Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999 41 Myndasögur M Cfl (Ö Sh i-H i-H Ö) >H 3 co w •iH o 'Ö tí :0 W v<D u T3 ö Veiðivon Elliðaárnar hafa gefið 80 laxa og veiðimenn hafa séð mikið af fiski en hann hefur verið tregur að taka hjá þeim, hvort sem það hefur verið í Fossinum eða annars staðar í ánni. DV-mynd G. Bender Þverá í Borgarfiröi: Hefur gefið lang- flesta laxana Núna, þegar laxveiðin hefur stað- ið rúmlega mánuð í þeim ám sem veiðin hefur verið leyfð í, er staðan þannig að Þverá í Borgarfirði hefur gefið langbestu veiðina og stærsta laxinn enn þá. Við skulum aðeins kíkja á stöðuna. Þverá í Borgarfirði hefur gefið 660 laxa en næst kemur Norðurá í Borgarfirði með rúmlega 500 laxa og síðan Blanda með 430. Nokkuð langt þar fyrir neðan er Grimsá í Borgar- firði með 230 laxa, þá Laxá í Kjós með 220 laxa og Langá á Mýrum með 170. Víðidalsá í Húnvatnssýslu kemur þar á eftir með 150 laxa og svo Miöíjarðará með um 120. Þá koma Vatnsdalsá með rúmlega hundrað laxa, Rangárnar með 90 og Elliðaárnar með 80 laxa. Þetta eru efstu veiðiárnar þessa dagana og eins og staðan er núna er Þverá í Borgarfirði með örugga forystu, hvað lengi sem það verður. Vel hef- ur veiðst í henni og Kjarrá síðustu vikurnar. Smálaxinn hefur verið að koma í enn þá ríkari mæli. -> Svartá: Laxinn stóðst ekki Brynhildi „Þetta var ágætt, fyrsti laxinn veiddist á fluguna Brynhildi í Ár- mótahylnum, 10 punda fiskur. Bar- áttan við hann var hin besta skemmtun,“ sagði Oddur Hjaltason sem var að koma úr öðru hollinu í Umsjón Gunnar Bender Svartá í Húnavatnssýslu, en hollið veiddi 5 laxa. Laxamir vom frá 10 upp í 12 pund en opunarhollið í ánni veiddi engan fisk. „Við hætt- um við öðrum laxi á Brynhildi svo laxinn stóðst hana greinilega ekki. Það er mikið vatn í ánni og þetta var allt í lagi,“ sagði Oddur enn fremur. „Maður veit auðvitað ekki hvort Lax-á fær Miðfjarðará en ég vona það svo sannarlega, við buðum alla- ■ vega hátt,“ sagði Árni Baldursson í gærkvöld, en Árni og Lax-á, sem hefur alltaf verið talið sama fyrir- tækið, buðu langhæst í Miðfjarðará eða næstum 32 milljónir. „Við höf- um verið með mikið af útlendingum í Miðfirðinum og við höldum því vonandi áfram," sagði Ámi. Stangaveiðifélag Reykjavíkur bauð næsthest, eða 6 milljónum minna en Árni og Lax-á. Það hefur verið altalað núna lengi að Árni Baldursson og Torfi Ágeirsson, fyrmm umsjónarmaður Haukadalsár í Dölum, hafði boðið best í Haukadalsá. Svissneskir veiðimenn hafa haft ána í meira en 20 ár en hún er á lausu núna í , haust. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður, ömmu okkar og langömmu, Fríðu Þorgilsdóttur, áður Stigahlíð 32. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki og stjómendum á Elli- og hjúkrunarheimilinu Gmnd fyrir kærleiksríka ummönnun þau ár sem hún dvaldi þar. Auður Eydal, Sveinn R. Eyjólfsson og fjölskylda

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.