Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999 13 Fréttir Gamli Þór nú fljótandi hótel og veitingahús Arnar í skipherrastólnum í brúnni, en þar hafa margir þekktir menn setið í gegnum tfðina. DV-mynd gk DV, Akureyri: Við bryggju í Húsavíkurhöfn liggur nú eitt frægasta skip sem verið hefur í flota íslendinga. Það er gamli Þór, varðskipið fræga sem smíðað var árið 1951 og var lengi vel flaggskip Landhelgisgæslunnar. Þór kom við sögu í öllum þorska- stríðunum og var fyrsta gæsluskip- ið sem hingað kom. En hann var orðinn gamall blessaður og lítið virtist liggja fyrir honum annað en að fara í brotajárn þegar Arnar Sig- urðsson, athafnamaður á Húsavík, sá sér leik á borði. Hann sá mögu- leikann á að gera Þór að fljótandi veitingahúsi og hóteli, keypti skip- ið og sigldi því til Húsavíkur þar sem miklar endurbætur hafa farið fram á skipinu. Þar liggur það við bryggju undir nafninu Thor, en Gæslan hefur einkaleyfi á Þórs- nafninu og kæmi ekki á óvart að það nafn yrði einmitt notað á nýja skipið sem fara á að smíða fyrir Gæsluna. „Ég fylgdist vel með þegar verið var að taka Þór úr umferð og vissi sem sjómaður að þarna var um mjög merkilegt skip að ræða. Það lá ekkert annað fyrir en skipið yrði að brotajámi en minn vilji stóð alltaf til þess að varðveita skipið, en til að það mætti takast fjárhagslega varð um leið að vera í því einhver rekst- ur til að standa undir kostnaði," segir Arnar. Hann segist ekki hafa fengið eina einustu krónu í styrk við varðveislu skipsins og hið opinbera hafi sýnt málinu fullkomið áhugaleysi. Hann hefur þó haldið ótrauður áfram og skipið er að verða afar glæsilegt og skemmtilega innréttað. Þar verða 9 „klefar“ með 20 „kojum“, mjög skemmtilegur veitingasalur hefur verið tekinn í notkun þar sem „yfir- mannamessinn" var áður og for- setasvítan fræga er nú mjög huggu- leg setustofa og bar. Uppi í brú hefur hins vegar allt fengið að halda sér eins og það var þegar Eiríkur Kristófersson og fleiri frægir skipherrar Gæslunnar voru að eltast við landhelgisbrjóta í þorskastriðunum og brúin svo og vélarrúmið og fleiri staðir í skipinu eru opnir til skoðunar fyrir gesti. „Ég opnaði hér 12. júní og viðtökur hafa verið mjög góðar. Það er greinileg ánægja meðal þeirra sem hingað koma með það að fá að koma í þetta merkilega skip,“ segir Arnar. Hann segist verða með skipið í Húsavíkurhöfn til 15. september, en þá hafa bæjaryfirvöld gert honum að fara með skipið úr höfninni. Hvert Arnar fer með Thor er óráðið og eins hvort þetta sögufræga skip á þá afturkvæmt til Húsavíkur. -gk Beltavagnar ■ ■ Oflugir vinnuhestar með mikla burðargetu Sólgleraugu á húsið - bílinn Ekki bara glæsileikinn, einnig vellíðan, en aðalatxiðið er öryggið! Skagfirskur hestadagur: Landsþekkt hross til sýnis DV, Skagafirði: Svokallaður Skagfirskur hesta- dagur var í fyrsta sinn haldinn 26. júní sl. Dagurinn fólst i því að fimm ræktunarbú í héraðinu voru opin almenningi til skoðunar, það er Hól- ar, Vatnsleysa, Flugumýri, Miðsitja og Hafsteinsstaðir. Talsvert af fólki notfærði sér þessa nýbreytni og er vitað að nokkrir aðilar fóru á öll búin. Er talið að þessi fyrsti hesta- dagur hafi heppnast vel enda nokk- ur landsþekkt hross til sýnis. Er áformað að þetta verði árlegur við- burður hér eftir. „Við hjá Hrossaræktarsambandi Skagafjarðar erum nokkuð ánægðir með hvernig tii tókst. Markmiðið með þessu var að gefa fólki kost á að kynna sér ýmislegt varðandi ræktunina í héraðinu og mér heyrð- ist á aðkomufólki að það væri nokk- uð ánægt með þetta,“ sagði Bjarni Maronsson, formaður hrossarækt- arsambandsins. Bjami sagði að nokkrir tugir fólks hefðu komið á hvern bæ og sumir verið langt að komnir. Yflr- leitt vora skoðaðir graðhestar og ung hross sem eru í tamningu. Þá var hægt að ganga innan um hross ýmist í haganum eða gerðum og virða fyrir sér hryssur og folöld. „Við teljum að i Skagafirði sé að vissu leyti kjölfestan í hrossarækt í landinu og viljum með þessu halda okkar ræktunarstarfi á lofti og kynna það þannig bæði fyrir hesta- áhugafólki og hinum almenna ferða- manni,“ sagði Bjami Maronsson. -ÖÞ Á Hólum var verið að flytja fóstur- vísa milli hryssna. íbúð óskast Fjögurra manna fjölskylda nýkomin frá Bandaríkjunum úr námi. Óskar eftir 3-4 herbergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst. Vinsamlegast hafið samband við Jónu eða Magga í símum 564 3029/6952095. Hryssur á Hólabúinu með afkvæmi. DV-myndir Örn Lituð filma innan á gler tekur ca 2/3 af hita og 1/3 af glæru, upplitun. Við óhapp situr glerið í filmunni og því er minni hætta á að fólk skerist. Asetning meðhita - fagmenn Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770 XJrval - hefur þú lesið það nýlega? Austurstræti 20 Suðurlandsbraut 56 Aðeins í takmarkaðan tíma. Sjáumst sem fyrst! t Hinn eini sanni BigMa á ótrúlegu sumarverði! /V\ McDonaid's

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.