Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999 Spurningin Lesendur Hver er uppáhalds- matur þinn? Katla Gísladóttir 12 ára: Pitsa. Stefanía Jóhannsdóttir fram- reiðslunemi: Humar i hvítlauks- sósu. Elín Jóhannsdóttir afgreiðslu- kona: Rauðvínslambalæri. Brynjólfur Nikuiásson múrari: Skata. Bryndís Brynjólfsdóttir 12 ára: Pylsur. Birgir Helgason, vinnur í Heimskringlunni: Svínakótelettur. Friðrik kostar okk- ur hálfan milljarð - afdankaðir stjórnmálamenn eru óhæfir í vinnu í fyrirtækjunum Hryllingssögur af heim- sendum sjúklingum Jónas Sveinsson skrifar: Stjómmálamenn kvarta oft yfir því að enginn vilji ráða þá í vinnu þegar þeir detta út úr pólitíkinni. Nú var stjórnmálamaðurin Friðrik Sophusson ráðinn til Landsvirkjun- ar og hvað gerðist? Jú, hann neitaði að taka lægsta tilboði í virkjanir án nokkurs rökstuðnings. Afleiðingarnar eru þær að við skattborgarar fáum 500 milljóna aukareikning frá stjómmálamann- inum Friðriki Sophussyni. Enn fremur munu útlendingar verða tregir framvegis við að bjóða í verk Landsvirkjunar. Þýðir nokkuð að bjóða gegn einkavinum stjómmála- manna hér á landi? Ég bara spyr. Stjórnmálamaðurinn Friðrik Sophusson verður okkur því dýr, bæði í bráð og lengd (og er þá ekki verið að tala um núverandi lífeyris- greiðslur hans). Nú vita stjórnmála- menn hvers vegna einkageirinn vill ekki ráða stjórnmálamenn í vinnu. Ég er þeirrar skoðunar að sumir þeirra séu spilltir. Þeir halda enga samninga né heldur almennar um- gengnisreglur frekar en Friðrik Sophusson. Virkjanaframkvæmdir kosta skattgreiðendur mikið fé. Framkvæmdirnar eru alþjóðlegs eðlis og bréfritari óttast að útlend fyrirtæki verði treg tii að bjóða í framkvæmdir hér eftir að hagstæðu kínversku tilboði var hafnað. Sigrún Reynisdóttir hringdi: Það hefur hringt í mig fullt af fólki eftir að DV sagði frá þörfinni fyrir samtök fyrir vanrækta sjúk- linga. Það er ekk- ert lítið sem DV hefur að segja en ég viðurkenni að sigrún Reynis- ég hélt að ástandið dóttir berstfyrir væri ekki svona stofnun sam- slæmt. Nú verða taka vanræktra samtökin stofnuð, sjúkiinga það er ákveðið. Kona ein lenti í því að keyrt var á hana á gangbraut, hún þeyttist 6 metra og var öll brotin og brömluð. Hún var send heim eftir tvo daga ósjálfbjarga eftir svona hrottalegt bílslys. Maður á niræðisaldri hringdi í mig og sagði mér að hann væri með konuna sína fárveika heima. Hann væri enginn maður til að veita henni umönnun. Gamli maðurinn sagði að fram undir þetta hefðu þau hjón ekki þurft á sjúkrahússdvöl að halda né öðru úr heilbrigðiskerfmu. En þá gerist það að þau eigi engin réttindi eftir áratuga skattgreiðslur. Hann var nú klökkur gamli maöur- inn yfír ástandinu. Ein kona sem hringdi sagði frá því að amma hennar hefði dottið og meitt sig og var látin koma ósjálf- bjarga heim. Konan og maðurinn hennar urðu bæði að sleppa úr vinnu. Gamla konan gat ekki einu sinni farið óstudd á klósettið, hvað þá meira. Ég hef rætt við Jóhönnu Sigurð- ardóttir alþingismann um þetta mál og hún sýnir því skilning. Ég hef líka reynt að hafa samband við Ingi- björgu Pálmadóttur heilbrigðisráð- herra en ekki fengið að ræða vanda- málið við hana, enda þótt hún hafi lofað að hringja í mig. Hún á von- andi eftir að efna það. Vaknaðu, Halldór! Skarphéðinn Einarsson skrifar: Það er tími til kominn fyrir þig að rumska, Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra. Nú verða menn að opna augun til fulls. Fyrir kosn- ingar í vor lofaðir þú og flokkur þinn að veita milljarði til viðbótar til baráttunnar gegn flkniefnum. En þess í stað fréttist af stórfelld- um niðurskurði hjá Stuðlum sem þó er of lítið úrræði miðað við þá brýnu þörf sem er fyrir slíK heimili. Ég hef heimsótt þessa stofnun og séð það göfuga starf sem þar er innt af hendi. ég hef séð þörfina fyrir margföldun húsnæðisins. Ég endurtek það, vaknaðu Hall- dór, og stattu við stóru orðin, ella ertu maður að minni. Þú hlýtur að hafa heyrt neyðaróp unglinganna og aðstandenda þeirra. Það sem ÍU^I»Æi þjónusta allan sólarhringinn H H - eda hringið í síma 550 5000 milli kl. 14 og 16 Framsókn toknarflokkurinn víll róaatafn O mllljónum krörm til vlSfaótor itm nú or gort tll bordttunnar ffknlufnum. FnAMSOKHARFlOKKURIHH ® :-----\ —!5 ------------------- • t Istum talal Févana og fámenn lögregla. útsöluverO á dópi og lokun moðferðarpKssa í miðju góðairi: ópsalar glotta við getuleysinu okkur vantar eru alvöruúrræði fyr- ir þennan hóp ungmenna. Okkur vantar ekki Júmbóþotur með 400 hryðjuverkamenn innanborðs hing- að til lands til að berjast við tryllta umhverfissinna. Vandamál eitursins magnast. Eitrið er að lækka í verði. Tugir ungmenna ánetjast óþverranum og unglingavændi orðið eins og í stór- borgum heimsins. Samlíkingin úr auglýsingu Framsóknarflokksins er orðin sönn. 200 íslensk ungmenni eru í raun og veru týnd í hríðarbyl á fjöllum. Við verðum að sækja þau, Halldór. Islendingar eru guðleysingjar Sonja R. Haralds skrifar meðal annars þetta: Ég las f blaðagrein eftir Júlíus Valdimarsson um agaleysi íslenskra barna sem stafar af Mammonsdýrkun foreldra þeirra. Það er engin furða þótt illa sé komið því þessi kynslóð ólst upp án trúar á guð, án þæna um drottins náð, hjálp og vernd. Þetta leiðir svo til drykkjuskapar -og flkniefnanotkunar. íslendingar þykjast vera kristin þjóð en þeir eru upp til hópa guðleysingjar og sérstaklega á það við um valda- menn þjóðarinnar. Leiðarana í jólabók Vilhjálmur Alfreðsson, Reykja- vík, skrifar: „Menn eru famir að íhuga jóla- bækur ársins strax á þessum árs- tíma og jafnvel miklu fyrr. Hvem- ig "væri að ritstjóri DV, Jónas Kristjánsson, gæfi út jólabók með forystugreinum sem hann hefur skrifað í blaðið. Jónas segir mönnum til syndanna og brýtur málin til mergjar. Hvergi á Vest- urlöndum getur að líta skarpari penna, það fullyrði ég. Erna Hauksdóttir. Kona í karl- rembuveldinu Ferðaþjónustumaður benti á: Þegar talað er um fram- kvæmdastjóra fyrir Vinnuveit- endasamband íslands bendi ég á Ernu Hauksdóttur sem unnið hef- ur fyrir okkur sem rekum gisti- staði og veitingahús. Hún hefur góða menntun og það sem mikil- vægast er, hún hefur náð þeim merkilega árangri að sameina at- vinnugrein, hótel- og veitinga- húsageirann, sem er afar við- kvæm grein. Það er meira en mörgum hefur tekist, yfirleitt tekst karlrembunum aðeins að sundra, ekki sameina. Þeir í Garðastætinp ættu að skoða Ernu sem verðugasta kostinn. Hún er betri en Víglundur, Óli í Sand- gerði eða Þórarinn V. sem nú er horfinn á braut. Sjúklegur hugs- unarháttur Verslunarmaður í Kringlunni hringdi: Hvað var að gerast í Kringl- unni þegar átti að þvinga kaup- menn til að hafa opið allar helg- ar? Var verið að bjarga ein- hverju? Til dæmis Nýkaupi þar sem umferð er stöðugt minni? Hagkaupsmenn og Jón Karlsson kvótakaupmaður, aðaleigendur að gömlu Kringlunni, eru auðvit- að uggandi um sinn hag. Miklu stærri og flottari Kringlur eru að rísa á höfuðborgarsvæðinu og gróska er í verslun út um allt. En að láta sér detta í hug að múl- binda kaupmenn á bása sína alla daga vikunnar, það var fáránleg hugmynd. Enn verri hugsunar- háttur var að sekta þá sem ekki heföu opið um 1.500 krónur á hvem fermetra! Maður spyr. Er þetta ekki sjúklegt?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.