissjóði Hjónin Sverrir Magnússon lyfsali og Ingi- björg Sigurjónsdóttir, kona hans, voru frum- kvöðlar að stofnun Hafnarborgar, menningar- og listastofhunar Hafnarfjarðar. Minningarsjóð- m- um þau var stofnaður árið 1993 í þeim til- ■ Umsjón Aðalsteinn Ingólfsson gangi að veita táknrænar viðurkenningar fyrir !;;; framlag til menningar og lista í Hafnarflrði. Ný- verið vom þessar viðurkenningar veittar í flmmta sinn og féllu þau í skaut Tríói Reykja- víkur sem skipulagt hefm- árlegar tónleikaraðir í Hafnarborg frá 1990. Tríó Reykjavíkur skipa þau Guðný Guðmundsdóttir flðluleikari, Gunn- ar Kvaran sellóleikari og Peter Máté píanóleik- ari en sá síðastnefhdi tók við af Halldóri Har- aldssyni árið 1996. Viðurkenningarnar í ár voru skálar eftir Ein- ar Guðvarðarson myndhöggvara sem hér sést ásamt Guðnýju, Gunnari og Haildóri. Peter . Máté var erlendis þegar myndin var tekin. Aðrir græða á Bertel Gestir Thorvaldsenssafns í Kaupmannahöfn í sumar fá sérstakan bónus ef þeir kíkja í kjallara safnsins. Þar hefur verið komiö fyrir völdum ■ . klassískum listaverkum úr Den I Hirschprungske Samling sem er lokað i sumar vegna viðgerða. Verkimum er stillt upp í pömm og þau látin vaipa nýju ljósi hvert á annað - sem oft tekst prýðilega (sjá mynd). Myndir Thorvaldsens sjátfs eru alltaf jafnsæt- ar en ekki gerist mikið í safninu hans milli ára. Á fomsölum í Kaupmannahöfn er hægt að fá rándýrar eftirmyndir af styttunum hans en á safninu sjálfu er úrvalið hlægilegt. Skýring starfsfólks er sú að safnið viðurkenni ekki nema einstaka fyrirtæki sem búa til þessar eft- irmyndir og geti ekki haft framleiðslu tO sölu frá öðrum en þeim sem samþykktir hafa verið af stjóm safnsins. Á meðan græða aðrir á Ber- i tel... Jón Helgason endurútgefinn Þeir em fleiri en umsjónarmaður sem beðið hafa endurútgáfu á ljóðabók Jóns Helgasonar, Úr landsuóri, sem lengi hefur verið ófáanleg á íslenskum bóka- markaði, og helst samantekt- ar á „samlede værker“ eftir hann. í tOefni af því að eitthund- rað ár era liðin frá fæðingu Jóns (á mynd), hefm Mál og menning einmitt ráðist í stíka endurút- gáfu og aukið við hana af ýms- um tækifæris- og gamankvæðum skáldsins frá æsku- og eOiárum hans, sem margur hefur fýst að sjá á prenti. Kristján Árnason, skáld og bók- menntafræðingur, ritar fróðlegan eftirmála að þessari bók, þar sem hann ræðn- bæði um frum- samin verk Jóns og þýðmgar. Þama er meðal annars ljóðið firæga sem Jón orti eftir að hafa komið við á Ólympíuleikunum í Berhn 1936; „Undir blaktandi fánum og herlúórum hvellum oggjöllum / sig hópaöi þjóóanna safn, / þangaö fór og af íslandi flokkur af keppendum snjöllum / og fékk á sig töluvert nafn: / í þeirri íþrótt aó komast aftur úr öllum / var enginn í heimi þeim jafn.“ m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.