Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 30
42
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999
Afmæli
Hilmar K. Björgvinsson
Hilmar Kristján Björgvinsson,
, íögmaður og forstjóri Innheimtu-
stofnunar sveitarfélaga, er sextug-
ur í dag.
Starfsferill
Hilmar gekk í Menntaskólann í
Reykjavík og varð stúdent þaðan
1960. Hann er cand. phil. 1961 frá
Háskóla íslands og útskrifaðist lög-
fræðingur 10. júní 1968. Eftir það
fór hann á námskeið í almanna-
tryggingum og lögfræði á Norður-
löndunum og á Bretlandi en hann
varð héraðsdómslögmaður árið
1975.
Hilmar var framkvæmdastjóri
veitingahússins Kiúbbsins hf. í
Reykjavík á árunum 1967-70. Hann
rak eigin málflutnings- og fasteigna-
stofu i Reykjavík á árunum 1970-78.
Hann var skipaður deildarstjóri og
yfirlögfræðingur lífeyristrygginga-
deildar Tryggingastofnunar rikisins
8. júní 1978 frá 1. júlí sama ár til árs-
ins 1998 en þá var hann ráðinn for-
stjóri Innheimtustofnunar sveitarfé-
laga og gegnir því starfi nú. Hann
hefur stundað almenn lögfræðistörf
og málflutning meðfram aðalstarfi
sínu.
Hilmar var í stjórn Orators
1965-67 og fulltrúi lagadeildar í
Stúdentaráði Háskóla íslands 1967.
Hann var í stjóm Varðbergs, félags
ungra áhugamanna um vestræna
samvinnu, 1965-68 og formaður fé-
lagsins 1967-68. Hilmar var í stjóm
Sjálfstæðisfélags Kópavogs 1975-77
og aftur 1985-86, þá sem formaður
félagsins. Hann sat i stjórn Sjúkra-
samlags Kópavogs 1978-89 og for-
maður þess á árunum 1986-90. Enn
fremur var hann í stjórn Trygginga-
eftirlits ríkisins um skeið og í fé-
lagsmálaráði Kópavogs árin
1982-90. Hann var í ferlinefnd
Kópavogs 1986-90 og í stjóm Heilsu-
gæslustöðvar Kópavogs frá 1. ágúst
1990. Þá var hann í framtalsnefnd
Kópavogs frá ágústmánuði 1990.
Hilmar var skipaður í afgreiðslu-
nefnd um þátttöku almannatrygg-
inga í bifreiðakaupum fatlaðra frá
septembermánuði 1987. Hann var
kjörinn fyrsti formaður Hjallasókn-
ar í Kópavogi 25. maí 1987.
Hilmar hefur ritað ýmsar greinar
um almannatryggingar í Almanna-
tryggingum, riti Tryggingastofnun-
ar ríkisins.
Þá hefur Hilmari hlotnast viður-
kenningin minningarpeningur
NATO (Vingt Ans de Paix) á 20 ára
afmæli þess árið 1969.
Fjölskylda
Hilmar giftist Rannveigu Har-
aldsdóttur, f. 25.6. 1933, símaverði á
Alþingi, þann 8. júní 1968. Hún er
dóttir Haralds Jónassonar, f. 6.8.
1885, d. 22.12.1954, prests og prófasts
á Kolfreyjustað í Fáskrúðsfjarðar-
hreppi, S-Múlasýslu, og seinni konu
hans, Guðrúnar Valborgar Haralds-
dóttur, f. 5.12.1901, d. 20.9.1990, hús-
freyju.
Synir Hilmars og Rannveigar em:
Bjöm Stefán, f. 11.2. 1969, bifreiða-
stjóri, kvæntur Laufeyju Fjólu Her-
mannsdóttur, f. 6.12. 1970, og eiga
þau tvö böm, Stefán Dan, f. 11.12.
1993, og Rannveigu Maríu, f. 2.7.
1996; Valdimar Héðinn, f. 9.7. 1971,
bakari og einn eigandi Gæðabakst-
urs ehf. í Kópavogi. Stjúpsonur
Hilmars og sonur Rannveigar fyrir
hjónaband þeirra er Haraldur Ara-
son, f. 26.10. 1961, tölvunarfræðing-
ur hjá Lifeyrissjóði verslunar-
manna í Reykjavík. Maki hans er
Helen Hreiðarsdóttir, f. 5.12. 1959,
húsfreyja og eiga þau þrjá syni, Haf-
stein, f. 8.2. 1983, Hilmar Birgi, f.
12.7. 1988, og Hlyn, f. 29.2.1992.
Systkini Hilmars eru Bima, f. 6.7.
1941, húsfreyja í Reykjavík, Friðrik,
f. 5.5. 1945, meðferðarfulltrúi Kópa-
vogi, Sigurbjörg, f. 1.9.1951, flug-
freyja í Reykjavík og sammæðra
hálfsystir, Maria Bergmann, f. 12.9.
1934, MGA í Reykjavík.
Foreldrar Hilmars eru Björgvin
Frederiksen, f. 22.9. 1914, vélvirkja-
meistari og borgarfulltrúi í Reykja-
vík, og Hallfríður Bjömsdóttir, f.
24.3. 1916, d. 21.9. 1994, búsett í
Reykjavík. Björgvin er sonur Aage
Martins Christians Frederiksens
vélstjóra og Margrétar Halldórsdótt-
ur en foreldrar Hallfríðar vom
Björn Friðriksson tollvörður og
Ólöf María Sigvaldadóttir húsfreyja.
Hilmar og Rannveig verða í
Skagafirði á afmælisdaginn.
Hermann Ólafur Guðnason
Hermann Ólafur Guðnason, yfir-
verkstjóri á Vélamiðstöð Reykjavík-
urborgar, Skálagerði 3, Reykjavík,
er sjötugur í dag.
Starfsferill
Hermann fæddist á Vopnaflrði og
ólst þar upp. Hann fluttist til
Reykjavíkur 1941 og hefur búið þar
síðan. Hann lauk sveinsprófl í bif-
vélavirkjun frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1956 og öðlaöist meistara-
réttindi 1959. Hermann vann hjá
Ræsi hf. árin 1945-57, var verkstjóri
þar 1965-73 og var yflrverkstjóri frá
1973.
Hermann lék handknattleik með
Val, bæði í yngri flokkunum og í
meistaraflokki. Hann var þjálfari í
handknattleik kvenna um árabil. Þá
hefur Hermann starfað í Sjálfstæðis-
flokknum og setið í fulltrúaráði
flokksins í fjölmörg ár og starfað í
Óskum eftir að ráða vélamenn og bílstjóra í vinnu !
við Sultartanga-virkjun. Upplýsingar gefur Árni
Baldursson í símum
8970091 og 8534012. XSn^VK^1
Tæknimenn óskast til starfa
Byggingafræðingur eða verkfræðingur óskast til starfa hjá
nýlega stofnuðu fyrirtæki sem ætlar að sérhæfa sig í gerð
eignaskiptayfírlýsingar og veita almenna tækniráðgjöf fyrir
húseigendur er varðar viðhald, breytingar og fl. Þurfa að hafa
lög-gildingu íyrir eignaskiptasamningagerð og áritun teikninga
til Byggingamefndar Reykjavíkur, reynslu í gerð útboðsgagna
og fleira tengt viðhaldsframkvæmdum.
Hæfniskröfur.
• Góð tölvukunnátta nauðsynleg.
• Skipulagshæfni og nákvæmni.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Gott vald á enskri tungu er nauðsynlegt, kunnátta í þýsku
og einu Norðurlandamáli er æskileg.
Vinsamlegast sendið inn skriflega umsókn með mynd fyrir
8. júlí 1999. Umsóknareyðublöð afhent á skrifstofu félagsins
að Ármúla 21. Nánari upplýsingar á skrifstofu gefur Guðjón
Pálsson milli klukkan 13 og 16.
Eignaskipti 1 Ráðgjöf ehf
Almenn tækniþjónusta fyrir húseigendur
Ármúla 21 108 Reykjaík sfml: 588 6944 / Fax: 588 6945
Oddfellowreglunni
keli mána.
Fjölskylda
Hermann kvæntist
25.12. 1954, Elsu B. Níels-
dóttur, f. 2.4. 1930, mat-
ráðskonu frá Þingeyrar-
seli í Austur-Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hennar
eru Halldóra Guðrún
Ivarsdóttir og Níels Haf-
stein Sveinsson, bændur á
Þingeyrum og Þingeyrar-
seli í V-Húnavatnssýslu
og á Ytri-Kóngsbakka í Helgafells-
sveit, Snæf.
Böm Hermanns og Elsu eru: Ólöf
Dóra, f. 23.5. 1951, iðjuþjálfi í Kópa-
vogi, börn hennar eru Sara Dögg og
Óskar Freyr; Ragnhildur Guðný, f.
13.4. 1954, tækniteiknari og nemi,
búsett í Kópavogi, maki hennar er
Hjörtur Pálsson byggingafræðingur.
Bam þeirra er Hermann Jakob en
sonur Hjartar er Birgir Páll; Erlend-
ur Níels, f. 31.5. 1956, byggingafræð-
ingur, búsettur í Hafnarfirði, maki
hans er Anna María Grétarsdóttir
tækniteiknari, dætur þeirra eru
Kristín Elsa og Berglind Bima; Jó-
hamn Gísli, f. 15.1. 1961, bílasmiður,
búsettur i Reykjavík, maki hans er
Kristín Björg Óskarsdóttir nemi,
dóttir þeirra er Halldóra Rut en
böm Kristínar eru Dagbjört María
og Óskar Kristófer; Erla Ósk, f.
10.12. 1967, gjaldkeri, búsett í
Reykjavík, maki hennar er Gunnar
Gottskálksson vélfræðingur en dæt-
ur þeirra eru Elsa María og Elva
Björg.
Systkini Hermanns em Lára, f.
14.3. 1935, húsmóðir á Vopnafirði,
maki hennar er Ásgrímur Kristjáns-
son; Davið Sigurjón, f. 27.8. 1938,
húsasmiður, búsettur í Reykjavík;
Eincir, f. 3.3. 1945, matreiðslumaður
og þjónn, búsettur í Danmörku,
maki Helga Kristmundsdóttir;
Sveinn, f. 6.10. 1952, gullsmiður, bú-
settur í Danmörku, maki Ólöf Hall-
dórsdóttir.
Faðir Hermanns var Guðni Er-
lendur Sigurjónsson, f. 12.11. 1909 á
Vopnafirði, d. 1981, leigubílstjóri og
ökukennari, og Ragnhildur Davíðs-
dóttir, f. 9.9. 1909 á Vopnafirði, d.
4.12. 1985, húsfreyja.
Gunnlaugsson, f. 8.3.
1823 í Bláfeldi, Staðar-
sveit, bóndi að Vatns-
holti, Staðarsveit, Snæf.
Kona hans var Ólöf
Birgitta Sveinsdóttir, f.
1875, húsfreyja. Foreldr-
ar Sigurjóns vora Gunn-
laugur Þorkelsson, bóndi
i Vatnsholti, Staðar-
sveit, og Guðrún Sigurð-
ardóttir, húsfreyja. For-
eldrar Ólafar Birgittu
vora Sveinn Valdimars-
son, bóndi í Krossavík, í
Vopnafirði og Anna Sig-
ríður Guðnadóttir húsfreyja.
Móðir Hermanns var Ragnheiður
Davíðsdóttir. Foreldrar hennar
voru Davíð Ólafsson, f. 1.6. 1872, d.
23.11. 1947, útvegsbóndi á Kambi,
Hamri og Einarsstöðum í Vopna-
firði, og Herdís Benediktsdóttir, f.
27.5. 1870 að Brannum í Suðursveit.
Herdís var systir Stefáns, föður
Ragnars í Skaftafelli og Benedikts,
föður Stefáns Benediktssonar, fyrrv.
þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli, og
einnig var hún systir Þórdísar,
ömmu Ingimars Ingimarssonar,
prests á Þórshöfn, og langömmu
Arnars Jónssonar leikara.
Sömuleiðis var hún systir
Guðnýjar, ömmu Einars Braga,
rithöfundar.
Foreldrar Davíös Ólafssonar vora
Ólafur Sigurðsson, bóndi og
söðlasmiður að Krossi á Beru-
fjarðarströnd og Björg Davíðsdóttir,
húsfreyja.
Faðir Herdísar var Benedikt
Einarsson, bóndi á Brunnum í
Suðursveit. Hann var bróðir Guð-
nýjar, ömmu Þórbergs Þórðar-
sonar. Sömuleiðis var hann bróðir
Steinunnar, ömmu Svavars Guðna-
sonar listmálara og Steins Stefáns-
sonar, föður Heimis Steinssonar.
Móðir Herdísar var Ragnhildur
Þorsteinsdóttir, en seinni maður
henníu- var Þórður Arason frá
Reynivöllum.
Hermann og Elsa taka á móti
gestum föstudaginn 9. júlí milli kl.
17 og 20 í Valsheimilinu að
Hlíðarenda. Þau óska eftir að sem
flestir ættingjar, vinnufélagar, vin-
ir, kunningjar og aðrir vandamenn
sjái sér fært að mæta og fagna
afmæli og starfslokum Hermanns.
Hermann Ólafur
Guðnason.
Ætt
Foreldrar Guðna vora Sigurjón
Til hamingju
með afmælið
5. júlí
85 ára
Oddgeir Pétursson,
Kirkjuvegi 11, Keflavík.
80 ára
Jón Jósteinsson,
Grundargerði 14, Reykjavík.
75 ára
Járngerður Einarsdóttir,
Hjaltabakka 10, Reykjavík.
Kristín Pálsdóttir,
Brekkugötu 5, Ólafsfirði.
Ragnar Jóhann Lárusson,
Borgarholtsbraut 45,
Kópavogi.
60 ára
Ágúst Magnússon,
Fossheiði 22, Selfossi.
Birgir Rútur Pálsson,
Furuhlíð 11, Hafnarfirði.
Helgi Jónsson,
Ásvegi ll, Dalvík.
Kristján Egilsson,
Bröttugötu 15,
Vestmannaeyjum.
50 ára
Guðjón Ámason,
Króktúni 5, Hvolsvelli.
Jónas Hallgrímsson,
Esjuvöllum 1, Akranesi.
Ólöf G. Kristjánsdóttir,
Hólsgerði 4, Akureyri.
Ólöf HaUdórsdóttir,
Bergholti 9, Mosfellsbæ.
Sigríður G.
Sigurlaugsdóttir,
Arkarlæk, Borgarf.
Sigrún Hauksdóttir,
Ölduslóð 48, Hafharfirði.
Stefanía Einarsdóttir,
Áshlíð 2, Akureyri.
Sæmundur Sigurjónsson,
Blómsturvöllum 44,
Neskaupstað.
Þorbjörg Svanbergsdóttir,
Þórunnargötu 9, Borgamesi.
Þórarinn Gunnlaugsson,
Háagerði 11, Húsavík.
40 ára
Bjöm Vigfússon,
Vallarási 5, Reykjavík.
Guðrún Þóra Guðnadóttir,
Fögrahlíð 13, Eskifirði.
Helga Jóhanna Karlsdóttir,
Lyngbrekku 19, Kópavogi.
Ólafur Ólafsson,
Hvassaleiti 14, Reykjavík.
Ragna Þóra Karlsdóttir,
Vitabraut 6, Hólmavík.
Sesselja Dröfn Tómasdóttir,
Lautasmára 53, Kópavogi.
Sólveig H. Halldórsdóttir,
Hafnarbraut 18, Hólmavík.
Sveinn Árnason,
Baðsvöllum 10, Grindavík.
Valdimar Öm Flygering,
Drápuhlíð 6, Reykjavík.
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
►V
550 5000